Tíminn - 21.05.1975, Blaðsíða 5
Mlftvikudagur 21. mal 1975
ItMINN
5
Hvað vi11 ASI f
skattamálum?
Nýlega birtist forustugrein i
isfirðingi, hlaði Framsóknar-
manna á Vestfjörðum, sem
Halldór Kristjánsson skrifaði.
Er þar rætt um ASÍ og skatta-
málin. i greininni segir:
„Alþýðusamband islands
hefur á siðastliðnum vetri
barizt fyrir lækkun skatta. Þvi
hefur verið marglýst af hálfu
þess, að lækkanir beinna
skatta myndu verða metnar
jafnt og bein kauphækkun.
Þetta er þvi þáttur I kjara-
baráttu þeirri, sem Alþýðu-
sambandið heyr fyrir hina
mörgu smáu.
Sitthvað er f sambandi við
þessa baráttu, sem ástæða er
tii að hugleiða og verður tilefni
fyrirspurna.
Ekki liggur neitt fyrir um
þaðhvernig Aiþýðusambandið
vill haga skattheimtu al-
mennt. Það er ekki vitað hvort
það hefur nokkra skoðun eða
stefnu i þeim efnum.
Meira þarf en
almennt skraf
Þvi er fyrsta spurningin,
hvort ætlunin sé sii, að minnka
tekjuöflun rikissjóðs i heild og
skerða þannig fjárráð og
greiðslugetu hans?
Ef svo er, þá veröur að
spyrja á hverju það eigi að
bitna. Vitað er að öll barátta
stéttarsamtaka fyrir kaup-
hækkun stuðlar að auknum
reksturskostnaði, að þvi leyti
sem hún ber einhvern árang-
ur. Frómar óskir um sparnaö I
rekstri eru ágætar i sjálfu sér,
— og víst er alltaf og alls stað-
ar aðgæzlu þörf, — en meira
þarf en almennt skraf I þeim
efnum. Tal um niðurskurð á
útgjöldum rikisins er mark-
laust gaspur þangaö til nefnd-
ir eru þeir liðir, sem það skal
bitna á.
Á hitt ætti ekki að þurfa að
minna, að félagslegt öryggi i
landinu byggist á greiðslugetu
rikissjóðs og þar með tekjuöfl-
un hans, skattheimtunni. Þeg-
ar hér er talað um félagslegt
öryggi er átt við almanna-
tryggingar, heilbrigðisþjón-
ustu og slysavarnir,
menntunaraðstöðu, sam-
gönguskilyröi o.s.frv. Allt er
þetta háð greiðslugetu rikis-
sjóðs. . Hagur og öryggi
alþýðumannsins liggur við að
greiðslugeta rikissjóðsins
bregðist ekki. Ef rétt er
stjórnað er skattpeningur
gæfupeningur alþýðumanns-
ins.”
Hátekjumönnum
í hag?
Loks segir isfirðingur:
„Þvi er ástæða til að spyrja,
hvort Alþýöusamband isiands
beiti sér fyrir skattalækkun
með það I huga að tekjur rikis-
sjóðs og greiðslugeta veröi
minnkuð?
Sé það hins vegar stefna
Alþýðusambandsins, að
skerða ekki tekjur rikissjóðs,
heldur færa skattheimtuna frá
beinum sköttum til óbeinna,
vakna nýjar spurningar. Er
það oröin stefna þess að
hækka söluskattinn eftir þvi
sem tekjuskattur lækkar? Ef
svo er, ætti það að hætta öllu
hræsnissmjaðri um réttarbæt-
ur fyrir hina lægst launuöu,
þvi að hækkun söluskatts til
þess að tekjuskattur megi
lækka er beinlinis til þess að
færa byrðar af hátekjumönn-
um á láglaunafólk.
Það er að vonum að almenn-
ing langi til að vita hvort
Alþýðusamband tsiands hefur
stefnu I skattamálum eða
ekki. Gera fulltrúar þess og
forustumenn kröfur um lækk-
un tekjuskatts án þess að hafa
nokkuð hugsað um tekjuöflun
rikissjóðs I heild? Gætu það
kallazt ábyrgir alþýðuforingj-
ar sem gerðu slikar kröfur, án
þess að gefa gaum að þvi
hvaða afleiðingar það hlýtur
að hafa?
Þvi eru allar ástæður til að
spyrja, hvort Alþýðusam-
bandiö hafi einhverja stefnu i
þessum málum, hvort það veit
hvað það vill, eða hvort það
vill ekki neitt nema færa byrö-
ar af hátekjumönnum á herð-
ar þeirra sem ekki komast I
tekjuskatt?” — a.þ.
Æfingasvæði
ökukennara
BH—Reykjavik. „Um nokkurt
skeið hefur Félag ökukennara
bent á nauðsyn þess að koma
upp sérstöku afmörkuðu svæði
til að annast kennslu byrjenda
I bifreiðaakstri. Slik fram-
kvæmd viröist I hæsta máta
eölileg og skynsamleg, bæði
frá sjónarmiði þeirra, sem
ökukennslu annast, sem og
hinna, er ábyrgð bera á um-
ferðar- og öryggismálum i
borginni.”
Þannig hóf Kristján Bene-
diktsson ræðu sina, er hann
mælti fyrir tillögu, sem hann
flutti á borgarstjórnarfundi sl.
fimmtudag um landsvæði til
handa ökukennarafélagi
Islands, en tillagan er svo-
hljóðandi:
„Borgarstjórn samþykkir
að láta ökukennarafélag Is-
lands hafa til ráðstöfunar
heppilegt landsvæði til nota
við kennslu byrjenda I bif-
reiðaakstri.
Felur borgarstjórnin borg-
arverkfræðingi að leggja hið
fyrsta tillögu fyrir borgarráð
um staðsetningu sliks æfinga-
svæðis og verði um stað-
setninguna haft fullt samráð
við félag ökukennara.”
Las Kristján Benediktsson
upp bréf frá ökukennara-
félaginu þessa efnis, en sagði
slðan:
„Þar sem velflestir þeir,
sem búa sig undir ökupróf,
gera það hér I höfuðborginni,
er að sjálfsögðu brýnast að
koma sliku æfingasvæöi upp I
næsta nágrenni borgarinnar.
i tillögu minni er ekki fjallað
um fjárhagsheit við gerð og
rekstur sliks æfingasvæðis,
enda ibréfi þvl frá ökukennur-
um, er áðan var kynnt, rætt
um úthlutun landsvæðis.
Ég tel, að hér sé um mál að
ræða, sem finna þurfi lausn á
hið fyrsta.
Algjörir byrjendur við akst-
ur bifreiða eru til verulegs
trafala I umferðinni. Fyrstu
tlmana væru þeir betur komn-
ir á afmörkuðu sérmerktu
æfingasvæði, þar sem einnig
mætti kenna umferðarreglur,
áður en akstur hefst um aðal-
umferðargötur borgarinnar.”
Davið
Oddsson (S)
tók til máls
um þessa til-
lögu og kvaö
hana hina
þörfustu og
myndi vafa-
laust koma að
gagni, ekki aðeins fyrir nema i
bifreiðaakstri, heldur og þá,
sem þyrftu að halda kunnátt-
unni við, svo og þá, sem til
borgarinnar kæmu og helltu
sér fyrirvaralaust út I umferð-
ina með tilheyrandi afleiðing-
um.
Aö máli hans loknu var
samþykkt samhljóöa að visa
tillögunni til borgarráðs.
Happdrætti
lögreglu-
kórsins
Dregið hefur verið I
happdrætti Lögreglukórs
Reykjavikur. Upp komu eftir-
talin númer: no. 1. 3218. 2. 988.
3. 3753. 4. 3491. 5. 2210. 6 . 2155.
7. 2213 8. 1774. 9. 3720. 10. 1707.
11. 3040. 12. 1576.
Islenzk nytjalist í
Norræna húsinu
Sýningin ISLENZK NYTJA
LIST II, var opnuð I Norræna hús-
inu á þriðjudag. Hún er önnur i
röðinni af tilraun LISTIÐNAR,
félags listiðnaðarmanna, iðn-
hönnuða og arkitekta, til að
kynna almenningi Islenzka nytja-
list og þá einstaklinga sem að
hönnun standa hér á landi, en
fyrsta sýning félagsins var i sam-
vinnu við Islenzkan heimilisiðnað
i Hafnarstræti 3 fyrr i vor.
Að þessu sinni sýnir Jónina
Guönadóttir keramikverk, þar
sem hún leitast viö að sýna þróun
ákveðinnar hugmyndar, þ.e.
hvemig ná má breytilegum áhrif-
um með þvi að vinna úr sama
formi á mismunandi vegu. Jónina
Guðnadóttir stundaöi nám I
Myndlista- og handiðaskólanum
1960-62 og i Myndlistaskólanum I
Reykjavik 1962-63. Frá 1963
stundaði hún nám við Konstfack I
Stokkhólmi þaöan sem hún lauk
prófi 1967, en árið eftir starfaði
hún sjálfstætt i tengslum við
Konstfackskólann. 1968 hélt hún
einkasýningu I Unuhúsi á kera-
mik og glermunum og 1969-72 var
hún kennari við keramikdeild.
Myndlista- og handiöaskólans.
Jónina hefur tekiö þátt I
samsýningum.
Næsta sýning LISTIÐNAR,
NYTJALIST III, verður haldin i
Norræna húsinu i júni n.k. með
þátttöku Guðjóns Eggertssonar
teiknara og ljósmyndaranna
Sigurgeirs Sigurjónssonar og
Guðmundar Ingólfssonar.
BILAVARA-
HLUTIR
NOTAÐIR
VARAHLUTiR
í FLESTAR GERÐIR ELDRI BÍLA
Ódýrt:
vélar
gírkassar
drif
hósingar
fjaðrir
BÍLAPARTASALAN
Höföatúni 10, simi 11397.
Opið frá kl. 9—7 alla virka daga og 9—5 1
laugardaga.
öxlar
henlugir I aflanikerrur
bretti
hurðir
húdd
rúður o.fl.
Jeppaog
Dróttarvéla
hjólbaréar
VERÐTILBOD
SV af tveim
7 dekkjum
^jQ%a1 fjórum
dekkjum
600-16/6 ET 1 m/slöngu Kr. 7.180,-
650-16/6 ET 1 m/slöngu — 7.650,-
650-16/6 NT 6 m/slöngu — 7.750,-
650-16/6 TP 7 m/slöngu — 7.290,-
750-16/6 TP 7 m/slöngu — 8.695,-
750-16/8 ET 1 m/slöngu — 11.580,-
TÉKKNESKA BIFREIÐAUMBOÐIÐ Á ÍSLANDIH/E
AUÐBREKKU 44 - 46 SÍMI 42606