Tíminn - 01.05.1975, Side 2
2
TÍMINN
Fimmtudagur 1. mai 1975.
NY LÆKNASTOFA
í CARÐINUM
— opnar sennilega um mánaðarmótin
gébé Rvlk — Fyrirhugaö er, að
um næstu mánaðamót taki
læknastofa til starfa I Garðinum,
en hingað til hafa Ibúarnir þar
þurftaðsækja alla læknaþjónustu
til Kefiavikur. — Gert er ráð
fyrir, að fastráðin verði hjúkrun-
arkona við stofuna, sagði Harald-
ur Gíslason sveitarstjóri, og aö
læknar frá Keflavik verði þar
meö fasta tima I viku hverri.
— Læknastofan verður I beinu
sambandi við Heilsugæzlustöð
Keflavikur, og munu læknar það-
an annazt þjónustu á læknastof-
unni í Garðinum, sagði Haraldur.
Gerum við ráð fyrir að fastráöa
hjúkrunarkonu, og vonumst við
til að stofan geti tekiö til starfa
um næstu mánaðamót. Þá er á-
ætlað að stofan þróist i það að
verða heilsugæzlustöð með fast-
ráðnum lækni.
Húsnæði fyrir læknastofuna
hefur enn ekki verið ákveðið, en
tveir staðir koma til greina og
verður ákvörðun um hvor þeirra
sé heppilegri tekin á næstu dög-
um, sagði sveitarstjórinn, Har-
aldur Gislason.
Sprett úr spori —á vorkappreiðum Fáks I fyrra.
Kappreiðar á sunnudag
BH-Reykjavik. — Vorkappreiöar
verða háðar sunnudaginn 4. mai
nk. á skeiðvellinum aö Viöivöllum
I Selási, og eru það Hestamanna-
félögin Fákur I Reykjavlk og
Gustur i Kópavogi, sem standa
fyrir þeim aö þessu sinni. Til
keppni eru skráðir 50 hestar, og
kennir þar ýmissa grasa, marg-
ir tiltöluiega óþekktir, en ýmsir
efniiegir auk gamalkunnra gæð-
inga. Aö venju verður það keppn-
in i 250 metra skeiöi, sem að iik-
indum vekur mesta athyglina, en
þess skal einnig getiö, að I stökki
verður keppt á 350 og 800 metra
spretti, auk annars.
Það er ekki vitaö til þess, að
neinn af þekktustu knöpunum sé
forfallaður, og sjálfsagt hleypa
þeir fleiri en einum hver að venju.
Verðlaunin eru bikarar og verð-
launapeningar, en áhorfendur
hafa til nokkurs að vinna auk þess
að sjá fallega gæðinga þvi að veð-
bankinn verður starfræktur. Svo
verða hestakonur mættar á
staðnum og selja happdrættis-
miða, en vinningurinn er eyfirzkt
gæðingsefni, fallegur töltari 6
vetra. Við höfum trú á þvi, að
veðurguðirnir veröi hliðhollir
hestamönnum um helgina.
Gullskipiðá Akureyri
ED Akureyri — A föstudags-
kvöldið frumsýnir Leikfélag
Akureyrar Gullskipið eftir Iiilmi
Jóhannesson. Þetta er skopieik-
ur, sem gerist i friðsamri grá-
sleppuhöfn, en allt i einu koma
tvö þúsund ferðamenn á skipi I
plássið, og snúast Ibúar þess við I
hversdagsleikanum.
Eyvindur Erlendsson er leik-
stjóri, en leikmyndir gerði Jón
Þórisson. Með hlutverk fara:
Gestur E. Jónasson, Arnar Jóns-
son, Sigurveig Jónsdóttir, Friðrik
Steingrimsson, Kristjana Jóns-
dóttir, Þorhildur Þorleifsdóttir,
Aðalsteinn Bergdal, Þráinn
Karlsson, Arni Valur Viggósson
og Kjartan ólafsson. Kjartan á nú
um þessar mundir fjörutiu ára
starfsafmæli hjá Leikfélagi Akur-
eyrar.
Hagræðingarsérfræðingur
sjúkrahússins vill koma allri
sjúkdómsgreiningu inn á
tölvukerfi og gatar hér geð-
kort sitt af kappi. Þetta ger-
ist I leikriti Þjóðleikhússins
Hvernig er heilsan? eftir
Kent Andersson og Bengt
Bratt, sem sýnt verður I slö-
asta skipti annað kvöld
(föstudagskvöld). Það eru
tveir sjúklingar geð- og
taugadeildarinnar, sem hér
hafa brugðið sér 1 gervi
Hraðars hagræðingarsér-
fræðings og geðlæknis
(Rúrik Haraldsson og Þóra
Friðriksdóttir). Leikritið
hefur vakið bæði athygli og
umtal, þar er fjallað um
málefni geð- og taugasjúkl-
inga á aðgengilegan og að
mörgu leyti skemmtilegan
hátt. Leikstjóri er Sigmund-
ur örn Arngrimsson.
NÝTT FLUGFÉLAG
STOFNAÐ NYRÐRA
— flugsamgöngur batna mjög á
Norð-Austurlandi
ED Akureyri — A Akureyri hefur
nýtt flugféiag verið stofnaö, Flug-
féiag Norðurlands hf. Stofnendur
þess eru nokkrir fyrrverandi
starfsmenn Norðurflugs hf. og
auk þess Flugleiðir hf. Fjórar
flugvélar eru I eigu félagsins, en
það mun halda uppi áætlunar-
ferðum til staða á Norð-Austur-
landi, og munu nú batna verulega
fiugsamgöngur þar.
Þrjár af vélum Flugfélags
Norðurliands hf. eru tiu sæta
Beachcraft vélar, en ein er af teg-
undinni Aztec, fimm sæta vél,
sem notuö verður I sjúkraflutn-
inga og einnig til leiguflugs. Fjór-
ar áætlunarferðir I viku verða til
Vopnafjarðar, Þórshafnar og
Raufarhafnar, en þrjár ferðir I
viku til Húsavlkur og Grlmseyj-
ar. Afgreiðslu hins nýja flugfé-
lags mun Flugfélag Islands ann-
ast I Flugstööinni á Akureyri.
Stjórn Flugfélags Norðurlands
skipa Einar Helgason, Torfi
Gunnlaugsson og Jón Karlsson,
en I varastjórn eru Jakob Frl-
mannsson, Jóhannes Fossdal,
Niels Glslason, Framkvæmda-
stjþri er Sigurður Aðalsteinsson
flugmaður, og mun skrifstofa
flugfélagsins vera til húsa I Flug-
stöðinni á Akureyrarflugvelli.
Formlega tekur félagið til starfa
1. mal.
Áætlunarferðir F.N. koma I
staðáætlunarferða F.I., sem voru
miklu færri til þeirra staða sem
áður eru nefndir. Flugsamgöngur
aukast mjög verulega á
Norð-austurlandi viö tilkomu hins
nýja flugfélags.
FJARBONDI A
ELLIHEIMILI
ED Akureyri — Óskar Stefáns-
son, fyrrverandi bóndi á Tjörnesi,
núverandi vistmaður á elliheimil-
inu Skjaldarvik I Eyjafirði, á 19
kindur I kofa nálægt elliheimilinu
og sinnir vel um þær. Nýlega
höföu 10 ær hans borið, þar af sex
þrllemdar og fjórar tvilemdar.
Einnig sagði Óskar, að hann áliti
að 2—3 þrilembur væru óbornar.
Þá sagðist Óskar ekki hafa notaö
nein hormónalyf fyrir rollur sln-
ar, en fé hans er. sérstaklega fall-
egt.
Fyrstu gagnfræðingarnir
úr Egflstaðaskóla í vor
gébé Rvlk — Egilsstaðaskóli út-
skrifar i vor I fyrsta skipti gagn-
fræðinga, en það eru 18 nemendur
sem þreyta það próf. 25 nemend-
ur þreyta ungiingapróf, en I allt
munu um 260 nemendur þreyta
próf I skólanum I vor. Þá hefur
verið ákveðið að el'na til viða-
vagnshlaups nemenda Egils-
staðaskóla 1. mal ár hvert, og
gera hlaupið að föstum viöburði I
lifi Egilsstaðabúa.
Þátttakendur I hlaupinu veröa
á aldrinum 6—18 ára og verður
hlaupið I fjórum flokkum drengja
og stúlkna. Sérstaka viðurkenn-
ingu fá sigurvegarar I hverjum
flokki, og efnt verður til útidag-
skrár I tengslum við hlaupið.
Sunnudaginn 4. mal verður sýn-
ing á handavinnu nemenda Egils-
staöaskóla, en eftir það fara próf
að hefjast hjá elztu nemendunum.
Námsflokkarhafa verið starfandi
við skólann I vetur með 40 nem-
endum, og er áætlað að halda
þeirri starfsemi áfram næsta vet-
ur. Þá hefur 2. bekkur iðnskóla
verið rekinn við Egilsstaðaskóla
á yfirstandandi skólaári I tengsl-
um við Iðnskóla Austurlands I
Neskaupstað. I þeirri bekkjar-
deild stunda 17 iðnsveinar nám.
t marzmánuði var árshátið skól-
ans haldin, auk skemmtunar fyrir
foreldra, sem þóttist takast með
ágætum. Um páskana fóru nem-
endur gagnfræðadeilda skólans I
náms- og kynnisför til Reykjavik-
ur.
Kennarar við Égilsstaöaskóla
eru nú 18, auk skólastjóra, sex
stundakennarar og 12 fastir kenn-
arar. Fellahreppur I
Norður-Múlasýslu gerðist rekstr-
araðili að skólanum sl. haust, og
er nemendum úr Fellahreppi ekið
daglega I og úr skóla, allt að 50
km leið. Skólanefnd Egilsstaða-
skólahverfis skipa 5 manns, tveir
úr Fellahreppi og þrlr úr Egils-
staðahreppi, en formaöur er frú
Ásdis Sveinsdótir Egilsstöðum.
Akveðið hefur verið að hefja
byggingaframkvæmdir við Egils-
stað".skóla á sumri komanda og
stefnt að þvl aö steypa upp IV. á-
fanga skólahússins og fullgera að
hluta. Það er mikið nauðsynja-
verk, þar sem húsakostur þrengir
nú mjog að starfsemi skólans.
Samið við Pólverja til 5 ára
Fjölbrautaskóli
í Flensborg
— fyrstu stúdentarnir í vor
Undirritaður hefur verið samn-
ingur milli menntamálaráðu-
neutisins og Hafnarfjaröarkaup-
staðar um að Flensborgarskóli I
Hafnarfirði skuli starfa sem fjöl-
brautaskóli. t samningnum er
kveðið á um aö stefnt skuli að þvl
að I skólanum verði gefinn kostur
á námi á eftirtöldum námsbraut-
um: Menntaskólabraut, tækni-
braut, viðskiptabraut, félags-
fræðibraut, heimilisfræðabraut,
myndlista- og handiðarbraut, svo
og iðnaðar- og iðjubraut I sam-
vinnu við Iðnskólann i Hafnar-
firði. Embætti skólameistara við
hinn nýja fjölbrautarskóla hefur
nú verið auglýst til umsóknar.
Undanfarin árhefurmeð heim-
ild menntamálaráðuneytisins
verið starfrækt menntadeild við
Flensborgarskóla. Er fyrirhugað
að stúdentar verði I fyrsta skipti
brautskráðir frá skólanum á
þessu vori.
FRAMSÓKN
Einar Agústsson, utanrikisráöherra og Romuald Poleszczuk, sendiherra Póilands á tslandi, undirrita
nýjan viðskipta- og greiðsiusamning milli tsiands og Póllands.
EINAR Agústsson, utanrikisráö-
herra og Romuald Poleszczuk,
sendiherra Póllands á tslandi,
undirrituðu I dag nýjan viðskipta-
og greiðslusamning milli tslands
og Póllands, en samningsgerð fór
fram 9.-10.'september s.l. I Var-
sjá. Formaður Islenzkú samn-
inganefndarinnar var Þórhallur
Asgeirsson, ráðuneytisstjóri.
Samningurinn er I öllum aðal-
atriðum samhljóöa viðskipta-
samningi, sem gerður var I
Reykjavik 12. september 1969 og
gilt hefur I rúm 5 ár. Bæði löndin
skuldbinda sig til að veita inn-
flutningi hvors annars beztu kjör
samkvæmt GATT-sáttmálanum.
Allar greiðslur milli landanna
skulu fara fram I frjálsum
Bandarikjadollurum eða öðrum
skiptanlegum gjaldmiðli. Samn-
ingnum fylgja tveir listar yfir
helztu vörutegundirnar, sem
löndin leggja mesta áherzlu á að
selja. Gildistimi samningsins er
til 31. desember 1980.
í RÍNARFERÐ
ED—Akureyri — Kjördæmissam-
band Framsóknarfélaganna i
Norðurlandskjördæmi eystra,
hefur ákveðið að efna til hópferð-
ar til Rinarlanda i sumar. t ljós
hefur komið mikill áhugi á ferð
þessari, sem farin verður 27. júni
og stendur i 15 daga. Bókað er i
meirihluta þeirra sæta, sem sam-
bandið hefur til umráða.
Ættu þeir, sem bafa áhuga á
ferð þessari að hafa strax sam-
band við einhvern af eftirtöldum :
Skrifstofu sambandsins á Akur-
eyri, Þormóð Jónsson Húsavik,
Hilmar Danielsson Dalvik, Aðal-
björn Gunnlaugsson Lundi. Þá
eru þeir beðnir, sem þegar hafa
látið skrá sig i ferðina, að stað-
festa pöntun sina með þvi að
borga inn á fargjaldið.