Tíminn - 15.02.1975, Blaðsíða 5
Laugardagur 15. febrúar 1975
TÍMINN
5
Germanía sýnir:
FRÆGAR ÞÝZKAR
KVIKMYNDIR
Tvær af þremur þýzkum
kvikmyndum, sem félagiö
Germanfa ætlar að sýna á
næstunni „Mazurka” og
„Maskerade”, urðu ákaflega
vinsælar hér á landi, eins og
annars staðar, á árunum eftir
1930. Myndir þessar þóttu taka
öðrum fram og eru enn þann dag i
dag f flokki beztu mynda, þótt
ekki séu þær á breiðtjaldi.
Mazurka verður sýnd f Nýja Bíó i
dag kl. 2 e.h. Pola Negri leikur
aðaihlutverkið en leikstjórnin er i
höndunum á Willy Forst.
Willy Forst var bæði afbragðs
leikstjóri, sem og vinsæll leikari
og í myndinni „Maskerade”
leikur hann aðalhlutverkið á móti
Paulu Wessely, sem einnig var
mjög fræg á sinum tima.
Maskerade verður sýnd í Nýja
Bíó laugardaginn 22. feb.
Þriðja myndin verður sýnd á
vegum Germaniu laugardaginn 1.
marz. Hér er á hinn bóginn um að
ræða kvikmynd af nýrri gerð
(eftir 1960) „Das Feuerschiff”
byggð á frægri skáldsögu eftir
Sigfried Lenz. Mynd þessi hefir
alls staðar hlotið frábæra dóma.
Germaníu hefur tekizt að fá
hingað þessar gömlu þýzku
kvikmyndir með ærinni fyrirhöfn.
Myndunum verður að skila strax
aftur, og verður þess vegna ekki
hægt að endursýna þær. Aðgang-
ur að sýningunum er ókeypis.
RÆKJUSTRÍÐIÐ í
DÓMSALI
Gsal—Reykjavík. Rækjustrlðið
svonefnda sem að mestu hefur
verið háð á Húnaflóa til þessa,
hefur nú haft aðsetursskipti, sem
svo má að orði komast, og mun á
næstunni verða háð I dómsölum.
Rfkissaksóknari gaf á fimmtudag
úr kæru á hendur skipstjóra
rækjubátsins Nökkva HU-15 fyrir
fiskveiðibrot I janúar s.l. og þann
sama dag var kæran lögð fram á
dómþing I Hafnarfirði. Sigurður
Hallur Stefánsson, hefur verið
settur dómari I málinu.
Tlmanum hefur borizt svo-
hljóðandi yfirlýsing frá Amunda
Grétari Jónssyni, skipstjóra
Nökkva HU:
„I tilefni af ákæru, sem rikis-
saksóknari hefur i dag gefið út á
hendur mér vegna meints fisk-
veiðibrots, þar sem ég hafi stund-
að rækjuveiðar á Húnaflóa eftir
að ég var sviptur rækjuveiöileyfi,
vil ég taka fram eftirfarandi:
1. Ég lýsi mig alsaklausan af
ákæruatriðinu. Ég tel mig enn
hafa fullgilt rækjuveiðileyfi,
þar sem leyfissviptingin
byggðist á óheimilum forsend-
um og var þvi ólögmæt.
2. Ég tel, að mér hafi aldrei verið
sett það skilyrði fyrir rækju-
veiðileyfinu, að ég mætti ekki
landa aflanum til vinnslu i
heimahöfn Nökkvans á Blöndu-
ósi, enda sótti ég ekki um
rækjuveiðileyfi á þeirri for-
sendu, og ekkert er um slíkt
skilyrðigetiðileyfisbréfinu. Og
þó að slikt skilyrði hefði verið
sett mér, værði það kolólöglegt.
Það eru margar aldir iiðnar
siöan yfirvöld á íslandi hættu
aö skipta sér af þvi til hvaða
staða eða fyrirtækja islenzkir
fiskimenn selja afla sinn. Þess
konar afskipti eru þeirri sjó-
mannastétt, sem nú starfar i
landinu, framandi og ógeðfelld.
Þau eru andstæð réttarvitund
islenzkra sjómanna og þjóðar-
innar allrar og má þvi aldrei
aftur upp taka hér á landi.
3. Ef rikisvaldið gerir ekki nú
þegar lát á aðför sinni gegn
okkur á Nökkvanum og gefur
okkur frið til að stunda atvinnu
okkar, verðum við — hvað sem
rétti okkar liður — neyddir til
að þess að leita okkur annarrar
atvinnu, og útgerðin verður
sjálfsagt að selja skipið i burtu.
Þar með missa 15-18 manns at-
vinnu við rækjuvinnsluna og
bætast I hóp annars atvinnu-
lauss fólks á staðnum eða
þeirra, sem aðundanförnu hafa
orðiö að fara i burtu i atvinnu-
leit. Eins og nú er komið mál-
efnum þjóðarinnar, hljóta yfir-
völdin að hafa einhverjum
þarfari verkefnum að sinna, en
að stöðva atvinnufyrirtæki á
sjó og I landi.”
Tónleikar í Bústaða-
kirkju d morgun
A morgun verða haldnir
tónleikar i Bústaðakirkju og
hef jast þeir klukkan 21. Þar koma
fram fimm ungir hljóðfæra-
leikarar, þau Manuela Wiesler,
Duncan Campbell, Sigurður
Snorrason, Jeremy Day og Haf-
steinn Guðmundsson.
A efnisskránni eru blásara-
kvintettar eftir Taffanel og
Nielsen, trió eftir Maros og
kvartett eftir Rossini.
Hljómsveit Tónlistarskólans heldur tónleika
Hóskólabíói
í dag laugardaginn 15. febrúar,
heldur Hljómsveit Tónlistar-
skólans tónleika i Háskólabiói kl.
2.30. Stjórnandi hljóm-
sveitarinnar er Björn ólafsson.
Einleikarar á tónleikunum eru
nemendur, sem munu ljúka burt-
í dag klukkan 2,30
fararprófi frá skólanum i vor og
eru tónleikar þessir fyrri hluti
prófsins. A efnisskrá tónleikanna
er Sembalkonsert i E-dúr eftir
J.S. Bach, og er Elin Guðmunds-
dóttir einleikari i þvi verki. Siðan
er Sinfónia i D-dúr nr. 104 eftir
Haydn. Eftir hlé verður fluttur
pianókonsert i a-moll op. 16 eftir
Grieg. Einleikari á pianó i þvi
verki er Vilhelmina ólafsdóttir.
Allir velunnarar skólans eru
velkomnir á tónleikana meðan að
húsrúm leyfir.
Tollverðir leggja orð í belg
Að undanförnu hafa farið fram
miklar umræður um tollgæzlu og
tolleftirlit I fjölmiðlum og hafa
þær sennilega mest orðið vegna
þess, að upp komst um mikið
smyglmál nú fyrir skömmu. I
þessum umræðum hefur yfir-
stjórn tollgæzlu sætt miklu ámæli,
en tollverðir hafa heldur ekki far-
ið varhluta af gagnrýni. Umræð-
ur sem þessar eiga auðvitað full-
an rétt á sér. En þegar farmaður
lýsir þvi yfir I blaðaviðtali, að
tollverðir á islandi seu „við-
vaningar” samanborðið við
stéttarbræður erlendis, og sjálfur
tollgæzlustjóri segir I sjónvarps-
þætti 17. jan. s.l., að „búið sé að
þétta tollgæzlunetiö umhverfis
landið” með þvl að fá lögreglunni
tollgæzlu Ihendur I stað tollvarða.
finnst Tollvarðafélagi islands að
heldur sé vegið þungt að þessari
fámennu stétt.
Tollverðir hafa um árabil lagt
áherzlu á breytingar á skipulagi
tollgæzlunnar. Hér verður t.d.
birtur örlitill útdráttur úr kröfum
TFI vorið 1974, er samningar
stóðu fyrir dyrum við fjármála-
ráðuneytið:
3. gr. d. Skipaður verði i
Reykjavik deildarstjóri, sem hafi
með höndum skipulag og yfirum-
sjón tollferða út um land.
e. Yfirtollverðir verði á öllum
aöaltollhöfnum.
4 gr. c. Tollvörðum sé árlega
nokkrum saman gefinn kostur á
kynningar- og starfsferðum til
starfsbræðra sinna i nálægum
löndum og teknar verði til greina
óskir Tollvarðafélags tslands og
ábendingar um val þeirra manna,
sem fara slikar ferðir.
5. gr. e. Félagið gerir kröfur til,
aö tollgæzla verði stóraukin og
aöstaða bætt út um land. Breytt
veröi um stefnu varðandi sam-
runa tollgæzlu og lögreglu, en
sllkt hefur valdið skaða og dregiö
úr æskilegri tollgæzlu úti á landi.
Vinna og aðgerðir i þessum mál-
um verði samræmd og krefst
Tollvarðafélag Islands réttar sins
til afskipta af þessum atriðum I
heild. Samræmt verði fyrirkomu-
lag vinnutima og hvers konar
greiðslur, svo sem bifreiða-
greiðslur og yfirvinna, eftir þvi
sem kostur er.
7. gr. b. Bent er á nauðsyn þess,
aö fenginn verði stærri og hrað-
gengari tollbátur til gæzlustarfa
við strendur landsins.
8. gr. b. Bent er á nauðsyn þess
að tollgæzlan dragizt ekki aftur úr
hvað varðar tækjabúnað i sam-
bandi við tollleit og að athugað
verði með kaup eða leigu á slikum
búnaði. Æskilegt er, að samráð
verði haft við færustu menn á
þessu sviði og upplýsinga leitað
erlendis.
10. gr. b. Rannsóknardeild toll-
mála verði stofnuð, bæði I smygl-
málum og I sambandi við vöru-
innflutning, og tollverðir þjálfaðir
til sllkra starfa.
Þetta er þó ekki nema hluti af
kröfunum, en það sýnir þó, að
TFl hefur verið á verði hvað
skipulag og þarfir tollgæzlunnar
snertir. Kröfurnar um nýjan
tollbát eru t.d. frá árinu 1962 og
um rannsóknadeild i tollmálum
frá þvi I fyrra. Þessi tvö atriði
voru aðalinntak viðtalsins við
tollgæzlustjóra i þættinum
„KASTLJÓS” I Sjónvarpinu 17.
jan. s.l., auk þess sem hann eyddi
nokkrum tima i að útskýra fyrir
landsmönnum, að störf tollvarða
hafi verið lögð niður og falin lög-
reglumönnum. (Skýringin felst
e.t.v. I þvi, að hann er fyrrverandi
aðalfulltrúi lögreglustjórans I
Reykjavik og það var fyrirrenn-
ari hans einnig).
Stjórn TFÍ er það ljóst, að þessi
mál hafa verið og eru enn á frum-
Frh. á bls. 15
Undanfarnar vikur hafa staðiö yfir æfingar hjá nemendum Verzlunar-
skóla islands. Framundan er hið árlega nemendamót skólans, sem er
hið 43. I röðinni.
Hrafn Gunnlaugsson hefur tekið að sér stjórn leikrits þess, sem flutt
verður, og hefur hann einnig þýtt það úr sænsku með aðstoð höfundar,
en hann er pólskur og heitir Peter Oheyevich. Leikritið nefnist
,,KERFIДogerádeila á þjóðfélagið cins og það er I dag.
Magnús Kjartansson, (þekktur meðlimur hljómsveitarinnar Júdas)
stjórnar Nemcndamótskórnum, en ætlunin er að flytja nokkur vel valin
lög eftir lagahöfund Beach Boys.
Nokkrar stúlkur munu dansa jassballett undir stjórn Iben Sonne,
sem einnig hefur samið dansana. Undirleik annast tveir piltar úr skól-
anum, sem leika munu á tvö pianó. Jassballett þessi er dálltið sérstæð-
ur að því leyti að hann er um leið ádeila á verðbólguþjóðfélagið.
Nemendamótið sjálft verður haldiö miövikudaginn 19. febrúar, en
þar sem mikil vinna hefur verið lögð I æfingar hefur verið ákveðið að
efna til tveggja aukasýninga sem haldnar verða I Austurbæjarbiói. Sú
fyrri er miðnætursýning föstudaginn 21. febrúar, og sú siðari veröur
haldin laugardaginn 22. febrúar kl. 2. Myndin sýnir Magnús Kjartans-
son stjórna Ncmendamótskórnum. (Timamynd Gunnar).
Ýmislegt vantar
til þess að hægt
sé að hefja
vinnslu hrogna
úr blóðvatninu
FB-Reykjavfk. 1 framhaldi af
frétt, sem birtist i blaöinu i gær
um gifurleg verðmæti, sem fara I
súginn með blóðvatni loðnubát-
anna, og þar sem rætt er um að
skilja loðnuhrogn úr blóðvatninu
má itreka það, að Rannsóknar-
stofnun fiskiðnaðarins er að hefja
tilraunir i þessu sambandi. Nokk-
urn undirbúning þyrfti til þess að
hægt væri að hefja vinnslu þess-
ara verðmæta, en reyndist það
unnt ætti að vera hægt að vinna úr
blóðvatninu söluvöru fyrir
hundruð milljóna króna, og þá
væri um manneldishrogn aö
ræða. Hins vegar þarf aðstaða i
höfnum landsins að vera slik, að
þetta sé hægt, tækjabúnað vantar
viða, og að sjálfsögðu þyrfti aö
vera fyrir hendi hreint rennandi
vatn, þvi ekki væri hægt að nota
sjóinn i þessa vinnslu fremur en i
vinnslu annarra framleiðsluvara
til manneldis.