Fréttablaðið - 17.03.2005, Blaðsíða 26

Fréttablaðið - 17.03.2005, Blaðsíða 26
Borðstofustólar Það er engin algild regla sem segir að stólarnir við borðstofuborðið þurfi allir að vera eins. Reyndar getur verið mjög smart að blanda saman ólíkum stólum, sem eiga þó vel saman og skapa þannig lifandi stemningu við borðið.[ ] Skipholti 31, Reykjavík, s: 568 0450 Kaupvangsstræti 1, Akureyri, s: 461 2850 www.ljosmyndavorur.is E510 + 128MB X-d minniskort A›eins kr. 39.900 TILBO‹ GNOÐARVOGI 44 Stórlúða Smálúða Skötuselur Rækjur Hörpuskel Humar Fínlegir borðar í stað stórisa Mynstraðir taurenningar sem hanga sléttir innan við rúð- urnar eru meðal nýjunga í gluggatjaldalausnum. „Þessir borðar koma í staðinn fyrir stórisa eða blúndugardínur og þykja mjög stílhreinir,“ segir Ragnheiður Valdimarsdóttir, verslunareigandi í Saumalist, en þar rákum við augun í þessa fínu fleka úti í gluggum. Þeir eru til með ýmsum mynstrum og auk þess er auðvelt að búa þá til úr ströngum. Borðarnir eða flekarnir eru sett- ir upp með ýmsu móti, að sögn Ragnheiðar. Hægt er að festa þá með frönskum rennilás á gluggapósta ef þeir eru fyrir hendi. Einnig þræða þá upp á mjóar glugga- tjaldastangir sem spenntar eru inn í gluggann og svo eru til sér- stakar brautir fyrir þá, svipaðar Z-brautum sem margir kannast við. Á slíkum brautum er auðvelt að færa þá til þannig að þeir legg- ist hver aftan við annan ef fólk vill draga þá frá gluggunum. Sér- stök lína er svo saumuð neðst á borðann til þyng- ingar. Nýjustu strang- arnir í Saumalist eru í sumarlegum tónum. Efnin eru verkleg og vönduð og Ragnheiður sýnir meðal ann- ars þunnt skinnlíki sem hún var að taka upp. Hún segir rjómagult og ljósbrúnt langvin- sælustu litina í efnunum í ár. Verslunin LOCAL var opnuð nýlega í Skeifunni og selur húsgögn og smávöru. Eigendur verslunarinnar LOCAL eru systkinin Áslaug Tóka Gunn- laugsdóttir og Gunnar Þór Sveins- son en saman eru þau menntuð í myndlist, arkitektúr og hönnun og hafa gengið með hugmyndina að versluninni í maganum í nokkur ár. „Okkur langaði til að opna verslun sem selur vandaða hönn- un eftir unga og spennandi hönn- uði, og með vörur sem standa út úr,“ segir Tóka, en í LOCAL er meðal annars hönnun eftir finnska og jafnvel tyrkneska hönnuði. „Þeir hafa verið að sækja í sig veðrið og margt spennandi að gerast,“ segir Tóka. Mikið af vörunum sem hægt er að finna í versluninni hefur prýtt síður hönnunartímarita og hlotið lof erlendis. En til stendur að hampa innlendri hönnun og ætla systkinin með tíð og tíma að selja sína eigin hönnun og annarra. „Við viljum endilega selja ís- lenska hönnun og getum líka hugsað okkur að vera í samstarfi við Listaháskólann og fleiri. Auk þess ætlum við að bjóða lista- mönnum að sýna verkin sín hérna hjá okkur,“ segir Tóka. „Mestu máli skiptir að vera með púlsinn á því sem er að gerast í nýrri hönnun,“ segir Tóka að lokum. kristineva@frettabladid.is FR ÉT TA B LA Ð IÐ /G VA Systkini selja spennandi hönnun Áslaug Tóka Gunnlaugsdóttir og Gunnar Þór Sveinsson, eigendur nýju verslunarinnar LOCAL í Skeifunni. Mild-sófi eftir tyrkneska hönnuðinn Derin Sariyer. Verð 371.000 kr. Púðinn er eftir finnska hönnuðinn Anne Kyrrö Quinn. Verð 18.900 kr. Black + Blum ljós sem kallast Cloud Nine. Verð 16.900 kr. Wide-stóll eftir Azys Sariyer. Verð 264.900 kr. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /G VA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.