Tíminn - 12.04.1975, Qupperneq 1

Tíminn - 12.04.1975, Qupperneq 1
SLÖNGUR BARKAR TENGI •iJ — II- I .. j Landvélar hf Komstyggð að huldu- manninum? — Sjd frétt um dularfulla manninn í Loðmundar- firði á bls. 3 Sex millj- arða sóun — Ræða Kristjdns Friðrikssonar d Alþingi um iðnþróunar- dætlunina er d bls. 8 og 9 32 járniðnaðar- menn til Noregs mæli, að hann hefði leitað hingað til lands, vegna þeirrar afspurn- ar, er hann hefði haft af islenzk- um iðnaðarmönnum i Sviþjóð sem afbragðs starfsmönnum. Hér mun einnig skipta nokkru máli, að Norðmenn sjálfir lita olfuævintýrið hálfgerðu hornauga og óttast það aö missa iðnaðar- menn úr öðrum störfum i það, sem raska myndi jafnvæginu á atvinnusviðinu, og þvi munu flest störf við oliuborunina unnin af út- lendingum, a.m.k. enn sem komið er. Islenzku iðnaðarmennirnir eru ráðnir til starfa við borpallana i Þrándheimsfirði i 6 mánuði til að byrja með. Er alls ekki talið frá- leitt að fleiri islenzkir iðnaðar- menn verði ráðnir til starfa á vegum hins sænska verktaka- fyrirtækis. Þegar við leituðum álits for- ráðamanna Félags járniðnaðar- manna á þessu máli, kváðust þeir engin afskipti hafa af þvi haft, og hefðu þeir neitað með öllu að koma þar nærri. Hefðu þeir ekki einu sinni fengið aö sjá samning- ana. Lögfræðiskrif stofa Arnar Clausen visaði þeim fullyrðingum á bug, að Félag járniðnaðar- manna heföi ekki fengið að fylgj- ast meö ráðningunum. Formaður þess hefði kynnt sér efni þeirra, en að öðru leyti hefði ekki veriö . talin ástæða til afskipta félagsins af þessu máli, þar eð mönnum hlyti að vera frjálst að ráða sig til þeirra starfa er þeir kysu helzt. BH-Reykjavik. — ÞrjáUu og tveir járniðnaðarmenn flugu utan i gærmorgun til starfa i Noregi. Hér er um að ræða rafsuðumenn, sem ráðnir hafa verið til sænsks verktakafyrirtækis, sem m.a. stendur að byggingu oliuborpalla i Þrándheimsfirði. Var sótzt eftir islenzkum iðnaðarmönnum til þessara starfa, vegna ágætrar reynslu af þeim iðnaðarmönnum, sem störfuðu i Sviþjóö fyrir nokkrum árum. Blaðinu er ekki fullkunnugt um kaup og kjör þeirra, sem þegar hafa verið ráðnir, en það mun ekki fjarri lagi, að kaupið sé um helmingi hærra en hér, auk þess sem möguleikar munu á þvi fyrir dug- lega menn að komast i ákvæðis- vinnu, sem gefur drjúgum meiri tekjur. Á lögfræðiskrifstofu Arnar Clausen, sem haft hefur með höndum milligöngu fyrir hið sænska fyrirtæki um mannaráðn- ingarnar, er hér um að ræða um- fangsmikið fyrirtæki, Inter-Thor, sem hefur aðsetur sitt i Sviþjóð. Einn aðaleigandi fyrirtækisins, Thor Holmgren, kom hingað fyrir nokkrum mánuðum og ræddi þá við eitthvað á annað hundrað manns, sem höfðu hug á að ráða sig til starfa hjá fyrirtækinu. Hafði Thor Holmgren þau um- SLYSAVARÐSTOFAN Á AKUREYRI LOKAR Á KVÖLDIN OG UAA HELGAR gébé Rvik — Sú breyting hefur verið gerð á þjónustu slysavarð- stofunnar á Fjóröungssjúkrahús- inu á Akureyri, að eftirleiðis verður hún lokuð á kvöldin, nótt- unniogum helgar. Breytingin tók gildi 9. april sl. Fólki er bent á að leita til læknavaktarinnar i bæn- um með smáslys, sem kunna bera að höndum. Timinn hafði sam- band við Gauta Arnþórsson yfir- lækni og spurðist fyrir um ástæðuna fyrir þessari breytingu. — Það er fyrst og fremst mannaflaskortur, sagði Gauti. A undanförnum árum hefur mót- taka slasaða við sjúkrahúsið þróazt i þá átt að með hvers konar minniháttar slys hefur verið leit- aö beint á sjúkrahúsið án milli- göngu heimilislæknis. Vegna erfiðleika á að tryggja viðundandi mannafla á Slysa- varðstofunni á komandi mánuðum, hefur nú reynzt nauðsynlegt að loka beinni mót- töku smáslysa á kvöldum, nóttum og um helgar, en ibúum Akur- eyrar er bent á að leita heimilis- læknis eða læknavaktar i bænum. Þá sagði Gauti, að yfirleitt væru það ekki fleiri en 3-4 smáslysa- tilfelli sem kæmu á slysavarð- Súlan EA farin á Norðursjóinn Islenzkir bátar mega veiða 500 lestir af Norðursjávarsild til viðbótar og LÍU hefur nú fengið leyfi fyrir sex islenzka báta. Einn er þegar farinn til veiða i Norður- sjó. Er það Súlan EA. stofuna þegar hún er opin á kvöldin og að nóttu til. — Það er naumast nokkrum vafa undirorpið, að þróunin á undanförnum áratugum hefur orðið sú, að leitað er til læknis eða sjúkrahúss, þar sem þau eru til staðar, með kvilla og smáslys hvers konar, og oft að nauðsynja- lausu, sagði Gauti ennfremur. Þá er kostnaður samfélagsins af þvi að halda uppi gæzluvakt til þess einsaðtaka á móti þeim fáu smá- slysatilfellum, sem berast slysa- varðstofunni á þeim tima sem hér um ræðir, óhóflegur — miðað við nýtingu, ekki sist þegar þess er gætt að samtimis er greitt fyrir gæzluvakt i bænum. — Heimilislæknir eða vakt- læknir eru jafnfærir um að greina oglækna áverka og aðrir læknar, þótt þeir starfi á sjúkrahúsi, sagði Gauti. — Að sjálfsögðu er einnig tekið á móti fólki með alvarleg veikindi, eða eftir meiriháttar slys á deildir sjúkrahússins án milligöngu heimilislæknis eða vaktlæknis, hvenær sem er sólar- hringsins eins og áður hefur ver- ið. Þá sagðist Gauti gera ráð fyrir þvi, að þessi breyting mæltist ekki illa fyrir hjá almenningi. — Þvert á móti vænti ég þess, að það samfélag, sem á og rekur þessa stofnun, og á réttmæta kröfu á þvi aö þar sé ætið sýnd ýtrasta við- leitni til þess að veita beztu hugsanlega þjónustu hverjum sem til hennar leitar, muni ekki hafa óhagræði eða tjón af þessari óhjákvæmilegu breytingu, sagði Gauti Arnþórsson yfirlæknir að lokum. HITI I KOLUNUM I GRINDAVIK: -ÞEIR MEGA INNSIGLA HJÁ MÉR. EF ÞEIR VILJA” SJ-Reykjavik — Mikillar óánægju gætir nú meðal fiskkaupenda i Grindavik vegna þeirrar ákvörð- unar Sjávarútvegsráöuneytisins, að láta nú ganga hart eftir þvi að ferskur fiskur sé gæða- og stærð- armetinn við löndun. Reiöi fisk- kaupenda byggist fyrst og fremst á þvi aö þessi ákvörðun skuli tek- in nú, mánuði fyrir vertiðarlok, en þeir hafa fyrir löngu gert samninga við sjómennina um að kaupa allan fiskinn á meðalveröi áh gæðamats. Kaupendur i Grindavlk greiða nú flestir um 30 kr. fyrir kg. af fiski, en fyrsta flokks verðið er 32.80 kr. fyrir hvert kg. Um samræmdar að- gerðir fiskkaupenda gegn Sjávar- útvegsráðuneytinu mun ekki vera að ræða, a.m.k. ekki enn sem komiö er. — Þeir mega innsigla hjá mér ef þeir vilja, sagði einn stærsti fiskkaupandinn i Grindavik I gær. Ég hef boðið þeim i ráðuneytinu að /áta menn koma og skoða' fisk- inn i húsunum hjá mér, en ég fer ekki með fiskinn f mat. — Ég kann ekki við svona löguð vinnubrögð. Annað hvort vil ég hafa fiskmat eða ekki fiskmat. Ég varð ekki var við þá góðu herra þegar ég þur.fti á ferskfiskmati að halda. Það er utan vertiöar, sem við þurfum á mati að halda, en ekki á vertiðinni. Við hér i Grindavik kunnum til verka, að velja fisk til að frysta og ganga frá i salt, við höfum matsmenn hér innanhúss og hing- að koma menn frá Sölumiðstöö hraöfrystihúsanna og ferskfisk- eftirlitinu flesta daga. Og fiskur- inn frá okkur hefur ekki reynzt verri en annars staðar frá, nema siður sé. Við höfum meira að seg ja haft stórgagn af þvi að hafa þennan hátt á, þvi að fiskurinn kemur betur flokkaður frá sjó- mönnunum nú, þegar þeir hafa ekkert mat til að treysta á. — Hins vegar er ekki nema gott ef sjávarútvegsráðuneytið vil endurskoða þessi mál fyrir næstu vertið. Og t.d. banna mönnum að kaupa fisk á hærra veröi en sam- svarar þeim flokki, sem hann lendir i. En annað hvort á að vera fiskmat allt árið eða ekki. En hér þarf aö koma upp górði aöstööu til að meta fiskinn. Þaö þýöir ekki að taka nokkra fiska úr heilu bil- hlassi, það segir ekkert um gæði fiskjarins i heild. Timinn hafði samband við Sjávarafurðadeild SIS vegna þessa máls, Ólafur Jónsson að- stoðarframkvæmdastjóri sagðist litið hafa meö þessi mál aö gera, en það væri sitt álit, að ef hæti yrði að gæðameta fisk upp úr veiðiákipum, væri horfiö aftur til fortiðarinnar i staðinn fyrir að lita fram á veginn. — Þetta er að- ferð til að greiða hærra verö fyrir fiskinn, en þvi miður afskaplega hættuleg aðferð, bætti Ólafur við. Aðalfundur Samvinnubank- ans í dag i DAG veröur haldinn aðal- fundur Samvinnubanka is- lands hf., og hefst hann klukk- an tvö eftir hádegi i ráðstefnu- sal Hótels Loftleiða. Þar verður flutt ársskýrsla bankans fyrir siðasta starfsár og reikningar hans fyrir árið 1974 lagðir fram. Þá fara fram kosningar og önnur venjuleg aðalfundar- störf. Aðgöngumiðar og atkvæöa- seðlar vegna fundarins verða fundarmönnum afhentir á fundarstaö. VERK- FALLIÐ HJÁ K.Á. ■ > o

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.