Tíminn - 17.07.1975, Side 16
£?■
• •
fyrirgódan mai
^ KJÖTIÐNAÐARSTÖÐ SAMBANDSINS
Hermaöur I gæzluliöi S.Þ. sést hér frammi fyrir varöstöö á
Sinai-skaga: Þrætuepli I stórveldaátökum.
Egyptar vilja hafa gæzlu-
lið SÞ á Sinai-skaga
tsraelsmenn hafa farið fram á,
að umboð gæzluliðs S.Þ. verði
framlengt um hálft ár. Frétta-
skýrendur i Kairo telja, að sú
ákvörðun Egypta að neita að
framlengja umboðið sé liður i
þeirri viðleitni að knýja ísraels-
menn til friðarsamninga. Segja
sumir, að Bandarikjastjórn
standi að baki ákvörðun Egypta
— eða a.m.k. sé henni samþykk —
i þvi skyni að fá Israelsmenn til
að láta undan, svo að varanlegur
friður geti komizt á i Miðjarðar-
hafslöndum.
— þótt þeir neiti að fallast ó, að
umboð þess verði framlengt
NTB-Kairó. Egyptar ætla sér
ekki aö krefjast þess, aö gæzlulið
Sameinuðu þjóöanna á Sinai-
skaga veröi á brott þaðan. Aftur á
móti neita þeir aö fallast á, að
umboö gæzluliösins veröi fram-
lengt, fyrr en nýtt friöarsam-
komulag viö tsraelsmenn hefur
litiö dagsins Ijós.
Þetta var haft eftir áreiðanleg-
um heimildum i Kairo. 1 gær lét
Ismail Fahmi utanrikisráöherra
hafa eftir sér, að gæzluliðið, er
telur 4000 manns, væri i raun á
egypzku landi og þyrfti þvi leyfi
egypzkra stjórnvalda, til að
dvelja þar. Orð Fahmis eru skýrð
svo, að ráðherrann vilji minna á
tilkall Egypta til alls Sinai-skaga,
en ekki er talið, að með þeim sé
hann að skipa gæzluliðinu að fara
á brott.
Kissinger, utanríkisráðherra Bandaríkjanna:
Ákvörðun Egypta
þyngir róðurinn
Bandaríkjamenn hljóta að mótmæla
kröftuglega áformum um að gera
ísraelsmenn brottræka úr SÞ
NTB/Reuter-Milwaukee. Henry
Kissinger, utanrikisráöherra
Bandarikjanna, lét svo um mælt I
gær, aö sú ákvöröun Egypta aö
neita aö framlengja umboð
gæzlusveita S.Þ. á Sinai-skaga
væri óheppileg og Htt til þess fall-
in aö auka möguleika á nýju
friöarsamkomulagi.
Kissinger hefur siöustu þrjá
daga verið á ferðalagi um Mið-
vesturfylki Bandarikjanna. A
fundi með fréttamönnum i borg-
inni Milwaukee i Wisconsin-fylki
kvaðst Kissinger ætla að fara
þess á leit við Egypta, aðþeirlétu
sér lynda, að öryggisráð S.Þ.
tæki einhliða ákvörðun um fram-
lengingu umboðsins. Hann tók
fram, að Bandarikjastjórn gerði
nú allt til að koma á friði i deilum
Araba og Israelsmanna, en bætti
við, að það færi eftir viðhorfi
deiluaðila, hvort friður kæmist á.
Kissinger var spurður álits á
þeirri ákvörðun, er tekin var á
fundi utanrikisráðherra 40 rikja
múhameðstrúarmanna, að vinna
að brottrekstri ísrael úr S.b.
Hann svaraði á þá leið að Banda-
rikjamenn gætu ekki setið hjá að-
gerðalausir, ef gera ætti Israels-
menn brottræka úr S.Þ., heldur
hlytu að mótmæla sliku kröftug-
lega.
Bandariski utanrikisráðherr-
ann sagði að lokum, að erfiðar
samningaumleitanir væru fram
undan i deilum Araba og Israels-
manna. Friðarsamkomulag
næðist ekki, nema allir deilu-
aðilar gæfu eftir. — Slikt getur
orðið sársaukafullt, sagði
Kissinger — En enn er ekki loku
fyrir það skotið, að friðar-
samningar náist.
Sameiginleg geimferð Bandaríkjamanna og Sovétmanna:
Allt gengur eftir óætlun
gær, að hindrunin hefði ekki verið
alvarlegs eðlis. — Þetta hefði
verið óvenjuleg geimferð, ef
vandamál af þessu tagi hefðu
ekki komið upp, bætti hann við.
Sovézku geimfararnir beindu i
gær Soyuz-geimfari sinu á braut
umhverfis jörðu. Þeim tókst
einnig að gera við bilun i mynda-
tökuvél i geimfarinu — vél, sem
er ómissandi, þegar Bandarikja-
mennirnir og Sovétmennirnir
takast i hendur siðdegis i dag.
Þvi er óhætt að fullyrða, að
geimferðin gangi nú að óskum og
enn bendi ekkert til, að áætlun
bandariskra og sovézkra visinda-
manna fari út um þúfur.
— þrdtt fyrir minni hóttar bilanir
Reuter—Houston/Moskvu. Sam-
eiginleg geimferð Bandarikja-
manna og. Sovétmanna gengur
samkvæmt áætlun, þrátt fyrir
minni háttar bilanir i báöum
geimförunum. i dag rennur svo
loks upp söguleg stund, er banda-
riskir og sovézkir geimfarar
heilsast i fyrsta sinn — úti i
geimnum.
Stuttu eftir að Apollo-geimfar-
inu var skotið á loft i fyrrakvöld
kom i ljós, að gangur sá, sem
geimförunum er ætlað að fara
um, þegar þeir yfirgefa geimfar-
iö, hafði lokazt. t gær unnu geim-
faramir svo að þvi að fjarlægja
hindrunina — og tókst það. Tals-
maður Geim ferðastofnunar
Bandarikjanna (NASA) sagði i
Geimfararnir SJayton (fremst) og Stafford I likani af Apolló-geimfari:
Tókst að ryöja hindrun úr vegi.
Flugvirkjar
á Kastrup
mótmæla
NTB-Kaupmannahöfn. Flug-
virkjar komu I gær I veg fyrir,
að farþegar og farangur
kæmust leiöar sinnar eftir
færibandi i flugstööinni á
Kastrup-flugvelli. Þetta leiddi
til þess, aö samnorræna flug-
félagiöSAS varö aö aflýsa öllu
flugi til og frá Kastrupvelli i
tvær klukkustundir.
Flugvirkjar gripu til
þessara aðgerða til að mót-
mæla dómi danska vinnu-
réttarins, er dæmdi flugvirkja
og aöra tæknimenn hjá SAS i
sektir fyrir að leggja niður
vinnu og stöðva umferð um
Kastrup-völl fyrr á þessu ári.
Aðgerðir flugvirkjanna i gær
stóðu sem fyrr segir i tvær
klukkustundir. Að þeim lokn-
um hófst flug hjá SAS að nýju,
eins og ekkert hefði i skorizt.
FBI stód ao baki
hundruðum innbrota
— að sögn Washington Post
NTB-Washington. Bandariska
stórblaöiö Washington Post
fullyrðir i gær, aö Bandariska
alríkislögreglan (FBI) hafi
staöiö aö baki u.þ.b. eitt
hundraö innbrotum á ári á ár-
unum eftir 1960. Brotizt var
inn f þvi skyni að afla upp-
Iýsinga um mál, er snertu
öryggi rikisins eða vörðuöu
lögbrot af ööru tagi.
Blaðið kveðst hafa þessar
upplýsingar eftir háttsettum
starfsmanni FBI. Að sögn
hans var einkum brotizt inn i
skrifstofur kommúnista, öfga-
samtaka eða erlendra sendi-
ráða.
Ramsey Clark (þá dóms-
málaráðherra) lét stöðva
þessa vafasömu starfsemi
FBI. Clark komsbá snoðir um
hana, er Edgar Hoover (þá
yfirmaður FBI) fór þess á leit
við ráðherrann, að hann legði
blessun sina yfir fyrirhugað
innbrot i ræðismannsskrif-
stofu i Washington. 1 viðtali
við Washington Post segir
Clark: — Ég neitaði að leggja
blessun mina yfir þessa fyrir-
ætlun, þar eð ég sem dóms-
málaráðherra gat ekki fallizt
á lögbrot.
ÓDÝRAR
Spánarferðir
Férðamiðstöðin hf.
Aðalstræti 9 Simar 11 255 og 12940