Fréttablaðið - 09.04.2005, Page 16

Fréttablaðið - 09.04.2005, Page 16
16 Barn látinnar móður rænt Þegar ég vakna á morgnana fer heilinn á stað og ég reyni að skil- ja, rembist allan daginn. Fyrsta verkið venjulega út að horfa á nautin og þau á mig, tékka á að all- ar lappir bendi í rétta átt niður í forina. Ef það verk gengur vel get ég haldið áfram að spekúlera. Ég veit að „Charlíeboy“ er með hjarta á við körfubolta, að dökkt og myrkt blóðið rennur í lungun og þaðan skærrautt. Ég veit að lifrin í honum myndi þekja borð- stofuborðið, við Temma keyptum einu sinni heila nautslifur handa köttunum í Sláturfélaginu við Skúlagötu. Hvort við keyrðum hana heim á Ránargötu í barna- vagninum eða bílnum hans Jóa bróðir man ég ekki, en að hún þakti allt borðið nærri þverhand- arþykk, það man ég. Svo ég þekki lifrina í „Charlíeboy“ þótt ég hafi aldrei séð hana. Ég veit að við „Charlíeboy erum skyldir þótt milljónir ára séu á milli okkar, að hjartað í honum og hjartað í mér tengjast ættarböndum. Stundum fatta ég næstum því kenningu Einsteins, næ í brot. Flestar stundir finnst mér jörðin þó flöt og sólin fara um himininn, þarf að einbeita mér til að sjá að ég snýst sem skopparakringla og sólin alltaf á sama stað. Dagurinn líður og öll mín vitneskja dreifist um velli sem garnir hetjanna í Val- höll. Yfir kvöldmatnum reyni ég svo að gleyma ósigrum dagsins og lít vongóður til morgundsgsins. Forsætisráðherra hélt mögu- legt að taka upp Evruna, mín fyrsta hugsun var að ástæðan væri auðvitað myndin af afa á seðlinum, hann vildi heldur „blendimyndir“ af ímynduðum stöðum í Evrópu. Ég reyndi að muna hverjir væru á Evrunni: DeGaulle, Martin Lúter, Hitler, Nafla Jón eða „blendimyndir“ af þeim á gjaldmiðli sem hvergi á heima og enginn á. Ég er ekki menntaður i hagfræði eða nokkru yfirleitt, búfræðingur frá Hvann- eyri. En ég hélt alltaf að hluti af sjálfstæðisbaráttunni hefði verið að fá eigið hagkerfi og gjaldmiðil. Ég veit að í stærsta efnahags- kerfi Evrunnar þurfti einu sinni hjólböru af seðlum til að kaupa eitt brauð, las í gær að atvinnule- ysið í Þýskalandi væri sums stað- ar 25%. Ég get ekki skilið hvernig Íslendingar geti sagt Frökkum eða Þjóðverjum til verka, man að Frakkar tóku fólk af lífi fyrir að vera ekki nógu glaðlynt, bönnuðu jafnvel sjö daga vikuna svo hægt væri að gleyma Guði. Forsætis- ráðherra hlýtur að hlusta á vitr- ustu fjármálamenn Íslands, með- an við nautin störum á hvert ann- að alla daga og skiljum stundum ekki mikið. En eitt þykist ég þó vita, að sjálfstæði íslensku þjóð- arinnar sé í veði og menn verði að vita hvað þeir tala um þegar þeir virðast tilbúnir að gefa upp sjálfs- ákvörðunarrétt lýðveldisins, ann- ars verði þeir að víkja. 10. apríl 2005 LAUGARDAGUR INGIMUNDUR KJARVAL BÓNDI Í BANDARÍKJUNUM UMRÆÐAN GJALDEYRISMÁL Hver á Evruna? Eiður Smári Guðjohnsen, fyrir- liði íslenska landsliðsins og fram- herji hjá enska úrvalsdeildarlið- inu Chelsea, er maður vikunnar hjá Fréttablaðinu að þessu sinni. Eiður Smári hefur, líkt og svo oft áður, verið í sviðsljósinu þessa vikuna með liði sínu Chelsea. Hann skoraði tvö mörk fyrir liðið í 3-1 sigri á Sout- hampton í ensku úrvals- deildinni á laugardag- inn og sýndi þar mik- inn karakter með því að hrista af sér meiðsli aftan á læri, meiðsli sem komu í veg fyrir að hann gæti tekið þátt í landsleikjum Ís- lands gegn Króatíu og Ítalíu. Eiður Smári var einnig í lykilhlutverki á mið- vikudaginn þegar Chelsea bar sigurorð af þýska liðinu Bay- ern München, 4-2, í fyrri leik liðanna í átta liða úrslitum meistaradeildarinn- ar. Eiður Smári er án nokkurs vafa lang- besti knattspyrnumað- ur Íslands í dag og það er skoðun fjölmargra að það séu ekki margir framherjar í ensku úrvalsdeildinni sem standa honum fremri í dag. Eiður Smári, sem er 26 ára gamall, á ekki langt að sækja knattspyrnuhæfi- leikana því faðir hans, Arn- ór, var frábær knatt- spyrnumaður og einn sá besti í íslenskri knatt- spyrnusögu. Það var fljótt ljóst hvert stefndi með Eið Smára því frá því að hann var níu mánaða gamall þá var hann alltaf með boltann á tánum. Eiður Smári bjó fyrstu tólf ár ævi sinnar í Belgíu en þegar hann kom heim fór hann í Snælands- skóla í Kópavogi. Hann var að sögn kunnugra duglegur nem- andi, sérstaklega í stærðfræði, en stefndi þó alltaf á atvinnu- mennsku í fótbolta. Eftir að hann lauk námi í Snælandsskóla vorið 1994, fór hann hálfan vetur í Menntaskólann við Sund en það var þó lítil alvara í því námi. Mætingin var afar slök því að hugurinn var þegar kominn út og strax í byrjun árs 1995 gekk hann til liðs við hollenska liðið PSV. Allt var á upp- leið hjá stráknum og hann var farinn að fá tækifæri með aðalliði PSV þegar hann meiddist illa á ökkla í landsleik 7. maí 1996. Eiður Smári barðist lengi við þessi meiðsli og það var ekki fyrr en sumarið 1998 sem hann fékk sig góðan. Þá gekk hann til liðs við KR til að koma sér í form og fékk margar háðsglósurnar fyrir að vera í þyngri kantin- um. Hann fékk síðan samning hjá Bolton og eftir að hafa staðið sig frábærlega með liðinu í ensku 1. deildinni var hann keyptur til Chel- sea fyrir 400 milljónir króna. Hjá Chelsea hef- ur Eiður Smári vaxið og dafnað sem leik- maður og er nú stórst- jarna sem þénar 200 milljónir á ári. Eiður Smári er fjöl- skyldumaður, ólíkt mörgum félögum sín- um í ensku knattspyrn- unni, og hefur verið með sömu konunni, Ragnhildi Sveinsdótt- ur, frá því að hann var fimmtán ára. Þau eiga saman tvo syni, Svein Aron, sem er sjö ára, og Aron Lucas sem er þriggja ára. Ragnhildur hefur staðið þétt við bakið á Eiði Smára og á ekki hvað síst þátt í velgengni hans á knattspyrnuvellinum. Þau eru að sögn ákaflega sam- rýmd enda eyða þau stærst- um tíma ársins ein úti í London. Eiður Smári er mikill gleðimaður og hefur gaman af því að skemmta sér í góðra vina hópi. Hann þykir hins vegar vera með eindæmum latur við húsverkin og verður seint gripinn í uppvaskinu, við að setja í þvottavélina eða í garðinum. Eiður Smári er viðkvæmur einstak- lingur sem tekur nærri sér gagnrýni sem hann á ekki skilið en hefur myndað þykkan skráp gagnvart sögu- sögnum um einkalíf hans en þær hafa verið nokkrar í gegnum tíð- ina. Hann hefur hins vegar ætíð svarað fyrir sig á vellinum, nokkuð sem hefur skilað honum í hóp bestu knattspyrnumanna Evrópu. ■ Latur við húsverkin, frábær á vellinum MAÐUR VIKUNNAR EIÐUR SMÁRI GUÐJOHNSEN SEM ER LYKILMAÐUR Í EINU BESTA FELAGSLIÐI EVRÓPU TE IK N IN G : H EL G I S IG . – H U G VE R K A. IS

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.