Tíminn - 03.07.1975, Blaðsíða 2
2
TÍMINN
Fimmtudagur 3. júli 1975.
Hreinn Líndal í
söngferð um landið
gébé-Rvík. — Hreinn Lindal
tenórsöngvari, leggur upp i söng-
feröalag á föstudag um landið t
allt verða það sex tónleikar sem
Hreinn heldur, en undirleikari
hanser Olafur Vignir Albertsson.
A dagskrá hljómleikanna eru
m.a.verkefni eftir Pál Isólfsson,
Emil Thoroddsen, Grieg,
Schubert og gömul klassisk ftölsk
lög.
Hreinn Lindal er Keflvikingur,
enhann var fyrsti nemandi Mariu
Markan, eftir að hún kom heim
frá Bandarikjunum og hóf hér
söngkennslu. Hreinn hélt til ttaliu
eftir námið hjá Mariu og þreytti
inntökupróf við Santa Cecilia
tónlistarskólann. Skóli þessi er
mjög strangur, en Hreini tókst að
verða annar á prófinu, þrátt fyrir
það að enga kynni hann itölskuna.
Þrir efstu nemendurnir hlutu
ókeypis skólavist i 5 ár.
Hreinn lauk prófi við Akademiu
sama skóla 1968, en framhalds-
nám stundaði hann siðan i Siena.
Ekki er vitað til að fleiri ts-
lendingar hafi stundað söngnám
við Santa Cecilia skólann né
skólann i Siena. Þá var Hreinn
fastráðinn við Þjóðaróperuna i
Vin 1970-1973, og hefur auk þess
sungið mjög viða, t.d. á ítaliu, i
Þýzkalandi, Sviss og Austurriki.
Hreinn hefur dvalizt hér á landi
um skeið og verið i timum hjá
Mariu Markan á ný. „An þeirrar
konu hefði ég komizt skammt”
sagði hann nýlega.
Hreinn IJndal i einu af hlutverk-
um sinum við Vinaróperuna.
Fyrstu tónleikar Hreins verða á
Kirkjubæjarklaustri 4. júli. Þá
syngur hann i Vik i Mýrdal 5. júli,
I Arnesi 6., á Flúðum 7., i Höfn i
Hornafirði 10. og 12. júli iKeflavik.
Hefjast tónleikarnir allir kl. 21.30,
nema i Keflavik og Selfossi þar
sem þeir hefjast kl. 19.00.
Aðalfundur Slysavarnafélagsins:
Öflug starfsemi á
liðnu starfsdri
HJ-Reykjavik. Aðalfundur Slysa-
varnafélags íslands var haldinn á
Blönduósi dagana 28. og 29. júnl
s.l. Fundinn sóttu liðlega 80
fulltrúar og gestir. 1 skýrslu for-
seta félagsins, Gunnars Friðriks-
sonar, um starfið á liðnu starfsári
kom fram, að verkefni félagsins
hafa nú sem fyrr verið tviþætt.
Annars vegar áframhaldandi
uppbygging þess öryggiskerfis,
sem félagið hefur komið upp um
land allt á undanförnum áratug-
um, og hinsvegar að skipuleggja
og halda uppi útbreiðslustarfsemi
og kennslu, er miði að því að
fræða almenning um slysavarnir
á hinum ýmsu sviðum.
Þá gerði forseti félagsins starf
tilky nningaskyldunnar að
umræðuefni og ónógt fjárframlag
ríkisins á þvi sviði. Hann tók hins
vegar fram, að styrkur rikisins til
félagsins hefði hækkað á þessu ári
um 4.6 milljónir kr. og þakkaði
þann skilning, sem lýsti sér i þvi.
Samkvæmt fjárhagsáætlun fyrir
árið 1975 er gert ráð fyrir, að
heildargjöld — og -tekjur
félagsins nemi kr. 23.100.000.00,
en þar af er framlag rikisins kr.
11.200.000.00 Þannig leggja
deildirnar um kr. 12.000.000.00
fram til starfseminnar, auk þess
sem öll vinna björgunarsveitanna
er sjálfboðaliðastarf.
Hannes Þ. Hafstein, fram-
kvæmdastjóri S.V.F.I., flutti
erindi á aðalfundinum, þar sem
hann skýrði frá nýjungum i
bj ör gun a rm álu m . Miklar
umræður urðu um slysavarna- og
öryggismál. M.a. voru umferðar-
slysavarnir ræddar sérstaklega
og hlutverk félagsins á þeim vett-
vangi. Skýrt var frá árangri
deildahappdrættis, sem nýlokið
er, en ágóði af þvi reyndist rúm-
lega 3.5 milljónir króna.
Á fundinum var samþykktur
fjöldi ályktana um slysavarna-
mál og málefni félagsins, ma. var
samþykkt áskorun á rikisvaldið
um að fella niður skatta og önnur
opinber gjöld af farartækjum og
öðrum björgunartækjum til
björgunarsveita og deilda
S.V.F.l. Þá var samþykkt að
skora á stjórn félagsins að taka
umferðarmálin hið fyrsta til sér-
stakrar athugunar. Einnig taldi
aðalfundurinn nauðsynlegt að
herða löggjöf um leyfisveitingar
vegna kaupa og meðferðar á
skotvopnum.
Þá var samþykkt áskorun til
Siglingamálastofnunar rikisins,
að hún beitti sér fyrir þvi, að
þegar verði sett reglugerð um
endurskinsmerkingar á alla gúm-
björgunarbáta, björgunarvesti,
og lifbáta, svo og annan þann
bUnað, sem stuðlar að auknu
öryggi sjófarenda.
Ungmennasamband Vestur-Skaftafells-
sýslu ræður framkvæmdastjóra
Fyrir skömmu vai haldið að
Kirkjubæjarklaustri ársþing
Ungmennasambands Vestur-
Skaftafellssýslu 1975, en það var
um leið fimm ára afmælisþing frá
endurreisn sambandsins.
Þingið sátu f jórtán fulltrUar frá
þrem aðildarfélögum, auk gesta,
en boðið hafði verið til þingsins
helztu framámönnum héraðsins
og Iþróttahreyfingarinnar i land-
inu, alls tuttugu manns. Þar af
mættu tveir, átta boðuðu forföll,
en afgangurinn hefur enn ekkert
látið frá sér heyra.
Formaður sambandsins, Helgi
Gunnarsson, setti þingið og bauð
fulltrúa og gesti velkomna. Flutti
hann skýrslu stjórnar, en gjald-
keri.Skúli Oddsson, skýrði reikn-
ingana.
Fyrir þinginu lágu allmörg
mál, einkum sem lutu að sumar-
starfinu. Voru ýmist gerðar um
þau samþykktir á þinginu, eða
þeim visað til fastanefnda, sem
starfa skyldu eftir þing eða milli
þinga. Þær voru kosnar á þinginu
og eru eftirfarandi: Fjárhags-
nefnd, iþróttanefnd og lands-
mótsnefnd.
Þar sem fjölþætt starf er fram-
undan hjá sambandinu, hefur
verið ráðinn til starfa sem fram-
kvæmdastjóri Finnur Ingólfsson i
Vik.
Stjóm USVS var endurkjörin,
en hana skipa: Helgi Gunnarsson,
formaður, Skúli Oddsson gjald-
keri, og Jón Júiiusson ritari.
Þingfulltrúar og gestir þágu
veitingar i boði ungmennafélags-
ins Armanns á Kirkjubæjar-
klaustri.
Formaður Hundavinafélagsins:
Hundaskattur spor í rétta átt
BH-Reykjavik. — Við í Hunda-
vinaf elaginu fögnum hverju
þvi, sem orðið gæti til bóta á nú-
verandi ástandi, og það var
skynsamlegt af Guðmundi G.
Þórarinssyni að koma fram
með tillögur sinar um hunda-
skatt í borgarstjórn. Fyrst og
fremst af þvi, að hundabann er
algjörlega óframkvæmanlegt.
En hitt er annað mál, að ég tel,
að skattarnir séu áætlaðir nokk-
uö háir, sérstaklega fyrir aldrað
fólk og einbúa.
Þannig komst Jakob Jónas-
son, formaður Hundavina-
félagsins i Reykjavik að orði,
þegar Timinn hafði samband
við hann og leitaði álits hans á
tillögum þeim, sem Guðmundur
G. Þórarinsson, borgarfulltrúi
Framsóknarflokksins hefur
borið fram og fjallað verður um
á borgarstjórnarfundi i dag.
— Þessar tillögur eru i rétta
átt, sagði Jakob Jónasson. Við
værum mjög ánægðir með það
að fá leyfi fyrir hundahaidi.
Baráttan hefur verið hörð hjá
okkur, við göngum nefnilega
svo langt, að við teljum þetta til
sjálfsagðra mannréttinda, og
höfum stefnt máli okkar fyrir
mannréttindadómstólinn i
Strassborg. Það eru lögfræðing-
ar okkar I London, sem reka það
mál fyrir okkur, og ég hef geng-
ið úr skugga um það, að öll
nauðsynleg málsskjöl eru kom-
in til Strassborg. Það er ljóst, að
mannréttindanefndin athugar
þessi mál þessa dagana, en ekki
er gott að segja hversu langt
verður að biða úrskurðar henn-
ar.
En nú er þetta orðið lögreglu-
mál hérna i borginni?
— Já, og eins og ég sagði áð-
an, þá er hundabann ófram-
kvæmanlegt. Til þess að taka
hunda af fólki, verður að höfða
opinbert mál á hendur hverjum
og einum hundaeiganda. Lög-
reglumenn hafa svo sem brotizt
inn á heimili til að taka hunda,
svo að ég veit ekki hverja á að
kalla lögbrjóta, og hverja ekki.
Við verðum lika að muna það,
að I lögum eru viðurlög við
hundahaldi aðeins sektir en ekki
það, að hundar skuli teknir af
fólki, sagði Jakob Jónasson að
lokum.
Tryggingaeftirlitsmót í
fyrsta skipti á Islandi
Nýlega var haldið i Reykjavik
25. norræna tryggingaeftirlits-
mótið, en tryggingaeftirlit
Nýtt
rafverktakafélag
GB-Akranesi. — Félagar úr Raf-
verktakafélagi Vcsturlands hafa
stofnað með sér hlutafélag, sem
hlaut nafnið Rafverktakar
Vesturlands hf. Lögheimili og
varnarþing verður á Akranesi. 1
stofnsamningi segir, að tilgangur
með stofnuninni sé að vera ávallt
tilbúinn til að taka að sér stærri
verkefni i rafvirkjun á félags-
svæðinu, sem einstakir rafverk-
takar ættu síður kost á.
I stjórn félagsins voru kosnir
eftirtaldir menn: Formaður
Sigurdór Jóhannsson, rafvirkja-
meistari, Akranesi, ritari, Einar
Stefánsson rafvirkjameistari,
Búðardal og meðstjórnandi
Haraldur Gislason rafvirkja-
meistari, Stykkishólmi.
Norðurlanda hittist á hverju ári
til þess, að skiptast á skoðunum
og ræða málefni, er varða vá-
tryggingastarfsemi og eftirlit
með vátryggingafélögum.
Var mótið haldið hér á landi i
fyrsta sinn nú.
Þátttakendur voru 18, forstöðu-
menn og aðrir yfirmenn þeirra
stofnana á Norðurlöndum, er lög-
um samkvæmt hafa eftirlit með
vátryggingarstarfsemi.
Á mótinu voru að venju lagðar
fram og ræddar, itarlegar skýrsl-
ur um það helzta, er átt hefur sér
stað á þessu sviði frá seinasta
þingi, en auk þess var m.a. til
umræðu endurskoðun hjá
vátryggingafélögum og þáttur
tryggingaeftirlits i slikri reglu-
legri endurskoðun.
Einnig var rædd þátttaka Dan-
merkur i samstarfi aðildarianda
Efnahagsbandalags Evrópu á
sviði tryggingaeftirlitsmála, og
undirbúningur að þátttöku
Norðurlanda i Evrópuþingi
Listhátíð á Flateyri
KSN—Flateyri. Hér var haldin
mikil listahátið i Samkomuhúsinu
laugardaginn 28. júni. Frá klukk-
an 14 til 18 var málverkasýning
Listasafns íslands, er Ólafur
Kvaran listfræðingur sá um á
vegum safnsins. Kl. 21-23 fluttu
Jón úr Vör og Þorsteinn frá
Hamri efni úr verkum sinum en
Jónas Tómasson og Sigriður
Ragnarsdóttir léku á flautu og
pianó islenzk þjóðlög og önnur
klassisk lög.
Listadagur þessi þótti heppnast
vel, og var aðsókn góð. Framlag
listafólksins til dagskrárinnar
vakti mikla hrifningu og var þvi
þakkað vel fyrir heimsóknina.
Flateyringar eru afar þakklátir
listafólkinu, Listsafni Islands og
Ólafi Kvaran fyrir þessa ánægju-
legu heimsókn.
A listahátiöinni á Flateyri léku þau Jónas Tómasson og Sigrlöur
Ragnarsdóttir á flautu og pianó.
tryggingaeftirlita. Slikt þing er
haldið 4. hvert ár og verður næst i
Vin 1977.
Rækju-
verðið til
30. sept.
ákveðið
— með atkvæðum
fulltrúa seljenda
og oddamanns
Yfirnefnd Verðlagsráðs
sjávarútvegsins hefur ákveðið
eftirfarandi iágmarksverð á
rækju frá 1. júni til 30. september
1975.
Rækja, óskelflett I vinnsluhæfu
ástandi:
Stór rækja 220 stk. i kg. eða
færri (4.55 g. hver rækja eða
stærri) hvert kg. ... kr. 44.00.
Smárækja 221 stk. til 340 stk. i kg.
(2.94gr. til 4.55hver rækja) hvert
kg... kr. 20.00.
Verðið er miðað við, að seljandi
skili rækju á flutningstæki við hlið
veiðiskips.
Verðið var ákveðið af odda-
manni og fulltrúum seljenda i
nefndinni. Fulltrúar kaupenda
sátu hjá við verðákvörðunina.
1 yfirnefndinni áttu sæti:
Gamaliel Sveinsson, sem var
oddamaður nefndarinnar,
Ingimar Einarsson og Jón Sig-
urðsson og af hálfu kaupenda,
Árni Benediktsson og Marias Þ.
Guðmundsson.
Útvarpsleikritið
í kvöld eftir
ungan prentara
Fimmtudaginn 3. júli verður flutt
i útvarpinu nýtt leikrit eftir Þor-
stein Marelsson, og nefnist það
Friður sé með yður. Þetta er ann-
að leikritið, sem flutt er eftir Þor-
stein i útvarpinu. Hitt leikrit hans
nefndist Auðvitað verður yður
bjargað, og var það flutt i útvarp-
inu fyrir rösku ári.
Þorsteinn Marelsson er ungur
að árum og er prentari að iðn.
Hann starfar nú hjá Prentsmiðj-
unni Gutenberg.
Leikritið Friður sé með yður er
sérstaklega skrifað fyrir útvarp,
og tekur um 60 minútur að flytja
verkið. Leikendur eru alls 6, en
þeir eru: Gisli Halldórsson og
Guðrún Stephensen, er fara með
aðalhlutverkin, en aðrir leikend-
ur eru: Rúrik Haraldsson, Herdis
Þorvaldsdóttir, Sólveig Hauks-
dóttir og Margrét Guðmundsdótt-
ir. Leikstjóri er Klemenz Jóns-
son.