Tíminn - 11.01.1975, Blaðsíða 2

Tíminn - 11.01.1975, Blaðsíða 2
2 TÍMINN Laugardagur 11. janúar 1975. Laugardagur 11. janúar 1975 Wl Vatnsberinn: Það er einhver andvigur fyrirætlunum þinum, einhver, sem skiptir þig máli, að likindum nákominn ættingi eða vinur, og þér er fyrir beztu að taka tillit til þess. Yfirleitt skaltu vera umburðarlyndur gagnvart öðrum i dag. Fiskarnir: Það kynni að brydda á f jölskylduágreiningi með morgninum. ÞU skalt ekki vera of fljótfær eða harðorðuri fyrirmælum, hvorki heima fyrir eða á vinnustað. Það kynni að hafa ófyrirsjáanlegar afleiðingar. Vinir gætu komið i heimsókn. Hrúturinn: Það litur út fyrir, að morgninum fylgi einhvers konar hættur, og þú ættir að fara varlega i samskiptum þinum við hvers konar vélar og áhöld. Ferðalög eru ekki heppileg i dag. Þú skalt brydda upp á nýjungum i kvöld. Nautið: Það gæti hæglega gerzt, að einhvers konar hættur eða hindranir létu á sér kræla með morgninum. Þú skalt hafa stjórn á tilfinningum þinum eftir megni og verkfæri skalt þú meðhöndla af varúð. Siðdegis ættir þú að bregða út af vananum. Tviburarnir: Samkeppnin er hörð, og það ættirðu eiginlega að vera farinn að gera þér ljóst. Þú kynnir að finna fyrir öfund, eða þá að þú æsir til hennar. Einhver skoðanamunur skýtur upp kollinum, sem erfitt reynist að jafna. örvandi félagsskapur er heppilegur i kvöld. Krabbinn: Það stoðar ekkert að vera að kvarta og kveina, og þú ættir alls ekki að eyða fyrri hluta dagsins i það. Ofþreyta kann að sækja að þér, og hún gæti verið bæði andleg og likamleg. Reyndu að bæta fyrir gamlar syndir- strax i dag. Ljónið: Það er alls ekki óliklegt, að einhver verði til þess að særa tilfinningar þinar i dag. Ef þú átt börn, skaltu ékki liða neinum óviðkomandi að hafa afskipti af þeim. Hins vegar skaltu hlusta á skoðanir kunningja og vina. Jómfrúin: Það litur út fyrir blikur á lofti fyrri hluta dagsins. Segðu ekki eða gerðu neitt ögrandi, eða það, sem sært gæti aðra. Það er aldrei að vita, nema þú gætir sleppt fram af þér beizlinu, þegar fer að liða á kvöldið. Vogin: Þú skalt vera á verði i umferðinni og ekki flýta þér neitt. Ef þú lætur ekki raska sálarró þinni er aldrei að vita, nema þú getir lært eitthvað af skoðunum annarra, sem vissulega gæti komið þér að gagni, ef þú vinzar úr. Drekinn: Þetta er svolitið einkennilegur dagur. Fyrir hádegið gætu risið upp deilur, og ekki óliklegt, að það sé vegna einhverra sameiginlegra eigna eða fjár. Þú ættir að lita i kringum þig og athuga, hvaða umbætur þú gætir gert á nánasta- umhverfinu. Bogmaðurinn: Þaö er hætt við þvi, að eitthvað eða einhver veröi til þess að reita þig til reiði þennan morguninn. Þú skalt þess vegna fara að öllu með gát og gæta þess aö missa ekki stjórn á skapi þinu. Þú kemur nefnilega til með að sjá eftir þvi. Steingeitin: Það er rétt eins og það liti út fyrir einhver leiðindi með morgninum, og ekki fjarri lagi, að hér sé um aö ræða deilur eða jafnvel óhöpp. En kvöldið er hins vegar huggulegt og vel fallið til umræðna um nýjungar, ferðalög og skipulag. 1 Auglýsitf I i____ í Tímanum: 11^ ^' imit m iwi iiimiiiiT ii fnimi1 Landfari: Hinn svokallaði „sjáandi” þeirra Hollendinga virðist ætla að vekja snarpar deilur hér- lendis, og er orsökin afskipti hans af Geirfinnsmálinu — eða öllu heldur sú staðreynd, að yfirvöld hér skyldu taka mark á þvi, sem hann hafði til málanna aðleggja. Þórður Jónsson hefur skrifað Landfara bréf um þetta. Á miðaldastigi ,,Á nitjándu öld var Ögmund- ur I Auraseli fenginn til þess að breyta vatnsfarvegum með særingum. Þá var sú glóra i kolli þeirra, sem réðu blöðum eða tímaritum i landinu, að skopazt að þessu tiltæki. Nú virðast öll hindurvitni teljast marktæk, rétt eins og við séum ný komin af miðaldastigi, og er það til dæmis sú trú, sem menn i ábyrgðarstöðum virðast hafa trú á einhverjum hollenzkum sjáanda, er jafnvel hefur verið leitað til vegna hvarfs Geirfinns I Keflavik, jafnvel þótt samtimis komi á daginn, að þessi ruglukollur veit ekki, hverja hann hefur talað við um málið (þvi að vafalaust hafa blaðamenn hjá Morgunblaðinu hringt til hans og rætt við hann, þótt hann þykist ekki minnast þess daginn eftir — liklegast, að hann viti ekki einu sinni, við hverja hann hefur talað). Aumur vitnisburður um islenzka dómgreind Þetta visna hálmstrá er sem sagt gripið tveim höndum og hafin upp á nýtt griðarmikil leit með fjölda kafara. Það er mál út af fyrir sig, hver borgar eiginlega þann kostnað, sem af þessu leiðir — liklega gerum við það, ég og þú, þvi að sennilega telst þetta kostnaður við lög- gæzlu við fógetaembættið i Keflavik. Hitt er þó að minu viti alvarlegra, hvað þessi viðbrögð segja um almenna dómgreind i landinu. Þessi trúardaufa þjóð, sem ekki fer i kirkju nema til þess að vera við útför eða fermingu, sem orðin er vanaat- höfn með veizlu og gjöfum á eftir, er svo trúarsterk, þegar spaugilegustu hégiljur eru annars vegar, að rokið er upp til handa og fóta til þess að hlaupa eftir þeim. Bókaútgáfan i landinu virðist lika bera með sér, að nálega sé sama, hvað borið er á borð fyrir fólk af þvi tagi — það rokselzt allt, jafnvel þeim mun fremur, sem það er f jarstæðukenndara. Þetta finnst mér aumur vitnisburður um stöðu heilbrigðrar skynsemi i landinu og almennrar upplýsingar i landinu, þrátt fyrir allt hið margþætta skólakerfi, og veitti ekki af, að upp risi nýr Magnús Stephensen, sem tuktaði okkur til og reyndi að sópa burtu ein- hverju af mistrinu, er virðist svo margan glepja um þessar mundir. En látum hér staðar numið. Ég vil aðeins Itreka, að nú gekk fram af mér, þegar farið er að hlaupa eftir grillum þessa Hol- lendings, fremur en leita að- stoðar erlendra sérfræðinga i lögreglumálum.” Ofboðslegar tölur R.E.vex i augum, hversu gifur- legum fjárhæðum happdrætti háskólans teflir fram, sem hæstu vinningsmöguleikum, og telur það ekki til neinnar hollustu I landi, þar sem happdrættishugarfar er næsta rikt. Hann segir: „Mér sýnist, að forráðamenn háskólahappdrættisins ýti undir vafasamar tilhneigingar i landinu með þvi að bjóða fram og auglýsinga vinninga, sem geta orðið hátt á annan milljónartug, að sagt er. I landinu er mikil peningagræðgi, og þorri manna virðist ekki eygja annað hnoss meira en að raka sem mestu saman með sem minnstri fyrirhöfn. Þessum hugsunarhætti fylgir ekki nein farsæld, enda hefur sýnt sig, að þetta sama fólk, sem mikið fær i sinn hlut á köfl- um, eys út með hinni hendinni sem mest það má. Vinningar, sem minna á það, hvernig spekúlerað er I spilafikn fólks i vanþróuðum löndum i Suður- Ameriku og viðar eru ekki til þess fallnir að leiða til neins góðs. Það er háskólanum ekki heldur til sóma að standa að sliku. . Ég vil leyfa mér að leggja til, að I háskólahappdrættinu verði framvegis fleiri meðalstórir vinningar, nokkur hundruð þúsunda, jafnvel milljón, en ekki að þvi stefnt, að ofboðsleg- ar fjárhæðir geti komið i hlut eins og sama manns”. Permobel 13LOSHI! Skipholti 35 ■ Simar: 8-13-50 verzlun ■ 8-13-51 verkstæði - 8-13-52 skrífstofa Kveikjuhlutir í flestar tegundir bíla og vinnuvéla frá Evrópu og Japan. HLOSSI^--------------- Skipholti 35 ■ Simar: 8-13-50 verzlun • 8-13-51 verkstæði • 8-13-52 skrifstofa Viðgerðir SAMVIRKI Tilboð óskast í nokkrar fólksbifreiðar er verða sýndar að Grensásvegi 9, þriðjudaginn 14. janúar kl. 12-3. Tilboðin verða opnuð á skrifstofu vorri kl. 5. Sala Varnarliðseigna. Vélamaður óskast Stórólfsvallabúið, graskögglaverksmiðja, óskar eftir að ráða mann til vélaviðhalds og vélgæzlu. Æskilegt að hann hafi járnsmiða eða bif- vélavirkjaréttindi eða sé vanur viðgerða- vinnu. Upplýsingar hjá Stórólfsvallabúinu i Hvolhreppi. Simi 99-5163. RÍKISSPÍTALARNIR lausar stöður KLEPPSSPÍTALINN: HJCKRUNARKONUR vantar nú þegar til starfa á deild 10 og Viðihlið. STARFSSTÚLKUR óskast nú þegar. Nánari upplýsingar veitir forstöðukona, simi 38160. Reykjavik, 10. janúar 1975. SKRIFSTOFA R í KISSPÍTALANN A EIRÍKSGÖTU 5,SÍM111765

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.