Tíminn - 11.04.1975, Qupperneq 3
Föstudagur 11. apríl 1975.
TÍMINN
3
Kaupgjaldsvísitalan
verður mjög á dag-
skró en ASI hefur
ekki mótað stefnu
í málinu
BH-Reykjavik. — „Við höfum
gegnizt inn á það, og teljum það
reyndar eitt af okkar verkefnum
að semja um það við atvinnu-
rekendur, að koma kaupgjalds-
vfsitölunni i gang aftur,” sagði
Snorri Jónsson, varaforseti
Alþýðusambands islands, i
viðtali við blaðið f gær, er það
hafðisamband viðhann og leitaöi
áiits hans á ummælum Jóns H.
Bergs, formanns Vinnuveitenda-
sambandsins, varðandi
kaupgjaldsvisitöluna, sem sagt
segir Snorri Jónsson
varaforseti ASÍ
er frá i frétt á bls. 2.
„Hins vegarhöfum viðiverka-
lýðssamtökunum ekki tekið neina
endanlega afstöðu um það,
hvernig sii kaupgjaldsvisitala
ætti að vera að gerð, eða hve oft
ætti að mæla hana. En það er
alveg vist, að kaupgjaldsvisi-
talan verður mjög á dagskrá,
þegar gengið verður til samninga
við atvinnurekndur, sem stendur
fyrir dyrum nú á næstunni, það er
alveg ákveðið.”
„Ég fíýti mér hægt"
— segir Sverrir Runólfsson
gébé Rvik — Sverrir Runólfsson
kom að máli viö Timann vegna
greinar, sem birtist f miðviku-
dagsblaðinu um kostnað við
vegarkafla þann, sem Sverrir
fékk úthlutað til að gera tiiraun
með „blöndun á staðnum” eins
og hann nefnir það. Var þar sagt
frá aö kostnaður hefði farið
langt fram úr áætlun. Sagði
Sverrir, að ekki hefði verið tekið
nægilega skýrt fram, að enn
væri ekki um neina tilraun að
ræða, hingað til hefði aðeins
verið unnið að undirbyggingu
hins 1200 mtr langa vegarkafla
á Vesturlandsvegi. Enn hefði
hann ekki hreyft vél sína, sem
blanda á slitlagið á veginn, og
væri þvi ekki hægt að tala um
tilrauna-starfsemi enn.
— Undirbyggingu vegarins er
lokið, sagði Sverrir, ,en hana
þurfti að gera algjörlega eftir
gömlu aðferðinni, vegna tækja-
skorts.en mér var lofað tækjum
til þessa um leið og kostnaðar-
áætlunin var gerð, en þegar til
kom voru tækin ekki til reiðu.
— Þá varð að hafa ræsin yfir
40% lengri heldur en upphaflega
var áætlað og teningsmetra-
magnið af efni í veginn meir en
tvöfaldaðist, þar sem skipta
þurfti um jarðveg í undirbygg-
ingunni. Þetta og fleira, eins og
hin gifurlega verðbólga, hefur
gert að verkum, að fjárhags-
áætlunin hefur farið svo langt
fram yfir það sem reiknað var
með, sagði Sverrir.
Eins og kunnugt er, voru ýms-
ir örðugleikar i sambandi við
efnistöku hjá landeigendum,
sem sumir neituðu að láta taka
efni af landi sinu fyrir undir-
byggingu vegarins. Við spurð-
um Sverri um þetta atriði og
sagði hann, að það hefði tvisvar
komið fyrir, að þeir hefðu orðið
að hætta efnistöku i námum,
vegna þess að tilskildir samn-
ingar við landeigendur hefðu
ekki verið gerðir. — Hver átti að
sjá um að fá leyfi landeigenda,
Sverrir? — Það er ekki i minum
verkahring, og mér er ekki
kunnugt um hvaða aðilar áttu
að sjá um það, sagði hann. En
stórfé fór til spillis á þennan
hátt, þvi að við höfðum þegar
hafið efnistökuna þegar land-
eigendur stöðvuðu okkur með
þeim ummælum að við hefðum
engan rétt og ekkert leyfi til
efnistöku.
Ekki gat Sverrir sagt ákveðiö
um hvenær vinna við vegarkafl-
ann hæfist á ný. — Ég flýti mér
hægt og er nú að hugsa málið og
undirbúa frekari vinnu, sagði
Sverrir að lokum.
Hef aldrei sungið Carmen á sviði
— en hef þó sungið hlutverkið bæði d frönsku og þýzku, segir Sigríður E. Magnúsdóttir í viðtali við Tímann
A myndinni sjást nokkrir leikarar f hlutverkum sfnum: Guðrún
Cortes, Guðmundur Bjarnason, Þórður örn Helgason og Efnar
Steingrfmsson.
gébé Rvik — Ég hlakka til að fást
við hlutverkið Carmen, sagöi Sig-
riður E. Magnúsdóttir, sem valin
hefur verið að syngja og leika
hlutverk Carmen f samnefndum
söngieik eftir Bizet. Sigríður er
nýkomin erlendis frá, en kom
heim nú m.a. til að taka þátt i
hijómleikum, sem fram fara f
Háteigskirkju um miðjan april.
Það verður á næsta leikári, nánar
tiltekið i aprfl, sem Þjóðleikhúsið
hefur ákveðið frumsýningu á
söngleiknum Carmen, en einmitt
á þessu ári, á söngleikurinn 100
ára afmæli. Timinn náði tali af
Sigriði á heimili foreldra hennar I
gærdag og spurði hana um hlut-
verkiö og næstu verkefni hennar.
— Það var fyrir um það bil ein-
um mánuði að ég var prófuð fyrir
þetta hlutverk, sagði Sigriöur.
Það voru Þjóðleikhússtjóri,
hljómsveitarstjórinn og leikstjór-
inn, Jón Sigurbjörnsson, sem
völdu i hlutverkin. Það var svo
um viku seinna, að mér var til-
kynnt að ég hefði orðið fyrir val-
inu.
leikhússins.
— Æfingar á Carmen byrja um
miðjan mal, sagði Sigriður, og
standa þær fram I júnf, en þá
verður frf þangað til I september.
Frumsýningin er svo áætluð
seinni hlutan I október I haust.
Rut L. Magnússon, mun einnig
æfa hlutverk Carmen, og stendur
til að hún muni syngja hlutverkið
á nokkrum sýningum. Magnús
Jónsson hefur veriö valinn til að
fara meö aðalkarlhlutverkið, en
ekki mun enn vera fastákveðið i
öll hlutverk önnur.
Sigriður sagöi aö mörg verkefni
væru framundan hjá sér. Eins og
áður er sagt er hún nýkomin er-
lendis frá, en i Vlrtarborg söng
hún meðal annars fyrir áhrifa-
mikinn umboösmann söngvara og
var vel tekið. Hún segir það mjög
harða baráttu að komast aö hjá
Framhald. á bls. 6
Leikfélag Neskaupstaðar:
Sá sem stelur fæti...”
n
— sýnt víöa á Austurlandi
gébé Rvik — Leikfélag Neskaup-
staðar hefur gert viðreist með
leikritið „Sá, sem stelur fæti,
verður heppinn i ástum”, eftir
Dario Fo. Leikritið, sem er þriðja
verkefni leikfélagsins á árinu,
var frumsýnt á skirdag, i Nes-
kaupstað, en auk þess sýnt á
Fáskrúðsfirði, Reyðarfirði og á
Egilsstöðum. Þá mun vera ætlun-
in að sýna leikritið viðar á
Austurlandi, ef færðin leyfir, en
þess má geta að leikför frá Nes-
kaupstað til ýmissa nágranna-
byggðariaga verður varla farin
nema sjóleiðina.
Um næstu heigi eru ráðgerðar
sýningar I Neskaupstað og á
Eskifirði. Leikstjórn annaðist
Signý Pálsdóttir, en leikmynd og
búninga hannaði Messfana
Tómasdóttir, sem er jafnframt
formaður Leikfélags Neskaup-
staöar.
— Þaö verður gaman að fást við
hlutverk Carmen, það er ekki að-
eins söngurinn og leikurinn sem
ég hlakka til að fást við, heldur
einnig dansinn, sem hlutverkinu
fylgir, sagði Sigrlður. Þá kemur
það sér vel að Sigrlöur lærði
spænska dansa I nokkur ár og ætti
þvi ekki að vera erfitt fyrir hana
að taka danssporin á fjölum Þjóð-
Sigrfður E. Magnúsdóttir söng-
kona, að heimili foreldra sinna I
gær, en hún hefur verið valin til
að syngja hlutverk Carmen I
uppfærslu Þjóðieikhússins.
Tlmamynd: Róbert
Endurskoðun á hlufaskiptum
og sjóðum sjávarútvegsins
BH-Reykjavik. — Tlminn hefur
eitt blaða skýrt að nokkru frá
samkomulagi þvi, sem Sjó-
mannasambandið og Llú hafa
gert með sér varðandi kjör báta-
sjómanna, en það er hækkun
skiptaprósentunnar um 1% og
fjölgun helgarfría. t samkomu-
laginu felst einnig ósk til rikis-
stjórnarinnar um, að hún feli
þjóðhagsstofnun að láta fara
fram endurskoðun á samnings-
fyrirkomulagi varðandi kerfis-
breytingu á hlutaskiptum, og af-
stöðu til sjóðakerfis sjávarút-
vegsins.
! GÆR var dregið I 4. flokki
Happdrættis Háskóla tslands.
Dregnir voru 9,000 vinningar að
fjárhæð 84,375,000 krónur.
Hæsti vinningurinn, niu milljón
króna vinningar, kom á númer
42342. Voru allir miðarnir af þvi
númeri seldir I umboðinu á ISA-
FIRÐI.
500,000 krónur komu á númer
10145. Trompmiðinn var seldur á
Akureyri en hinir á Eyrarbakka,
Akranesi og tveir i umboðinu
Hrisateigi 19 i Reykjavik.
Þetta kom fram i ræðu for-
sætisráðherra á aðalfundi VSl er
hann flutti I gær, en þar skýrði
hann frá samþykkt samninga-
nefndanna:
„Samninganefndirnar óska eft-
ir því, að skipuð verði 10 manna
nefnd undir forystu Þjóðhags-
stofnunarinnar með aðild tveggja
fulltrúa frá hverju eftirtalinna
samtaka: Sjómannasambandi ís-
lands, Farmanna- og fiskimanna-
sambandi tslands og Landssam-
bandi isl. útvegsmanna og eins
fulltrúa frá Alþýðusambandi
Vestfjarða, Alþýðusambandi
200,000 krónur komu á númer
30060. Voru allir miðarnir af
þessu númeri seldir i umboði Fri-
manns Frimannssonar I Hafnar-
húsinu.
50,000 krónur:
238 — 5081 — 5765 — 12189 — 12842
—14206 — 16541 — 17456 — 17673 —
18122 — 21986 — 24034 — 24903 —
25885 — 26430 — 30355 — 32998 —
38141 — 39725 — 39804 — 40112
—42341 — 42343 — 43452 — 45282 —
— 45732 —48584 — 49629 —
57274 — 57873 — 58373 — 58979.
Austfjarða og Félagi isl. botn-
vörpuskipaeigenda.
Nefnd þessi skal hafa skilað
áliti fyrir 1. des. 1975.”
Féll niður
um vök og
drukknaði
Gsal—Reykjavlk — Fimm
ára stúlka, Hlin Ingvarsdótt-
ir, til heimilis að Egilsstöð-
um, drukknaði i fyrradag, er
hún lenti undir is á Eyvind-
ará hjá Egilsstöðum.
Tildrög slyssins voru þau,
að tvö börn, piltur og stúlka
voru að leik á snjóþotum og
fóru út á ána, sem var öll
snævi þakin. Við bakkann
var snjódyngja sem gaf eftir
og féll stúlkan niður um
vökina.
Leitað hefur verið allt frá
þeim tima er slysið gerðist,
en slðast þegar Timinn haföi
samband við Egilsstaði,
hafði lik stúlkunnar ekki
fundizt. Milli 15-20 manns úr
björgunarsveitum SVFl leit-
uðu i gær.
NÍU MILLJÓNIR
TIL ÍSAFJARÐAR