Tíminn - 11.01.1975, Blaðsíða 4

Tíminn - 11.01.1975, Blaðsíða 4
4 TÍMINN Laugardagur IX. janúar 1975. Akandi auglýsingar Amerikanar eru snjallir auglýsingamenn og vestra þýöir ekkert aö framleiöa góöa vöru nema aö auglýsa hana jafn- framt rækilega, og er þá gripiö tilýmissa ráöa, þvi auglýsingar veröa aö skera sig úr, annars hafa þær litiö gildi. Eigandi auglýsingastofu nokkurrar i Kaliforniu veitti þvi athygli, aö óvenjumargir Volkswagenbilar stóöu aö jafnaöi á bílastæöum há- skólanna, og dró af þvi þá rökréttu ályktun, aö háskóla- nemar ættu mikiö af þessari bilategund. Þá lá beinast viö aö notfæra sér stúdentana til aö auglýsa. Stúdentar eru aö jafnaöi blankir og slá ekki hendi á móti aukaskildingi, þegar hann er i boöi. Auglýsingastjórinn átti ekki i neinum erfiöleikum meö að ná sambandi við stúdenta, sem eiga Volkswagen og hann samdi viö þá um aö fá að skreyta farartæki þeirra meö auglýsingum, gegn hæfilegri þóknun. Eina skilyröiö, sem sett var, er aö stúdentarnir aki um á bilum sinum og láti þá standa á háskólalóðunum annaö slagiö. Það vekur traust, að þeir menntuðu skuli kaupa eða auglýsa tiltekna vöru. Á bilun- um eru auglýstar alls konar vörur, flugferöir, timarit og hvaöeina. A meöfylgjandi myndum eru akandi auglýsing- ar um ágæti Marantz hljóm- flutningstækja, sem eru islenzk- um blaðalesendum að góðu kunn siðan I auglýsinga- hryðjunni fyrir siðustu jól. Sunddrottningin var rök! Umferðalögreglan á Ven- tura-hraöbrautinni, um þaö bil 50 milur fyrir noröan Los Angeles, stöövaöi þar glæsilega bifreiö um klukkan 23.30 á aö- fangadagskvöld. Þeir gáfu öku- manni aö sök aö hann (hún) heföi ekiö of hratt, og einnig það, að bfllinn heföi veriö óstöðugur á veginum og rásaö á milli akreina. Þaö var hin glæsi- legasta kona við stýrið, og tók hún aðfinnslum lögreglunnar vel og baöst afsökunar á þvi, aö hún heföi ekið of greitt og brosti sinu fræga brosi. Þessi kona var Esther Williams, fyrrverandi sunddrottning og kvikmynda- leikkona. En það var „engin miskunn hjá Magnúsi” — lög- reglan fór með hana I áfengis- próf, en frúin stóðst það ekki nógu vel. Eiginmaöur hennar, leikarinn Fernando Lamas, — en hann var farþegi hjá konu sinni — varð að greiða 300 doll- ara sekt og þá var þeim sleppt, en billinn kyrrsettur. Esther Williams var mikil iþróttakona á yngri árum, og neytti þá aldrei áfengis og þóttii gömlum aðdáendum hennar frá þeim dögum leiöinlegt að lesa þessa frásögn I blööunum, en auðvitaö var þessu slegið upp sem stór- frétt, þvi aö i Bandarlkjunum hefur frægt fólk litinn friö meö sitt einkalif. Meöfylgjandi mynd af henni var tekin áriö 1956, en þá stóö hún á hátipdi frægöar sinnar bæöi I sundinu og leiklist- inni. Gamalt met slegið Eiginlega ætti þessi smágrein aö birtastá iþróttasiðu blaösins, þvi aö klausa þessi er um nýtt Iþróttamet. Presto nokkur Stockman Utica, N.Y. stillti sér upp i jólaösinni fyrir utan aðal- verzlunina I Utica og tók i höndina á 8.643 manneskjum, sem voru þar á ferö i jóla- innkaupum, og óskaöi þeim gleöilegra jóla. Þetta segir hann nýtt met — en gamla metiö átti Theodore heitinn Roosevelt forseti. Það er skráð I einhverj- um annálum Hvita hússins aö hann hafi tekið I hönd 8.513 manns á nýjársdag árið 1907 og þótti það eiginlega þrekvirki. En nú hefur Preston Stockman slegið þetta 67 ára gamla met. Og úr þvi þú ert að spyrja á annað borö. Jú, það er annar I spilinu. Hann er bezti körfuboltamaður I bænum. Þú ættir að geta verið ánægð... nú hefurðu helling af peningum, og svo ertu orðin ekkja. DENNI DÆMALAUSI „Get ekki komið. A laugardögum þarf pabbi einhvern til að leika sér viö.”

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.