Fréttablaðið


Fréttablaðið - 24.05.2005, Qupperneq 28

Fréttablaðið - 24.05.2005, Qupperneq 28
„Ég er afskaplega ánægður,“ segir nýkjörinn varaformaður Samfylkingarinnar, Ágúst Ólaf- ur Ágústsson, um þessi tímamót í lífi sínu. „Mér þykir gríðarlega vænt um þann stuðning sem ég hef fengið, sérstaklega utan af landi og frá eldri borgurum,“ segir Ágúst, sem finnst mjög mikilvægt fyrir ungan einstak- ling að geta leitað til þeirra sem reyndari eru. Hann lítur svo á að flokksmenn hafi sýnt ákveðna djörfung og þor með því að velja ungan mann í þetta verkefni. Ágúst segir sögur af smölun ungliða á landsfundinn orðum auknar. „Það voru engar rútur á mínum vegum,“ segir Ágúst kím- inn og álítur að svona sögur nái alltaf flugi. Hins vegar hafi ungt fólk sýnt landsfundinum áhuga og varla hægt að amast við því enda hafi atkvæði ungliðanna ekki ráðið úrslitum. Unga fólkið hafi tekið virkan þátt í málefna- starfinu, enda sé Samfylkingin ungur flokkur sem treysti ungu fólki. „Ég var bjartsýnn því ég fékk strax mjög góð viðbrögð,“ segir Ágúst um það hvort hann hafi bú- ist við að sigra. Hann hafi til- kynnt sig með talsverðum fyrir- vara og nýtt tímann í kynningar og ferðir út á land. „Ég fann það að stuðningur var meiri en ég bjóst við og það efldi mig í minni baráttu.“ Ágúst vonar að þessi kosning hafi áhrif á aðra flokka þannig að ungt fólk í þeim geti einnig sóst eftir og fengið góð embætti. Ágúst hafði mörgu að fagna um helgina en á sunnudaginn hélt hann upp á þriggja ára afmæli dóttur sinnar. Næstu daga ætlar hann að sinna fjölskyldu sinni en yngri dóttir hans er aðeins tveggja mánaða. „Síðan þarf ég að bretta upp ermar, standa við stóru orðin og sýna flokksmönn- um mínum að þeir hafi valið rétt,“ segir Ágúst, sem telur lík- legt að sumarið muni líða hraðar en oft áður. ■ 20 24. maí 2005 ÞRIÐJUDAGUR NIKULÁS KÓPERNIKUS (1473-1543) lést þennan dag. Flokksmenn sýndu djörfung og þor TÍMAMÓT: ÁGÚST ÓLAFUR ÁGÚSTSSON TEKUR VIÐ VARAFORMANNSEMBÆTTI SAMFYLKINGAR „Stærðfræði er skrifuð fyrir stærðfræð- inga.“ Nikulás Kópernikus var pólskur stjörnufræðingur. Hann er hvað þekktastur fyrir að hafa afneitað jarðmiðjukenningunni og þróað sólmiðjukenningu. timamot@frettabladid.is JAR‹ARFARIR 13.00 Bára Kristjánsdóttir, þroskaþjálfi, Íragerði 12, Stokkseyri, verður jarðsungin frá Selfosskirkju. 13.00 Jón Lúthersson, frá Brautarholti í Staðarsveit, Grýtubakka 26, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju. 14.00 Edda Sólrún Einarsdóttir, sem lést af slysförum laugardaginn 14. maí, verður jarðsungin frá Kefla- víkurkirkju. 15.00 Steini Björn Jóhannsson, vél- fræðingur, Kóngsbakka 5, Reykja- vík, verður jarðsunginn frá Nes- kirkju. AFMÆLI Kristján Jóhannsson óp- erusöngvari er 57 ára. Steinunn Jóhannesdótt- ir rithöfundur er 57 ára. Kristján Franklin Magnús leikari er 46 ára. FÆDDUST fiENNAN DAG 1940 Joseph Brodsky, rit- höfundur og nóbelsverð- launahafi. 1941 Bob Dylan, tónlist- armaður. 1945 Priscilla Presley, leikkona og fyrrverandi eiginkona Elvis Presley. HORFIR TIL FRAMTÍÐAR Ágúst Ólafur Ágústsson, nýkjörinn varaformaður Samfylkingarinnar, segir Samfylkinguna ungan flokk sem treysti ungu fólki. Hood, stærsta herskip heims, sökk um 250 sjómílur vestur af Reykjanesi þennan dag árið 1941 eftir orrustu við þýska her- skipið Bismarck. Með Hood fór- ust 1.418 Bretar en þremur var bjargað og voru þeir fluttir til Reykjavíkur. Orrustuskipið Bismarck var eitt öflugasta herskip Þjóðverja í síð- ari heimsstyrjöldinni. Þegar það ásamt systurskipi sínu Tirpiz reyndi að komast óséð meðfram ísröndinni í Grænlandshafi urðu bresk skip vör við þau og fylgdu þeim eftir en héldu sig utan skotfæris. Breska flotadeildin suður af Íslandi sigldi í veg fyrir þýsku skipin tvö og laust þeim saman snemma morguns 24. maí. Hood réðst strax að þýsku skip- unum og stefndi hratt að þeim. Eftir stutta en snarpa viðureign sprakk Hood í loft upp. Talið er að skot frá Bis- marck hafi komist í gegnum byrðing skipsins undir sjólínu og sprungið í skotfærageymslu. Herskip eltu Bismarck yfir Atl- antshafið og þremur dögum síðar rigndi fallbyssuskotum og tundurskeytum yfir þýska bryndrekann úr öllum áttum uns áhöfnin sprengdi göt á botn skipsins til að flýta fyrir endalokum þess og yfirgaf skipið. Eftir að Bismarck var sökkt missti Hitler trúna á að þýsk herskip gætu varist þeim bresku á úthafinu og í september sama ár bannaði hann frekari útrás herskipa sinna út á Atlantshaf. 24. MAÍ 1941 ÞETTA GERÐIST MERKISATBURÐIR 1839 Bæjarstjórn Reykjavíkur samþykkir að skylda bæjar- búa til að inna af hendi þegnskylduvinnu við vega- gerð og fleira. 1883 Brooklyn-brúin er opnuð fyrir umferð. Brúin, sem tengir Brooklyn við New York, kostaði 27 mannslíf á 14 ára byggingartímanum. 1973 Fjölmennasti mótmæla- fundur á Íslandi er haldinn í Reykjavík. Um 30 þúsund manns mótmæla flota- íhlutun Breta vegna út- færslu fiskveiðilögsögunnar í 50 mílur. 1974 Duke Ellington djassisti andast. 2001 Um 20 brúðkaupsgestir látast og mörg hundruð slasast þegar dansgólfið hrynur í miðri brúðkaups- veislu í Ísrael. Bismarck sökkvir Hood Tilkynningar um merkisatbur›i, stórafmæli, andlát og jar›arfarir í smáletursdálkinn hér a› ofan má senda á netfangi› timamot@frettabladid.is. Augl‡singar á a› senda á auglysingar@frettabladid.is e›a hringja í síma 550 5000. Elskuleg eiginkona mín, Erla Kristjánsdóttir ástkær móðir og uppeldismóðir okkar, til heimilis að Bakkastöðum 5a, áður að Hjallalandi 22, sem lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi á hvítasunnudag, 15. maí sl., verður jarðsungin frá Grafarvogskirkju föstudaginn 27. maí kl. 13.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en þeim sem vilja minnast hennar er bent á stuðning við eitthvert af eftirfarandi verkefnum Húmanistahreyfingarinnar: 1) Vinir Afríku, reiknings- númer: 313-26-67003, kt. 670599-2059, 2) Vinir Indlands, reikn- ingsnúmer: 582-26-6030, kt. 440900-2750, 3) Lestrarátak á Haítí, reikningsnúmer: 1195-05-403072, kt. 480980-0349. Hafsteinn Erlendsson Eyrún Björg Hafsteinsdóttir Neil Clark Þórður Hafsteinsson Jón Grétar Hafsteinsson Dóróthea Siglaugsdóttir Sigrún Hafsteinsdóttir Úlfar Finnbjörnsson Ásta Einarsdóttir ömmubörn og langömmubarn. Elskulegur unnusti, faðir, sonur, tengdasonur og bróðir Ágúst Þórður Stefánsson Öldugötu 31, Hafnarfirði, lést á gjörgæsludeild Landspítalans Fossvogi sunnudaginn 22. maí. Maríam Siv Vahabzadeh Nadía Líf Ágústsdóttir María Alexandersdóttir Jón Björnsson Lilja Ingvarsdóttir Smári Brynjarsson og systkini. Jarðarförin auglýst síðar. Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu Helgu Friðriksdóttir frá Krithóli. Sérstakar þakkir til alls starfsfólks deildar fimm á Heilbrigðis- stofnun Sauðárkróks. Guðríður Björnsdóttir Jónas Kristjánsson Kjartan Björnsson Birna Guðmundsdóttir Bára Björnsdóttir Ólafur Björnsson Anna Ragnarsdóttir ömmubörn og langömmubörn FR ÉT TA B LA Ð IÐ /H AR I

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.