Fréttablaðið - 24.05.2005, Page 1

Fréttablaðið - 24.05.2005, Page 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Veffang: visir.is – Sími: 550 5000 Fréttablaðið er leiðandi Íslendingar 18-49 ára 11% 37% Lestur á leiðarasíðu *Meðallestur á leiðarasíðu Fréttablaðsins þriðjud., miðvikud., föstud., laugard. og sunnud. Lestur á leiðarasíðu Morgunblaðsins á fimmtud. Fjölmiðlakönnun Gallup maí 2005 * BJARTAST VESTAN TIL Annars skýjað með köflum. Stöku él við norðaustur- og austurströndina. Hætt við smáskúrum suðaustan til. Hiti 0-9 stig, mildast syðra. VEÐUR 4 ÞRIÐJUDAGUR 24. maí 2005 - 136. tölublað – 5. árgangur Veiðimenn taka fram græjurnar Pálmi Gunnarsson hefur um- sjón með þrem ám í sumar og reynir að skapa veiði- mönnum nota- legt umhverfi. 24 STUNDIR 12 Valur í annað sætið Valur komst í annað sæti Landsbankadeildar karla í gær með öruggum sigri á ÍA á Hlíðarenda. Gamall Skagamaður reyndist sínum gömlu félögum erfiður. ÍÞRÓTTIR 22 Undurfagurt rifrildi frá Napólí Tónlistarhópurinn Rinascente flytur í kvöld óratóríuna Hin heilaga þrenning eftir Alessandro Scarlatti. TÓNLIST 27 VEÐRIÐ Í DAG ÁSTA RAGNHEIÐUR JÓHANNESDÓTTIR: ▲ Í MIÐJU BLAÐSINS Fann skyrtu fyrir íslenska fljó›ernissinna ÓLI BOGGI: Upprö›un R-listans helsti flröskuldurinn Samfylkingin vill a› frambo›slisti R-listans ver›i valinn í opnu prófkjöri. Vinstri grænir og Framsókn hafna ekki prófkjöri en vilja halda í jafnræ›is- reglu flokkanna. Líklegt a› óhá›ir missi sæti sín á listanum. R-LISTAMÁL Skoðanamunur á því hvernig eigi að standa að vali full- trúa á framboðslista R-listans fyr- ir borgarstjórnarkosningar að ári er helsti þröskuldurinn í vegi þess að flokkarnir sem að listanum standa nái saman. Samkvæmt heimildum Frétta- blaðsins hafa engar alvarlegar deilur komið upp í málefnaum- ræðum flokkanna hingað til og virðist ljóst að ef upp úr samstarfi flokkanna slitnar, þá verður það vegna ágreinings um skipan list- ans. Samfylkingin hefur lagt fram tillögu í viðræðunum þess efnis að listinn verði valinn í opnu próf- kjöri, þannig verði þess best gætt að borgarbúar komi beint að því að velja fulltrúa sína í borgar- stjórn. Fulltrúar Framsóknar- flokks og Vinstri grænna hafa ekki hafnað þessum hugmyndum en flokkarnir eru þó efins um að galopið prófkjör sé rétta leiðin. Þeir vilja halda í jafnræðis- reglu flokkanna sem stuðst hefur verið við frá upphafi; hver flokk- ur eigi minnst tvö örugg sæti á listanum en flokkunum eigi að vera í sjálfsvald sett hvernig þeir velja fulltrúa sína á listann. Jafnræðisreglan gengur reyndar út frá því að óháðir eigi tvö sæti á listanum en eftir því sem næst verður komist er vilji til þess innan raða Vinstri grænna og framsóknarmanna að endurskoða þann þátt í skipan listans. Það byggist fyrst og fremst á því að upphaflega voru þessi sæti tekin frá vegna Ingibjargar Sólrúnar en nú sé ekki lengur sterkum ein- staklingi sem henni til að dreifa í röðum óháðra. Val á borgarstjóraefni er einnig nokkuð sem flokkarnir eiga eftir að koma sér saman um og meðal annars hafa Vinstri grænir viðrað þá hugmynd að flokkurinn sem fær borgarstjórasætið í sinn hlut, fái aðeins tvö sæti á listan- um, hinir flokkarnir fái þrjú hvor. Ólíklegt er þó talið að þessi hugmynd hljóti brautargengi, sér- staklega ekki innan Samfylking- arinnar, því ýmsir innan hennar vilja að flokkurinn njóti betur þeirrar sterku stöðu sem flokkur- inn hefur í höfuðborginni eftir síð- ustu alþingiskosningar. - ssal FUGLAFLENSA Kínversk stjórnvöld hafa ákveðið að bólusetja þrjár milljónir alifugla í Quinghai-hér- aði í vesturhluta landsins eftir að tæplega 200 gæsir fundust þar dauðar. Banamein þeirra var að öllum líkindum fuglaflensa. Enginn maður hefur enn látist úr veikinni í Kína. Hins vegar til- kynntu víetnömsk stjórnvöld í gær um 54. fuglaflensudauðsfall- ið í Asíu hingað til. Ekki hefur verið sýnt fram á með óyggjandi hætti að smit geti borist milli manna heldur eru þeir sem hing- að til hafa látist taldir hafa komist í tæri við sýkt fuglakjöt. Teikn eru þó á lofti um að veiran geti breyst þannig að hún berist milli manna. Gæsirnar sem drápust í Kína höfðu að líkindum flogið þangað sunnan úr álfunni og þannig virð- ist hætta á að farfuglar geti borið fuglaflensuveiruna heimsálfa á milli. Fyrir nokkrum árum fannst fuglaflensa í flækingsönd í Mý- vatnssveit en veiran sem var í öndinni var ekki af sama banvæna stofninum og sú sem nú herjar á Asíubúa. Ekki er vitað hvort veir- an sé til staðar í íslenskum fuglum í dag og því hvatti Jarle Reiersen, dýralæknir alifuglasjúkdóma, í samtölum við fjölmiðla í gær til að blóðsýni yrðu tekin úr villtum fuglum og alifuglum til að skera úr um það. - oá/shg ● hús Sameinar göngu og gott spjall FAGNAÐARFUNDIR Sjónvarpskonan Marie Jeanne Ion, önnur frá vinstri, var í mikilli geðshræringu þegar hún hitti ættingja sína á nýjan leik í Búkarest í gær. Félagi hennar, Sorin Miscoci, lengst til vinstri, var sömuleiðis frelsinu feginn en þeim hafði verið haldið í gíslingu síðan 28. mars ásamt tveimur félögum sínum. Róstusamt var í Írak í gær og fórst á fimmta tug manna í fjölmörgum árásum. sjá síðu 8 ● reykjavíkurþema hjá dolce & gabbana FÓLK 30 ▲ VERSLAÐ MEÐ FUGLA Í KÍNA Stjórnvöld í Kína ætla að bólusetja alifugla vegna ótta við fuglaflensusmit. M YN D /A P Farfuglar smitaðir af fuglaflensu: firjár milljónir alifugla bólusettar Lausir úr prísund: Rúmenarnir komnir heim BÚKAREST, AP Mikill fögnuður ríkti í Búkarest í Rúmeníu í gær vegna heimkomu þriggja blaða- og fréttamanna sem látnir voru laus- ir úr haldi mannræningja degin- um áður. Þeim hafði verið rænt í Bagdad 28. mars síðastliðinn ásamt íröskum túlki sínum og kröfðust ræningjarnir að Rúmenar kölluðu hersveitir sínar heim frá Írak. Við þeim kröfum var ekki orðið en engu að síður var þremenningun- um sleppt. Traian Basescu, forseti Rúm- eníu, lofaði þolgæði þremenning- anna í móttökuræðu sinni og þakkaði rúmenskum aröbum sér- staklega sem lögðu sitt af mörk- um til að fá þá lausa. ■ LEIT STENDUR YFIR Enn er nítján her- manna saknað í Andesfjöllum. Andesfjöll: Hermenn frusu í hel SANTÍAGÓ, AP Leit stendur enn yfir í hlíðum Andesfjalla að nítján her- mönnum sem talið er að hafi orðið úti í mikilli stórhríð í fjöllunum í síðustu viku. Þegar hafa 26 lík fé- laga þeirra fundist og því eru litlar líkur sagðar á að þeir muni finnast á lífi. Þetta er versta slys í sögu chileska hersins á friðartímum enda hefur þjóðarsorg verið lýst yfir í landinu. Mennirnir voru flestir illa búnir nýliðar og því hefur ákvörðunin um að senda þá til fjalla sætt mikilli gagnrýni þar sem veðurspá var afar slæm. Engu að síður lýsti ríkisstjórn landsins yfir trausti sínu á yfirmenn heraflans í gær. ■ M YN D /A P

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.