Fréttablaðið - 20.03.2005, Blaðsíða 16
Katrín er öðruvísi stjórn-málamaður en flestir afhennar kynslóð. Hún tekur
þátt í stjórnmálastarfi á eigin for-
sendum og lætur ekki stjórnast af
skoðunum annarra. Hún nálgast
málin út frá eigin brjósti og talar
hreint út. Katrín viðurkennir þó að
þegar hún hafði afskipti af stjórn-
málamönnum í fyrsta sinn hafi hún
gripið til hefðbundinna pólitískra
vopna; að plata. „Ég var í Mennta-
skólanum við Sund og átti að skipu-
leggja fund með foringjum flokk-
anna. Ég byrjaði að hringja en ým-
ist vildu menn ekki koma eða senda
minni spámenn. Ég sá fram á að
þetta yrði ömurlegt og skipti um
aðferð. Ég hringdi í Jóhönnu Sig-
urðardóttur og sagði henni að Jón
Baldvin ætlaði að koma. Hún var
þá til. Svo hringdi ég í Jón Baldvin
og sagði honum að Jóhanna ætlaði
að koma. Þá var hann til.“ Svona
gekk þetta þar til Katrín var ánægð
með það fólk sem átti að ræða póli-
tík á fundi MS-inga 1995. Og fund-
urinn gekk vel. „Já, þetta var góður
og skemmtilegur fundur og ég man
að mér þóttu allir stjórnmálamenn-
irnir nokkuð skemmtilegir.“
Ætlaði aldrei í flokk
Katrín ólst ekki upp við eldheitar
pólitískar umræður við eldhús-
borðið en Þjóðviljinn var keyptur á
æskuheimilinu í Álfheimunum.
„Það var talað um allt á heimilinu,
en ekkert meira um pólitík frekar
en eitthvað annað. Ég hafði engan
sérstakan áhuga á stjórnmálum en
vissi hvar ég stóð. Áhuginn kvikn-
aði svo undir lok menntaskólans.“
Þrátt fyrir að áhugi á stjórnmál-
um hafi verið vakinn var Katrín
staðráðin í einu: „Ég ætlaði aldrei
að ganga í flokk. Mér fannst
flokkakerfið staðnað og hallæris-
legt,“ rifjar hún upp. Áformin um
að standa utan flokka fóru þó á
annan veg, eins og kunnugt er.
Eftir að menntaskólanum
sleppti fór Katrín í Háskóla Ís-
lands, þar sem hún tók þátt í stúd-
entapólitíkinni með Röskvu.
Um svipað leyti varð hún félagi
í Samtökum herstöðvaandstæð-
inga en stjórnaði því reyndar ekki
alveg sjálf. „Bróðir minn var í
samtökunum og gaf mér aðild og
árgjald í afmælisgjöf,“ segir hún
og hlær. Það samrýmdist þó skoð-
unum Katrínar að starfa innan
samtakanna enda svarinn and-
stæðingur hernaðar og veru
bandaríska hersins á Miðnesheiði.
Kjörin varaformaður
Það var snemma árs 2002 sem
Katrín þurfti að endurskoða fyrri
ákvörðun sína um að ganga ekki í
stjórnmálaflokk. Vinstri grænir
föluðust eftir því við hana að hún
gengi í flokkinn og tæki eitt af sæt-
um hans á Reykjavíkurlistanum
fyrir kosningarnar um vorið. Hún
þáði boðið.
Þremur mánuðum síðar var hún
orðin formaður ungliðahreyfingar
VG og aðeins ári eftir það varafor-
maður flokksins. Hlutirnir gerðust
hratt og hinn nýi varaformaður
VG var aðeins 27 ára. „Þetta gerð-
ist allt of hratt og það er ljóst að ég
hætti útbrunnin í pólitík eftir
fimm ár,“ segir Katrín hlæjandi.
En það var ekki af ánægjunni
einni sem hún gaf kost á sér í emb-
ætti varaformanns, úrslit þing-
kosninganna vorið 2003 voru henni
áhyggjuefni. „Við fengum fimm
þingmenn kjörna, allt sömu menn
og sátu kjörtímabilið á undan og
allir voru þeir um fimmtugt. Það
má ekki misskilja mig, þetta er al-
veg sérlega yndislegt fólk en mér
fannst þetta samt ekki ganga og
vildi yngja upp í forystunni.“
Svanhildur Kaaber var að láta
af varaformennsku og Katrín var
kjörin í hennar stað. Hún vílaði
ekki fyrir sér að takast á við þetta
ábyrgðarstarf. „Nei, alls ekki.
Þegar eitthvað svona kemur upp
þá slæ ég til. Ég get þá bara hætt
ef mér finnst leiðinlegt.“
Hún er ófáanleg til að lýsa yfir
áhuga á að verða formaður VG
þegar fram í sækir, segist ekki
hugsa svo langt fram í tímann.
Pólitíkusar plata
Oft hefur verið fullyrt að Reykja-
víkurlistinn sé við það að springa
en fulltrúar hans segja jafnan á
móti að samstarfið hafi aldrei
gengið betur. Katrín hefur sínar
skoðanir á málinu. „Pólitíkusar eru
náttúrlega alltaf að plata. Sumir
velja að segja að allt sé frábært og
það er bara þeirra ákvörðun. Við
höfum átt í mörgum erfiðum mál-
um og það er allt í lagi að viður-
kenna það. Við erum ekki átaka-
fælinn hópur og höfum komist í
gegnum erfið mál án þess að fara
út í einhver læti. Það er bara hið
besta mál.“
Nú sem fyrr eru uppi vanga-
veltur um hvort Reykjavíkurlist-
inn bjóði fram í kosningunum að
ári. Katrínu sýnist helmingslíkur
vera á því. „Ef flokkarnir koma sér
saman um góð málefni og listinn
fer í ákveðið endurnýjunarferli
getur hann lifað. Ég viðurkenni að
ég er ekki mesti aðdáandi Fram-
sóknarflokksins á landinu en hef
hins vegar ekki átt í nokkrum
erfiðleikum með að vinna með
borgarfulltrúum hans. Það gæti
líka verið mjög sterkt fyrir VG að
bjóða fram sér. Á þessu eru kostir
og gallar. Þú færð mig að minnsta
kosti ekki til að lýsa því yfir að R-
listinn sé sprunginn.“
Kapítalismi og kynlíf
Það eiga ekki allir gott með að
skilja hvers vegna fólk gefur sig
að stjórnmálum. Argaþrasið, at-
gangurinn og orðbragðið eru með
öðrum hætti en í flestum greinum,
fólk verður að opinberum persón-
um og stór hluti lífs þess fer fram
fyrir opnum tjöldum. Katrín líkir
pólitík við alkóhólisma. „Ég held
að þetta sé svipað. Maður vill þetta
ekkert endilega en gerir það samt.
Stundum stend ég frammi fyrir að
þurfa að sitja fimmtán fundi um
eina helgi og finnst tilhugsunin
hræðileg. Þá spyr ég mig hvers
vegna ég sé að þessu. Kenning mín
er sú að þetta sé veiki.“
Öllum má vera ljóst að Katrín
er ekki hrifin af kapítalisma og á
dögunum hélt hún því fram að kap-
ítalisminn hefði eyðilagt kynlífið.
Fyrir vikið uppskar hún fúlllyndi
hægrimanna. „Ég skrifaði grein
um þetta á Múrinn því ég held að
pólitík eigi við allt. Það birtust ný-
lega tvær fréttir um íslenskar kon-
ur og kynlíf. Í annarri var sagt að
þær ættu flest hjálpartæki ástar-
lífsins og í hinni að þær ættu erfitt
með að fá fullnægingu. Þetta sýnir
að kapítalisminn virkar ekki. Það
er sama hvað maður kaupir mikið
af dóti, það er ekki það sem er lyk-
illinn að lífshamingjunni. Ég vil
meina að búið sé að gera kynlífið
að svo mikilli söluvöru að fólk
verði stressað og geti ekki fengið
það. Ég lauk svo greininni á að
skjóta létt á kapítalistana með að
segja að þeir hefðu misst af miklu.
Ég hef heyrt í þeim mörgum sem
eru ósáttir við túlkun mína og
segja að ég hafi greinilega aldrei
sofið hjá hægrimanni,“ segir
Katrín og hlær.
Myrðir á borgarstjórnarfundum
Líf Katrínar Jakobsdóttur snýst
ekki bara um stjórnmál. Hún er
heltekin af áhuga á glæpasögum
og hefur skrifað tvær ritgerðir um
slíkar bókmenntir. Áhuginn vakn-
aði í æsku þegar hún las bækur
Enid Blyton og síðar Agöthu
Christe.
Og hún á sér draum. „Mig
dreymir um að skrifa glæpasögu
en þau mál eru skammt á veg kom-
in.“ Hún viðurkennir þó að hugsa
reglulega um vettvang glæps fyrir
söguna. „Ég hugsa oft á fundum
um morðið í borgarstjórn eða
morðið í fræðsluráði og hef myrt
marga í huganum,“ segir Katrín
hlæjandi.
Hún er líka í áhugaleikhópnum
Hörpunni sem reyndar hefur ekki
farið mjög hátt í samfélaginu. „Við
höfum sett upp þrjár sýningar og
það er mjög skemmtilegt. Í út-
skriftarveislunni minni settum við
upp morðgátu. Ég var hamingju-
samt lík í hálftíma þar til hinn seki
fannst.“
Katrín er ekki í hefðbundnu níu
til fimm starfi heldur vasast í
mörgu. Dagarnir eru ólíkir og það
hentar henni vel. „Ég hef alltaf átt
erfitt með að hugsa um eitt í einu
og finnst ágætt að vera í borgar-
málunum en líka aðeins í lands-
málunum, bókmenntunum og fjöl-
miðlunum. Ég vil halda öllu opnu
og geta breytt til.“ ■
KATRÍN JAKOBSDÓTTIR „Ég hugsa oft á fundum um morðið í borgarstjórn eða morðið í fræðsluráði og hef myrt marga í huganum.“
Katrín Jakobsdóttir ætlaði aldrei að ganga í stjórn-
málaflokk. Árið 2002 var hún allt í einu komin í VG
og ári síðar orðin varaformaður. Í samtali við Björn
Þór Sigbjörnsson líkir hún pólitískum áhuga við
alkóhólisma, segir stjórnmálamenn alltaf að plata og
kennir kapítalismanum um fullnægingarþurrð kvenna.
Katrín á
fleygiferð
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
16 20. mars 2005 SUNNUDAGUR
Nitró / Járnhálsi 2 / Sími: 557 4848 / www.nitro.is
TILBOÐ
Vulcan 800 2005
Verð aðeins 968.000 kr.
Hjálmur fylgir hverju seldu hjóli.
14.123 *á mánuði
*Meðalgr. pr. mán í 60 mán.
Miðað við útborgun kr. 290.000 og SP bílalán.
TILBOÐ
Husaberg FE
450cc, 550cc & 650cc árg. 2005
Verð frá 970.000 kr.
Hjálmur fylgir hverju seldu hjóli.
14.123 *á mánuði
*Meðalgr. pr. mán í 60 mán á FE 450cc.
Miðað við útborgun kr. 290.000 og SP bílalán.
Léttasta endurohjól landsins.
Getum einnig útvegað 2004 hjól á frábæru verði.
Aðeins örfá hjól eftir hjá framleiðanda.
Hafið samband við sölumann.
Hjóla- og vélsleðadagar Í Nítró
Katrín í
hnotskurn
Aldur: 29 ára.
Menntun: Íslensku-
fræðingur.
Störf: Borgarfulltrúi –
situr í menntaráði og
er formaður um-
hverfisráðs. Stjórn-
andi Sunnudagsþátt-
arins á Skjá einum
og kennir á nám-
skeiðum um glæpa-
sögur.
Áhugamál: Stjórn-
mál, glæpasögur og
útivera í sveitum
landsins (þrátt fyrir
gríðarlegt gróður-
ofnæmi!).