Tíminn - 04.02.1975, Page 1

Tíminn - 04.02.1975, Page 1
ÆHGIRr V. Áætlunarstaðir: Blönduós — Sigluf jörður Búðardalur — Reykhólar Flateyri — Bíldudalur Gjögur — Hólmavík Hvammstangi — Stykkis- hólmur — Rif Sjúkra- og leiguflug um allt land Símar: 2-60-60 & 2-60-66 * r Aukafundur LIU: Framsóknarfélag Reykja- víkur gaf eina milljón til Húsbyggingarsjóðs FB-Reykjavík. Á laugardaginn afhentu Jón Aöalsteinn Jónasson og Markús Stefánsson 1 milljón króna til Húsbyggingarsjóös Framsóknarfélaganna i Reykjavfk. Var þetta gjöf frá Framsóknarfé- lagi Reykjavikur, og rennur féö til áframhaldandi framkvæmda aö Rauöarárstig 18, i húsi Fram- sóknarfiokksins. Viö fénu fyrir hönd sjóösiins tóku Guömundur Tryggvason og Þráinn Valdimarsson framkvæmdastjóri. Senn verður fullgengiö frá skrifstofum á fyrstu hæö hússins aö Rauðarárstig 18. Múrverki er aö Ijúka í húsinu, og málningarvinna er i þann veginn aö hefjast, en reiknaö er með, aö húsiö veröi full- gert i mailok i vor. Á myndinni má sjá Jón Aðalstein Jónasson afhenda Guðmundi Tryggvasyni peningana, en hjá þeim standa Þráinn Valdimarsson, framkvæmdastjóri Framsóknarflokksins, og Markús Stefáns- son, formaður Framsóknarfélags Reykjavikur. Timamynd Róbert. FÁRVIÐRI Á NORÐ VESTURLANDI Fimm bílar fuku á milli Sauðdrkróks og Sigluf jarðar SJ—Reykjavík 1 gærmorgun geröi ofsarok á norövestanveröu landinu, einkum á annesjum, og komst vindhraöinn sumsstaöar upp 110 vindstig á veöurstöövum, t.d. Reyðará og Sauöárkróki, og á Hornbjargsvita mældust 11 vind- stig. t verstu hryðjunum fór vind- hraöinn upp í 106 hnúta, aö sögn Trausta Magnússonar vitavaröar á Sauöanesi. A Siglufirði var logn um áttaleytiö um morguninn, en frá hálftiu til hálfeitt eftir hádegi var þar fárviöri og stórhættulegt aö vera á ferli úti viö. Fjórir bilar fuku út af þjóðveginum á milli Sauðárkróks og Siglufjaröar, ,og sá fimmti fauk um koll, eftir aö eigandi haföi lagt honum i skjóli viö skafl. Markús Einarsson veðurfræð- ingur sagöi okkur, að veðriö heföi rokiö upp i kjölfar lægöar, sem var á leiö noröur yfir vestanvert landiö. Nokkurs mishermis hefur gætt I fréttum af veðrinu viövikj- andi vindhraða. Hann er ávallt mældur sem meöalvindhraöi i 10 minútur og telst aldrei meiri en 12 vindstig. Allur vindhraði sem er 64hnútar eða meira, telst 12 vind- stig. Hinsvegar geta einstakar vindkviður komizt upp i 106 hnúta. — Veðrið hefur nú heldur lægt, hér er vindhraðinn nú frá 30 upp i 64 hnútar, sagði Trausti Magnus- son, vitavöröur á Skaganesi, á sjötta timanum f gær. — Enn er þó ruddaveður. Hann hefur geng- íð i norðvestur, og þá lægir held- ur hér. Hann var að suðvestan i morgun, en nú er vestnorövestan- átt. Guðmundur á Reykjahóli i Fljótum var á ferð i Volkswagen- bifreið um 16—18 km frá Sauöa- nesi i morgun, og þegar hann sá aö hverju stefndi, lagði hann bif- reiðinni undir skafli við veginn. Guðmundur fór siðan af stað gangandi áleiðis að Ketilási, þar sem hann átti dráttarvél, og ætl- aði aðhalda leiðar sinnar á henni. En begar hann hafði skammt far- ið, sá hann hvar bifreiðin tókst á loft og kom niður á þakið. A svipuðum slóðum voru vega- gerðarmenn á Willys-jeppa, þar sem verið var að jafna úr snjó- ruöningum við veginn. Skipti eng- um togum að hann fauk út af veg- inum. Báðir bílarnir eru að sögn mikið til ónýtir. Ein rúða er heil i jeppanum og önnur hliðin alveg I burtu. Slys urðu ekki á mönnum. Fyrir þrem árum varð bana- slys á veginum að Skaganesvita. Skömmu siðar var komið þar upp vindmæli, og fylgist vitavöröur- inn meö veöurhæðinni og svarar fyrirspurnum þar um. Trausti vitavörður sagði okkur, að hættu- legt væri að vera á ferð á vegin- um frá Haganesvik til Siglufjarð- ar, þegar komin væru 11—12 vind- stig. Og jafnvel þótt ekki séu nema 8 vindstig, ef hált er. Einnig er þess að gæta, aö misvindasamt er á þessum slóðum. Sérlega er vegurinn að Skaganesvita hættu- legur I hvassviðri, en þar eru 60—100 m háir bakkar I sjó fram. Hjá Veðurstofunni fengum viö þær fréttir I gær að því væri spáð, aö veðrið myndi smám saman ganga niður I gærkvöldi og nótt. Ltkur væru á að enn einu sinni drægi til suöaustlægrar áttar, en I gær var suðvestanátt um allt land. Verkfalls- REKSTRARVANDINN EKKI LEYSTUR MEÐ FISKVERÐSHÆKKUN EINNI FB-Reykjavik. Landssamband Isl. útvegsmanna hélt aukafund sinn að Hótel Loftleiðum i gær. Á fundinum var fjallað um stöðu út- gerðarinnar og ákveðið, að fram- haldsfundur skuli haldinn 10. febrúar næstkomandi. Á fundinum var samþykkt svo- hljóðandi ályktun: Aukafundur Llú, haldinn i Reykjavik 3. febrúar 1975, vekur athygli á þvi, að úttekt Þjóðhags- stofnunar á hag útgerðarinnar staðfestir, að hún er komin i þrot. Þessi staða hefur leitt til þess að fiskverð hefur enn ekki verið á- kveöið, þótt það ætti aö Iiggja fyrir um áramót. Fundinum er ljóst, að hinn mikli rekstrarvandi veröur ekki leystur með fiskverðshækkun einni saman, Auk hennar eru aðr- ar efnahagsaðgerðir af hendi rikisvaldsins óhjákvæmilegar. Fundurinn vekur athygli á, að hluti af bátaflotanum hefur enn ekki hafið veiðar vegna rekstrar- erfiðleika, en þeir útgerðarmenn, sem hafa haft bolmagn til að láta skip sin hefja veiöar, hafa gert það i trausti þess, að slikar óhjá- kvæmilegar ráðstafanir yrðu gerðar fyrir allnokkru, og tel ur fundurinn þvi, að á þessu megi ekki verða frekari dráttur. 1 trausti þess, aö rikisstjórnin dragi ekki fram yfir lok þessarar stafanir, samþykkir fundurinn, stöddu, en komi saman aftur viku að gera nauðsynlegar ráð- að honum skuli ekki ljúka að svo mánudaginn 10. febrúar n.k. Frá aukafundi Llú á Hótel Loftleiöum I gær. (Timamynd Róbert) boðun sjómanna frestað SAMNINGANEFND sjómanna kom saman til fundar i gær, og að sögn Jóns Sigurðssonar, for- manns Sjómannasambands is- lands, var á fundinum frestað að taka afstöðu til verkfalls þann 10. n.k. — Þann tiunda veröur fundur og þá verður tekin afstaða til verkfalls, — svo það verður að minnsta kosti ekki verkfall þann tiunda. Boðun verkfalls er þvi að- eins slegið á frest, sagði Jón Sig- urðsson. Kekkonen SJ-Reykjavik — Til tals hefur komið að Kekkonen Finnlands- forseti komi hingað til lands i opinbera heimsókn. jafnvel á þessu ári. Aö sögn Péturs Thor- steinssonar ráðuneytisstjóra í ut- anrikisráðuneytinu er þó ekkert fastráðiö um livenær Finnlands- forseti kemur hingað. Eiginkona Kekkonens er nýiega látin, og ekki er vitaö hver áhrif það kann aðhafa á ákvörðun um þetta mál, sem hefur dregizt nokkuð á lang- inn.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.