Tíminn - 03.07.1975, Page 4
4
TÍMINN
Fimmtudagur 3. júli 1975.
Arkjangelsk á strönd Hvitahafs,
er óvenjulegt kvikfjárbú, þaö
eru ræktaðir selir. Hvitahafið er
eitt af mikilvægustu uppeldis-
stöðum selanna. Aður fyrr
veiddu menn ungselina er þeir
bökuðu sig i sólinni á isjökun-
um. Nú eru strangar hömlur á
selveiðinni, þótt selastofninn
hafi aukizthin siðari ár. Til þess
að afla hinna eftirsóttu sel-
skinna fyrir skinnamarkaðinn
hófu sérfræðingar á þessum
slóðum tilraunir árið 1971 með
selarækt. 1 eins konar búri við
ströndina héldu menn 25 dýrum
undir stöðugu eftirliti i sany
ræmi við þaulunna ræktunará-
ætlun. Á venjulegum tima tóku
dýrin að ganga úr hárum og það
kom i ljós, að nýi feldurinn var
fyrsta flokks að gæðum. Á þessu
ári er fjöldi ungselanna á búinu
kominn upp i nálega 15 þúsund.
Deyjandi listiðn
Karoline gamla Hein er kominn
á 82. aldursárið og er enn i fullu
fjöri. Faðir hennar forfeður og
öll fjölskyldan vann við að
smiða sérstaka gerð af reykjar-
pipum og tók hver kynslóðin af
annarri við verkstæðinu, sem er
nærri borginni Kolenz I Vestur-
Þýzkalandi. En gamla konan er
hin siðasta af ættinni, sem enn
kann til verka við að smiða pip-
ur með gamla laginu og vinnur
við pipugerð frá morgni til
kvölds og ekki stendur á við-
skiptavinunum. En þegar hún
fellur frá verður lokið þessari
handiðn ættarinnar
Að tala
við símann sinn
Enn ný tegund af talsima er
kominn fram á sjónarsviðið. A
sýningu i Ameriku var þessi nýi
simi, sem sýndur er á neðri
myndinni. Er hann þannig út
garöi gerður, að viðkomandi
getur talaö við simann, en eins
og sjá má er tólið gert i manns-
mynd. Á hinni efri er símtólið
sem Alexander Graham Bell
notaði er hann fann upp simann
á öldinni sem leið. Hvernig
skyldu tólin lita út að öld liðinni.
Spilavítin blómstra
Ein tegund fyrirtækja i Frakk-
landi þarf ekki að óttast sinn
hag vegna fjárhagsvandræð-
anna, sem alls staðar steðja þó
að annars staðar, en það eru
spilavitin. Samkvæmt tölum
fyrir áriö 1974 hefur hagnaður
þeirra aukizt um 10% á siðasta
ári miðað viö árið á undan —
það er aö segja þau græddu sem
svaraði 70 milljónum dollara á
árinu. Nú eru starfandi 155
spilaylti i Frakklandi og á
frönsku eyjunum i Karabiska
hafinu, sem öll hafa leyfi fyrir
rekstri sinum. Tuttugu þessara
spilavita eiga þrjá fjórðu
hagnaðarins, svo ef til vill geng-
ur þeim ekki öllum eins vel. Eitt
stærsta spilavitið er Divonne —
les-Baines, sem er skammt frá
svissnesku landamærunum.
Einnig er Niederbronn i nánd
við þýzku landamærin þess
virði, að það sé nefnt i hópi stór-
spilavita, og önnur frekar
myndarleg eru Nice á Rivierj-
unni, Deauville við Ermarsund-
ið og Enghien I úthverfi Parisar.
Eina franska spilavitið, sem
sýndi rekstrartap árið 1974 var
spilavitið I Cannes.
Selabú við
Arkjangelsk
1 litlu þorpi, Kojda, skammt frá
vjv
Ilættu að elta mig svona hund-
fjandi.
DENNI
DÆMALAUSI
Hvaðan hringdi stelpan, sem var
að passa og hvað sagði hún.