Tíminn - 11.04.1975, Side 11
Föstudagur 11. aprfl 1975.
TÍMINN
11
Olíufurstinn keypti Mercedes Benz 600 og ýmislegt
fleira og lét senda sér heim með CARGOLUX
Rétt áfiur en vélin leggur af staö, leggja viðgeröarmenn og flugvirkjar seinustu hönd
á búnaöinn. Löng ferö er fyrir höndum og allt veröur aö ganga samkvæmt áætlun.
Mjög fullkomiö viðgerðarverkstæði er f Luxemborg og þar er — auk Cargoluz —
gert viö og framkvæmdar skoðanir á flugvélum LOFTLEIÐA og AIR BAHAMAS.
Flugmennirnir þrautreyna hreyfla og annað áöur en Iagt er af staö 1 17.000 km flug
til Kfna. Flogiö er yfir borgir og lönd, fjöll og firnindi, eyöimerkur og úthöf og þegar
allt hefur veriö þrautreynt, geysist vélin af staö tii fundar viö loftin biá.
en viö flugum svo heim til hans
með afganginn, og nýi billinn kom
yfir eyðimörkina aftan á trukk.
Siglt gegnum nætur-
himininn
Og við héldum áfram að tala
um flug og einkennilegan farm.
Vélin hélt áfram með þungum
skriði suður á bóginn. Miðjarðar-
hafið kom i ljós, og einhvers stað-
ar framundan var Israel,
Egyptaland og Súez. Himinninn
var alstrindur og i friði háloft-
anna verða manneskjurnar á
jörðinni torskildari en ella. Ekk-
ert er eins fáránlegt, og maður
með alvæpni, maður, sem heldur
aö hann sé að sigra heiminn með
skriðdrekum. Heimurinn er stór
og ægifagur og ósigrandi.
Höskuldur hitaði kaffi. Mild
kaffilyktin fór um vélina, og það
fór að verða heimilislegt i vistar-
verum okkar, sem voru flug-
stjórnarklefi og rými þar aftan
viö, þar sem voru tvær kojur og
nokkur sæti. Einhvers staðar
langt 1 fjarska var áfangastaður
okkar furstadæmið Bahrain.
Áhöfnin. Kaffi með Guð-
jóni flugstjóra
Við vorum sjö um borð: Guðjón
Guðjónsson, flugstjóri, Ragnar
Kvaran aðstoðarflugmaður, Lóa
Kvaran, kona hans, sem fór þessa
ferð með manni sínum, örn
Jóhannsson flugvélstjóri,
Höskuldur, Guðjón Sigvaldason,
skrifstofustjóri Timans, og undir-
ritaður. Þetta var ágætlega sam-
settur hópur, maður fann það á
sér, að allt myndi fara á kostum.
Guðjón Guðjónssonflugstjóri er
ungur maður, en þó liklega mörg-
um kunnur á tslandi, þvi hann
flaug sjúkraflugvélum Björns
heitins Pálssonar um árabil. Sið-
an fór hann til Kanada og flaug
þar alls konar flugvélum um
norðurhéruð landsins. Þaðan lá
leiðin til Japans, þar sem hann
var flugstjóri hjá Air Nippon og
flaug hann þar Fokker Frierrd-
ship skrúfuþotum, eins og Flug-
félag tslands notar á innanlands-
flugleiðum — og reyndar eiga
þeir hjá Flugfélaginu eina af flug-
vélum Air Nippon núna, þessa
rauðmáluðu, og Landhelgisgæzl-
an á aðra frá sama félagi.
Meðan flogið var yfir landið,
sat flugstjórinn á sinum stað.
Flugumferð er mikil yfir Evrópu.
Flugið fer fram eftir ákveðnum
reglum, flogið er á afmörkuðum
leiöum, sem fyrirfram eru
ákveðnar, og flugvélarnar eru i
stöðugu sambandi við flutstjórn-
armenn á jörðu niðri. Ef þetta
væri ekki gert kæmust flugvél-
arnar hreinlega ekki fyrir á
himninum, og þær myndu rekast
hver á aðra. Þaö var ekki fyrr en
komiövaryfir Miðjaröarhafið, að
hann gat rétt úr sér og fengið sér
vindil og kaffibolla.
Flugstjórinn minnti á
duglegann skipstjóra á
skipi
Guðjón er skemmtilegur
flugmaður. Hann minnti mig þá,
og oft siðar , á duglegan skip-
stjóra á skipi. Hann stjórnar ekki
aðeins farkosti sinum, heldur
einnig mönnunum, og kímni hans
er mild og örvandi. Þú fyllist
öryggiskennd. Við tylltum okkur
á bekkskörina, og hann fór að
spyrja tfðinda að heiman. Hann
var búinn að vera lengi ytra —
auðvitað með vissum sumarleyf-
um á Islandi — fyrst i Kanada,
siðan i Japan og nú nokkur ár i
Luxemburg. Svo fórum við að
tala um Japan. Hann hafði kunn-
að vel við sig þar.
— Air Nippon er stórt flugfélag
og annast innanlandsflug milli
eyjanna og stórborga landsins.
Flugliðar þeirra eru meðhöndlað-
ir eins og konungbornir menn.
Þeir höfðu marga tugi blla til þess
að sækja okkur og aðstoðarflug-
maður, sem bjó hinum megin viö
götuna, fékk sérstakan bil, og ég
annan til þess að sækja okkur,
þegar við fórum i flug.
Einhver hefði nú látið okkur
nota sama bilinn og bilstjórann,
en það hefði verið hræðileg móðg-
un, ef við hefðum reynt að nota
sama bflinn, sagði Guðjón.
— En tungumálið? Var það
ekki erfitt-
— Allt fjarskiptasamband fer
fram á ensku, en ég varð að læra
örfá tákn í ritmálinu, til þess að
geta lesið nauðsynlegar upp-
lýsingar og komizt leiðar minnar
á jörðu niðr> svaraði hann.
í botnum Miðjarðarhafs
Það fór nú að birta af degi.
Einhvers staðar fyrir framan
okkur var landið helga með skot-
gröfum sinum og eldflaugastæð-
um. Bedúinarnir stóðu vörð um
hjarðir sinar I eyðimörkinni, og
nú myndu þeir óttast skriðdreka
og vélbyssur meira en villidýrin.
En þrátt fyrir allt, þá komst sálin
nú i eitthvert biflfuskap, sem er
ólýsanlegt, eins og morgunroðinn
yfir landi Daviðs konungs, og i
auðnarfriði, ofar skýjum hallaöi
ég mér nú til svefns, þvi nóttin er
löng, þeim er birtunnar biður.
Guðjón flugstjóri settist aftur i
sæti sitt, þvi ný þrengsli myndu
aftur myndast á himni og jörð,
þegar Miðjarðarhafsbotnar, stigu
út úr mistrinu. t raun og veru var
þetta allt i svo hróplegu ósam-
ræmi við fegurð himinsins.
Var það ekki Sókrates, sem
sagði, að vandalaust væri að
stjórna riki, þar sem allir menn
væru heimspekingar? Kannski
væri auðveldara að stjórna heimi,
þar sem allir væru flugmenn,
hugsaði ég með mér, og gaf mig
svefni hinna réttlátu á vald.
Jónas Guðmundsson. Frh.
Aður en lagt er af stað, koma siðustu fyrirmælin til flugmanna og áhafnar. Sérkennilegt andrúmsloft
rikir i „operation-herbergi” GARGOLUX og minnir einna helzt á stemminguna I herstöðum I gömlum
striðsmyndum, þegar verið er að gera þýðingarmiklar áætlanir. A myndinni sjást Höskuldur (tv) og
Einar Ólafsson forstjóri CARGOLUX er til hægri á myndinni. Þeir ræða við fiugliða.
Ferðafélagarnir. Taiiö frá vinstri: Höskuldur EHasson, loftsiglingafræðingur, Lóa Kvaran, örn
Jóhannsson, fiugvélastjóri, Guðjón Guöjónsson, flugstjóri, Ragnar Kvaran flugstjóri og Gunnlaugur
Sigvaldason, skrifstofustjóri. Myndin er tekin I Borneo.
Hluti af farmgeymslu I Luxemburg. Einhver olfusheikinn hefur verið að fá sér Mercedes-Benz og
Cargolux skutlar bflnum fyrir karlinn heim á hlaö. Þetta kostar mikið, en hann skrúfar bara svolltiö
meira frá oliukrananum og þá veröur allt i lagi.