Fréttablaðið - 24.05.2005, Síða 6
NEYTENDUR „Þessar niðurstöður
koma mér á óvart og sýna að inn-
flytjendur hafa verið ríflegir í
allri álagningu sinni,“ segir Jó-
hannes Gunnarsson, formaður
Neytendasamtakanna. Nýbirt
verðkönnun hagstofu Evrópu-
sambandsins, Eurostat, sýnir að
tugprósentamunur var á verði á
fatnaði og skóm hérlendis sam-
anborið við þjóðir innan ESB.
Reyndist Ísland dýrast í öllum
þeim tólf flokkum sem kannaðir
voru en verð 285 vörutegunda
var borið saman. Um er að ræða
tölur frá árinu 2003 þar sem bor-
ið var saman verð milli allra
sambandsríkjanna, þriggja ríkja
sem sótt hafa um aðild og EFTA-
ríkjanna Sviss, Noregs og Ís-
lands. Niðurstaðan er sú að Ís-
land reyndist í heildina 49 pró-
sentum dýrari en meðaltal Evr-
ópusambandsins og ellefu pró-
sentum dýrari en Noregur sem
kom næst.
Sé litið á hvern flokk fyrir sig
reyndist Ísland dýrast hvað
varðaði skófatnað fyrir unga-
börn en þar munaði 60 prósent-
um frá meðaltali Evrópuríkja.
Skófatnaður kvenna reyndist 58
prósentum dýrari en meðaltalið
og skófatnaður karla 54 prósent-
um dýrari. Minnstu munaði á
herrafatnaði sem var þó 39 pró-
sentum dýrari hér en að meðal-
tali í Evrópu.
Ódýrustu þjóðirnar í könnun-
inni reyndust vera Búlgaría og
Rúmenía en verð í flestum flokk-
um þar var um 40 til 50 prósent-
um undir meðaltali ríkja ESB.
Sigurður Jónsson, fram-
kvæmdastjóri Samtaka verslun-
ar og þjónustu, sagðist ekki hafa
skýringar á reiðum höndum á
þessum mikla mun milli Íslands
og Evrópu.
„Hins vegar er talað um að
innflytjendur greiði að meðaltali
fimmtán prósentum meira fyrir
vöruna hingað komna en inn-
flytjendur í Evrópusambandinu
greiða fyrir sína vöru. Einnig má
benda á að raunverðslækkun á
fatnaði hér á landi hefur verið
fimm prósent síðustu tíu árin og
á sama tíma hefur launavísitalan
hækkað um 30 prósent. Það má
því segja að þessir hlutir hafi
lækkað en þetta skýrir ekki
þennan mikla mun.“
albert@frettabladid.is
ÁRSFUNDUR HÁSKÓLA ÍSLANDS
Ársfundur Háskóla Íslands verður haldinn
þriðjudaginn 31. maí 2005 kl. 11 - 12 í Hátíðasal,
Aðalbyggingu Háskólans.
Dagskrá
• Páll Skúlason háskólarektor setur fundinn, fer yfir
starfsemi síðasta árs og fjallar um meginatriði í starfi
Háskólans.
• Ingjaldur Hannibalsson, formaður fjármálanefndar
háskólaráðs, gerir grein fyrir reikningum ársins 2004
og kynnir fjárhag Háskólans.
• Rektor svarar fyrirspurnum.
6 24. maí 2005 ÞRIÐJUDAGUR
BRUSSEL, AP Utanríkisráðherrar
Evrópusambandsríkjanna hvöttu
í gær Írana til að sýna sveigjan-
leika við samningaborðið í við-
ræðum um kjarnorkumál sem
haldnar verða síðar í vikunni.
Talsverð spenna hefur ríkt
undanfarin misseri í samskipt-
um klerkastjórnarinnar í Íran og
ríkisstjórna á Vesturlöndum sem
telja Írana þróa kjarnorkuvopn á
laun. Í síðustu viku kváðust
stjórnvöld í Teheran ætla að
hefja auðgun úrans á nýjan leik
til að nota við raforkuvinnslu.
Þessu eru hins vegar ráðamenn í
Bandaríkjunum og Evrópu tregir
til að trúa.
Á morgun hefst fundur Írans
og Evrópusambandsins í Genf
um kjarnorkumálin. Jack Straw,
utanríkisráðherra Breta, skoraði
á Írana að láta af áformum sín-
um um auðgun úrans og í staðinn
gætu þeir vænst að fá fríverslun-
arsamning við Evrópusambandið
og frekari efnahagsaðstoð.
Síðustu vikur hafa erindrekar
ríflega 180 ríkja rætt um endur-
skoðun sáttmála um takmörkun
útbreiðslu kjarnorkuvopna í höf-
uðstöðvum Sameinuðu þjóðanna
í New York. Ráðstefnunni lýkur
á föstudaginn og hefur árangur-
inn af viðræðunum verið sára-
lítill. ■
LONDON, AP Ellefu þúsund frétta- og
tæknimenn breska ríkisútvarpsins
BBC lögðu niður störf í sólarhring í
gær til að mótmæla fyrirhuguðum
niðurskurði og einkavæðingu hluta
stofnunarinnar. Til stendur að segja
upp um fjögur þúsund starfsmönn-
um og spara með því móti rúmlega
350 milljónir pund árlega.
Starfsfólkið ætlar að láta hart
mæta hörðu og hótar nú tveggja
daga verkfalli um mánaðamótin ef
niðurskurðinum verður ekki af-
lýst. Í gær voru endurflutningar
allsráðandi á öllum rásum BBC og
einungis örfá stutt fréttaskot flutt
þegar nauðsyn þótti krefja.
- oá
Föt og skór d‡rust á Íslandi
Samkvæmt ver›könnun hagstofu Evrópusambandsins me›al 30 ríkja á tæplega 300 vörutegundum í skóm
og fatna›i reyndist hæsta ver›i› í öllum flokkum vera á Íslandi. Um tugprósenta ver›mun var a› ræ›a.
Sænskir framhaldsskólar:
Færri stunda
nám en á›ur
SVÍÞJÓÐ Svíar hafa vaxandi
áhyggjur af því að ungmennum
sem ekki ljúka framhaldsskóla-
námi fer stöðugt fjölgandi.
Þrír af hverjum tíu Svíum um
tvítugt hafa ekki lokið fram-
haldsnámi samkvæmt nýrri
könnun en samasvarandi tala
var tveir af hverjum tíu í upp-
hafi tíunda áratugarins.
Þá voru það um 20 þúsund
ungmenni í hverjum árgangi
sem ekki kláruðu framhalds-
skólanám en nú er þessi tala um
30 þúsund. Fyrst og fremst eru
það ungmenni í bóknámstengdu
verknámi sem hverfa úr skóla.■
FRAMBJÓÐENDUR ÚTILOKAÐIR
Yfirstjórn framboðsmála í Íran
úrskurðaði í fyrradag að allir
nema sex af yfir 1.000 frambjóð-
endum í forsetakosningum sem
fram fara í landinu þann 17. júní
uppfylltu ekki framboðsskilyrði.
Meðal hinna útilokuðu er Mostafa
Moin, sem stærsti umbótaflokkur
landsins tilnefndi.
SÝNINGUM HÆTT Miklar öryggis-
ráðstafanir hafa verið gerðar í
indverskum kvikmyndahúsum
eftir að sprengjur sprungu í
tveimur bíóum í Nýju-Delí á
sunnudag þar sem umdeild kvik-
mynd var til sýninga. Sýningum á
myndinni hefur víðast verið hætt.
Fíkniefnamál á Selfossi:
firír hand-
teknir
FÍKNIEFNAMÁL Þrír menn voru hand-
teknir á Selfossi á fimmtudaginn
eftir að nokkurt magn af am-
fetamíni, kannabisefnum og -plönt-
um fannst við húsleit lögreglunnar.
Grunsemdir lögreglu höfðu
vaknað um að húsráðandinn seldi
fíkniefni og eftir að hafa fundið
smáræði af kannabisefnum á gesti
sem var að koma úr húsinu var gerð
húsleit hjá gestgjafanum. Þar var
annar gestur sem var einnig hand-
tekinn en sleppt fljótlega aftur og er
hann ekki talinn tengjast málinu.
Málið telst nú upplýst og bíða
mennirnir tveir ákæru eða sekta að
sögn lögreglunar á Selfossi. - jse
Samgönguráðherra:
Gekkst undir
uppskur›
VEIKINDI Sturla
Böðvarsson sam-
g ö n g u r á ð h e r r a
gekkst undir aðgerð
á Landspítala - há-
skólasjúkrahúsi á
föstudaginn vegna
brjóskloss í baki.
Mun hann vera
frá störfum í óákveðinn tíma með-
an hann jafnar sig. Geir Haarde
fjármálaráðherra mun gegna störf-
um samgönguráðherra á meðan. ■
Heilsugæslan:
Uppl‡singar
fyrir alla
HEILBRIGÐISMÁL Tekið hefur til
starfa Upplýsingamiðstöð Heilsu-
gæslunnar. Veitt er ráðgjöf í síma
1700 á dagvinnutíma alla virka
daga.
Upplýsingamiðstöðin á að bæta
þjónustuna og stuðla að markvissri
notkun hennar þannig að sjúklingar
fari ekki erindisleysu eða þeim sé
vísað af einum stað á annan í kerf-
inu. Hún á að vera fyrir þá sem eiga
ekki vísan aðgang að heilsugæslu,
eða eru í vafa um hvar þeir geta
leitað ráða. Þetta á einkum við um
þá íbúa höfuðborgarsvæðisins sem
ekki eru með skráðan heimilis-
lækni. ■
ASÍA
STURLA BÖÐV-
ARSSON
EVRÓPUMET Aðflutningsgjöld og hærra tollverð hingað til lands skýra ekki nema að mjög litlu
leyti þann gríðarlega verðmun á fatnaði og skóm sem mældist í könnun Eurostat.
149
134
117
114
112
111
110
108
107
106
105
100
99
95
94
93
90
89
86
84
78
75
58
55
Ísland
Noregur
Sviss
Svíþjóð
Ítalía
Finnland
Danmörk
Austurríki
Belgía / Lúxemborg
Þýskaland
Tékkland / Kýpur
Spánn
Írland
Grikkland / Portúgal / Slóvenía
Eistland
Frakkland / Malta
Bretland
Litháen / Holland
Ungverjaland / Slóvakía
Lettland
Pólland
Tyrkland
Búlgaría
Rúmenía
125
75
Evrópubandalagsmeðaltal (100)
NÝJASTA TÍSKAN Íslendingar greiddu mun
hærra verð fyrir fatnað og skó en aðrir Evr-
ópubúar árið 2003 samkvæmt úttekt hag-
stofu ESB. Fátt hefur breyst síðan.
STARFSMENN BBC MÓTMÆLA Starfsmenn mótmæla niðurskurði og einkavæðingu á hluta
breska ríkisútvarpsins.
M
YN
D
/A
P
Starfsmenn BBC í verkfalli:
Mótmæla ni›urskur›i
Hefur flú fengi› punkt vegna
umfer›arlagabrots?
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Spilar flú golf?
Niðurstöður gærdagsins á visir.is
80,07%
19,93%
Nei
Já
Farðu inn á fréttahluta visir.is
og segðu þína skoðun
KJÖRKASSINN
RÁÐHERRAR RÆÐA SAMAN Vel fór á með
þeim Lailu Freivalds og Jack Straw, utanrík-
isráðherrum Svíþjóðar og Bretlands, í Brus-
sel í gær. Ekki er víst að andrúmsloftið á
fundinum með Írönum verði jafn jákvætt.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
P
Fundur um kjarnorkumál hefst á morgun:
Íranar hvattir til sáttf‡si