Fréttablaðið - 09.04.2005, Síða 53
LAUGARDAGUR 9. apríl 2005 37
ALAN SHEARER Fagnar hér ellefta marki
sínu í UEFA-keppninni í ár gegn Sporting
Lissabon á fimmtudaginn.
Alan Shearer:
Ellefu mörk
í Evrópu
FÓTBOLTI Alan Shearer, framherj-
inn snjalli hjá Newcastle, sem
skoraði sigurmark liðsins gegn
Sporting Lissabon í fyrri leik
liðanna í átta liða úrslitum UEFA-
keppninnar á fimmtudagskvöldið
hefur nú skorað ellefu mörk í
keppninni í ár.
Hann er langmarkahæstur
leikmanna í keppninni í ár og
hefur skorað þremur mörkum
meira en Brasilíumaðurinn Lied-
son hjá Sporting Lissabon. Shear-
er á einnig möguleika á því að
verða sá leikmaður sem skorar
flest mörk á einu tímabili í UEFA-
keppninni en metið á Þjóðverjinn
Jürgen Klinsmann sem skoraði
fimmtán mörk fyrir Bayern
München tímabilið 1995-1996.
Shearer vantar aðeins fjögur
mörk til að jafna Klinsmann en ef
allt gengur að óskum hjá
Newcastle þá ætti hann að eiga
fjóra leiki eftir, svo framarlega
sem liðið kemst í úrslitaleikinn. ■
Martröð markahróksins mikla
Hollenski framherjinn Ruud van Nistelrooy hefur ekki skorað í sjö leikjum í röð fyrir Manchester
United sem er lengsta tímabil hans án marka síðan hann gekk til liðs við félagið sumarið 2001.
FÓTBOLTI Ruud van Nistelrooy
skoraði 110 mörk fyrir Manchest-
er United fyrstu þrjú tímabilin
hjá liðinu. Í ár hefur hann aðeins
skorað tólf mörk, það síðasta gegn
West Brom í úrvalsdeildinni í
nóvember. Meiðsli á nára og hæl
hafa gert það að verkum að hann
hefur misst mikið úr en síðan
hann kom til baka eftir meiðsli
hefur honum ekki tekist að skora í
sjö leikjum í röð.
Hann er nú að ganga í gegnum
lengsta tímabil sitt hjá United án
þess að skora en van Nistelrooy
hefur sjálfur trú á því að hann
geti bundið enda á markalausu
martröðina. Því til staðfestingar
bendir hann á að hann skoraði
mark fyrir hollenska landsliðið
gegn Armeníu fyrir skömmu en
það sýnir að hann er ekki dauður
úr öllum æðum enn.
„Það var gott að skora markið
fyrir Holland í undankeppni HM
en fyrir mig persónulega skiptir
mestu að komast aftur á skrið
með félagi mínu. Það er það sem
ég hef í huga. Ég hef áður verið í
þessari stöðu og veit að það mikil-
vægasta fyrir mig er að þekkja
styrkleika minn, spila á honum og
halda ró minni,“ sagði van Nistel-
rooy.
Hann nýtur enn mikils stuðn-
ings meðal stuðningsmanna liðs-
ins og hann sagðist gjarnan vilja
endurgjalda þeim stuðninginn.
“Það er frábært að hafa stuðn-
ingsmennina á bak við sig en ég
vil gefa þeim það sem þeir hafa
gefið mér. Ég get endurgoldið
þeim með góðri frammistöðu og
mörkum – þannig hefur það alltaf
verið.“
Alex Ferguson, knattspyrnu-
stjóri Manchester United, viður-
kennir að hafa látið van Nistel-
rooy byrja að spila of snemma og
að sú ákvörðun hans hafi ekki
borgað sig. „Hann byrjaði að spila
of snemma og hefði sennilega
þurft nokkrar vikur til viðbótar til
að jafna sig,“ sagði Ferguson en
hann lét van Nistelrooy koma inn
á sem varamann í fyrri leiknum
gegn AC Milan í meistaradeild-
inni. United datt út og van Nistel-
rooy komst aldrei í takt við leik-
inn. „Við vorum að spila á móti AC
Milan og þegar mið er tekið af því
hversu mikið Ruud hefur skorað í
meistaradeildinni þá átti ég engan
annan kost,“ sagði Ferguson sem
þarf að gera upp við sig hvort
hann heldur tryggð við van Nistel-
rooy eða kallar á Alan Smith eða
Louis Saha í hans stað í leiknum
gegn Norwich í dag og lætur þá
spila við hlið Wayne Rooney sem
virðist vera öruggur í liðið.
oskar@frettabladid.is
7 LEIKIR RUUDS ÁN MARKA
Man. Utd-AC Milan 0–1
Man. Utd-Portsmouth 2–1
C. Palace-Man. Utd 0–0
AC Milan-Man. Utd 1–0
Southampton-Man. Utd 0–4
Man. Utd-Fulham 1–0
Man. Utd-Blackburn 0–0
RUUD VAN NISTELROOY Hefur ekki skorað í þeim sjö leikjum sem hann hefur spilað með United síðan hann kom eftir meiðsli.
Óskar Bjarni Óskarsson, þjálfari Vals, um HK-leikinn:
Leiðin liggur bara
upp á við hjá okkur
HANDBOLTI Valur og HK mætast í
oddaleik í Valsheimilinu í dag í
átta liða úrslitum DHL-deildar
karla í handbolta. Valsmenn unnu
fyrsta leikinn með einu marki,
26-25, en HK sneri blaðinu við í
Digranesi á fimmtudagskvöldið
með öruggum sex marka sigri,
34-28.
Óskar Bjarni Óskarsson, þjálf-
ari Valsmanna, sagði í samtali við
Fréttablaðið í gær að hann væri
bjartsýnn fyrir leikinn í dag því
að leiðin gæti aðeins legið upp á
við hjá hans mönnum. „Við getum
bætt okkur verulega á öllum svið-
um og eigum heilmikið inni hvað
varðar varnarleik, markvörslu,
sóknarleik og frammistöðu lykil-
manna. Varnarleikurinn sem við
buðum upp á var ömurlegur og al-
gjörlega úr takt við það sem við
höfum sýnt að undanförnu. Það er
gömul tugga en þetta byrjar allt á
vörninni og ef við höfum hana í
lagi þá verður allt hitt auðveldara.
Þetta hafa verið stórskemmtilegir
leikir tveggja jafnra liða en það er
mín tilfinning að þetta ráðist á
heimavellinum. Með þessu er ég
auðvitað að spá okkur sigri en ég
veit að það verður ekki auðvelt.
Við eigum hins vegar bara svo
mikið inni, menn eins og Baldvin
Þorsteinsson og Heimir Örn Árna-
son eiga eftir að koma upp og því
get ég ekki annað en verið bjart-
sýnn,“ sagði Óskar Bjarni.
Björgvin Páll Gústavsson,
markvörður HK, hefur reynst
Valsmönnum erfiður í tveimur
fyrstu leikjunum og Óskar Bjarni
segir það ekki koma sér á óvart.
„Hann er frábær markvörður og
hefur sýnt það ítrekað upp á
síðkastið. Hann stóð sig gríðar-
lega vel með U-20 ára landsliðinu
um páskana og hefur varið vel
núna. Hann hefur sýnt það að
hann þolir pressuna sem fylgir
því að spila í úrslitakeppninni en
við munum finna leið framhjá
honum í þessum leik,“ sagði
Óskar Bjarni. oskar@frettabladid.is
ERFIÐUR LJÁR Í ÞÚFU Björgvin Páll Gústavsson, markvörður HK, hefur leikið Valsmenn
grátt í tveimur leikjum liðanna í úrslitakeppninni. Hann hefur varið 45 skot og fimm af
átta vítum sem hann hefur fengið á sig. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Lokaúrslit körfuboltans:
Munar mest
um Bradford
og Hlyn
KÖRFUBOLTI Það munar mestu um
þá Nick Bradford hjá Keflavík og
Hlyn Bæringsson hjá Snæfelli í
fyrstu þremur leikjum úrslita-
einvígis Keflavíkur og Snæfells.
Þetta kemur í ljós þegar gengi liða
þeirra er skoðað þegar þeir eru
inná eða útaf vellinum.
Það munar þannig 24 stigum
fyrir gengi Keflavíkurliðsins
hvort Nick Bradford sé inni á
vellinum og 22 stigum fyrir Snæ-
fellsliðið hvort Hlynur Bærings-
son sé inná eða á bekknum. Nick
Bradford hefur reyndar aðeins
hvílt í 4 mínútur og 31 sekúndu en
þeim kafla hafa Keflvíkingar tap-
að með 5 stigum, 7-12. Snæfelling-
ar hafa tapað þeim 24 mínútum og
35 sekúndum sem Hlynur hefur
hvílt með heilum 18 stigum, 48-66.
Hlynur hefur verið algjörlega
ómissandi fyrir Snæfell í síðustu
tveimur leikjum sem hafa verið
jafnir og æsispennandi. Hlynur
hefur spilað í 65 mínútur og 21
sekúndu í tveimur síðustu leikjum
og þann tíma hefur Snæfellsliðið
unnið með 16 stigum, 153-137 en
hefur aftur móti tapað þeim 14
mínútum og 39 sekúndum sem
liðið hefur verið án hans með
heilum 15 stigum, 27-42.
MUNAR UM HANN Nick Bradfiord hefur
reyndar aðeins hvílt í 4 mínútur og 31 sek-
úndu en þeim tíma hafa Keflvíkingar tapað
með 5 stigum, 7-12.
MUNAR MEST UM ÞESSA:
Nick Bradford, Keflavík 24
(Með:+19 Án:-5)
Hlynur Bæringsson, Snæfelli 22
(Með:+4 Án:-18)
Anthony Glover, Keflavík 16
(Með:+15 Án:-1)