Fréttablaðið - 17.03.2005, Side 48
32 17. mars 2005 FIMMTUDAGUR
Fyrir einhverjum
vikum auglýsti ég
eftir ábyrgu
fressi í Vestur-
bænum. Tilefnið
var að læðan mín
varð kettlinga-
full og ég hafði
ekki hugmynd
um hver bæri
ábyrgð á ástandinu.
Auglýsing mín hér á þessum stað
bar ekki tilætlaðan árangur.
Ekkert fress gaf sig fram. Enginn
högni bar næga ábyrgðartilfinn-
ingu til að vilja skipta sér af upp-
eldi unga sinna. Né heldur að borga
meðlag.
Auðvitað getur verið að eigandi
högnans sem ber ábyrgð á þessu
öllu saman hafi einfaldlega ekki
lesið Fréttablaðið, né heldur kennt
honum að lesa svo ekki gat hann
lesið þetta sjálfur. Svo kemur auð-
vitað til greina að þetta sé eitthvað
útigangsfress, nóg er af þeim í
Vesturbænum. Þrátt fyrir að
Fréttablaðið dreifist víða, er ekki
hægt að gera kröfu um svo mikla
útbreiðslu.
Nú hef ég önnur meðöl til að
finna fressið. Læðan gaut um helg-
ina og fimm krúttlegir kettlingar
litu dagsins ljós. Eftir að hafa
verið neitað um að fá að gjóta í
nærfataskúffum heimilisins lét
hún sér duga handklæðahrúgu í
einu rúminu. Það kom sér mæta
vel, þar sem gotið var um miðja
nótt. Svo kom í ljós að einhverjir
kettlinganna vildu öfugir út og
þurfti hin nýbakaða móðir á aðstoð
að halda. Tók ég því að mér ljós-
móðurstörf í fyrsta sinn á ævinni.
Kettlingarnir eru ekki farnir að
sjá enn, en við höfum séð þá og það
dugar. Þrír kettlinganna líkjast
móðurinni mjög og get ég ekkert
ályktað um það hver faðirinn sé út
frá þeim. En ég var heppin og þeir
eru ekki allir eins. Tveir kettling-
anna eru nefnilega gráleitir. Því
get ég farið í njósnaferðir um
hverfið til að athuga hvort ég finni
ekki eitthvert grátt fress, sem lík-
legt er að sé faðirinn. Einhvers
staðar í vesturhluta hundrað og
eins flakkar hann um í mesta sak-
leysi og veit ekkert um þessi fimm
grey sem tilheyra honum. ■
STUÐ MILLI STRÍÐA
SVANBORG SIGMARSDÓTTIR HELDUR LEITINNI AF ÁBYRGU FRESSI ÁFRAM
Kettlingar komnir
M
YN
D
: H
EL
G
I S
IG
U
RÐ
SS
O
N
Eftir Patrick McDonnell
■ PONDUS
■ GELGJAN
■ KJÖLTURAKKAR
■ BARNALÁN
■ PÚ OG PA Eftir SÖB
Eftir Kirkman/Scott
Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
Eftir Frode Överli
Guð minn góður!
Nasahár á
miðsnesinu!
Það er jú heill
frumskógur í nef-
inu á henni svo
það er ekki nema
von að hún hrjóti.
Hvernig fjarlægir
maður eiginlega
nasahár á auð-
veldan hátt?
Það er
pottþétt
ekki með
töng.
Mamma, má
ég mála her-
bergið mitt? Já...það
máttu alveg.
Má ég gera það
um helgina?
Af hverju
ekki? Það er
bara frábært.
Ég get hjálp-
að þér að
velja litina.
Það er bara til
eitt litbrigði af
svörtum, mamma.
Merkilegt hvað
lítill hráki getur
gert mikið.
Önd! Kvak! Kvak!
Belja! Muuuuu! Svín!
Oink! Oink!
Ég held að Hannesi
sé illa við dýrahljóð.
Vrúúúúúúúúmmmm!
Vrúúúúúúúúmmmm!
Það fer eftir því
hvaða dýr það er.