Tíminn - 03.07.1975, Side 12
12
TÍMINN
Fimmtudagur 3. júli 1975.
Höfundur: David Morrell
Blóðugur
hildarleikur
60
aö stöðva leitina og finna þá. Slöngubit, fótbrot og sól-
stingur. Ruglingurinn og upplausnin var svo mikill, að
loks varð að senda heim óbreytta sjálfboðaliða. Þá var
aðeins lögreglan við leitina."
Hann kveikti sér í sígarettu, sogaði að sér reykinn og
reyndi að losa sig við svimann. Hann leit á talstöðvar-
manninn. Bæði hann og lögreglumaðurinn sneru sér við
og hlustuðu. Hversu lengi hafði hann talað? Það virtust
tíu mínútur. En það gat ekki verið. Hugsunin gekk í
bylgjum á reglubundinn hátt.
,,Haltu áfram," sagði Kern. „Hvað varð um stúlkuna?
Fannstu hana?"
Teasle kinkaði kolli. „Við fundum hana sex mánuðum
seinna í grunnri gröf við veginn, um það bil mílu frá
þeim stað, sem leitinni lauk. Við fréttum af gömlum
karlfausk í Louisville. Hann sat við drykkju og hafði eitt-
hvað í flimtingum að þukkla litlar stúlkur. Það var hel-
ber ágiskun, að þarna á milli væru einhver tengsl. Samt
sem áður ákváðum við að kanna málið. Ég hafði tekið
þátt í leitinni og var málinu kunnugur. Þess vegna létu
þeir mig yfirheyra hann. Þegar ég hafði þráspurt hann
f jörutíu mínútur sagði hann mér alla sólarsöguna. Hann
ók f ram hjá bóndabýli og kom auga á litla telpu, sem var
að sulla í plastsundlaug í garðinum. Hann sagðist hafa
heillastaf gulum sundfötunum hennar. Án þess að nokk-
ur sæi til, hafði hann telpuna á brott með sér í bílnum.
Hann fór strax með okkur að gröfinni. Það var raunar
önnur gröf in. Fyrsta gröf in var á miðju leitarsvæðinu. Á
meðan hinir óbreyttu borgarar ráfuðu um svæðið og
rugluðu og töfðu fyrir — þá kom hann aftur eitt kvöldið
og flutti hana."
Teasle sogaði aftur að sér sígarettureykinn. Hann
fann reykinn fylla hálsinn. Hann hélt bólgnum, dofnum
og þrælvöfðum fingrum um sígarettuna.
„Þessir óbreyttu borgarar eiga líka eftir að rugla hér
allt og þvæla. Það hefði aldrei átt að skýra frá þessu
opinberlega."
„Það er mín sök. Það kom blaðamaður á skrifstof una
mína. Hann heyrði mennina ræða um þetta, áður en ég
gat þaggað niðri í þeim. Nokkrir þeirra eru nú að smala
öllum óviðkomandi aftur í bæinn."
„Nema hvað? Þessir náungar í skóginum gætu aftur
orðið órólegir og tekið upp á því að skjóta á þína menn.
Hvað sem öllu líður, þá tekst þér aldrei að safna þeim
öllum saman. Á morgun verða allar hæðirnar morandi í
óbreyttum borgurum. Þú sást hvernig þeir hertóku bæ-
inn, að kalla má. Þeir eru f leiri en svo, að við getum haft
á þeim nokkra stjórn. Enn er það versta ókomið. Bíddu
bara þangað til atvinnumennirnir koma."
,, Ég veit ekki hvern f jandann þú meinar með atvinnu-
menn. Hverjir eru það?"
„I rauninni áhugamenn, en kalla sig atvinnumenn.
Það eru þeir menn, sem hafa ekkert betra að gera en að
hendastum landiðogtaka þáttísvona leitarf lokkum. Ég,
kynntist nokkrum þeirra þegar við leituðum litlu stúlk-
unnar. Einn þeirra var nýkominn f rá Everglade skógar-
svæðunum. Þar var hann að leita að týndum f erðamönn-
um. Þar á undan var hann í Kaliforníu í leit að fjöl-
skyldu, sem fór í helgarútilegu, en lenti í sinu og runna-
eldsvoða. Sama árið að vetrarlagi var hann í Wyoming.
Þar leitaði hann skíðamanna, sem lent höfðu í snjó-
skriðu. Hann fór lika á stúfana þegar Mississippi f læddi
yf ir bakka sína og þegar námamenn lokuðust inni vegna
hruns í göngunum. Gallinn er bara sá, að menn af hans
sauðahúsi hafa aldrei samvinnu né samráð við þá sem
ráða. Þeir vilja skipuleggja sína eigin leitarflokka og
fara eigin leiðir. Áður en langt um líður hafa þeir komið
ruglingi á skipulagt leitarkerf ið. Svo skipta þeir sér af
vinnubrögðum lögreglu og hjálparsveita. Þeir rjúka á þá
staði, sem virðast spennandi, t.d. gamla sveitabæi. Hins
vegar skilja þeir stór svæði eftir ókönnuð, t.d. akra."
Hjartsláttur Teasles varð skyndilega flöktandi.
Hjartað sleppti slagi en tók svo að slá ótt og títt. Hann
greip um brjóst sér og saup hveljur.
„Hvað er að?" sagði Kern.
—„Það er allt í lagi með mig. Ég þarf að gleypa aðra
pillu. Læknirinn varaði mig við þessu."
Þetta var ekki satt. Læknirinn hafði alls ekki aðvarað
hann. En þetta var í annað sinn sem hjartað tók upp á
þessu. ( fyrsta skiptið hafði pillan komið hjartslættinum
í lag. Hann flýtti sér því að gleypa aðra pillu. Teasle
ætlaði sér hreint ekki að láta Kern uppgötva, að eitthvað
væri að hjartanu.
Kern virtist ekki gera sér svarið að góðu. Þá hagræddi
talstöðvarmaðurinn á sér heyrnartækjunum, eins og
hann væri að hlusta á skýrslu. Svo sagði hann við lög-
reglumanninn: — „Þjóðvarðliðsbíll þrjátíu og tvö á sín-
um stað." Hann renndi fingri niður eftir nafnalista á
blaði. — „Það er við upptök Branch-vegar." Lögreglu-
maðurinn festi enn einn rauðan pinna á landakortið.
Krítarbragðið af pillunni sat eftir í munni Teasles.
Hann andaði reglulega. Þrýstingurinn kringum hjartað
minnkaði.
Hvers vegna-
Ég reyniaö halda
< áhorfendum I X
<|skefjum með að
slá hann ekki niður.
K
I
K
U
B
B
U
R
■
n
liii
I
1
Fimmtudagur
3. júli
7.00 Morgunútvarp Veður-
fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10.
Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og
forustugr. dagbl) 9.00 og
10.00 Morgunbæn kh 7.55.
Morgunstundbarnannakl.
8.45. Geir Christensen les
söguna „Höddu” eftir
Rachel Field (10)
Tilkynningar kl. 9.30. Létt
lög milli atriða. Við sjóinn
kl. 10.25: Trausti Eiríksson
vélaverkfræðingur ræðir
um söfnun og vinnslu
loðnuhrogna.
Morguntónleikar kl. 11.00
Barokkhljómsveit Lundiína
leikur „Litla sinfóniu” eftir
Gounod /Josef Suk og Jan
Panenka leika fjögur verk
fyrir fiðlu og pianó eftir
Suk/Felicja Blumental og
Sinfóniuhljómsveit Lundúna
leika „Fantasie Polonaise”
fyrir pianó og hljómsveit eft-
ir Paderewski.
12.00 Dagskráin. Tónleikar
Tilkynningar.
.12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar. A
frivaktinnni. Margrét
Guðmundsdóttir kynnir
óskalög sjómanna.
14.30 Miðdegissagan: „Máttur
lifs og moldar” eftir
Guðmund L. Friðfinnsson.
Höfundur les (6) ,
15.00 Miðdegistónleikar.
Filharmoniusveitin i Brno
leikur „Dansa frá Lasské”
eftir Janácek, Jiri
Waldhans stjórnar. Sandor
Konya, Ingeborg Exner,
Charlotte Kamps, kór og
hljómsveit útvarpsins i Köln
flytja atriði úr óperunni
„Cavalleria Rusticana”
eftir Mascagni. Hljóm-
sveitin Philharmonia leikur
„Svipmyndir frá Brasiliu”
eftir Respighi, Alceo
Galliera stjórnar.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir)
Tónleikar.
16.40 Litli barnatiminn.
Margrét Gunnarsdóttir sér
um þáttinn.
17.00 Tónleikar.
17.30 Bréfið frá Péking eftir
Pearl S. Buck, Málfriður
Sigurðardóttir endar lestur
þýðingar sinnar (12).
18.00 Tónleikar. Tilkynningar.
Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki.
Tilkynningar.
19.35 Þættir úr jarðfræði ts-
lands. Ingvar Birgir
Friðleifsson jarðfræðingur
talar eldvirkni á isöld.
20.00 Gestir I útvarpssal.
Margareta Jonth syngur
sænsk þjóðlög. Leif
Lyttkens leikur á gitar.
20.25 Leikrit: „Friður sé með
yður” eftir Þorstein
Marelsson. Leikstjóri:
Klemenz Jónsson. Personur
og leikendur: Maður — Gisli
Halldórsson, Kona —
Guðrún Stephensen, Stúlka
— Sólveig Hauksdóttir, Ná-
grannakona — Herdis Þor-
valdsdóttir — Frambjóð-
andi — Rúrik Haraldsson
Blaðamaður — Margrét
Guðmundsdóttir, Fyrsta
rödd — Helgi Skúlason,
önnur rödd — Jón Múli
Árnason.
21.15 Lev Oborin leikur á
pianó verk eftir Chopin.
21.45 „Homunculus”, smá
saga eftir Ólaf Hauk
Simonarson. Erlingur
Gislason leikari les.
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Kvöld-
sagan: „Romeó og Júlia i
sveitaþorpinu” eftir Gott-
fied Keller Njörður P.
Njarðvik endar lestur
þýðingar sinnar (8).
22.35 Ungur pianósnillingur.
Niundi þáttur: Michel
Béroff og Jean Rodolphe
Kars. Halldór Haraldsson
kynnir.
23.25 Fréttir i stuttu máli.
Dagskrárlok.