Fréttablaðið - 24.05.2005, Síða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Veffang: visir.is – Sími: 550 5000
Fréttablaðið
er leiðandi
Íslendingar 18-49 ára
11%
37%
Lestur á leiðarasíðu
*Meðallestur á leiðarasíðu Fréttablaðsins þriðjud.,
miðvikud., föstud., laugard. og sunnud.
Lestur á leiðarasíðu Morgunblaðsins á fimmtud.
Fjölmiðlakönnun Gallup maí 2005
*
BJARTAST VESTAN TIL Annars
skýjað með köflum. Stöku él við
norðaustur- og austurströndina. Hætt við
smáskúrum suðaustan til. Hiti 0-9 stig,
mildast syðra. VEÐUR 4
ÞRIÐJUDAGUR
24. maí 2005 - 136. tölublað – 5. árgangur
Veiðimenn taka fram
græjurnar
Pálmi Gunnarsson hefur um-
sjón með þrem ám í
sumar og reynir
að skapa veiði-
mönnum nota-
legt umhverfi.
24 STUNDIR 12
Valur í annað sætið
Valur komst í annað sæti
Landsbankadeildar karla
í gær með öruggum sigri
á ÍA á Hlíðarenda.
Gamall Skagamaður
reyndist sínum gömlu
félögum erfiður.
ÍÞRÓTTIR 22
Undurfagurt rifrildi
frá Napólí
Tónlistarhópurinn Rinascente
flytur í kvöld óratóríuna
Hin heilaga þrenning eftir
Alessandro Scarlatti.
TÓNLIST 27
VEÐRIÐ Í DAG
ÁSTA RAGNHEIÐUR JÓHANNESDÓTTIR:
▲
Í MIÐJU BLAÐSINS
Fann skyrtu fyrir
íslenska fljó›ernissinna
ÓLI BOGGI:
Upprö›un R-listans
helsti flröskuldurinn
Samfylkingin vill a› frambo›slisti R-listans ver›i valinn í opnu prófkjöri.
Vinstri grænir og Framsókn hafna ekki prófkjöri en vilja halda í jafnræ›is-
reglu flokkanna. Líklegt a› óhá›ir missi sæti sín á listanum.
R-LISTAMÁL Skoðanamunur á því
hvernig eigi að standa að vali full-
trúa á framboðslista R-listans fyr-
ir borgarstjórnarkosningar að ári
er helsti þröskuldurinn í vegi þess
að flokkarnir sem að listanum
standa nái saman.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins hafa engar alvarlegar
deilur komið upp í málefnaum-
ræðum flokkanna hingað til og
virðist ljóst að ef upp úr samstarfi
flokkanna slitnar, þá verður það
vegna ágreinings um skipan list-
ans.
Samfylkingin hefur lagt fram
tillögu í viðræðunum þess efnis að
listinn verði valinn í opnu próf-
kjöri, þannig verði þess best gætt
að borgarbúar komi beint að því
að velja fulltrúa sína í borgar-
stjórn. Fulltrúar Framsóknar-
flokks og Vinstri grænna hafa
ekki hafnað þessum hugmyndum
en flokkarnir eru þó efins um að
galopið prófkjör sé rétta leiðin.
Þeir vilja halda í jafnræðis-
reglu flokkanna sem stuðst hefur
verið við frá upphafi; hver flokk-
ur eigi minnst tvö örugg sæti á
listanum en flokkunum eigi að
vera í sjálfsvald sett hvernig þeir
velja fulltrúa sína á listann.
Jafnræðisreglan gengur
reyndar út frá því að óháðir eigi
tvö sæti á listanum en eftir því
sem næst verður komist er vilji til
þess innan raða Vinstri grænna og
framsóknarmanna að endurskoða
þann þátt í skipan listans. Það
byggist fyrst og fremst á því að
upphaflega voru þessi sæti tekin
frá vegna Ingibjargar Sólrúnar en
nú sé ekki lengur sterkum ein-
staklingi sem henni til að dreifa í
röðum óháðra.
Val á borgarstjóraefni er
einnig nokkuð sem flokkarnir eiga
eftir að koma sér saman um og
meðal annars hafa Vinstri grænir
viðrað þá hugmynd að flokkurinn
sem fær borgarstjórasætið í sinn
hlut, fái aðeins tvö sæti á listan-
um, hinir flokkarnir fái þrjú hvor.
Ólíklegt er þó talið að þessi
hugmynd hljóti brautargengi, sér-
staklega ekki innan Samfylking-
arinnar, því ýmsir innan hennar
vilja að flokkurinn njóti betur
þeirrar sterku stöðu sem flokkur-
inn hefur í höfuðborginni eftir síð-
ustu alþingiskosningar.
- ssal
FUGLAFLENSA Kínversk stjórnvöld
hafa ákveðið að bólusetja þrjár
milljónir alifugla í Quinghai-hér-
aði í vesturhluta landsins eftir að
tæplega 200 gæsir fundust þar
dauðar. Banamein þeirra var að
öllum líkindum fuglaflensa.
Enginn maður hefur enn látist
úr veikinni í Kína. Hins vegar til-
kynntu víetnömsk stjórnvöld í
gær um 54. fuglaflensudauðsfall-
ið í Asíu hingað til. Ekki hefur
verið sýnt fram á með óyggjandi
hætti að smit geti borist milli
manna heldur eru þeir sem hing-
að til hafa látist taldir hafa komist
í tæri við sýkt fuglakjöt. Teikn
eru þó á lofti um að veiran geti
breyst þannig að hún berist milli
manna.
Gæsirnar sem drápust í Kína
höfðu að líkindum flogið þangað
sunnan úr álfunni og þannig virð-
ist hætta á að farfuglar geti borið
fuglaflensuveiruna heimsálfa á
milli.
Fyrir nokkrum árum fannst
fuglaflensa í flækingsönd í Mý-
vatnssveit en veiran sem var í
öndinni var ekki af sama banvæna
stofninum og sú sem nú herjar á
Asíubúa. Ekki er vitað hvort veir-
an sé til staðar í íslenskum fuglum
í dag og því hvatti Jarle Reiersen,
dýralæknir alifuglasjúkdóma, í
samtölum við fjölmiðla í gær til að
blóðsýni yrðu tekin úr villtum
fuglum og alifuglum til að skera
úr um það. - oá/shg
● hús
Sameinar göngu
og gott spjall
FAGNAÐARFUNDIR Sjónvarpskonan Marie Jeanne Ion, önnur frá vinstri, var í mikilli geðshræringu þegar hún hitti ættingja sína á nýjan
leik í Búkarest í gær. Félagi hennar, Sorin Miscoci, lengst til vinstri, var sömuleiðis frelsinu feginn en þeim hafði verið haldið í gíslingu
síðan 28. mars ásamt tveimur félögum sínum. Róstusamt var í Írak í gær og fórst á fimmta tug manna í fjölmörgum árásum. sjá síðu 8
● reykjavíkurþema hjá dolce & gabbana
FÓLK 30
▲
VERSLAÐ MEÐ FUGLA Í KÍNA Stjórnvöld í
Kína ætla að bólusetja alifugla vegna ótta
við fuglaflensusmit.
M
YN
D
/A
P
Farfuglar smitaðir af fuglaflensu:
firjár milljónir alifugla bólusettar
Lausir úr prísund:
Rúmenarnir
komnir heim
BÚKAREST, AP Mikill fögnuður ríkti í
Búkarest í Rúmeníu í gær vegna
heimkomu þriggja blaða- og
fréttamanna sem látnir voru laus-
ir úr haldi mannræningja degin-
um áður.
Þeim hafði verið rænt í Bagdad
28. mars síðastliðinn ásamt
íröskum túlki sínum og kröfðust
ræningjarnir að Rúmenar kölluðu
hersveitir sínar heim frá Írak. Við
þeim kröfum var ekki orðið en
engu að síður var þremenningun-
um sleppt.
Traian Basescu, forseti Rúm-
eníu, lofaði þolgæði þremenning-
anna í móttökuræðu sinni og
þakkaði rúmenskum aröbum sér-
staklega sem lögðu sitt af mörk-
um til að fá þá lausa. ■
LEIT STENDUR YFIR Enn er nítján her-
manna saknað í Andesfjöllum.
Andesfjöll:
Hermenn
frusu í hel
SANTÍAGÓ, AP Leit stendur enn yfir í
hlíðum Andesfjalla að nítján her-
mönnum sem talið er að hafi orðið
úti í mikilli stórhríð í fjöllunum í
síðustu viku. Þegar hafa 26 lík fé-
laga þeirra fundist og því eru litlar
líkur sagðar á að þeir muni finnast
á lífi. Þetta er versta slys í sögu
chileska hersins á friðartímum
enda hefur þjóðarsorg verið lýst
yfir í landinu.
Mennirnir voru flestir illa búnir
nýliðar og því hefur ákvörðunin
um að senda þá til fjalla sætt
mikilli gagnrýni þar sem veðurspá
var afar slæm. Engu að síður lýsti
ríkisstjórn landsins yfir trausti
sínu á yfirmenn heraflans í gær. ■
M
YN
D
/A
P