Fréttablaðið - 09.04.2005, Blaðsíða 33

Fréttablaðið - 09.04.2005, Blaðsíða 33
5LAUGARDAGUR 9. apríl 2005                         Síðasti stóri bílaframleiðandi Bretlands, MG Rover, hrundi síðasta fimmtudag þegar framleiðandinn gat ekki tryggt samning við kínversk- an meðeiganda. Þessi hundrað ára bílaframleiðandi er nú í skiptameðferð sem er eitt form gjaldþrots, þar sem þriðji að- ili, sem skipaður er af dómstólum, stjórnar fyrirtækinu, eins og Pat- ricia Hewitt, iðnaðar- og viðskipta- ráðherra Bretlands, greindi frá á blaðamannafundi á fimmtudaginn. „MG Rover hefur tilkynnt að stjórn fyrirtækisins hafi ákveðið að kalla inn skiptastjóra. Þetta er hrikalegt áfall fyrir alla sem tengj- ast fyrirtækinu – starfsmenn og fjölskyldur þeirra, birgja fyrirtæk- isins og samfélagið í heild,“ sagði Hewitt á fundinum. Til skiptameðferðar kom þegar ljóst varð að bílafyrirtæki í Shang- hæ í Kína, SAIC, vildi ekki fjárfesta í fyrirtækinu. „Ríkisstjórnin gat ekki lánað MG Rover hundrað milljónir punda því samningar tók- ust ekki við SAIC,“ sagði Hewitt. MG Rover þurfti að stöðva framleiðslu á fimmtudaginn því birgjar stöðvuðu sendingar sínar til fyrirtæksins, því þeir óttuðust að fá ekkert borgað. Hrun framleiðand- ans gæti haft áhrif á atvinnu sex þúsund starfsmanna og þúsundir fleiri birgjastarfa, sem skapar væntanlega pólitískan höfuðverk fyrir bresku ríkisstjórnina dagana fyrir kosningarnar 5. maí. MG Rover var stofnað árið 1905 og selt til BMW í Þýskalandi um 1990 áður en það var keypt aftur til Bretlands af Phoenix Venture Hold- ings fyrir fjórum árum. lilja@frettabladid.is Rover-veldið rústir einar Patricia Hewitt brúnaþung á blaðamannafundi sem haldinn var á fimmtudag þar sem hún tilkynnti um örlög MG Rover.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.