Tíminn - 17.01.1975, Qupperneq 12
12
TÍMINN
Föstudagur 17. janúar 1975.
sem dregið var upp úr sjónum á krók, — að það var ekki
annað en vatnsósa runni, sem annaðhvort hafði
rifnað upp og borizt út i sundin og sokkið þar, eða verið
notaðurtil þessað merkja vakir á vetrarísnum. O, góður
guð! Hvernig gat vesalings einmana og veikgeðja
drengur þolað aðra eins áraun, þvílíka ógn og kvíða og
þvílíkan hugarlétti hvað eftir annað, án þess að missa
taumhald á sér, æpa, ganga af vitinu. En — o,nei, hann
aðeins sat eins og steingervingur í stafninum, grafkyrr
og þögull, og starði án af láts á dráttarvaðina og gaf eng-
an gaum að öðru, sem f ram fór umhverfis hann.
,,Ó-hó"! heyrðist skyndilega hrópað í fjarska.
,,Ó-hó! Ö-hó" var svarað hvellt og snjallt.
Evert, vinnumaður Norðkvists, breytti undir eins
stefnu bátsins og reri lífróður á hljóðið. Báturinn var
kominn gegnum sundið, þar sem þeir höfðu verið að
slæða, eftir örfá áratog. Framundan var dálitill auður
bolli milli lágra skerjanna. Þar var einn leitarbátanna.
Mennirnir stóðu uppréttir í kænunni og mændu undir sól í
áttina til skers, sem lá nokkur hundruð faðma vestar.
,,Hafið þið fundið eitthvað?" hrópaði einhver.
,,Það virðist vera fólk á Hellunni", var svarað.
,,Fólk á Hellunni, á Hellunni?"
AAennirnir reru sem mest þeir máttu að hólmanum. En
þeir höfðu ekki farið nema skammt, er þeir sáu greini-
lega, að tvær manneskjur stóðu í f læðarmálinu og veif-
uðu. A-já, þetta var karl og kona. Það hlutu að vera hjón-
in, sem þeir voru að leita að. Þeir hertu róðurinn enn.
Það var þó munur að koma heim með lifandi fólk eða
rennvot lík af botni hafsins.
,, Jú-jú, þetta eru þau Katrín og Jóhann.holræt, eins
og Jóhann segir".
„Á Hellunni — þar eru hvorki ber né neitt annað til
matar. Það er ekki að undra, þótt þau séu áköf og vaði út
í sjóinn. — Hæ, Katrín, hæ! Drekktu þér ekki, kona. Við
erum að koma".
„Lítið á Jóhann. Hann er alveg eins og afturganga".
Nú hafði steingervingurinn í stafninum staðið upp og
riðaði svo mikið, að það mátti allt eins vel búast við því,
að hann félli fyrir borð á hverri stundu. Hann greip and-
ann á lofti og baðaði út höndunum.
Hana nú, Þar tók báturinn niðri. Þarna var Katrín, og
þarna kom Jóhann æðandi. AAennirnir hlupu úr bátnum
og þustu á móti þeim. En steingervingurinn hafði hnigið
niður í sæti sitt aftur. Það hafði snöggvast mátt sjá þess
merki, að hann var þó lifandi, en svo sviku fæturnir
hann, áður en hann kom út úr bátnum. Katrín özlaði
framhjá mönnunum og út að bátnum. Nú var eins og
þarna væru tveir steingervingar, báðir jaf n sneyddir líf i.
Sá minni hallaði sér upp að þeim stærri, sem ekki var
þungt,kalt og ókennilegt lík af sjávarbotniJheldur sterk,
hlý og úrræðasöm lifandi móðir.
Jóhann hafði haltrað um á dofnum fótum sínum og
beðið komumannanna, en nú stóð hann eins og veðurviti
á steini við bátinn og hló.eða grét hann kennski? En
allt í einu riðaði hann og hefði dottið á grúfu með út-
breiddað f aðminn, ef tveir aðkomumannanna hef ðu ekki
gripið hann á fallinu og lyft honum yfir borðstokkinn
einsog litlu barni. Einn tíndi saman yf irhafnirnar, sem
þeir höfðu farið úr og breiddi þær í bátinn. Á þær lögðu
þeir þennan tærða vesaling. En hann reis óðar upp við
dogg, veifaði máttlaus með handleggjunun4 og svipaðist
um öskugrár í framan. /
„Katrin, Katrín....Katrín er þarna uppi. Takið þið
Katrínu líka", sagði hann.
„Katrín er hérna í bátnum hjá þér", svöruðu mennir-
nir.
„Nei, nei. Takið þið hana líka. Hún er þarna uppi".
„Leggstu nú út af. Hún er hérna í bátnum, kerlingin
þín".
„Hvað?" Katrín hrökk sem af blundi. Hún sat enn í
staf ni og vafði Eirík örmum. Drengurinn grét hljóðlega.
„Hann virðist orðinn talsvert aðþrengdur, karlinn",
sagði einn bátverjanna mjög alvarlegur.
„Já", sagði Katrín. Hún sleppti Eiríki og skreiddist
yfir þófturnar til Jóhanns.
„Hvað gengur að þér, Jóhann? Ég er hérna i bátnum.
— Leggstu nú útaf. Viðerum bráðum komin heim".
Hún skreiddist til baka, en allt í einu sortnaði henni
fyrir augum, og höfuðið seig niður með borðstokknum,
unz hárflétturnar flutu á vatninu í kjölsoginu. Einn
ræðaranna greip í skyndi utan um hans, og stein-
gervingurinn í stafninum varð enn fölari en áður.
AAaðurinn deyf hendinni í sjóinn og vætti enni Katrínar.
Síðan leit hann á félaga sína og hristi höfuðið. Þeir
kinkuðu kolli til samþykkis, alvarlegir í bragði.
„Ég held, að það hafi verið hér um bil liðið yfir mig.
Það er þó í fyrsta skiptið á ævinni", sagði Katrín og
brosti afsakandi.
AAennirnir bjuggu nú eins notalega um hana og kostur
var, og síðan var förinni hraðað áfram.
Það var hávær hópur, sem var samankominn við
Bátavíkina til þess að forvitnast um árangurinn af
Ég veit þaö, vEn ég get
og kviöi fyrir. ekki frestaö þvl
v . lengtir.
k meöan, fyrir utan ströndinaf /Ra<iarinn okkar sýnir
Hvaö ætlaröu
aögera Egon?
Þú veröur aö
snúa til baka
aftur. .
aö Egon er á þessari eyju
Viönáum þeim þar!^_^.
Föstudagur
17. janúar
7.00 Morgunútvarp Veöur-
fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10.
Morgunleikfimi kl. 7.15 og
9.05. Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og
forustgr. dagbl.) 9.00 og
10.00. Morgunbæn kl. 7.55
Morgunstund barnanna kl.
9.15: Finnborg örnólfsdóttir
les söguna „Maggi, Mari og
Matthias” eftir Hans
Petterson (14).
Tilkynningar kl. 9.30. Létt
lög milli liöa.. Spjaliaö viö
bændur 10.05. „Hin gömlu
kynni” kl. 10.25: Sverrir
Kjartansson sér um þátt
meö tónlist og frásögnum
frá liönum árum. Morgun-
tónleikar kl. 11.00:
„Archiv”-hljóöfæraflokkur-
inn leikur Sinfóniu I G-dúr
eftir Holzbauer/Kenneth
Gilbert leikur Sembalsvitu I
e-moll eftir Rameau/Jost
Michaels, Ingrid Heiller og
Kammersveitin i Munchen
leika Konsert I B-dúr fyrir
klarlnettu, sembal og
strengjasveit eftir Stamitz.
12.00 Dagskráin. Tónleikar
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar.
13.00 Viö vinnuna: Tónleikar.
14.30 Miðdegissagan: „Söng-
eyjan” eftir Yukio Mishima
15.00 Miödegistónleikar
Walter Klien leikur tvö
pianóverk eftir Mozart: Til-
brigöi um lagið „La belle
Francoise” og Rondó i a-
moll (K511). Pavel Stephan
og ' Smetanakvartettinn
leika Pianókvintett i A-dúr
op. 81 eftir Dvorák.
15.45 Lesin dagskrá næstu
viku
16.00 Fréttir Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir).
16.25 Popphorniö
17.10 (Jtvarpssaga barnanna:
„Emil og leyni-
lögreglustrákarnir” eftir
Erich Kastner. Haraldur
Jóhannsson þýddi. Jón
Hjartarson leikari les (4).
17.30 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veöurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 Gjöfin sem ekki var gef-
in Dr. Gunnlaugur Þóröar-
son flytur erindi um
stjórnarskrármál.
20.10 Sinfónia I d-möll eftir
Michael Haydn Enska
kammersveitin leikur:
Charles Mackerras
stjórnar.
20.30 Landheigismáiiö og út-
færsian i 200 milur Páll
Heiöar Jónsson stjórnar
umræöuþætti i útvarpssal.
22.00 Fréttir.
22.15 Veöurfregnir Húsnæöis
og byggingarmál Ólafur
Jensson ræðir viö Skúla
Guömundsson fram-
kvæmdastjóra um opinber-
ar byggingaframkvæmdir.
22.35 „Afangar” i umsjá
Asmundar Jónssonar og
Guöna Rúnars Agnarsson-
23.20 Fréttir I stuttu máli.
Dagkskrárlok.
Föstudagur
17. janúar 1975
20.00 Fréttir og veöur.
20.30 Dagskrárkynning og
auglýsingar.
20.35 Merkilegt myndasafn.
Dönsk fræöslumynd um sér-
kennilegar myndir, sem
einhverntima i fyrndinni
hafa verið málaðar I fjalla-
hliöar suður I Sahara. Einn-
ig er brugöiö upp myndum
frá hátiöarsamkomu i þorp-
inu Djanet i suö-austur
hluta Alsir. Þýöandi og þul-
ur Guðrún Jörundsdóttir.
(Nordvision — Danska sjón-
varpiö)
21.10 Kastljós. Fréttaskýr-
ingaþáttur. Umsjónarmað-
ur Guöjón Einarsson.
22.00 Villidýrin. Breskur
sakamálamyndaflokkur,
byggöur á sögu eftir Paul
Galloco. Ljónaveiöar. Þýö-
andi Kristmann Eiösson.
22.50 Dagskrárlok.