Fréttablaðið - 24.05.2005, Blaðsíða 13
ÞRIÐJUDAGUR 24. maí 2005 13
Fjármögnun í takt við þínar þarfir
H
in
ri
k
P
é
tu
rs
s
o
n
l
w
w
w
.m
m
e
d
ia
.i
s
/h
ip
Það eina sem er erfitt við
að kaupa nýjan bíl . . .
Suðurlandsbraut 22
108 Reykjavík
Sími 540 1500 Fax 540 1505
www.lysing.is
. . . er að velja vegi við hæfi
fiú velur hvort flú leigir bílinn me›
einkale igu e›a eignast hann me›
bílasamningi e›a bílaláni. Veldu bíl sem
hentar flínum flörfum og ræddu svo vi›
rá›gjafa L‡singar e›a sölumenn bíla-
umbo›anna sem a›sto›a flig vi› a› útbúa
umsókn og ganga frá fjármögnun.
Bílaumbo›in eru beintengd L‡singu í
gegnum Neti› flannig a› svar vi› umsókn
kemur á augabrag›i. fiú metur fla› svo í
rólegheitum hva›a vegi flú vilt aka bílnum
flínum.
Nota›u reiknivélina á www.lysing.is og
sko›a›u hvernig flitt dæmi kemur út.
BÍLASAMNINGUR BÍLALÁN REKSTRARLEIGA EINKALEIGA
BJÖRN Í BAÐI Þessi bangsi kældi sig í
einni af fjölmörgum sundlaugum í Los
Angeles um helgina. Bjössi var þó ekki
lengi í paradís heldur var deyfður og flutt-
ur í burtu af dýraeftirlitinu.
Próflokum fagnað:
Sigling í Hvítá vinsælust hjá krökkunum
Það var mikill hraði og hasar á
Torfa G. Yngvasyni hjá Arctic
Rafting þegar blaðamaður Frétta-
blaðsins sló á þráðinn til hans.
„Hér er heilmikið um að vera og
erum við nú að leggja af stað í sigl-
ingu niður Hvítá á 20 bátum með
um 200 unglinga,“ segir Torfi, sem
greinilega er spenntur yfir því að
sumarannirnar séu að hefjast.
Arctic Rafting hefur í mörg ár
stjórnað siglingum niður Hvítá
með 10. bekkinga, sem á þessum
árstíma eru að fagna því að grunn-
skólinn er að klárast. „Þetta eru
mikil tímamót hjá krökkunum, sem
eru í hálfgerðu spennufalli yfir lok-
um samræmdu prófanna og hafa
því mjög gaman af því að lyfta sér
svolítið upp,“ segir Torfi og virðist
sjálfur skemmta sér hið besta.
Siglingarnar hjá Arctic Rafting
hafa notið mikilla vinsælda undan-
farin ár og hafa skipað fastan sess
í útskriftarferðum grunnskóla-
nema víðs vegar af landinu. Fyrir-
tækið hefur tekið á móti þúsundum
barna og virðist ekkert lát vera á
vinsældum þessara ferða. „Þetta
hefur gengið vel hjá okkur, fjöld-
inn hefur vaxið ár frá ári og er nú
svo komið að við erum að ferja
metfjölda í siglingunum. Við erum
búin að fara með 1.000 krakka síð-
ustu daga og það hefur gengið al-
veg glimrandi vel. Veðrið hefur
líka verið dásamlegt, sól og blíða
og auðvitað mikil gleði,“ segir Torfi
og leggur á það áherslu að öll að-
staða hjá fyrirtækinu sé til fyrir-
myndar. „Hér fer enginn af stað
nema vera í réttum útbúnaði og
með leiðsögumann með sér í hverj-
um báti, þannig er fyllsta öryggis
gætt,“ bætir Torfi við að lokum
áður en hann leggur í enn eina sigl-
inguna.
- mh
Á LOKASPRETTINUM
Laxnes:
fiolrei›arkeppni
endurvakin
Þolreiðarkeppni Íslands var endur-
vakin um helgina þegar 25 knapar
þeystu hestum sínum hina 18,6
kílómetra löngu leið frá Reiðhöll-
inni í Víðidal að Laxnesi í Mosfells-
dal. Keppendur voru á öllum aldri,
sá yngsti tólf og sá elsti áttræður.
Egill R. Sigurgeirsson bar sigur úr
býtum á hestinum Eitli og fóru þeir
leiðina á 58 mínútum án refsistiga.
Laxnes hélt keppnina í sam-
starfi við Icelandair og verður
keppnin haldin að nýju á næsta ári
bæði hér og annars staðar á Norð-
urlöndunum. Þá hefur einnig borist
boð um að halda keppnina í Kali-
forníu í Bandaríkjunum. - sgi
betri tíð á næstunni.
Pálmi hefur umsjón með þrem-
ur ám þetta sumarið; Litluá í
Kelduhverfi, Brunná í Öxarfirði
og Lónsá á Langanesi. Hann legg-
ur mikið upp úr því að veiðimönn-
um líði vel í ánum hans. „Ég reyni
að skapa veiðimönnum notalegt
umhverfi og finnst mikilvægt að
veiðimönnum líði betur eftir að
hafa veitt í mínum ám. Þannig
leyfi ég veiðimönnum að ráða því
alfarið hvernig þeir haga þeim
klukkutímum sem þeir kaupa hjá
mér,“ segir Pálmi.
Spurður út í það himinháa verð
sem greitt er fyrir veiðirétt í ám
nú til dags segir hann ekkert við
því að gera. „Þetta er harður
markaður og menn eru einfald-
lega tilbúnir að borga meira nú en
áður, bæði fyrir veiðina og fyrir
að vera umsjónaraðili veiði-
svæða,“ segir Pálmi.
Vatnaveiði er ódýr hér á landi
og telur Pálmi að veiðimenn
mættu horfa meira til vatnanna.
„Það er ekki mikil hefð fyrir
vatnaveiði hér á landi miðað við
mörg önnur lönd og tel ég að það
sé hægt að nýta betur þá góðu að-
stöðu sem við Íslendingar höf-
um,“ segir Pálmi.
Tónlistarmaðurinn Pálmi tróð
upp með ICY-flokknum á Nasa um
helgina og þar var góð stemmn-
ing. „Þetta var alveg rosalegt,
brjáluð stemmning. Minnti á
gömlu góðu dagana með Brunalið-
inu,“ segir Pálmi.
Pálmi og Magnús Eiríksson,
sem saman mynda Mannakorn,
eru á leið í stúdíó að taka upp ný
lög. Þeir halda ótrauðir áfram tón-
listarsköpuninni og virðast alltaf
geta hrist fram úr erminni nýtt og
ferskt efni.
Pálmi horfir því björtum aug-
um til framtíðar, bæði sem tónlist-
ar- og veiðimaður. ■
FJÖR Í SIGLINGU Mikil spenna grípur um sig hjá krökkunum þegar lagt er af stað enda
ekki á hverjum degi sem kostur gefst á því að sigla í straumharðri á með leiðsögumanni.