Fréttablaðið - 09.04.2005, Qupperneq 66
HUGSAÐU STÓRT
SÍMI 564 0000
GÆTI HUGSANLEGA VAKIÐ ÓTTA UNGRA BARNA
Sýnd kl. 8 og 10.45
Sýnd kl. 3, 5.30, 8 og 10.30
S.V. MBL J.H.H. kvikmyndir.com
Sýnd kl. 2, 4 og 6 m/ísl. tali
Sýnd kl. 2, 4 og 6 m/ensku tali
ÓÖH DV K&F X-FM
SV MBL ÓHT Rás 2
Í fjölskyldu þar sem enginn skilur neinn
mun hún smellpassa í hópinn.
Sýnd kl. 8 og 10.30 B.I. 14 ára
Hættulegasta
gamanmynd ársins
Framhaldið af Get Shorty
ÓÖH DV
Sýnd kl. 3, 5.30, 8 og 10.30
Sýnd í Lúxus kl. 3, 5.30, 8 og 10.30
B.B. Sjáðu Popptíví
Frá leikstjóra American Pie & About a Boy kemur
frábær ný gamanmynd.
Með Dennis Quaid í fantaformi
ásamt Topher Grace (That’s 70s
Show) og Scarlett Johnsson (Lost in
Translation).
Hann fær nýjan yfirmann óreyndan strák sem
dóttir hans fellur auk þess fyrir
SK DV
Þröng sýn
- eftir Guðmund Arnar Guðmundsson og
Þórgný Thoroddsen
J
Ó
N
S
S
O
N
&
L
E
’M
A
C
K
S
Sjáðu þessar í dag!
www.icelandfilmfestival.is
Iceland International Film Festival
Sjá nánari dagskrá hátíðarinnar á
www.icelandfilmfestival.is
The Mother
- eftir Roger Michell
Diarios de motocicleta
(The Motorcycle Diaries)
- eftir Walter Salles
Spurt og svarað með Gael Garcia Bernal
kl 20:00 í Háskólabói
S&
S
kl
20
:0
0
í H
ás
kó
lab
ói
Ett hål i mit hjärta
(A Hole In My Heart)
- eftir Lukas Moodyson
Spurt og svarað með Björn Almroth
kl 22.10 í Háskólabíói
S&
S
kl
22
:10
í H
ás
kó
lab
ói
T alsmaður leikarans Brads Pittsegir grein sem fjallar um ástar-
samband hans og Angelinu Jolie
vera „algjörlega ósanna.“ Í greininni
sem birtist í US Weekly er vitnað í
starfsfólk hótels í Kaliforníu sem
segir parið hafa verið afar innilegt
hvort við annað í nýlegri dvöl sinni
á hótelinu. Cindy
Guagenti, tals-
maður Brads,
neitaði sögunni
algerlega í tilkynn-
ingu sem sýnd var
í bandarísku sjón-
varpi. Jennifer
Aniston
sótti um
skilnað í
síðasta
mánuði.
FRÉTTIR AF FÓLKI
„Þetta er áhugavert vor hjá
ykkur. Ég kom hingað beint í
frostið úr 42 stiga hita í Brasilíu,“
segir brasilíski kvikmyndaleik-
stjórinn Walter Salles sem opnaði
IIFF 2005 kvikmyndahátíðina í
Háskólabíói á fimmtudag með,
Motorcycle Diaries, margverð-
launaðri mynd sinni um mótor-
hjólaferðlag Ernesto Guevara um
Suður-Afríku.
Mig hefur lengi langað að
koma hingað eða alveg frá því ég
hitti Friðrik Þór Guðmundsson á
kvikmyndahátíð og sá Börn nátt-
úrunnar. Litli bróðir minn, sem er
heimildarmyndagerðarmaður,
eyddi líka áramótunum hérna
einu sinni og fannst svo gaman að
það lá við að við þyrftum að senda
einhvern hingað til að draga hann
aftur heim til Brasilíu.“
Salles byggir mynd sína á dag-
bókum sem Guevara hélt þegar
hann ferðaðist um Suður-Amer-
íku, 23 ára gamall, löngu áður en
hann varð byltingarhetjan Che.
„Dagbækurnar fundust í bakpoka
árið 1993 og ég hef alið þann
draum í allmörg ár að kvikmynda
þær. Bókin á svo sterkar rætur í
þjóðarvitund Suður-Ameríkana að
ég sá strax að hana yrði að taka í
Suður-Ameríku á spænsku. Það er
svo Robert Redford að þakka að
ég gat gert það. Hann las bækurn-
ar og tryggði sér kvikmyndarétt-
inn og var alveg sammála mér um
að myndina mætti ekki gera í
Hollywood.“
Che er dýrkaður í Suður-Amer-
íku og er fyrir löngu orðinn íkon
og einhvers konar menningar-
fyrirbæri. Hvernig nálgast maður
svona persónu í kvikmynd?
„Með því að horfa fram hjá
goðsögninni á veggspjöldunum og
stuttermabolunum. Bókin lýsir
Ernesto eins og hann var áður en
hann varð Che. Þetta er ungur
maður sem er að reyna að átta sig
á því hvað hann ætlar að gera í líf-
inu. Ég er ekki að fást við íkonið
heldur ungan mann sem er fullur
efasemda og óöryggis.“
Motorcycle Diaries hefur
slegið í gegn úti um allan heim
en viðtökurnar komu Salles
verulega á óvart. „Okkur óraði
ekki fyrir því að 10 milljón
manns úti um allan heim myndu
sjá myndina. Við vorum ekkert
að hugsa um það á meðan við
tókum hana. Við einbeittum
okkur aðeins að sögunni og inni-
haldi hennar og gáfum okkur öll
í það. Síðan komu öll verðlaunin,
vinsældirnar og öll lætin. Það
sér ekki fyrir endann á þessari
ferð en mótorhjólið er núna að
ferðast yfir Ísland.“
thorarinn@frettabladid.is
Horft fram hjá goðsögninni
WALTER SALLES Nálgast goðsögnina á bak við Che Guevara á mannlegu nótunum í
Motorcycle Diaries mynd sem hefur vakið gríðarlega athygli út um allan heim.
SÍMI 551 9000
S.V. MBL
K&F X-FM
Sýnd kl. 8 og 10.10 B.i. 16
Aðrar myndir sem eru til sýningar:
Dear Frankie - Sýnd kl. 6
What the Bleep - Sýnd kl. 8
Ranarna - Sýnd kl. 4
I Heart Huckebees - Sýnd kl. 6
Brödre - Sýnd kl. 8
Tromeo and Juliet - Sýnd kl. 10
Kinsey - Sýnd kl. 5.40
Þröngsýn - Sýnd kl. 4
Downfall - Sýnd kl. 3 og 10
Iceland International Film Festival
7.-30. april 2005
Magnþrungið meistaraverk um síðustu dagana í
lífi Hitlers séð með augum Traudl Junge sem var
einkaritari Hitlers. Túlkun Bruno Ganz á Hitler er
stórkostleg. Ein besta stríðsmynd allra tíma.
Myndin er byggð á sönnum atburðum er áttu sér
stað árið 1994 í þjóðarmorðunum í Rwanda þegar
ein milljón manns lét lífið á 100 dögum! Tilnefnd
til 3 Óskarsverðlauna, 7 meiriháttar alþjóðlegra
verðlauna.
Hotel Rwanda - Sýnd kl. 3.20
Frábær tragíkómísk mynd fyrir fullorðna um lífið
og dauðann, ást og kynlíf eftir bók hins virta John
Irving (The World According to Garp). Jeff Bridges
sýnir safaríkasta leik ársins og Kim Basinger gefur
honum ekkert eftir!
The Door in the Floor - Sýnd kl. 5.40
Hópur unglingsdrengja ákveður ásamt einni stúlku
að hefna sín á stráknum sem hefur lagt þau í einelti
með svakalegum afleiðingum.
Mean Creek - Sýnd kl. 8
the Door
in the Floor
Er hægt að fyrirgefa hið ófyrirgefanlega? Kevin
Bacon sýnir stórleik og “frammistöðu sem rætt
verður um í mörg ár” (Rolling Stone), sem dæmdur
barnaníðingur er reynir að koma lífi sínu í eðlilegan
farveg eftir 12 ára fangelsisvist. Tilnefnd til fjölda
verðlauna.
Woodsman - Sýnd kl. 10.15