Fréttablaðið - 17.03.2005, Side 57

Fréttablaðið - 17.03.2005, Side 57
FIMMTUDAGUR 17. mars 2005 LAUGARDAG 19. 03. ‘05 FÖSTUDAG 18. 03. ‘05 HÚSIÐ OPNAR KL. 23, MIÐAVERÐ 1500 KR. HÚSIÐ OPNAR KL.21, MIÐAVERÐ 1500 KR. EIN FRÆGAST HLJÓMSVEIT SEM FINNAR HAFA ÁTT FRÍTT INN TIL KL. 24.00 TÓNLEIKAR SPÚTNIK 22-PISTEPIRKKO ÞAR SEM ÍSLENDINGUM FINNST SKEMMTILEGAST AÐ DJAMMA NÁNARI UPPLÝSINGAR K Ö -H Ö N N U N / P M C STÓRVIÐBURÐUR! JÓNSI OG FÉLAGAR STÍGA Á SVIÐ KL. 24.00 MIÐAVERÐ 1500 KR. Í SVÖRTUM FÖTUM BALL SEM KLIKKAR EKKI ...PUNKTUR Færri listamenn komast að en vilja Aldrei fór ég suður, rokkhátíð Al- þýðunnar verður haldin á Ísafirði annað árið í röð um þar næstu helgi. Hátíðin er haldin sem hluti af Skíðavikunni á Ísafirði. „Þetta var hugmynd sem við pabbi fengum á einhverri krá í fyrra,“ segir Ísfirðingurinn Örn Elías Guðmundsson, betur þekktur sem Mugison. „Ég nefndi hugmyndina við Ragnar Kjartansson úr Trabant sem var æstur í að gera þetta og boltinn fór af stað.“ Um 30 listamenn koma fram á hátíðinni og segir Mugison að þetta verði góður kokteill heima- og aðkomumanna. Heiðursgestur á hátíðinni verður Villi Valli, ein fyrsta rokkstjarna Íslands. Mugi- son segir að vel hafi gengið að safna liði í ár. „Eiginlega of vel því það komast færri að en vilja og við þurftum að neita sumum. En þeim hefur verið lofað að troða upp að ári.“ Hátíðin er haldin í samstarfi við Flugfélag Íslands, Íslands- banka og Símann og verður meðal annars sýnt beint frá tónleikunum á heimasíðu Símans. Nánari upp- lýsingar um hátíðina má finna á vefslóðinni skidavikan.is. - bs MUGISON OG RASSI PRUMP Kynntu hátíðina á Ísafirði á þriðjudag og léku hátíðar- lagið Gúanóstelpan mín við það tilefni. Uppselt á seinni tónleikana Uppselt er á seinni tónleika norsku söngkonunnar Sissel Kyrkjebö sem verða haldnir í Há- skólabíói þann 1. október. Miða- salan hófst klukkan 10.00 í gær- morgun og voru allir miðar búnir innan við hálftíma síðar. Verið er að vinna í því að fá þessa feikna- vinsælu söngkonu til að halda þriðju tónleikana. Sissel kom hingað til lands um síðustu helgi og leist vel á Ísland. Nýjasta plata hennar, My Heart, hefur náð miklum vinsældum í Bandaríkjunum og hefur hún fylgt þeim eftir með tveggja mán- aða tónleikaferðalagi. ■ SISSEL KYRKJEBÖ Norska söngkonan heldur tónleika hér á landi í haust.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.