Fréttablaðið - 17.03.2005, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 17.03.2005, Blaðsíða 28
Veðurfar Veðurfar er mismunandi eftir árstíma, og er þess vegna mikilvægt að kynna sér það áður en ferðalagið er skipulagt. Fátt getur verið leiðinlegra en að lenda í rigningartímabili á sólarströnd eða í of miklum hita.[ ] hertzerlendis@hertz.is ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S H ER 2 72 20 02 /2 00 5 18.450 Vika í Hahn/Frankfurt * Ford KA eða sambærilegur 50 50 600 1000 Vildarpunktar til 12. mars kr. - ótakmarkaður akstur, kaskó, þjófavörn, flugvallargjald og skattar. *Verð á viku miðað við 14 daga leigu. Bankastræti 10 + Sími 562 23 62 + info@exit.is + www.exit.is Spennandi ævint‡rafer›ir til allra heimsálfa me› Encounter, Dragoman, Contiki, Intrepid, Imaginative Traveller, Tucan o.fl. Allar nánari upplýsingar liggja frammi á skrifstofu okkar eða á www.exit.is. Færð þú MasterCard Ferðaávísun? 410 4000 | landsbanki.is Ferðalán Nánari upplýsingar á landsbanki.is eða í næsta útibúi. Það getur breytt öllu að hafa aðgang að ferðaláni á hagstæðum kjörum. Þá er aðeins spurning um að fylgja eigin innsæi og taka sér gott frí. • Þú færð lán fyrir ferðinni • Þú færð lán fyrir gjaldeyrinum • Þú getur sótt um á landsbanki.is og reiknað þitt lán Besti tíminn til að fara í frí er þegar þú þarft á því að halda! Maraþonblús í tvo sólarhringa Gummi í Kentár blúsaði matseðilinn á pizzastaðnum. Guðmundur Gunnlaugsson er enn að blúsa. Guðmundur Gunnlaugsson, tón- listarmaður og Kentár með meiru, er blúsmaður af lífi og sál. Hann spilaði einu sinni blús um heila helgi – án þess að stoppa. „Það var um vorið 1987 að okkur boðið að taka þátt í maraþonblús- veislu á Akureyri. Það var á Upp- anum, sem var bæði pizzería og knæpa í þá daga. Þarna voru sam- ankomnir tónlistarmenn að norð- an og austan. Við vorum með blús- prógramm tilbúið og héldum tón- leika inni í maraþoninu auk þess að taka þátt í þessu klassíska blúsdjammi sem felst í því að all- ir spinna saman lög og texta, sem er hin besta skemmtun. Mér er sérstaklega minnisstætt að Ingi- mar Eydal kom og djammaði með okkur, það er gaman að hafa feng- ið að spila með honum og mikill heiður. Þetta endaði svo í mara- þonblússpilamennsku nánast samfleytt í tvo sólarhringa án þess að stoppa. Á sunnudags- kvöldinu voru menn farnir að blúsa pizzumatseðilinn enda þá búið að þurrausa aðra brunna. Þessi maraþonblús var mjög skemmtilegt framtak, ekki síður en Blúshátíð í Reykjavík er núna í dag. Í framhaldi af þessu gáfum við út blúsdjammplötu og ferðuð- umst um allt land og spiluðum í öllum framhaldsskólnum og það var frábært hvað krakkarnir kveiktu vel á þessari tónlist.“ Kentárar eru enn að nú átján árum síðar og má heyra í þeim á Blúshátíð í Reykjavík á þriðju- dagskvöldið. ■ Notalegt í heitu pottunum. Hollt fæði, fræðsla og nudd HEILSUDAGAR VERÐA Á HÓTEL GEYSI NÚ UM HELGINA. ÞAR ER BOÐIÐ UPP Á HEILSUFÆÐI, NUDD OG HEITA POTTA. Heilsudagarnir hefjast á lithimnu- lestri. Þar er farið yfir heilsufarið og leiðbeint um úrbætur ef með þarf. Auk þess fær hver og einn nudd daglega. Á kvöldin verður fjallað um ýmislegt sem tengist heilsu og mannlegum samskiptum, til dæmis áhrif hugarfars og karma á heilsuna. Gönguferðir og heitir pottar eru inni í dagskránni og að sjálfsögðu er gist í vel búnum herbergjum. Umsjón með heilsudögum hefur Heiðar Ragnarsson. Verð fyrir þrjá daga er 36.000 krónur og fimm daga 52.000 krónur. Nokkur stéttarfélög taka þátt í kosnaði félagsmanna sinna á heilsudögunum. Bókanir eru í síma 480 6800. Telja sig geta lækkað verðið enn frekar Kaup Iceland Express á Sterling tryggja ódýrt tengiflug víða um heim. Kaup Iceland Ex- press á Sterling, stærsta lággjalda- flugfélagi Norður- landa, munu væntan- lega verða Íslending- um góð kjarabót á ferðalögum til fjar- lægari landa, að sögn Almars Hilmarsson- ar, framkvæmda- stjóra Iceland Ex- press. „Það eru ýmsar hugmyndir í gangi en þær eru allar á frumstigi, enda kaupin nýafstaðin,“ segir Almar. „Tilgangurinn er þó meðal annars að tengja flug frá Íslandi vélum frá Sterling þannig að ferðalagið áfram geti gengið sem greiðast fyrir sig. Sömuleiðis að greiða götu er- lendra ferðamanna hingað til lands. Við teljum okkur geta lækkað verð enn frekar, enda er það markmið í sjálfu sér – að bjóða upp á ódýrar ferðir víða um heim,“ segir Almar. Almar segir jafn- framt að allt of mik- ið hafi verið gert úr töfum flugvéla Iceland Express, taf- ir hjá félaginu séu ekki meiri en hjá öðrum flugfélögum. „Það stendur ekki til að nota Sterling- vélarnar til að hlaupa í skarðið, enda engin ástæða til.“ ■ Farþegar Iceland Express munu njóta góðs af kaupum félagsins á flugfélaginu Sterling. Almar segir að tengiflug á framandi slóðir verði auð- veldur ferðamáti farþega Iceland Express. Síðustu sætin í páskaferð Plúsferðir bjóða nú tilboðs- verð á síðustu flugsætunum til Spánar og Portúgal. Páskaferðin til Benidorm, sem er frá 19.-31. mars, er á verði frá 25.630 kr. ef tveir fullorðnir og tvö börn 2-11 ára ferðast saman. Innifalið er flug, flugvallarskatt- ar, gisting á Halley í íbúð með einu svefnherbergi og íslensk fararstjórn. Verðið á ferð til Portúgal 17.-29. mars er frá 30.550 kr. ef tveir fullorðnir og tvö börn 2-11 ára ferðast saman. Innifalið er flug, flugvallarskatt- ar, gisting á Elimar í íbúð með einu svefnherbergi og íslensk fararstjórn. Verðið miðast við að bókað sé á netinu. ■ Tólf dagar á Kanarí Heimsferðir eru með netilboð á ferð til Kanaríeyja. Heimsferðir bjóða nú síðustu sætin í tólf daga ferð til Kanarí- eyja 29. mars á tilboðsverði. Fjórum dög- um fyrir brottför fá farþegar að vita um gisti- stað. Gisti- staðir Heimsferða eru á Ensku ströndinni og Maspalomas en þetta eru vinsælustu ferða- mannastaðirnir á þessum slóðum. Verðið er kr. 29.990 á mann miðað við tvo fullorðna og tvö börn, 2-11 ára, í íbúð og kr. 39.990 á mann miðað við tvo í íbúð/stúd- íó. Innifalið er flug, skattar og gisting. Miðað er við að bókað sé á netinu www.heimsferdir. ■
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.