Fréttablaðið - 24.05.2005, Side 2
2 24. maí 2005 ÞRIÐJUDAGUR
DÆGRADVÖL „Korpan hefur aldrei
komið jafn illa undan vetri og
núna, auk þess sem veðráttan í
maí hefur verið afar slæm,“ segir
Margeir Vilhjálmsson, fram-
kvæmdastjóri Golfklúbbs Reykja-
víkur.
Golfvellir í nánd við höfuð-
borgarsvæðið koma afar misjafn-
lega undan vetri og vakið hefur
athygli að á meðan golfvöllur
GKG í Garðabæ virðist vera í afar
góðu ásigkomulagi er ekki hið
sama að segja um Hvaleyrina í
Hafnarfirði þar sem flatir eru
margar slæmar og brautir láta
víða á sjá.
Margeir segir að þrátt fyrir að
nokkrir vellir líti verr út en búist
var við séu þeir fleiri sem séu í
þokkalega góðu ásigkomulagi.
Grafarholtið sé að koma allsæmi-
lega undan vetri. Golfvellirnir á
Hellu og Akranesi séu ágætir og
sömu sögu má segja um Hólms-
völl þeirra Suðurnesjamanna.
Fyrsta stigamót sumarsins á
Toyota-mótaröðinni fer einmitt
fram á Strandavelli við Hellu um
næstu helgi. Sá völlur er talinn
bærilegur eins og sakir standa og
vonast er til að hann verði orðinn
góður þegar mótið hefst. - aöe
BRUNI Slökkvilið höfuðborgar-
svæðisins var kallað út eftir að
mikils reyks var vart í kjallara í
fjölbýlishúsi að Háaleitisbraut um
klukkan hálf fimm í gær. Eldur
hafði komið upp í þvottavél og
þurfti reykkafara til að komast að
honum.
Slökkvistarfið gekk greiðlega
en lögreglan telur að tjónið sé tölu-
vert vegna reyk- og vatns-
skemmda. Slökkviliðsmenn segja
mikla mildi að lokað hafi verið inn
í þvottahúsið þegar eldurinn kom
upp annars hefði hann getað
breiðst út. Einnig voru slökkviliðs-
menn þakklátir íbúum í stigagang-
inum fyrir að halda sig inni á með-
an eldur var laus.
Það var í nógu að snúast hjá
slökkviliðinu í gær því tilkynnt var
um fjóra sinubruna. Einnig kom
útkall vegna ruslagáms sem orðið
hafði eldi að bráð í fyrrinótt.
Hringdi maður í lögreglu til að
segja henni frá þessum brennda
gámi en lögreglan misskildi mann-
inn og kallaði slökkviliðið út sem
fór fýluferð í annríkinu. – jse
Hart sótt a› Schröder
Gerhard Schröder hefur bo›a› til kosninga í haust eftir a› flokkur hans bei›
afhro› í héra›skosningum í stærsta sambandsl‡›veldi landsins. Fyrst flarf a›
fara fram atkvæ›agrei›sla í sambandsflinginu um traust á ríkisstjórnina.
BERLÍN, AP Jafnaðarmannaflokkur
Gerhards Schröder kanslara beið
afhroð í fylkiskosningum í Nord-
rhein-Westfalen á sunnudaginn en
flokkurinn hefur haldið þar um
stjórnartaumana síðan 1966. Flokk-
urinn fékk einungis 37,2 prósent at-
kvæða á meðan kristilegir
demókratar, stærsti stjórnarand-
stöðuflokkurinn, hlaut 44,9 prósent
atkvæða. Nordrhein-Westfalen er
fjölmennasta fylki Þýskalands með
rúmlega átján milljónir íbúa og tap-
ið því mikið áfall fyrir kanslarann.
Schröder hefur boðað til þing-
kosninga í haust, ári áður en kosn-
ingar voru upphaflega áformaðar.
Áður en að þeim kemur verður efnt
til atkvæðagreiðslu í sambands-
þinginu um traust til ríkisstjórnar-
innar en Franz Müntefering, for-
maður Jafnaðarmannaflokksins,
lýsti þessu yfir í gær. Er gert ráð
fyrir að atkvæðagreiðslan fari fram
áður en neðri deild þingsins fer í
sumarfrí 1. júlí næstkomandi. Ef
þingið fellir tillöguna hefur Horst
Köhler, forseti Þýskalands, þrjár
vikur til að rjúfa þing og síðan verð-
ur að halda nýjar kosningar innan
sextíu daga. Þessari aðferð beitti
Helmut Kohl árið 1983 með þeim ár-
angri að andstæðingar hans biðu af-
hroð í kosningunum sem á eftir
komu. Eflaust vonast Schröder eftir
viðlíka niðurstöðum.
Skoðanakannanir benda til að
kristilegir demókratar séu líklegir
til þess að velta stjórn Schröders úr
sessi. Formaður þeirra, Angela
Merkel, prestsdóttir frá gamla
Austur-Þýskalandi, gæti þannig orð-
ið fyrsti kvenkanslari Þýskalands.
Schröder hefur legið undir
ámæli heima fyrir vegna bágs efna-
hagsástands. Atvinnuleysi er tals-
vert í landinu, er nú rétt um tólf
prósent. Nú þegar hefur flokkur
Schröders boðað róttækar umbætur
í efnahagslífinu fái hann áframhald-
andi umboð kjósenda og er það til-
raun til þess að sannfæra almenn-
ing um að til standi að bæta ástand-
ið.
Flokkur Schröders er í ríkis-
stjórnarsamstarfi við græningja,
flokk utanríkisráðherrans Joscha
Fischer, en sá flokkur hefur einnig
tapað miklu fylgi á yfirstandandi
kjörtímabili. Fischer er þó sann-
færður um að þeim takist að vinna
aftur traust kjósenda í kosningabar-
áttunni. oddur@frettabladid.is
Olíuleit við Noreg:
Fundu miki›
magn af gasi
NOREGUR Gífurlegt magn af gasi
hefur fundist undan ströndum
Noregs. Er talið að um 60 millj-
arða rúmmetra sé að ræða og er
þetta einn mesti gasfundur sem
um getur á þessum slóðum.
Gasið fannst við boranir á
svæði sem er um 145 kílómetra
vestur af bænum Kristiansund á
vesturströnd Noregs, í nágrenni
við olíuvinnslusvæðið Draugen-
felt þar sem olía hefur verið
unnin síðan 1993.
Hafsdýpið þar sem borað var
er 308 metrar en borholan sjálf
er liðlega fimm kílómetra að
dýpt. ■
FLEIRI DEYJA ÚR HERMANNAVEIKI
Í það minnsta fimm Norðmenn
hafa látist úr hermannaveiki sem
gaus upp á sjúkrahúsi í Frederik-
stad um helgina. Talið er alls hafi
24 vistmenn á spítalanum smitast.
LÖGREGLUMAÐUR Á LEIÐ Í SJÚKRABÍL
Lögreglumaðurinn sem hér sést fara í
sjúkrabíl rifbeinsbrotnaði í árekstri.
Lögreglumaður
rifbeinsbrotnaði:
Lögregla í
árekstri
UMFERÐARSLYS Lögeglumaður við-
beinsbrotnaði eftir að hann lenti í
árekstri á bifhjóli sínu við bifreið
á gatnamótum Háteigsvegar og
Stakkahlíðar um fimmleytið í
gær. Var hann þá á leið sinni að
Háaleitisbraut þar sem eldur
hafði komið upp í kjallara. Frek-
ari upplýsingar um tildrög slyss-
ins eða ástand bifreiðarinnar lágu
ekki fyrir þegar Fréttablaðið fór í
prentun.
– jse
Vökul lögregluaugu:
Fíkniefna-
fundur
FIKNIEFNAMÁL Lögreglan í Hafnar-
firði handtók ökumann á sunnu-
dagsmorgun eftir að meint am-
fetamín fannst í bifreið hans.
Vöknuðu grunsemdir hjá lögreglu
þegar hún var við hefðbundið eft-
irlit. Að sögn lögreglunnar í Hafn-
arfirði er sífellt algengara að hún
verði uppvís að menn séu með
fíkniefni í fórum sínum.
Um síðustu helgi handtók lög-
reglan svo þrjá menn eftir að
fíkniefni fundust í bifreið þeirra
en einnig þá vöknuðu grunsemdir
við hefðbundið eftirlit. – jse
SPURNING DAGSINS
Stefán, er dómaranum loksins
or›i› svara vant?
Það stendur ekki á svörunum, en fyrst að
Bandaríkjaforseti má aðeins sitja í tvö
kjörtímabil þá er rétt að hið sama gildi
um þetta mikilvæga embætti líka.
Stetán Pálsson, dómari og spurningahöfundur í
Gettu betur undanfarin tvö ár, hefur ákveðið að
leggja spurningagerðina á hilluna í bili. Leit af
eftirmanni hans stendur nú yfir.
NOREGUR
BANDARÍKIN
GERHARD SCHRÖDER Kanslari Þýskalands
hefur boðað til kosninga eftir að flokkur
hans beið afhroð í fylkiskosningum.
M
YN
D
/A
P
ANGELA MERKEL Formaður kristilegra
demókrata og líklegt kanslaraefni þeirra.
HVALEYRARVÖLLUR Í GÆR Ástand hans er
miður gott og enn leikið víða á vetrarteig-
um. Vífilsstaðavöllur í tíu mínútna fjarlægð
þykir aftur á móti vera í góðu ásigkomulagi.
Golfvellir landsins eru í misjöfnu ásigkomulagi:
Misgó›ir eftir veturinn
SLÖKKVILIÐSMENN AÐ STÖRFUM Reykkafari fer hér úr búnaði sínum og fær til þess að-
stoð frá kollega sínum. Mikill reykur var í kjallara fjölbýlishúss við Háaleitisbraut eftir að
það kviknaði í þvottavél en slökkviliðið var ekki lengi að slökkva eldinn og reykræsta.
Annríki hjá slökkviliðinu:
Eldur kom upp í kjallara
FORSETAFRÚR Í KAÍRÓ Laura Bush og
Suzanne Mubarak hittu skólabörn í út-
hverfi Kaíró.
Laura Bush í Ísrael:
Fjöldi fólks
mótmælti
ÍSRAEL, AP Laura Bush, forsetafrú
Bandaríkjanna, er nú á ferðalagi
um Mið-Austurlönd. Hópur fólks
mótmælti komu hennar harðlega
þegar hún var á ferð í Jerúsalem í
í fyrradag.
Hún sagði að mótmælin hefðu
ekki komið sér á óvart heldur hafi
hún beinlínis búist við slíku þar
sem öllum væri ljóst hvílík
spenna ríkti á milli trúarhópa á
svæðinu.
Laura eyddi gærdeginum í Eg-
yptalandi þar sem hún hitti
Suzanne Mubarak forsetafrú. Þær
ræddu sérstaklega um mikilvægi
þess að lesa fyrir börn. ■
M
YN
D
/A
P
NIÐURGREITT VIAGRA Komið hef-
ur í ljós að 198 hættulegir kyn-
ferðisafbrotamenn í New York-
ríki sem taldir eru líklegir til að
brjóta af sér á nýjan leik hafa
fengið stinningarlyfið Viagra nið-
urgreitt af hinu opinbera síðustu
fimm árin. Ríkisendurskoðandi
hvatti í gær til að þessi stuðning-
ur yrði endurskoðaður hið fyrsta.