Fréttablaðið - 09.04.2005, Blaðsíða 60

Fréttablaðið - 09.04.2005, Blaðsíða 60
Það getur verið æði hjákátlegt að taka út vor- og sum- artískuna þegar úti snjóar og landinn er kominn aftur í dún- úlpur og föðurland. Það má þó alltaf reyna að fá sumar- stemmningu í hjart- að með því að skella á sig bleikum vara- lit og dusta vel af sólarpúðri yfir andlitið. Það er ekki ýkja langt síð- an það var mál málanna að vera í hermannalegum fötum. Sú tíska náði hámarki fyrir tveimur árum eða á sama tíma og Íraksstríðið braust út. Óheppi- leg tilviljun segja sumir en tískudrósir heimsins létu það ekki stoppa sig og hermannabuxurnar náðu hámarki um mitt sumar. Nú er aftur farið að bera á fatnaði í hermannastíl. Tískuspekúlantar passa sig á að gera ekki sömu mistökin tvisvar og nú heitir hermannatískan „safarí“. Það er mjög auðvelt að sjá fyrir sér súkkulaðibrúna Íslendinga á sólarströnd keyrandi um í opnum slyddujeppum þegar orðið „safarí“ er nefnt en það er önnur saga. Við „safaríjakkana“ er smart að vera í víðum, hnésíðum pilsum og kúrekastíg- vélin poppa upp á heildarútlitið. Breið, fléttuð leðurbelti eiga líka heima með „safarífötunum“. Ferskjulitaður og ljós túrkísblár eru fallegir með þess- um hermannagræna lit og líka með ljósum jökkum. Nú er málið að draga fram gömlu hermannabuxurnar eða jakkana og poppa það upp með sumarlitun- um í ár. Munið bara að nota orð- ið „safarí“ í stað hermanna. MÓÐUR VIKUNNAR > MARTA SMARTA FER YFIR MÁLIN Kjólapanik Vikan var undirlögð af árshátíðarpælingum, því nú í kvöld verður árshátíð Fréttablaðsins haldin. Hingað til hef ég gert stólpagrín að svona samkomum. Fundist massa plebbalegt að fara í hár og förðun. Ég skil heldur ekki þessar massívu áhyggjur yfir því hverju á að klæðast. Konur spá í hverju hinar eru klæddar yfir fordrykknum en yfirlett eru þær fljótar að gleyma því þegar vín- andi fer að mælast í blóðinu. Í liðinni viku datt ég hinsvegar í plebbagírinn. Því miður. Ég varð alveg ráðþrota um það, í hverju ég ætti að vera þetta blessaða kvöld. Eftir að hafa þrætt allar verslanir á stór Reykja- víkursvæðinu án árangurs fylltist ég vonleysi. Það var lítið úrval af kjólum en þeir kjólar sem ég rakst á voru annað- hvort of stuttir, af síðir, of þröngir, of litlausir, of væmnir, of kerlingalegir, of gelgjulegir, of pönkaralegir, of hversdagslegir, of sparilegir, of fegurðardrottningalegir, of viðskiptalegir eða of ljótir. Það kom mér á óvart hvað var í raun dapurt kjólaúrval miðað við hvað fæst mikið af öllu á Íslandi. Mér fannst mest bera á gellulegum kjólum sem voru ýmist opnir niður að rassaskoru eða með klaufum upp að mjaðmabeini og varð hissa því ég hélt að tími þeirra væri löngu liðinn. Fyrst þeir fást ennþá í búðunum hlýtur að vera markaður fyrir þá. Efnisvalið var líka í daprari kantinum, 100% gerviefni sem fær hárin til að rísa. Má ég frekar biðja um silki, kasmír og gimsteina. Ég fór líka að spá af hverju konur væru oft svona yfirdrifnar þegar kemur að árshátíðum? Þarf að eyða svona miklum peningum til að hafa gaman? Svarið er líklega í þá átt af hverju ekki? Konur hljóta að mega vera eins og þær vilja án þess að þær séu rakkaðar nið- ur. Svo er það bara í eðli konunnar, sem vill vera falleg og geislandi, þótt það kosti nokkra þúsundkalla. Þegar ég hugsaði þetta árshátíðarmál til enda náði ég góðri lendingu. Ég verð bara í sama kjólnum og í fyrra. Hann er ágætur og gerir engum mein. Ég bind vonir við að hann muni ekki hamla gleðinni. Ef þetta klikkar verð ég bara kosin verst klædda kona fyrirtækisins, það verður bara að hafa það. Ég mun allavega taka því mannalega og með reisn. 44 9. apríl 2005 LAUGARDAGUR Veiðitímabilið er hafið Birgitta er ávallt með mörg járn í eldin- um. Hún leikur í Ávaxtakörfunni um helgar og tók sig vel út sem gesta- stjórnandi í þætti Strákanna á Stöð 2 í vikunni. Birgitta stefnir á að fara til New York í maí og er aldrei að vita nema hún missi sig í búðun- um þar. >>> Fylgist þú vel með tísk- unni? Ekki reglulega en ég hef rosa gaman af því að kíkja í búðir. Uppáhaldshönnuðir? Ég á mér enga uppáhalds fatahönnuði en D&G og Chanel eru í uppáhaldi þegar kemur að sólgler- augum. Fallegustu litirnir? Ég er mikið fyrir jarðliti og gyllta liti. Hverju ertu mest svag fyrir? Ætli ég verði ekki að segja gallabuxum. Ég hef ákaflega gaman af því að fá mér nýjar buxur og svo er ég einstaklega veik fyrir jökkum. Hvaða flík keyptir þú þér síð- ast? Brúnan hlýrabol með háls- máli sem þarfnast ekki háls- mens við þar sem hann er eig- inlega með áföstu hálsmeni. Ég keypti toppinn í Kiss. Á dögun- um fékk ég glænýja Henson peysu sem er nýkomin á markað. Hún er brún að lit og mjög falleg. Hvað finnst þér mest sjarmerandi í vor-og sumartískunni? Peach liturinn er mikið að koma og aðrir fal- legir pastellitir sem að eiga eftir að vera fal- legir í sólinni í sumar. Hvað ætlar þú að kaupa þér fyrir vorið? Úff, ég veit það ekki alveg. Sennilega fallega skó og kannski pils. Ég bind vonir við að sumarið verði hlýtt. Uppáhaldsverslun? Ég versla mikið af bolum og skarti í Kiss í Kringlunni og er sú verslun í miklu uppáhaldi hjá mér. Ég er mest hrifin af gallabuxum frá Diesel og Gas sem fást í Galleri Sautján og Blend. Hvað eyðir þú miklum peningum í föt á mán- uði? Það er rosalega mis- jafnt. Stundum eyði ég engu og stundum allt of miklu. Það fer alveg eftir fjárhagnum. Ætli ég versli ekki mest á sumrin, þá er svo gaman að kaupa skó, þunna boli og eitthvað sumarlegt. Hvaða flíkur gætir þú ekki verið án? Það er engin flík mér það mikilvæg sem betur fer og mér finnst að fólk eigi ekki að taka ástfóstri við dauða hluti eins og föt. Uppáhaldsflík? Ég fór til London fyrir stuttu og keypti mér loðjakka sem ég er mjög ánægð með. Ég fékk leðurjakka í jólagjöf frá mömmu og pabba sem mér finnst æðislegur. Hvert myndir þú fara í versl- unarferð? Það var mjög gam- an að versla í London enda er borgin mjög heillandi. Ég væri alveg til í að fara þangað aftur að versla. Ljótasta flík sem þú hefur keypt þér? Flíkurnar mínar eru allar börn síns tíma og eigin- lega ekki hægt að dæma þær svona eftir á. Þegar ég versla mér eitthvað er ég alltaf ánægð með hlutina á þeim tímapunkti. „SAFARÍJAKKAR“, Zara Smáralind. HIPPALEGIR pæjuskór, Zara í Smáralind. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M O FL Bind vonir við hlýtt sumar > SÖNGKONAN BIRGITTA HAUKDAL ER SÉRLEGA HRIFIN AF GYLLTUM TÓNUM Í BLAND VIÐ JARÐLITI. ÆVINTÝRALEGUR árshátíðarkjóll frá Spaksmannsspjörum PILS í hermannastíl. Zara í Smáralind. HERMANNAKJÓLL úr Karen Millen. KÚREKASTÍGVÉL, GS skór. FLÉTTUBELTI OG SKÓR, Kultur Kringlunni. SAFARÍTÍSKA frá Prada.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.