Tíminn - 03.07.1975, Blaðsíða 6
6
TÍMINN
Fimmtudagur 3. júli 1975.
varlega
með
lyfin
Sólmánuöur gekk i garö meö
gróörarskúrum syöra, en kælu
noröanlands. Vorið hefur verið i
svalara lagi og spretta mjög
dræm, viöast hvar þrem vikum
seinna á ferðinni en i meðalári.
Tré ekki allaufguð ennþá á
Jónsmessu. Fyrstu blómskúf-
arnir sjást nú á reynivið i
Reykjavik. Skógarmaðkar samt
farnir að naga lauf trjáa og
runna. Allviða búið að úða með
lyfjum til varnar. Lyfin eru eitr-
uð og verður að fara mjög var-
lega með þau. Sterk lyf, þ.e. i
eiturflokkunum X og A mega
þeireinir nota, sem til þess hafa
réttindi. Þegar úðað hefur verið
með sterkum lyfjum, skal forð-
ast alla umgengni i görðunum 2-
3 vikur. Úðunarmönnum ber
skylda til að setja upp i eða við
garðinn aðvörunarmerki og búa
tryggilega um. A spjaldinu skal
skýrt frá hættunni og þess getið
hver framkvæmdi úðunina, og
með hvers leyfi og hvenær.
Spjöldin verða að vera úr hald-
góðu efni. Úða skal i hægu veðri,
ella getur úðunarmökkurinn
borizt um nágrennið. Beztur
árangur fæst i hlýju, þurru
veijri. Úðunarmaður ætti jafnan
aö hafa samband við húsráð-
anda eða fulltrúa hans. Ef garð-
urinn er við hús (sem oftast er),
þarf að loka dyrum og gluggum,
þannig að ekki sé hætta á að
úðunarvökvi eða lyfjamökkur
berist inn i húsið. Gæta þarf
þess einnig að ekki séu þarna
börn eða aðrir á ferli útivið, of
nærri. Ekki má heldur vera úti
þvottur á snúru, né verið að
viðra fatnað, húsgögn eða ann-
að, meðan á úðun stendur. Úð-
unin er mikið nákvæmnis- og
trúnaðarstarf. Geymsla lyfja
verður og að vera örugg. Lyf
eöa lyfjaleifar geta setið all-
lengi á blöðum jurta eða jafnvel
inni I jurtum, áður en lyfin eyð-
ast. Ef sterk lyf eru notuð á
matjurtir t.d. kál eða rófur gegn
kálmaðkinum, þarf að liða
a.m.k. mánaðartimi frá þvi að
lyfiö var notað og til uppskeru.
Farin eru að koma fremur
hættulitil lyf t.d. Pyretrum og
koma vonandi fleiri i framtið-
inni.
Vikjum að léttara efni.
Skerpla kvaddi hér með dimm-
viðri, „Þokan grúfir yfir Esju-
hliðum, óþæg sól er falin bak við
ský. Keilir faldar móðumöttli
sinum, mannahugir þungir eins
og blý. Eva körg og Adam þög-
ull lengi, Egill fær á baukinn,
stúfurinn. Þó er ástin enn i góðu
gengi, grið og kossar eftir nátt-
verðinn. Loks sást til sólar: Sól-
in geislar yfir austurfjöllum,
yljar jörð og vekur blómin frið.
Hún er elskuð jafnt i hreysi og
höllum, heill þér dásöm bjarta
sumartíð. Adam slær og Eva
greiðir lokkinn sinn. Bjössi
leggur hnakk á gamla Grána,
gestum fagnar kátur
hundurinn.—
Rakkarnir eru þarfagripir I
sveitinni, en verða æði oft vand-
ræðagemlingar iborginni — já,
mögnuð plága sums staðar. Er
víða farið að gera ráðstafanir til
að takmarka mjög hundahald
eða banna það með öllu. Bretar
og Amerikanar eru jafnvel
farnir á stúfana i þvi efni.
Almur Bergstaðastræti 34, Reykjavik 18/6. 1975.
Selfosshreppur óskar
að kaupa notaða sendiferða- eða jeppabif-
reið i góðu lagi, Tilboð um verð og
greiðsluskilmála sendist skrifstofu Sel-
fosshrepps, Eyrarvegi 8, fyrir 10. þ.m.
Selfossi 1. júli 1975.
Sveitarstjóri Selfosshrepps.
mmmm
Fjármálaráðuneytið,
2. júli 1975.
Tilkynning frá
fjármálaráðuneytinu,
um útgáfu nýrrar reglugerðar um
innheimtu þungaskatts af ökutækjum, er
greiða skatt skv. ökumælum.
Hér með er vakin athygli eigenda þeirra
ökutækja, sem nú hafa ökumæla, að i gildi
er komin ný reglugerð um innheimtu bif-
reiðagjalda. Reglugerð þessi er nr. 282 frá
26. júni 1975. Samkvæmt reglugerðinni
skal framvegis miða þungaskatt við leyfða
H heildarþyngd flutningatækja i stað eigin
þyngdar.
Eigendur bifreiða, sem til þessa hefur
verið greitt gjald af skv. ökumæli, verða
að hafa látið eftirlitsmann fjármála-
ráðuneytisins lesa á og skrá stöðu
ökumælis fyrir 11. júli n.k.,kjósi þeir að
gera skil vegna aksturs undanfarinna
mánaða skv. ákv. reglugerðar nr.
264/1974. Verði bifreið eigi færð til álesturs
fyrir 11. júli verður svo álitið, þegar
álestur fer fram, að vegalengd skv.
akstursmæli frá þvi siðast var lesið á
mæli, hafi öll verið ekin eftir 10. júli 1975.
Gjöld verða þá krafin skv. ákv. hinnar
nýju reglugerðar.
$1
pK. MrW IIMJf iim™
éM 'i v kiBftlðraijl ufflíffirjfeiiiL- j|ð
i ' r' t wm SmW
SÉWf <5! gL - W m ■ ifr* * ' sBBm \
Frá samsætinu, sem haldið var til heiöurs Hirti Hjálmarssyni.
Hjörtur Hjálmarsson
heiðursborgari Flateyrarhrepps
KSN-Flateyri. Laugardaginn 28.
júnl varð Hjörtur Hjálmarsson
sparisjóðsstjóri sjötugur. t tilefni
af þvi héldu Hreppsnefnd Flat-
eyrarhrepps og hin ýmsu félög
staðarins kaffisamsæti honum til
heiðurs. i samsætinu var Hirti af-
hent heiðursborgarabréf frá
hreppsbúum, en hreppsnefnd
hafði á fundi sinum áður, sam-
þykkt einróma að gera Hjört að
heiðursborgara.
Fyrrverandi nemendur Hjartar
færðu honum einnig að gjöf fyrir-
heit um að láta mála af honum
mynd. Hjörtur hefur verið félags-
málamaður einstakur, og hefir
gegnt formanns- eða stjórnar-
störfum I flestum félögum á Flat-
eyri. Hann var oddviti i 8 ár,
hreppsstjóri i 27 ár, sýslunefndar-
maður i 32 ár og skólastjóri i 12
ár. Hjörtur hefur þannig verið
einn af hornsteinum þeim, er
treyst hafa byggð á þessum stað.
Mikil og góð þátttaka var i af-
mælishófinu og voru fluttar þar
margar ræður og mikið sungið.
GUNHILD SKOVMAND frá Dan-
mörku sýnir „silhouette” myndir
I bókasafni Norræna hússins
þessa dagana og stendur sýningin
til 13. júli nk. „Silhouette”-mynd-
ir eru byggðar á skuggamyndinni
og útlinum hennar, oftast svartar
myndir á hvitum fleti, gjarnan
klipptar út úr pappir, og var þró-
uð listgrein meðal Persa á mið-
öldum, sem mun hafa borizt til
Evrópu á 16. öld, og varð einkum
Flateyringar þökkuðu innilega og
með hlýhug Hirti hans miklu og
góðu störf I þágu byggðarinnar til
þessa dags.
vinsæl á 18. öld. Á Norðurlöndum
voru það einkum Mið-Evrópubú-
ar, sem ferðuðust um og iðkuðu
þessa listgrein, þó eiga Norður-
landaþjóðirnar nokkra þekkta
listamenn á þessu sviði, — og þess
er getið, að H.C. Andersen hafi
verið snjall , .silhouettu ”-klippari.
A sýningunni i bókasafni Nor-
ræna hússins eru um 40 myndir,
og eru nokkrar þeirra til sölu.
„Silhouette„-myndir
í Norræna húsinu