Tíminn - 05.02.1975, Page 3
Miðvikudagur 5. febrúar 1975.
TÍMINN
3
Norrænn fjárfesting-
arbanki og samvinna
um orkumál
Raunhæfustu
kjarabæturnar
Svo virðist sem augu stjórn-
arandstöðunnar séu loksins að
opnast fyrir þeirri staöreynd,
að nú eru ekki forsendur fyrir
launahækkunum. Það er hins
vegar fyilsta ástæða til að gefa
þvi gaum, með hvaða öðrum
hætti unnt er að bæta- kjör
hinna lægstiaunuðu i þjóðfé-
laginu. i þessu sambandi er á-
stæða til að vitna I leiðara Al-
þýðublaðsins i gær, en þar
segir m.a.:
,,Nú blasir við sá möguleiki,
að unnt sé aö leiörétta — að
minnsta kosti að nokkru — nú-
verandi kjarastöðu láglauna-
fólks með skynsamlegum að-
gerðum i skattamálum. Vafa-
laust binda launþegasamtökin
vonir við, að þær umræður um
skattabreytingar, sem nú
standa yfir milli fulltrúa
verkalýðshreyfingarinnar og
rikisstjórnarinnar, beri já-
kvæðan árangur”.
Enginn vafi er á þvi, að al-
menningur gerir sér grein
fyrir því, aö kjarabætur af
þessu tagi eru liklegastar til
að skila árangri. Vonandi er,
að þeir verkalýðsforingjar,
sem háværastir hafa verið að
undanförnu, beri gæfu til að
skilja það lika, að kjarabætur
án kauphækkana eru raunhæf-
astar, eins og nú er ástatt.
Breytingar á skatta- og út-
svarslögum koma mjög til
greina i þessum efnum.
Lúðvík
samur
við sig
Framkoma Lúðviks Jóseps-
sonar I sjónvarpsþættinum
Kastljósi, sem sýndur var s.l.
föstudag, er dæmigerð fyrir
það ábyrgðarleysi, sem for-
ingjar Alþýðubandalagsins
leyfa sér að viðhafa utan þings
sem innan. Lúðvik þrástagað-
ist á þvi, að erfiðleikarnir i
efnahagsmálunum væru ekki
eins miklir og viðskiptaráö-
herra hefur lýst. Sú mynd hafi
veriö máluð allt of dökkum lit-
um. Og hvers vegna skyldi
Lúðvik hafa haldið þessu
fram? Vitanlega til að kynda
undir auknum kröfum verka-
lýðshreyfingarinnar I kom-
andi samningaviöræðum. Það
er gömul og ný aðferð komm-
únista að reyna að valda eins
miklum usla og mögulegt er I
þcirri von, að slikt ástand veiti
þeim betri aðstöðu. Sú von
þeirra rætist örugglega ekki
nú.
„Reiknimeistarar"
Þjóðviijans
Þjóöviljinn gerir sér tiðrætt
um það, að núverandi stjórn-
arflokkar hafi engar tillögur i
efnahagsmálum, Spyrja
mætti, hverjar eru tillögur
kommúnista? Þeir heyktust á
þvi að taka á sig ábyrgð s.l.
vor og komu i veg fyrir mynd-
un nýrrar vinstri stjórnar,
fyrst og fremst af þeirri á-
stæðu, að þeir vissu, að fram-
undan voru óvinsælar ráðstaf-
anir. Þeir voru ekki menn til
þess að standa við sjórnvölinn
I andbyr. Hins vegar reikna
þeir stöðuná skakkt, eins og
svo oft áður, þvi að almenn-
ingur á islandi metur meira á-
byrgð og festu á örlagatimum
en brotthlaup frá skyldum,
þegar mest á riður. Kommún-
istar þurfa ekki að óttast það,
að núverandi stjórnarflokkar
komi sér ekki saman um til-
lögur til lausnar þeim efna-
hagsvanda, sem við er að
glíma. A það hefur hins vegar
verið lögð áherzla, m.a. af
Ólafi Jóhannessyni viðskipta-
ráðherra, að ekki megi gripa
til neinna flausturslegra að-
geröa. Á næstu dögum má bú-
ast viö þvi, að rikisst jórnin til-
kynni til hvaða aögeröa hún
hyggst gripa. Um viðbrögð
kom múnistanna i Alþýðu-
bandalaginu þarf auðvitað
ekki að spyrja. Þau eru ákveð-
in fyrirfram. En ætli það fari
ekki fyrir þeim eins og eftir
landhelgissamningana við
Breta, — þegar þeir hrópuðu
svik, svik, — að almenningur
hlusti ekki á þá. Ábyrgðin
veröur metin meira en á-
byrgðarlaust hjal forystu-
manna Alþýðubandalagsins.
—a.þ.
Athugasemd vegna
fréttar um spjöll d
Kef la víku rki rk ju
HHJ-Rvik — Geir Hallgrimsson
forsætisráðherra er nýkominn til
landsins úr för til Bandarlkjanna,
Kanada og Noregs. I New York
átti hann viöræður við fulltrúa
Bandarikjamanna hjá Samein-
uðu þjóðunum um hafréttarmál
og gerði grein fyrir áformum ís-
lendinga um útfærslu lögsögunn-
ar i 200 mílur. Þá var og rætt um
málefni S.þ. almennt, efnahags-
mál, oliukreppuna og alþjóðamál.
Að sögn forsætisráðherra á
blaðamannafundi i gær, töldu
fulltrúar Bandarikjanna rlkis-
stjórn sina svipaðs sinnis og hina
islenzku, hvað útfærslu áhrærir,
þótt Bandarikjamenn myndu ekki
færa út einhliða, fyrr en að lokinni
hafréttarráðstefnunni.
Harry O.
Frederiksen
látinn
Harry O. Frederiksen, fram-
kvæmdastjóri Iönaðardeildar
Sambands islenzkra sam-
vinnufélaga, varð bráðkvadd-
ur á feröalagi erlendis 2. febr.
s.l. Hann var fæddur I Reykja-
vik 15. marz 1913, sonur Aage
M.C. Frederiksen, vélstjóra,
og konu hans Margrétar Hall-
dórsdóttur Frederiksen.
Harry O. Frederiksen
stundaði nám við Samvinnu-
skólann og hafði að baki nær
hálfrar aldar starfsferil hjá
ýmsum deiidum Sambands-
ins, innanlands og utan, er
hann lézt. Hann var starfs-
maður á skrifstofu S.t.S. i
Kaupmannahöfn 1938 til 1940
og framkvæmdastjóri sömu
skrifstofu frá miðju ári 1947 til
ársloka 1948. Þegar Iðnaðar-
deild Sambandsins var sett á
stofn I ársbyrjun 1949, gerðist
hann f ra m k væm da st jór i
hennar og gegndi þvi starfi
til dauöadags, að frátöldum
árunum 1962 til 1964, er hann
stýrði skrifstofu S.t.S. í Ham-
borg. Hann sat I fram-
kvæmdastjórn Sambandsins
frá 1956 og var ritari hennar
siðustu árin. Hann var um
árabil st jórnarform aöur I
Vinnumálasambandi sam-
vinnufélaganna, og sat i stjórn
ýmissa samstarfsfyrirtækja
Sambandsins. t þágu is-
lenzks iönaöar gegndi hann
fjölmörgum trúnaðarstörfum.
Hann tök virkan þátt I félags-
málum, var félagi I Lions-
hreyfingunni og formaður I
fulltrúaráði Knattspyrnufé-
lagsins Fram, er hann lézt.
Harry var kvæntur Mar-
gréti Frederiksen og eignuö-
ust þau tvö börn.
Harry O. Frederiksen.
Bandarikjamennirnir töldu all-
vel horfa um samkomulagslikur á
hafréttarráðstefnunni, þótt vera
kynni, að hún drægist nokkuð á
langinn og henni lyki ekki fyrr en
á næsta ári.
í Kanada ræddi Geir við for-
sætis- og utanrikisráöherra.
Snerust þær umræður um svipuö
efni og viðræðurnar við Banda-
rikjamenn. Kanada mennirnir
sögöu marga þar I landi hafa
mikinn hug á útfærslu, en töldu
nær vist að árangur næðist á haf-
réttarráðstefnunni, þannig að
þeir þyrftu ekki að færa út ein-
hliða.
Að vesturförinni lokinni hélt
forsætisráöherra til Osló, þar sem
Bratteli forsætisráðherra Noregs
hafði boðið forsætisráðherrum
Norðurlanda til fundar. Hann
sátu þó aðeins forsætisráðherrar
Islands, Sviþjóðar og Noregs.
Danski forsætisráðherrann gat
ekki komið sökum þess ástands,
sem ríkir þar i landi. Frá Finn-
landi sótti Ulf Sundquist, kennslu-
málaráðherra, fundinn i stað Ka-
levi Sorsa, forsætisráðherra, sem
var veikur. Samstarfsráðherr-
arnir um Norðurlandamálefni
(þ.á.m. Nathalie Lind, danski
menningarmálaráðherrann sem
var fulltrúi starfsstjórnarinnar I
Danmörku) og iðnaðarráðherr-
arnir frá Finnlandi, Noregi og
Sviþjóð tóku þátt i hluta viðræðn-
anna.
Margt bar á góma i viðræðum
ráðherranna. Þeir ræddu m.a.
um horfur I efnahagsmálum, sem
viða um lönd einkennast nú af ó-
hagstæðum greiðslujöfnuði, at-
vinnuleysi og verðbólgu, sem
kunnugt er.
Þá var rætt um norrænt sam-
starf og eflingu þess. Ráðherrun-
um bar saman um, að norrænt
samstarf hefði eflzt mjög eftir að
norræna samstarfsáætlunin sem
svo er nefnd, var lögð fram á
fundi Norðurlandaráðs i Osló
1973. Má i þessu sambandi og
minna á menningarmálasáttmál-
ann, sem mennta- og kennslu-
málaráðherrar Norðurlanda
samþykktu á siöasta ári ofan-
verðu. Menn voru einnig sam-
mála um að reyna að efla sam-
starfiö i atvinnumálum frekar til
gagnkvæmra hagsbóta fyrir alla.
Ráðherrarnir fengu nýsamda
skýrslu um framvinduna I sam-
vinnu Norðurlanda á sviði orku-
mála og þeir itrekuöu skuldbind-
gébé-Reykjavik — Fyrsti stjórn-
arfundur hinnar nýstofnuðu
kvennadeildar Taflfélags
Reykjavikur, var haldinn 3.
febrúar s.l., en eins og kunnugt er
var stofnfundurinn haldinn 30.
jan. Sjöfn Kristjánsdóttir var
kosin formaður, Guðriður Friö-
riksdóttir varaformaður, Ásta
Gunnsteinsdóttir ritari og ólöf
Þráinsdóttir fjármálafulltrúil.
Ákveðið vará þessum fundi, að
á fimmtudögum i viku hverri
verði skákæfingar fyrir konur i
húsi Taflfélags Reykjavikur við
Grensásveg frá kl. 20:00 til 24:00.
Jón Pálsson og Jón Briem sjá um
kennslu fyrsta klukkutimann á
hverjum fimmtudegi.
Við vonumst eftir góðri þátt-
töku, sagði Sjöfn Kristjánsdóttir,
— og það verða án efa margar
konur, sem vilja njóta góðs af
kennslunni, sem þarna fer fram.
meðal þeirra mdla,
sem rædd voru á
róðherrafundi í Osló
inguna um að efla samvinnuna
enn frekar I samræmi við yfirlýs-
ingu orkumálaráðherrana á fundi
þeirra i Gautaborg 29. janúar.
Ráðherrarnir lögðu sérstaka á-
herzlu á, að þær miklu orkulindir,
sem Norðurlöndin ráða yfir, verði
nýttar I nánu samstarfi.
Þá var rætt um aðgang Norður-
Ianda að hráefnum og náttúru-
auðlindum og gildi þess, að nýting
auðlindanna og skipulagning
meiriháttar fjárfestingarfram-
kvæmda i einstökum löndum fari
fram eftir samráð milli landanna.
Efnahagsleg tengsl landanna og
sameiginlegi norræni vinnu-
markaöurinn leiðir til þess, að
slik samræming er eðlilegri en
ella. Menn voru sammála um,
aö samstarfsráðherrarnir skyldu
gera úttekt á stöðu Noröurlanda
varöandi hráefni og auölindir og
kanna leiðir til nánara samstarfs
I þvi skyni að nýtanlegar auðlind-
ir kæmu að sem mestum notum. 1
framhaldi af þessu gerði forsætis-
ráðherra lslands grein fyrir á-
formum íslendinga varðandi
fiskveiðilögsöguna. Hann ræddi
og við norska ráðherra um aðstoö
vegna hugsanlegrar oliuleitar viö
Island. Oliukaup frá Noregi bar
einnig á góma.
Ráðherrarnir könnuðu tillögur
um sameiginlegan norrænan
fjárfestingabanka. Slik stofnun
getur orðið gagnleg viðbót við
þær fjárfestingastofnanir, sem
fyrir eru og lána fé til stórfram-
kvæmda og útflutnings, sem
Norðurlönd hafa áhuga á. Ráö-
herrarnir voru sammála um, að
eins fljótt og kostur væri, yrði
undirbúin tillaga til frekari um-
ræðu I ráðherranefndinni um
stofnun norræns fjárfestingar-
banka. sem rekin yrði eftir
bankalegum meginsjónarmiöum
og byggðist stofnfé frá einstökum
þátttökurikjum.
Geir Hallgrimsson forsætisráö-
herra taldi, að slikur banki gæti
komið Islendingum aö góðu
gagni, þegar til þess kæmi að afla
fjár til stórvirkjana og stóriðju,
þar sem aðgangur að Alþjóöa-
bankanum er okkur ógreiður um
þessar mundir, þvi aö hann legg-
ur nú megináherzlu á lán til þró-
unarlanda.
Ráðherrarnir fjölluðu um þau
áform um aðstoð við Portúgal
sem á döfinni eru og voru sam-
mála um, að unniö skyldi að þvi
að styrkja lýðræöisþróunina I
landinu.
Næst á dagskrá hjá stjórninni
er að skipta félögunum i flokka,
— unglingaflokk og eldri flokk, —
en þarna er kvenfólk á ölluin
aldri. Siðar mun áætlað að halda
skákmót og fjöltefli, en ekkert
hefur enn verið ákveðið uin það.
I DAG er Runebergsdagur hjá
Finnum afmælisdagur þjóðskálds
Finna, Jóhanns Lúðviks Run-
bergs, og er hans að jafnaði
minnzt i Finnlandi. Finnlands-
vinafélagið Suomi hefur nú uin
nokkurra ára skeið efnt til fagn-
aðar þennan dag, og gerir það
einnig i kvöld, i Norræna húsinu
kl. 20:30. Sveinn Sveinsson, for-
ínaður félagsins, setur samkom-
ÉG undirritaður vil lýsa hrýggð
minniyfir frétt I Tlmanum 4. þ.m.
þar sem sagt var frá skemmdar-
verkum I Keflavikurkirkju, og
mun meira úr þeim gert en efni
stóðu til, þótt það á hinn bóginn
kunni að hafa orsakazt af þvi, að
mér tókst ekki að ná sambandi
við starfsmenn blaðsins i tæka
tið.
Sizt er það ætlun min að afsaka
verknaðinn sem slikan. En ég vil
benda á, að atburðir sem þessi
eru ékki til þess fallnir, að fjallað
sé um þá i fjölmiðlum.
Allt, sem vakið gæti slúður og
una með ávarpi, ræðu flytur
Sigurlaug Bjarnadóttir alþingis-
maður frá Vigur, kór Mennta-
skólans við Hamrahlið syngur is-
lenzk og finnsk lög undir stjórn
Þorgerðar Ingólfsdóttur. Maria-
Leena Rautalin bókavörður, sem
nýkomin er til starfa við bókasafn
Norræna hússins, mun kynna
finnska rithöfundinn Saalama,
sem fékk bókmenntaverðlaun
tilhæfulausar gróusögur, ekki sizt
i viðkvæinuin máluin sein þessu,
ber að forðast. Ættu allir þeir,
sem annast almennan fréttaflutn-
ing að hafa aö leiðarljósi þessi si-
gildu orð Matthiasar Jochuins-
sonar:
Að finna brest hjá breyskum er
svohægt
og brotin dæma hart, en tildrög
vægt.
Þessa athugasemd mina vil ég
biðja Tirnann að birta fljðtlega.
Björn Jónsson,
sóknarprestur i Keflavik.
Noröurlandaráðs nú fyrir
skömmu. Þá verður kaffidrykkja
og borin fram Runebergsterta,
sem þykir hið mesta hnossgæti.
Loks verður sýnd kvikmynd frá
Finnlandi.
Aðalfundur Finnlandsvinafé-
lagsins verður haldinn kl. 20. áður
en samkoman hefst.
Kvennadeild Taflfélagsins:
Starfsemin hafin
af fullum krafti
Runebergskvöld í Norræna húsinu