Fréttablaðið - 09.04.2005, Síða 62
„Allt eru þetta meira og minna
ástarljóð, sums staðar er ástin
forboðin, sums staðar farin og
sums staðar mjög einlæg og
barnsleg,“ segir Auður Gunnars-
dóttir sópransöngkona um lögin
sem hún ætlar að flytja á tónleik-
um sínum í Salnum í kvöld.
„Þetta eru allir varíantar af
ástinni. Það er allt inni í þessum
ljóðum.
Hún ætlar að syngja ljóða-
söngva eftir Alban Berg, Sibelius,
Grieg og Rachmaninov. Yfirskrift
tónleikanna er „Sjúk ást“.
„Það er vegna þess að þeir
Alban Berg og Rachmaninov eru
ekki beint mjög heilbrigðir í upp-
lifun sinni á heiminum. Þessi
expressjóníska lífssýn þeirra er
öll frekar þokukennd og ekki
verið að fegra hlutina neitt,
frekar að sýna þá í ýktri mynd.“
Á milli þeirra segir hún Grieg
reyndar vera afskaplega jarð-
bundinn og heilbrigðan.
„Hann er eins og þetta hreina
tæra norræna loft. Maður þarf að
taka sig svolítið saman og vera af-
slappaður, gera ekki mikið úr
öllu.“
Lögin á þessum tónleikum eru
hins vegar hvert öðru fegurra.
„Þetta er alveg himnesk músík
sem fer beint inn í mann. Hvert
einasta númer er hreinasti gull-
moli og það drýpur af hverju
strái.“
Píanóleikaranum Andrej Hovr-
in kynntist Auður við Óperuna í
Wurzburg þar sem hún hefur
starfað undanfarin sex ár. Hann
er fastráðinn píanóleikari við
óperuna, sér um að spila á píanóið
þegar söngvararnir æfa sig ásamt
því að spila á tónleikum og óperu-
sýningum eftir því sem þörf er á.
„En svo er það hans ástríða að
spila með söngvurum og hann
hefur lært það sérstaklega, bæði í
Rússlandi og Þýskalandi. Hann er
frá Rússlandi og maður finnur
það alveg, sem er svolítið
skemmtilegt. Það er annar blær í
spilinu hjá honum en maður er
vanur, þessi stóra rússneska sál
kemur alveg fram.“
Auður ætlar að dvelja á land-
inu í tíu daga að þessu sinni. Hún
kom bæði til þess að syngja á
þessum tónleikum og til þess að
anda að sér vorinu, sem reyndar
hefur lítið látið á sér kræla til
þessa þótt vonandi eigi eftir að
rætast úr því.
„Andrej fer hins vegar af land-
inu á mánudaginn, en ég ætla að
reyna að koma honum að minnsta
kosti til Gullfoss og Geysis. Hann
er óskaplega hrifinn af fegurðinni
hérna, þótt hann átti sig ekki al-
veg á því hvar miðbærinn er.“
Auður segir mikinn mun á því
að syngja í óperum eða að syngja
á ljóðatónleikum eins og hún
gerir í kvöld.
„Það er miklu meiri vinna á
bak við svona ljóðatónleika heldur
en óperuhlutverk. Hérna stendur
þú einn og nakinn og getur ekki
falið þig á bak við neitt, en í óper-
unni getur maður falið sig á bak
við hljómsveitina eða kollegana
eða hvað sem er. En svona ljóða-
tónleikar eru verkefni sem maður
hefur aldrei tíma til að sinna
þegar maður er á kafi í óperuhús-
unum. Þess vegna er mjög kær-
komið að hafa svolítið rými núna
til þess að sinna þessum dekur-
verkefnum. Þetta er það sem
reynir mest á mann.“ ■
46 9. apríl 2005 LAUGARDAGUR
EKKI MISSA AF…
... tónleikum rússneska fiðlu-
snillingsins Maxims Vengerov
með Sinfóníuhljómsveit Íslands,
sem endurteknir verða í kvöld í
Háskólabíói. Einleikarinn bregður
sér þar í seiðandi tangódans
ásamt hinni brasilísku Christiane
... hinni drepfyndnu leiksýningu
Ég er ekki hommi í Loftkastalan-
um með Gunnari Helgasyni,
Friðrik Friðrikssyni og Höskuldi
Sæmundssyni í aðalhlutverkum.
Næst síðasta sýning verður í kvöld.
... tónleikum Bryndísar Höllu
Gylfadóttur sellóleikara og Eddu
Erlendsdóttur píanóleikara í
Salnum annað kvöld, þar sem
þær flytja verk af nýlega útkomn-
um geisladisk sínum sem hlaut
Íslensku tónlistarverðlaunin.
„Gleym mér ei“ er yfirskrift tónleika sem söng
konurnar Signý Sæmundsdóttir sópran og Jóhanna
V. Þórhallsdóttir alt efna til í sal F.Í.H. við Rauða-
gerði í dag.
Þar flytja þær gömlu íslensk dægurlög sem mörg
hver voru í danslagakeppni útvarpsins á árum áður
en hafa sjaldan heyrst eftir það. Einnig flytja þær
stríðsáratónlist eftir Kurt Weill.
Með þeim Signýju og Jóhönnu leikur tríó Bjarna
Jónatanssonar píanóleikara, sem auk hans er skip-
að þeim Hjörleifi Valssyni á fiðlu og Gunnari
Hrafnssyni á bassa.
„Þetta eru tangóar og valsar og rosa fílingur í
þessu,“ segir Jóhanna. „Bæði dúettar og einsöngs-
lög, og svo syngja strákarnir með okkur og alle
grejer.“
Lög Weills koma flest úr söngsafni Teresu Stratas,
en það heitir „Hinn óþekkti Kurt Weill“.
Íslensku dægurlögin eru eftir Bjarna Böðvarsson,
Guðmund Ingólfsson, Árna Ísleifs, Oscar Cortes,
Höskuld Ólafsson, Skúla Halldórsson og Þóri Jóns-
son, en Trausti Jónsson veðurfræðingur hefur verið
söngkonunum til halds og trausts við að grafa upp
og halda til haga þessum gleymdu söngperlum.
Kl. 14.00
Spennandi fyrirlestraröð hefst í Há-
skólabíói í dag í tilefni þess að hundrað
ár eru liðin frá því Albert Einstein setti
fram afstæðiskenninguna. Á hverjum
laugardegi í apríl og síðan aftur í haust
munu valinkunnir vísindamenn flytja
fyrirlestra um fyrirbæri á sínu sérsviði. Í
dag fjallar Gunnlaugur Björnsson um
gammablossa og alheiminn.
menning@frettabladid.is
Gleymdar dægurperlur
Drýpur af hverju strái
!
Leikendur:
Aðalbjörg Þóra Árnadóttir
Atli Þór Albertsson
Björn Ingi Hilmarsson
Guðjón Davíð Karlsson
Guðmundur Ólafsson
Guðrún Ásmundsdóttir
Halldór Gylfason
Halldóra Geirharðsdóttir
Jóhanna Friðrika Sæmundsdóttir
Jóhannes Haukur Jóhannesson
Oddný Helgadóttir
Ólafur Steinn Ingunnarson
Orri Huginn Ágústsson
Pétur Einarsson
Sara Dögg Ásgeirsdóttir
Theodór Júlíusson
„Algjör draumur“
MK Mbl
„ ..ein skemmtilegasta
leiksýning sem ég hef séð“
KHH Kistan.is
Draumleikur
eftir August Strindberg
Leikstjóri: Benedikt Erlingsson Leikmynd: Gretar Reynisson
N
æ
st
SÝNINGAR LAUGARDAGS- OG SUNNUDAGSKVÖLD • ATHUGIÐ AÐ SÝNINGAFJÖLDI ER TAKMARKAÐUR
Miðasala Listahátíðar fer vel af
stað, enda er fjölbreytt hátíð
framundan.
Miðar á Bergmál Ragnhildar
Gísladóttur rjúka út, en verk
hennar verður frumflutt í Skál-
holtsdómkirkju 21. maí og síðan í
Langholtskirkju 24. maí. Þar
nýtur hún aðstoðar Stomu
Yamash’ta, eins þekktasta slag-
verksleikara heims, og Sjón
semur textann. Einnig koma fram
Sigtryggur Baldursson og barna-
og kammerkór Biskupstungna
ásamt Skólakór Kársness.
Af öðrum merkum viðburðum á
Listahátíð má nefna mezzosópran-
söngkonuna Anne Sofie von Otter,
sem er í hópi dáðustu söngkvenna
samtímans. Hún verður með tón-
leika í Háskólabíói þann 4. júní.
Franski sirkusinn Cirque sýnir
söguna um Gústa trúð á Hafnar-
bakkanum í Reykjavík, og svo
verða tveir afar spennandi tón-
leikar á sviði heimstónlistar.
Annars vegar er þar um að ræða
barkasöngvarana í Huun Huur Tu
frá Mongólíu og hins vegar
fadosöngkonuna Marizu sem er
sögð mest spennandi rödd heims-
tónlistar í dag. ■
Helgi Þorgils Friðjónsson opnar
tvær sýningar á verkum sínum í
dag. Önnur þeirra er í Listasafni
ASÍ við Freyjugötu en hin í Gall-
eríi 101 við Hverfisgötu.
Hann segir þessar tvær sýn-
ingar vera býsna ólíkar.
„Sú sem er í 101 er eingöngu
með verkum sem eru unnin á
pappír, en hitt eru olíuverk. Í 101
eru frekar litlar myndir, en frekar
stórt uppi í ASÍ. En svo eru skúlp-
túrar á báðum stöðum.“
Í Listasafni ASÍ sýnir Helgi ell-
efu oíumálverk og tvo skúlptúra
sem eru unnir í leir og málaðir
með olíulitum. Öll myndverkin
eru unnin á síðustu tveimur árum.
Í Arinstofunni má meðal ann-
ars sjá stórt málverk af heilagri
þrenningu, sem er íslenskur
hundur, helstur og fiskur. Fiskur-
inn er reyndar karfi, en Helgi seg-
ir það vera aukaatriði.
„Þetta er bara til að sýna það
sem skaffar okkur þennan arð frá
jörðinni, landbúnaður og fiskveið-
ar. Þetta er í það minnsta það sem
í huga okkar skaffar þennan arð,
þótt það sé reyndar óðum að
breytast.“
Helgi segir að meira hugflæði
ríki á sýningunni í Gallery 101,
enda eru litlar pappírsteikningar
á öðrum staðnum en stór olíuverk
á hinum.
„Flest verk byrja einhvers
staðar á pappír en samt sem áður
er styttri lína á milli heila og fing-
urgóma þegar maður er að teikna.
Hugmyndin getur dottið á pappír
en það gerist aldrei í olíu því þá
málar maður dögum saman.“
Yfirskrift sýningarinnar í Gall-
ery 101 er „Skáhalli tilverunnar“
og vitnar Helgi þar í málarann
Theo van Doesburg og fleiri lista-
menn.
„Hann breytti frá því sem félag-
ar hans voru að gera yfir í skálín-
una vegna þess að honum fannst
vera meiri túlkun í skálínunni, en
þar af leiðandi var hann settur svo-
lítið út af sakramentinu af því hann
var að gera eitthvað annað. Ég er
þarna aðallega að hugsa um það,
hvað veldur því að maður er settur
út af sakramentinu.“ ■
HELGI ÞORGILS FRIÐJÓNSSON Opnar tvær býsna ólíkar sýningar á verkum sínum í dag.
Settur út af sakramentinu
AUÐUR GUNNARSDÓTTIR OG ANDREJ HOVRIN Þau flytja lög eftir Alban Berg,
Sibelius, Grieg og Rachmaninov á tónleikum í Salnum í kvöld.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/P
JE
TU
R
SLAGVERKSLEIKARINN STOMU Sala á viðburði Listahátíðar er komin á fullt skrið.
Ragga Gísla að seljast upp