Tíminn - 08.01.1975, Qupperneq 15

Tíminn - 08.01.1975, Qupperneq 15
Miðvikudagur 8.' janúar 1975. TÍIVIINN 15 Mark Twain: Tumi gerist leyni- lögregla og hann væri á báðum áttum um það, hvað hann ætti að gera. En það var svo dimmt úti, að við gátum ekki séð hann greinilega. Eftir stutta stund gekk hann að girðing- unni, og um leið og hann klifraði yfir, gægðist tunglið fram undan skýi. Þá sáum við, að hann bar reku með löngu skafti á öxlinni, og við þekkt- um lika gömlu vinnutreyjuna. Þá sagði Tumi: „Hann gengur auðvitað i svefni. Bara að við gætum veitt honum eftirför og séð hvert hann fer. Sjáðu, nú fer hann einmitt i átt til tóbaksakursins —- Nú getum við ekki séð hann lengur. Skelfing er þetta leiðinlegt með hann Silas frænda, að hann skuli ekki geta sofið al- mennilega rólegur”. Við sátum langa stund og biðum þess, að hann kæmi aftur, en hann kom ekki, og ef hann kom, þá fór hann aðra leið. Að endingu vorum við orðnir svo þreyttir,að við skriðum i rúmið. En við sváfum óró- lega, og martröðin pindi okkur klukku- stundum saman. Við vorum vaknaðir aftur fyrir dag, þvi að nú hafði skollið á óveður. Það voru þrumur og eldingar og vindurinn hamaðisti trjánum og regnið fossaði úr loft- inu, svo að það var Höfðinglegar gjafir FUF Reykjavík Aöalfundur FUF I Reykjavik veröur haldinn 30. janúar næst- komandi. Tillögur um fulltrúa i fulltrúaráö skulu berast stjórn- inni fyrir 15. þessa mánaöar, að Rauöárstig 18, Reykjavik Stjórnin Frá Félagi framsóknarkvenna í Reykjavík Fundur um félagsmál verður n.k. fimmtudag 9. jan. kl. 21.00 að Rauöarárstig 18. Aðalfundur félagsins veröur 30. jan. n.k. að Hallveigarstöðum. Stjórnin. ÞANN 1. nóvember s.l. átti fyrir- tækið Einar Guðfinnsson h.f. i Bolungarvik 50 ára starfsafmæli. Af þvi tilefni bauð Einar Guð- finnsson öllum Bolvikingum til kaffidrykkju. Við það tækifæri afhentu þau hjónin, Einar og frú Elisabet, 7 liknar- og menningar- félögum á staðnum fjárgjafir — 150 þús. kr. hverju félagi. Félög þessi eru Kvenfélagið Brautin, Sjálfsbjörg, Skátafélagið Gagn- herjar, Kvennadeild Slysavarna- félagsins, Slysavarnadeildin Hjálp, Ungmennafélag Bolunga- vikur og Tónlistarfélag Bolungar- vikur. Tveir í lífshdska BH—Reykjavík — Sl. föstudag gerðist það á Húnaflóa, að tveir menn voru hætt komnir, er vélbátur, er þeir voru á, sökk skyndilega, Velktust mennirnir I sjónum i stundarfjóröung, áður en varðskipsmenn björguðu þeim. Var þá mjög dregið af öðrum manninum. Vélbáturinn Straumur HU-5 frá Hvammstanga, hafði skömmu fyrir áramót slitnað upp I roki og lent upp i f jöru en náðist út og var þéttur til bráðabirgða. Var varð- skiptið Albert á leiö með bátinn til Siglufjarðar, til viðgerðar, er hann sökk. 0 Leitað rétt að hefja leit þegar i dag. Við höfnina i Keflavik var múg- ur og margmenni saman komið til að fylgjast með leitinni að liki Geirfinns. Tiu kafarar tóku þátt i leitinni og var lengstum tima eytt i að leita við svonefnda Hafskipa- bryggju, en hún er aðeins spölkorn frá Hafnarbúðinni, þar sem Geirfinni var stefnt á sitt örlagarika stefnumót 19. nóv. sl. Aður en leit hófst við Haf- skipabryggjuna höfðu fjórir kaf- arar kannað gaumgæfilega tveggja ára gamalt skipsflak en án nokkurra visbendinga. Haukur Guðmundsson, rann- sóknarlögreglumaður i Keflavik sagði i viðtali við Timann I gær, að aðstandendur og ættingjar Geirfinns hefðu fyrst leitað að- stoðar hollenzka „sjáandans”, en siðan hefði lögreglan tekið þátt i þeirri málaleitan. Við spurðum Hauk hvort ekki hefði frekar verið talin ástæða til að leita til lögreglusérfræðinga erlendis frá, eins og t.d. Skotlands Yard, enda heföi slikt verið gert áður og það I umfangsminni mál- um. — Nei, okkur hefur ekki fundizt vera ástæða til þess. Það er álit manna, að ekki myndu hafa fengizt menn til að fást við svona smámál á þeirra mælikvarða, — enda þyrfti sá maður marga mánuði til að kynna sér aðstæöur allar. Tók Haukur þaö fram, að kostnaður við að leita til Hol- lendingsins væri enginn, þar sem hann tæki enga þóknun fyrir mál af þessu tagi. — Það var þvi eðlileg ráðstöfn- un hjá okkur, að minum dómi, að leita til þessa manns, þó ekki væri nema vegna aðstandenda. Hollendingurinn Gerard Crois- et hefur áður fengizt við lögreglu- mál og nokkur þeirra hefur hon- um tekizt að upplýsa. Það sætir hins vegar mikilli furðu, að hann skuli gefa blaðamönnum upp- lýsingar, áður en hann lætur lög- reglunni þær i té, — eins og málin standa núna, neitar hann öllu sliku og segist ekki minnast þess aö hafa talað við blaðamenn um þetta mál. Félög þessi vilja færa þeim hjónum, Einari og frú Elisabetu, kærar þakkir fyrir velvilja þann, sem þau hjónin hafa sýnt félags- málum Bolvikinga bæði fyrr og siðar, en þau hafa ávallt verið virkir þátttakendur i félagslifi i Bolungarvik og stutt félagsstarf- semi þar með ráðum og dáð. 0 AAótmæli meða að greiöa opinber gjöld hér á landi. Enn fremur er leyfið háð þeim skilyrðum, að ísafold landi afla sinum á þeim stöðum, þar sem minna er um landanir islenzkra skipa. Isafold er nýtt skip, sem fer á sina fyrstu vertið hér við land, ef af verður. Páll sagðist vita þess dæmi, að sænskir aðilar, sem eru með skip I smiðum, hefðu leitað eftir þvi að fá á þau Islenzkar áhafnir, og ef til vill hefðu þeir þá I huga möguleikana á þvi að fá leyfi fyrir þessi skip til þess að veiða hér við land. Væri illt til þess að vita aö erlend skip sem sigldu undir erlendu flaggi og gætu stundað veiðar heima fyrir, þegar það væri þeim hagstætt, gætu siðan komiö hingað til lands og tekið hér blómann úr ver- tiðinni við strendur landsins. Ef þessi skip ættu svo einnig að fá hlutdeild i sjóðum, sem islenzkir sjómenn væru aðilar að og sitja að öllu leyti viö sama borð og Islenzkir sjómenn, væri það al- gjörlega óviðunandi. Gæti þetta þá orðið til þess, aö islenzkir sjó- menn létu skrá skip sin erlendis, og færu út i aö haga veiðum sinum á þann hátt, sem hverju sinni væri þeim hagstæðast. Páll sagði enn fremur, að vitað væri, að Færeyingar hefðu sótt um veiðileyfi hér, en ekki fengið þau. Um loðnuvertiðina, sem fram- undan er, sagði Páll, að búast mætti við að á annað hundrað skip myndu taka þátt I henni, eða svipuð tala og i fyrra. Loðnuverð er enn ekki ákveðið, en hann sagði menn vona, að það yrði birt sem allra fyrst, þótt þvi væri ekki ætlað að gilda nema um skamman tlma I einu, svo vertið gæti hafizt. Leitarskipið Arni Friðriksson er komið austur og i þann veginn að hefja loðnuleit, en veöur hefur enn verið svo slæmt, að leit hefur ekki getað hafizt. Mosfellssveit Föstudaginn 16. jan. kl. 20.30. verður haldið glæsilegt skemmti- kvöld i Hlégarði I Mosfellssveit. Dagskrá Ólafur Jóhannesson flytur ávarp. Guðmundur Jónsson syngur einsöng. Karl Einars- son fer með gamanmál. Siðan verður spiluð framsóknarvist. Fyrsta kvöldið i þriggja kvölda keppni. Guðmundur G. Þórarinsson stjórnar. Góð kvöld- verðlaun. Heildarvinningur er glæsileg sólarferð til Kanarieyja með Sunnu. Allir velkomnir. Framsóknarfélag Kjósarsýslu og Mosfellssveitar. } Auglýsítf iTimanum I •••••••• ••—•••#♦♦•< Hér gefur að lita hinn nýja og glæsiiega farkost Þyrluflugs hf., en hann kom með Brúarfossi frá Banda- rikjunum á nýársdag, og mun nú vera tilbúinn að hefja flugferðir, aö sögn flugmannsins, Lúövlks Karis- sonar. Þyrla þessi tekur 11 farþega á skemmri leiðum, en t.d. til Akureyrar tekur hún 8 farþega. Flugþoi hennar er hálf fimmta kiukkustund og flughraðinn 150 km á klst. Timamynd: Gunnar.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.