Fréttablaðið - 09.04.2005, Blaðsíða 58
T roma Entertainment erkynlegur kvistur í banda-rískri kvikmyndaflóru en
fyrirtækið hefur í þrjátíu ár fram-
leitt ódýrar þjóðfélagsádeilur
stútfullar af nekt, kynlífi og hryll-
ingi. Félagarnir Micael Herz og
Lloyd Kaufman stofnuðu kvik-
myndaverið á síðari hluta sjöunda
áratugarins með það að markmiði
að koma á heimsfriði í gegnum
appelsínuhúð.
The Toxic Avenger er eitt
frægasta sköpunarverk Troma en
hann er óhefðbundin ofurhetja
sem verður til þegar nördið
Melvin dettur í potta fullan af eit-
urefnaúrgangi og snýr vörn í sókn
og berst gegn glæpum og eineltis-
púkum.
„Það var miklu meira sjálf-
stæði í kvikmyndagerð fyrir
þrjátíu árum en nú,“ segir þessi
galsafengi spaugari sem minnir
svolítið á George W. Bush í góðu
skapi í gallabuxunum sínum með
skræpótta bindið. Að öðru leyti
eiga þessir landar fátt sameigin-
legt enda er Kaufman frekar
vinstrisinnaður og enn hálfgerð-
ur hippi.
„Troma er á svörtum listum í
Bandaríkjunum og á í vök að
verjast í Bandaríkjunum. Hér
áður fyrr voru lög sem hindruðu
hringamyndanir í viðskiptalíf-
inu en þau eru öll horfin. Það
voru einnig til lög sem ýttu
undir sjálfstæða listsköpun en
þau eru líka gufuð upp. Það sem
eftir stendur eru risavaxnar,
djöfladýrkandi samsteypur eins
og Sony og Fox. Þær eiga kvik-
myndahúsin, myndbandaleig-
urnar og sjónvarpsstöðvarnar
og stjórna markaðnum úti um
allan heim. Þær eru jafnvel
voldugri en Jóhannes Páll páfi
annar eða þriðji eða hvað sem
hann heitir,“ segir Kaufman sem
er kominn í ham og myndast við
að hengja sig í hálsbindinu sínu
fyrir ljósmyndarann. „Ítök stór-
fyrirtækjanna eru slík að al-
menningur í Bandaríkjunum sér
ekki óháðar myndir nema þær
sleppi einhvern veginn fram hjá
samsteypunum.“ Kaufman er þó
síður en svo á þeim buxunum að
leggja árar í bát og á enn margt
eftir ósagt í myndum sínum.
„Við erum eins og herpes. Við
hverfum aldrei.“
Ætlaði að bjarga heiminum
En upp úr hverju spratt Troma? Þið
hljótið að hafa risið upp eins og
pönkarar í andófi gegn tíðarandan-
um? „Ég elska bíómyndir. Það er
ekkert flóknara en það. Ég gerði
þau mistök að fara í Yale háskólann
sem er sá besti í Bandaríkjunum.
Ég ætlaði að verða kennari eða fé-
lagsráðgjafi. Þetta var sjöundi ára-
tugurinn og ég ætlaði að bæta
heiminn. Ég fékk svo bíóbrjálæð-
ing fyrir herbergisfélaga á heima-
vistinni. Herbergið var lítið og
rúmin okkar lágu þétt saman
þannig að á næturnar andaði ég
Goddard táfýlunni af fótunum á
honum að mér og Troma varð til.
Hann lét mig horfa á allar þessar
frábæru myndir eftir John Ford,
Renoir, Fritz Lang, Andy Warhol og
Leni Riefenstahl og ég smitaðist.“
Kaufman segir að það hafi
enginn kært sig um að sýna Toxic
Avenger þegar hún var tilbúin þar
sem fólk áttaði sig ekki á því að
um satíru væri að ræða. Satíran
er okkar fag og við erum alltaf að
fást við félagsleg ágreiningsefni.
Við byrjuðum á því að blanda
saman gríni og kynlífi í nokkrum
myndum en það tíðkaðist ekki þá.
Við gerðum það og það gekk vel
þannig að Hollywodd hermdi eftir
okkur með Animal House, Porky’s
og fleiru í þeim dúr. Þeir brutu
bara reglurnar með því að nota
góða leikara og góð handrit.
Við ákváðum því að hætta
þessu og leita nýrra viðfangs-
efna.“
Og þá kom hryllingurinn og
Toxic Avenger. „Við lásum í
Hollywood Reporter eða ein-
hverju álíka blaði að hryllings-
myndin væri ekki gjaldgeng
lengur og sögðum við sjálfa
okkur: „A-ha!, ef þetta er satt þá
förum við út í hrylling,“ einfald-
lega vegna þess að okkur hafði
gengið vel að fara gegn sérfræði-
áliti. Ég get talað endalaust um
Toxic Avenger; þetta er mjög
flókið og djúpt verkefni en líka
mjög skemmtilegt og sló í gegn.“
Getum búið til sprengjur en
skiljum ekki einfalda hluti
Þú vilt sem sagt ná til fjöldans,
vera séður. En ekki falla fjöld-
anum í geð? „Frumkvöðlaverk
okkar hafa að einhverju leyti
runnið saman við það sem er al-
mennt samþykkt en við megum
aldrei fylgja straumnum. Við
erum á svörtum listum og úti-
lokaðir frá markaðnum. Þetta er
efnahagsleg útilokun og þó að við
höfum aldrei verið vinsælli og
frægari höfum við aldrei átt jafn
erfitt uppdráttar. Okkur er ekki
hleypt á myndbandaleigur eða í
bíó. Fyrir fimm árum fengust
myndirnar okkar sýndar í banda-
rísku sjónvarpi en ekki lengur.
Við erum í sjónvarpi í Frakk-
landi, á Ítalíu, í Bretlandi og
Japan en ekki í Bandaríkjunum.
Það verður samt alltaf pláss fyrir
Troma vegna þess að við trúum á
það sem við erum að gera og tök-
umst á við samtímann. Í Ameríku
erum við enn að deila um fóstur-
eyðingar og hvort kona megi hafa
stjórn yfir líkama sínum eða ekki
og hvort samkynhneigðir eigi að
fá að giftast. Við erum flinkir að
búa til sprengjur en getum ekki
skilið að konur eigi að fá að ráða
yfir líkama sínum.“ ■
42 9. apríl 2005 LAUGARDAGUR
Í dag, eftir þrjátíu og fjögur löng
ár, í sundur og saman, fá hjörtu
Karls Bretaprins og Camillu
Parker Bowles loks að sameinast.
Í samanburði við íburðarmikið
brúðkaup breska krónprinsins
þegar hann gekk að eiga fóstruna
Díönu Spencer árið 1981, þegar
750 milljónir manna af heims-
byggðinni fylgdust með og 3500
manns voru meðal brúðkaups-
gesta, verður brúðkaup Karls og
Camillu með látlausasta sniði.
Frá því brúðkaupið var til-
kynnt í byrjun febrúar hefur
gengið á ýmsu við undirbúning.
Elísabet Englandsdrottning til-
kynnti að hún ætlaði ekki að vera
viðstödd borgarlega hjónavígslu
sonar síns og í vikunni smyglaði
blaðamaður gervisprengju inn á
landareign Windsor-kastala, þar
sem brúðhjónin munu gleðjast í
dag. Á fyrirhugaðan brúðkaups-
daginn í gær varð óvænt jarðar-
för Jóhannesar Páls páfa á dag-
skrá, svo þau Karl og Camilla
þurftu að fresta giftingardegi
sínum um einn dag, en samt
lendir brúðkaupið milli tveggja
jarðarfara þar sem Rainer fursti
af Mónakó verður jarðsettur í
næstu viku.
Hraklegur undirbúningur
hefur þó síður en svo dregið úr
einlægum ásetningi ástarfugl-
anna að eigast. Bæði þurfa að játa
syndir sínar og misgjörðir í hjóna-
vígslunni, enda bæði lífsreyndar
manneskjur; miðaldra, fráskildir
foreldrar sem verið hafa í leyni-
legu ástarsambandi áratugum
saman.
Þeir Vilhjálmur prins og Tom
Parker Bowles, sonur Camillu,
verða hjúskaparvottar. Breta-
drottning mun vera viðstödd at-
höfn þar sem hjónaband Karls og
Camillu fær kirkjulega blessun í
kapellu Windsor kastala, og alls
er 800 gestum boðið til veislu í
kastalanum að athöfn lokinni.
Gestalistinn er stjörnum prýddur
þótt hann þyki litlaus miðað við
brúðkaup Karls og Díönu heit-
innar. Meðal gesta verða með-
limir úr konungsfjölskyldum
Noregs, Grikklands, Hollands,
Sádi-Arabíu, Júgóslavíu og
Bahrain, ásamt Tony Blair for-
sætisráherra Bretlands og leið-
togum breskra stjórnmálaflokka.
Þá streymdu stjörnur á sviði leik-
listar, bókmennta og fjölmiðla til
Windsor í gær. Meðal annarra
leikararnir Joan Rivers, Kenneth
Branagh, Richard E. Grant,
Rowan Atkinson og Stephen Fry,
sjónvarpsmaðurinn Sir David
Frost og rithöfundurinn Jonathan
Dimbleby, sem skrifaði æviminn-
ingar Karls árið 1994, þar sem
prinsinn viðurkenndi samband
sitt við Camillu. Fábrotnum
gestum er einnig boðið til veisl-
unnar; Barböru Fell, eiganda upp-
áhaldskráar Karls prins, og þeim
Joe og Hazel Relph, eigendum
gistihússins Yew Tree Farm, þar
sem Karli hefur líkað að gista við
hin ýmsu tilefni. ■
Andaði að sér Goddard táfýlunni
Kvikmyndagerðarmaðurinn sérlundaði Lloyd
Kaufman stofnaði Troma kvikmyndaverið fyrir 30
árum. Hann er staddur á landinu í tilefni af IIFF
2005 kvikmyndahátíðinni sem sýnir sex mynda
hans. Kaufman verður viðstaddur sýningar helg-
arinnar og mun svara spurningum bíógesta.
Þórarinn Þórarinson hitti Kaufman að máli og
komst að því að hann er engum líkur.
LLOYD KAUFMAN Toxic Avenger er suðupottur allra kvikmyndagreina. Ég held að framlag Troma til kvikmyndanna sé þessi blöndun.
Þú sérð alveg hvað það er við Troma sem til dæmis Quentin Tarantino og Peter Jackson finnst skemmtilegt. Þeir hafa tekið þetta upp
sjálfir. Sjáðu bara til dæmis Kill Bill hjá Tarantino. Hann er á svipuðu og róli og við til að mynda hvað aflimanir varðar.
Brúðkaup nýrrar aldar.
Forboðin hjörtu fá loks að eigast
TURTILDÚFUR FÁ GUÐLEGA BLESSUN
Í dag er hamingjudagur í lífi Karls Breta-
prins og Camillu Parker Bowles þegar þau
loksins fá að eigast eftir áratugalangt ástar-
samband.
TROMA MYNDIR Á IIFF 2005
Citizen Toxie – The Toxic Avenger IV
Terror Firmer
Tromeo&Juliet
Cannibal! The Musical
The Toxic Avenger
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/H
AR
I