Fréttablaðið - 24.05.2005, Síða 32
24. maí 2005 ÞRIÐJUDAGUR
Það er varla verjandi
að vera að eyða plássi
og prentsvertu í að
skrifa um Evró-
visjónskandalinn sem
skók þjóðina um dag-
inn en sem friðelskandi
Evrópumaður tel ég
mér skylt að láta nokkur
varnaðarorð falla. Byrjum á heima-
velli. Sneypuför Selmu er auðvitað
meira hneyksli en þegar Icy-tríóið
tapaði keppninni svo eftirminnilega
og sló fasteign Íslands á 16. sætið.
Það ætti auðvitað einhver að svara
fyrir þetta fíaskó og þó að Markús
Örn Antonsson útvarpsstjóri hafi
sloppið með skrekkinn í frétta-
stjóramálinu þá ætti hann að segja
af sér núna. Hann ber pólitíska
ábyrgð á því að útvaldir fulltrúar ís-
lenska ríkisins stóðust ekki
væntingar. Markús mun þó ekki
svara fyrir þetta frekar en Selma.
Það ríkir nefnilega sérstakt rétt-
læti á Íslandi og rétt eins og Jóhann
Hauksson var eina fórnarlamb
fréttastjóradeilunnar og Róbert
Marshall féll einn í valinn á Íslands-
vígstöðvum Íraksstríðsins verður
það Jónsi sem verður hengdur fyrir
Eurovision. Hann söng okkur út úr
keppninni í fyrra en það þarf eng-
inn að efast um það að ef Selma
hefði farið beint í aðalkeppnina
hefði hún náð langt, líklega alla leið.
Hremmingar Íslendinga í Evró-
visjón eru samt smámunir miðað
við þær blóðugu alþjóðlegu afleið-
ingar sem þróun keppninnar gæti
haft. Þjóðverjar, Bretar og Frakkar
ráku lestina að þessu sinni og munu
ekki una við slíkt. Fyrirkomulagi
keppninnar hlýtur að verða breytt
svo að herraþjóðirnar geti á ný
hampað sér í lágkúrunni. Beinast
liggur við að skipta keppninni í
tvennt þar sem gömul Evrópulönd
keppa innbyrðis en nýju Evrópu-
löndin, sem eru enn árhundruðum á
eftir okkur hinum í vondri tónlistar-
sköpun, geta tekist á með síma-
svindli og flokkadráttum.
Evrópa er hins vegar púður-
tunna þar sem háðar hafa verið
tvær blóðugar styrjaldir og Evró-
visjónkeppnin gæti valdið klofningi
sem mun enda með þeirri þriðju. Nú
er því lag að hætta þessu í eitt skipti
fyrir öll. ■
STUÐ MILLI STRÍÐA
ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON SPÁIR ÞVÍ AÐ JÓNSI VERÐI HENGDUR FYRIR SELMU.
Evróvisjónstyrjöldin
-Stærsti fjölmiðillinn
Fréttablaðið
er leiðandi
0
5
10
15
20
25
30
35
40
37%
11%
Lestur á leiðarasíðu
Íslendingar 18-49 ára
Tölurnar tala sínu máli.
Mun fleiri Íslendingar lesa
leiðarasíðu Fréttablaðsins en
leiðarasíðu Morgunblaðsins.
Mælingin er byggð á meðallestri á leiðarasíðu Fréttablaðsins þriðjudaga,
miðvikudaga, föstudaga, laugardaga og sunnudaga og lestri á leiðarasíðu
Morgunblaðsins á fimmtudögum. Fjölmiðlakönnun Gallup maí 2005
Eftir Patrick McDonnell
■ PONDUS
■ GELGJAN
■ KJÖLTURAKKAR
■ BARNALÁN
■ PÚ OG PA Eftir SÖB
Eftir Kirkman/Scott
Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
Eftir Frode Överli
Hvaða
hljóð er
þetta?
„...þetta er bara að-
vörun, en verði ekki
brugðist við...“
„Viðbrögðin við ykkar
fasísku stjórnarhátt-
um verða óumflýjanleg
og alvarleg. Það er
best fyrir ykkur að fá
okkur ekki
upp á
móti
ykkur.“
Ja hér! Ég elska hvað leiðari
skólablaðsins er beittur!
Skólayfirvöld bregð-
ast örugglega við
núna og bjóða upp á
vanillubúðing á
hverjum föstudegi.
Gúrmebúð
Gúnda
Ég hélt hann
ætlaði aldrei
að koma.
Bangsi litli besta skinn,
voða sætur og góður...
...alveg eins og stelpurn-
ar, hann er voða góður. Hvað?!?
Farsíminn,
sem er í
vasanum.
„I was made for
loving you“ sem
hringitónnn?
Ekki rétt?
Með
titrara.
Ætlar þú
ekki að taka
hann af?
Kemur ekki
til greina.
„Nemendur standa
saman í þessu máli
og við mótmælum al-
valdi skólayfirvalda.“
M
YN
D
: H
EL
G
I S
IG
U
RÐ
SS
O
N