Tíminn - 25.02.1975, Side 16
Þriðjudagur 25. febrúar 1975
BAUER
er einnig
traust
eldvarnatæki
HAUGSUGAN
Guöbjörn
Guðjónsson
SIS-FODIJH
SUNDAHÖFN
G-JÐI
fyrir góéan nmt
^ KJÖTIÐNAÐARSTÖÐ SAMBANDSINS
Ford Bandaríkjaforseti krefst aukinnar aðstoðar við Suður-Víetnam og Kambódíu:
STERK ANDSTAÐA Á ÞINGI
GEGN AUKINNI AÐSTOÐ
Schlesinger: Kommúnistar ná
völdum f Kambódíu, berist aðstoð
ekki i tæka tið.?
Reuter-Washington. Banda-
rikjaþing hóf í gær að ræða kröfu
Gerard Fords Bandarikjaforseta
um stóraukna aðstoð Banda-
rfkjastjórnar við ríkisstjórnir
Suður-Vietnam og Kambódlu.
Krafa forsetans hefur mætt
mikilli andstöðu meðal þing-
manna.
Bandarikjastjórn telur hina
Brestir í Eþíópíustjórn
Reuter—Addis Ababa. Fréttir
hermdu I gær, að tveir valdamikl-
ir stjórnmálamenn i Eþiópiu,
hefðu sagt af sér vegna ágrein-
ings við herforingja þá, er fara
með völd I landinu.
Þessir tveir eru: Dagnachew
Yirgu, landbúnaðarráðherra og
Michael Gebre Negus majór, sem
að sögn fréttaskýrenda hefur ver-
ið áhrifamikill innan herforingja-
stjórnarinnar.
Michael majór var m .a. i sendi-
nefnd herforingjastjórnarinnar,er
fór til Alsir og Libiu i desember
s.l. i þeim erindageiðum að
kynna stefnu Eþiópiustjórnar.
Sagt er nú, aö hann hafi gengið til
liös við Þjóðfrelsishreyfingu Eri-
treu (ELF). Sé svo, þá er hann sá
fyrsti af stuðningsmönnum Eþió-
píustjórnar, er gengur ELF á
hönd frá þvi borgarastyrjöld skall
i i Eritreu um siðustu mánaða-
mót.
Dagnachew landbúnaðarráð-
herra fór fyrir rúmum hálfum
ÚÍSHORNA
%JÁIVIILLI
mánuði i eftirlitsför um land-
búnaðarhéruð landsins, en hefur
ekki snúið aftur úr þeirri för —
hann er nú sagður i útlegð i
Kartúm, höfuðborg Súdan. Aðal-
ástæðan fyrir afsögn ráðherrans
er talin sú verðstöðvun sem sett
var á landbúnaðarafurðir i fyrra
mánuði, en mæltist mjög illa fyrir
meðal bænda.
Þá höfðu borizt fréttir af afsögn
þriðja hátt setta stjórnmála-
mannsins i Eþiópiu: Gemal
Abdulkadir, heilbrigðisráðherra.
Fréttirnar hafa reynzt úr lausu
lofti gripnar — fréttamaður Reut-
er-fréttastofunnar hitti Gemal að
máli i gærmorgun og kvaðst ráð-
herrann þá ekki hafa i hyggju að
segja af sér, enda væri hann
fylgjandi stefnu Eþiópiustjórnar.
Allt var með kyrrum kjörum i
Eritreu i gær. Að sögn fréttaskýr-
enda virðist svo sem Eþiópiuher
og skæruliðar Þjóðfrelsishreyf-
ingar Eritreu (ELF-PLF) búi sig
undir ný átök og freisti þess nú að
styrkja stöðu sina.
Hörmulegt slys
í Noregi
NTB—Osló. 27 létu llfið s.l.
laugardag I mesta járn-
brautarslysi I Noregi frá upp-
hafi rekstrar járnbrauta þar I
landi. Slysið vildi þannig til,
að tvær hraðlestir — önnur á
leið frá Osló til Þrándheims,
en hin á leið frá Þrándheimi til
Oslóar rákust á við Tretten,
sem er skammt frá bænum
Lillehammer I Guðbrandsdal.
Nokkrir þeirra, sem létust
voru börn. Þá lét norski þing-
maðurinn Tönnes M. Andenæs
lifið i þessu hörmulega slysi.
Andenæs var einmitt á leið
heim til sin af þingi Norður-
landaráðs, er haldið var sem
kunnugt er hér i Reykjavik i
fyrri viku. Andenæs var mikill
Islandsvinur og var um árabil
formaður i samtökunum
Norsk-Islandsk Samband.
Orsakir slyssins eru ókunn-
ar.
USA afléttir
áratugs gömlu
vopnasölubanni
Reuter-Washington/ Larkana,
Pakistan. Bandariska utan-
rikisráðuneytið tilkynnti I
gær, að banni þvl, er Verið
hefur i gildi á sölu vopna til
Indlands og Pakistan s.l. ára-
tug, hefði veriö aflétt.
Akvörðun þessi var tekin,
þrátt fyrir áköf mótmæli ind-
versku stjórnarinnar.
Talsmaður Bandarikja-
stjórnar fullvissaði indverska
ráðamenn um, að stjórnin
heföi ekki i hyggju að taka upp
vopnasölu I stórum stil til Ind-
landsskaga. Aðspurður kvað
hann Indverja ekki hafa sýnt
kaupum á bandariskum vopn-
um neinn áhuga (Þess má
geta,en Indverjar hata fengið
nær öll aðkeypt vopn frá
Sovétmönnum). Aftur á móti
hefði Zulfikar Ali Bhutto, for-
sætisráðherra Pakistan, látið i
ljós áhuga á að kaupa loft-
vamabyssur og þvilik vopn af
Bandarikjamönnum.
Bhutto gaf út tilkynningu
siðdegis i gær, þar sem hann
fagnar ákvörðun Bandarikja-
stjórnar. Ennfremur segir i
tilkynningu hans, að Indverjar
þurfi ekki að óttast afleiðingar
þessarar ákvörðunar — bæði
geti þeir sjálfir búið til vopn og
fái að auki keypt næg vopn er-
lendis.
42 fallnir í ár
í pólitískum
óeirðum
Reuter—Buenos Aires. A.m.k.
42hafa látið lifið það sem af er
þessu ári I þeirri öldu óeirða er
gengið hefur yfir Argentlnu að
undanförnu.
Alls kyns hermdarverk hafa
magnazt eftir lát Juan Peróns
fyrrum Argentinuforseta á
miðju siðasta ári. I gær til-
kynntu argentinsk lögreglu-
yfirvöld, að tveir öfgasinnar —
karl og kona — hefðu beði
bana i skotbardaga við lög-
reglu i einni af útborgum
Buenos Aires. Að sögn yfir-
valdanna voru tvimenning-
arnir að dreifa áróðursritum
meðal verkamanna úti fyrir
verksmiðju einni og byrjuðu
að skjóta á lögreglu, er ætlaði
að grennslast fyrir um athæfi
þeirra.
auknu aðstoð — sem samtals
nemur 522 millj. dala — nauðsyn-
lega til að forða rikjunum tveim-
ur frá þvi ,,að verða kommúnist-
um að bráð”.
Fjölmargir þingmenn eru
þeirrar skoðunar, að krafan um
aukna aðstoð eigi litlum vinsæld-
um að fagna hjá almenningi i
Bandarikjunum — bæði vegna
efnahagsörðugleika heima fyrir
og bitrar reynslu af afskiptum
Bandarikjahers i Indókina.
Þá eru mótmælaaðgerðir á
borð við þær, sem efnt var til á
sinum tima til að mótmæla þátt-
töku Bandarikjahers i átökunum i
índókina, þyrnir I augum þing-
manna, en búast má við að sagan
endurtaki sig að þvi leyti. Og
siöast en ekki sizt er fjöldi þing-
manna andvigur stefnu Banda-
rlkjastórnar i málefnum Indókina
og telur stjórnina reyna nú að
setja dæmið þannig upp, að það sé
á valdi þingsins að ákveða, hvort
kommúnistar komist til valda i
Suður-Vietnam og Kambódiu.
Þetta gerir hún aðeins til að
breiða yfir eigin mistök.
James Schlesinger lýsti yfir i
fyrradag, að Kambódia félli
kommúnistum i hendur, ef aukin
aðstoð frá Bandarikjastjórn
bærist ekki i tæka tið. 1 tilefni
þessarar yfirlýsingar mætti
Philip Habib, einn af aðstoðar-
utanrikisráðherrum Banda-
rikjanna, á fundi utanrikismála-
nefndar öldungadeildarinnar og
svaraði spurningum vegna kröfu
forsetans um að auka aðstoð við
Kambodiu um 222 millj. dala.
Habib upplýsti nefndarmenn um
þá staðreynd, að matvælaskortur
hefði fyrir alvöru gert vart við sig
i Pnom Penh- höfuðborg
Kambódiu — og siðustu daga
hefði hluti borgarbúa soltið. Að
sögn hans eru skotfærabirgðir
stjórnarhersins á þrotum. (Sem
kunnugt er sitja hersveitir
kommúnista— fylgismanna
Shinúks prins — um Pnom Penh,
en talið er, að þeir ráði nú miklum
meirihluta Kambódiu.)
Þá lagði Habib áherzlu á, að
ekki mætti einangra Kambódiu
frá umheiminum i umræðum um
þetta mál — félli landið i hendur
kommúnistum, gæti slikt haft
viðtæk áhrif um gervallan heim.
Þetta er sama röksemd og
bandariskir ráðamenn — allt frá
dögum Lyndon B. Johnsons, fyrr-
um forseta — hafa beitt i
umræðum um málefni Indókina,
að sögn Reuter-fréttastofunnar.
Tilnefning kvikmynda við úthlutun
Oskarsverðlauna:
Chinatown og God
father II efstar
Reuter-Los Angeles. Tilkynnt
var I gær, hvaða kvikmyndir
hefðu verið tilnefndar við út-
hlutun óskars-verðlauna í ár.
Þær, sem flest atkvæði hlutu,
voru myndirnar: „China-
town” og „Godfather 2”.
Þær kvikmyndir, sem
næstar komu eru: „The
Towering Infero”, i.Lenny”
(ævisaga gamanleikarans
Lenny Bruce) og „Murder on
the Orient Express” (gerð
eftir sögu Agöthu Christie)
Óskars-verðlaunum verður að
venju úthlutað við hátiðlega
athöfn i Los Angeles og að
þessu sinni verður hátiðin
haldið þann 8. april n.k.'
Þeir leikarar, sem flest at-
kvæði hlutu eru: Art Carney
(fyrir leik sinn i „Harry and
Tonto”), Albert Finney (sem
leikur Poirot i „Murder on the
Orient Express”) og Dustin
Hoffman (sem leikur Lenny i
samnefndri kvikmynd) Þess-
ar leikkonur fengu sömuleiðis
flest atkvæði: Ellen Burstyn
(fyrir leik sinn i „Alice dosen’t
Hve here anymore”, Diahann
Caroll (fyrir leik i „The Black
Family Comedy Claudine”)
og Faye Dunaway (fyrir leik i
,Chinatown”)
Byltingartilraun kæfð í fæðingu í Grikklandi:
Viljum ekki eiga
neitt á hættu
sagði einn af talsmönnum grísku stjórnarinnar í gær
Reuter—Aþenu. Tilhun til stjórn-
byltingar var kæfð i fæðingu I
Grikklandi I gær. Hersveitum og
öryggissveitum var samt sem áð-
ur skipað að vera við öllu búnar
fyrst um sinn.
Griska stjórnin gaf út opinbera
fréttatilkynningu siðdegis i gær. 1
henr.i segir m.a. að nokkrir her-
foringjar, er standi i sambandi
við fyrri valdhafa i landinu, hafi
verið að undirbúa byltingu og þvi
hafi verið nauðsynlegt, áð gripá
strax til viðeigandi gagnráðstaf-
ana.
Á að gizka fimmtán herforingj-
Kynna
ástandið
í S-Víetnam
Hingað til lands er komin i boði
Stúdentaráðs Háskóla lslands, 2
manna sendinefnd frá Bráða-
birgðabyltingastjórn S-Vietnams.
Erindið er að kynna núverandi
ástand mála i S-Vietnam. Al-
mennur fundur verður haldinn
með sendinefndinni miðviku-
dagskvöld kl. 20,30 i Félagsstofn-
un stúdenta við Hringbraut.
ar, er sátu i fyrri stjórn, biða nú
dóms en þeir hafa allir verið
ákærðir fyrir manndráp og land-
ráð. 1 þeim hópi er George Papa-
dopoulos, fyrrum forseti.
Einn af talsmönnum grisku
stjórnarinnar sagði i gær: —
Byltingartilraunin var á undir-
búningsstigi, en við brugðum
skjótt við, enda viljum við ekkert
eiga á hættu.
1 áðurnefndri fréttatilkynningu
segir, að griska stjórnin hafi fulla
stjórn á gangi mála i landinu.
Fréttir af öðrum toga eigi ekki við
nein rök að styðjast.
Að undanförnu hefur verið mikil ólga I griskum stjórnmálum. Á mynd-
inni sjást stúdentar mótmæla framferði tyrkneskumælandi eyjar-
skeggja á Kýpur og I gær var tilraun til stjórnbyltingar kæfð I fæðingu.