Tíminn - 25.02.1975, Page 8
8
TÍMINN
Þriðjudagur 25. febrúar 1975
BANDALAG
ÍSL.
LEIKFÉLAGA
25 ÁRA
— 57 félög áhugaleikara eiga
aðild að bandalaginu
gébé-Reykjavik — Bandalag Is-
lenzkra leikfélaga á aldarfjórð-
ungsafmæli um þessar mundir.
Framkvæmdastjóri frá upphafi
hefur verið Sveinbjörn Jónsson,
en hann lét af þvi starfi sl. haust,
og við tók Helga Hjörvar. Heiga
skýrði frá starfsemi bandalagsins
á blaðamannafundi i gær og
sagði, að nú væru aðildarfélög
þess fimmtiu og sjö taisins, viðs-
vegar um land allt. Þau starfa að
visu ekki öll á hverjum vetri,
sökum ýmissa ástæðna.
Bandalagið fær styrk til starf-
semi sinnar, og auk þess félags-
gjöld frá aðildarfélögum. Skrif-
stofa þess er að Skólavörðustig
12, og þar er einnig bóka- og
handritasafn bandalagsins.
Aðildarfélög bandalagsins geta
leitað til þess til aö fá leikrita-
handrit. Bandalagiö aðstoðar
_einnig við útvegun leikstjóra, sem
oft eru leikarar úr Reykjavik, en
ágæt samvinna er við leikhúsin i
Reykjavik að þvi leyti, að þau
láta bandalagið vita, þegar leik-
arar eru á lausum kili, og einnig
hafa leikarar höfuðborgarinnar
verið leiðbeinendur á leiklistar-
námskeiðum úti á landi. Þá út-
vegar bandalagið aðildarfélögum
sinum smink og hefur yfir að ráða
ágætu hárkollusafni til útlána.
011 aðildarfélögin eru áhuga-
mannaleikfélög. Það sem af er
leikárinu hafa þau tékið 23 verk-
efni til sýninga, og önnur tiu eru
nú i æfingu. Af þessum verkefn-
um er um þriðjungur islenzk
verk, þar af tvö barnaleikrit.
Helga sagði, að BIL hefði oft
verið ásakað fyrir að vera ihalds-
samt i verkefnavali, og verið
aðallega með verkefni eftir er-
lenda farsahöfunda. Nú er reynt
að fara inn á nýjar brautir. og má
t.d. nefna, að Leikfélag Selfoss
hefur nú synt Sjö stelpur nokkr-
um sinnum, og ætið fyrir fullu
húsi. Þá er ungmennafélagið
Skallagrimur i Borgarnesi meö
sýningar á lsjakanum, og á Akra-
nesi er Skagaleikflokkurinn að
æfa Ertu nú ánægð kerling? Þetta
eru nýstárleg verk og að mörgu
leyti ólik þeim, sem þessi leikfé-
lög hafa áður spreytt sig á.
Leikklúbbur Laxdæla i Búðar-
dal og Litli leikklúbburinn á tsa-
firði eru báðir með ný barnaleik-
rit eftir islenzka höfunda, og leik-
stýra höfundarnir báöir leikritum
sinum.
— Tengsl áhuga- og atvinnu-
leikara eru mjög náin hér á landi,
miðaö við það sem gerist annars
staöar á Norðurlöndum, sagði
Helga enn fremur. Það er mikið
um það að leikarar úr Reykjavik
leikstýri verkum leikfélaga úti á
landi, en aftur á móti taka þeir
Gerum verzlunar-
dgóðann
félagseign
A ÞAÐ hefur verið bent i Þjóð-
viljanum að þegar innflutt
vara hækkar i verði er arð-
vænlegra að verzla með hana.
Alagningarhluti af dýru skyri
er meiri en af ódýru.
Þetta hafa menn lengi vitað
og þar með að verið getur
gróöavænlegt að kaupa dýrt
inn. Gangi varan út er gott
fyrir verzlunina að hún sé dýr.
Verzlunarkostnaður er mis-
jafn. Sérverzlun i Reykjavik
hefur allt aðra aðstöðu en
verzlun, sem þarf að fullnægja
sinu byggðarlagi úti á landi.
Margt kemur til greina i
verzlunarrekstri og aðstaða
svo misjöfn að ómögulegt er
aö sama álagning hæfi öllum.
Sumar eru drepnar en aðrar
græða þó að svipaðrar hagsýni
sé gætt hjá öllum. Þess vegna
er ekki hægt að valdbjóða
álagningu svo að enginn geti
grætt.
Vilji menn ekki að neinn
græði á viðskiptum við sig er
ekki nema eitt ráð. Það er fé-
lagsverzlun. Sá gróði, sem
myndast hjá félagsverzlun er
sameign, — félagseign.
Flestir landsmenn eiga þess
kost að verzla að mestu við
samvinnuverzlanir. Það eru
til kaupfélög i flestum eða öll-
um verzlunarstööum og i
Reykjavik eru mörg pönt-
unarfélög, sem útvega félags-
mönnum sinum matvörur
undir búðarverði.
Sum blöð landsins hafa lengi
brallað það, að fæla menn frá
samvinnuhreyfingunni með
þvi að kalla samvinnufélögin
gróðahringi, orkustofnanir
o.s.frv. Gildir það nokkuð
jafnt um blöð kommúniista og
íhaldsmanna. Þetta er ljótur
leikur og óhollur. Skiljanlegt
er að blöð sem kenna sig við
sósialisma og félagshyggju
ættu ekki að gera það.
Annað mál er það, að kaup-
félagsmenn verðskulda
áminningu um að stunda fé-
lagsmálin betur, vera virkari
félagsmenn, áhugasamari og
afskiptasamari um það, sem
félag þeirra gerir.
H.Kr.
Atriði úr Sjö stelpum eftir Erik Thorsteinsson, leikritið hefur verið sýnt nokkrum sinnum fyrir
fuliu húsi og við miklar vinsældir.
\
sjaldan þátt i leiksýningunum
sjálfum.
Bandalagið hefur nú tekið upp
þá nýbreytni að gangast fyrir
námskeiðum i leikrænni tjáningu
fyrir áhugaleikara og skólakenn-
ara, og er þá búizt við að kenn-
arar geti tekið þetta upp i skólum
fyrir nemendur sina. Fyrsta
námskeiðið þessarar tegundar,
var haldið á Patreksfirði i októ-
ber sl., en siðan hafa sex slik
námskeið verið haldin viða um
land. Þau hafa verið vel sótt. og
þátttakendur verið 15—20 á
hverju námskeiði.
Bandalag islenzkra leikfélaga
er aöili að Nordisk amatörteater-
raad (NAR), og d formaður
bandalagsins sæti i stjórn ráðs-
ins. NAR hefur undanfarin ár
gengizt fyrir sameiginlegum
námskeiðum fyrir áhugaleikara á
Norðurlöndum og fengið úrvals
leiöbeinendur viðs vegar að úr
Evrópu. Um tiu Islendingar hafa
árlega sótt námskeið NAR. Auk
þess veitir NAR styrki til leik-
feröa dhugaleikfélaga um
Noröurlönd, og mun m.a. styrkja
Leikfélag Húsavikur til Dan-
merkurferðar næsta vor með
leikritið Ég vil auðga mitt land
eftir Þórð Breiðfjörð.
Þá er BIL einnig aðili að Inter-
national Amateur Theatre
Association (IATA), og á Jónas
Arnason sæti i tólf manna ráði
þess. IATA heldur ársþing i
Bandarikjunum næsta sumar, og
I tengslum við það verður efnt til
alþjóðlegrar listahátiðar áhuga-
fólks. Búizt er þó við að kostnað-
urinn verði alltof mikill til þess að
islenzkt áhugamannafélag gæti
farið þangað.
Aöalþing BIL er haldið annað
hvert ár, og kýs það þriggja
manna stjórn, en hana skipa nú:
Jónina Kristjánsdóttir, Leikfélagi
Keflavikur, formaður, Helgi Selj-
an, Leikfélagi Reyðarfjarðar, og
Jónas Arnason, Ungmennafélagi
Reykdæla, en i varastjórn eru
Sigriöur Karlsdóttir, Leikfélagi
Selfoss, og Þórdis Þormóðsdóttir,
Leikfélagi Keflavikur.
Frá námskeiði I leikrænni tjáningu á Patreksfiröi, en þaö sækja áhugaleikarar og skólakennarar