Fréttablaðið - 28.07.2005, Side 10
10 28. júlí 2005 FIMMTUDAGUR
Ráðherra veldur hneykslan:
Sag›i íslam ekki si›menningu
ÍTALÍA, AP Ummæli ráðherra í ítölsku
ríkisstjórninni, þess efnis að íslam
væri ekki siðmenning, hefur valdið
mikilli hneykslan á Ítalíu. Hafa tals-
menn stjórnar- og stjórnarand-
stöðuflokka fordæmt ummælin og
lagt áherslu á að samræður við hóf-
sama múslima séu lykillinn að bar-
áttunni gegn hryðjuverkum.
Roberto Calderoli, ráðherra
kerfisumbóta, lét þau orð falla á
þriðjudag að nýjustu hryðjuverka-
árásirnar væru afleiðing „áreksturs
milli siðmenningar og ekki-sið-
menningar“. „Að skilgreina íslam
sem siðmenningu væri ofrausn,“
sagði Calderoli, en hann kemur úr
Norðurbandalaginu, hægriflokki á
Norður-Ítalíu sem hefur beitt sér
mjög fyrir takmörkunum á innflytj-
endastraumi og róttækum ráðstöf-
unum gegn hryðjuverkaógninni.
En Calderoli á sér augsýnilega
ófá skoðanasystkin. Í síðustu viku
kom út þriðja bók ítalska rithöfund-
arins Oriana Fallaci, þar sem hún
skrifar um ógnina sem Evrópu og
vestrænni menningu stafar af
múslimum. Fyrri bækur hennar um
efnið hlutu metsölu. - aa
Minna veitt af minki
Sveitarfélögum ber samkvæmt lögum a› ey›a grenjum en sökum minnkandi
flátttöku ríkisins í kostna›i vi› vei›ar er ví›a misbrestur á flví, einkum í
fámennum sveitarfélögum me› miki› landsvæ›i.
UMHVERFISMÁL „Ég hef verið að fá
fleiri minka í vor en dæmi eru
um án þess að hafa aukið sókn-
ina,“ segir Guðbrandur Sverris-
son, sem eyðir dýrum fyrir þrjú
sveitarfélög á Vestfjörðum.
Hann segist lengst af hafa verið
að fá um hundrað dýr á ári en
hafi fengið 170 í fyrra og ef
fram heldur sem horfir nær
hann yfir tvö hundruð dýrum í
ár. „Samt virðist þeim fjölga á
svæðinu.“
Samkvæmt lögum ber
sveitarfélögum að eyða tófu- og
minkagrenjum og lengi vel
skiptist kostnaður jafnt á milli
ríkis og sveitarfélaga. Þótt sama
upphæð hafi árum saman verið
eyrnarmerkt veiðunum á fjár-
lögum hefur aukafjárveiting
jafnan verið samþykkt fyrir því
sem upp á hefur vantað, þar til
fyrir þremur árum. Nú er hlut-
fall ríkisins komið undir þrjátíu
prósent.
Þá benda margir sveitar-
stjórnarmenn á að sveitarfélög
geti ekki nýtt virðisaukaskatt
sem þeir greiði veiðimönnum,
sér til lækkunar. Því sé hlutur
ríkisins í veiðunum ekki mikið
hærri en það sem þeir borgi í
skatt til ríkisins vegna veið-
anna.
Hjá Ísafjarðarbæ fengust
þær upplýsingar að á tæplega
700 kílómetra strandlengju séu
einu minkaveiðarnar fólgnar í
því að 12-14 æðarvörp séu vökt-
uð. Bærinn greiðir ekki öðrum
en ráðnum veiðimönnum fyrir
veiðar og þær standi aðeins yfir
í þrjá mánuði á ári. Í Súðavíkur-
hreppi, með 250 kílómetra
strandlengju í Ísafjarðardjúpi
er minki eytt skipulega en ekki
er gengið á tófugreni, heldur að-
eins sinnt útköllum frá bænd-
um.
„Okkur er ekki vel við refinn
en gerum þetta til að leggja
áherslu á misvægið,“ segir
Ómar Már Jónsson, sveitar-
stjóri. „Við bindum miklar vonir
við að ríkið komi meira að þessu
og geri okkur kleift að sinna
þessu með jafnmiklum sóma og
áður fyrr.“
Ómar segir kostnað sveitar-
félagsins við veiðar nema tíu
þúsund krónum á hvern íbúa.
„Það jafngildir því að Reykjavík
setti rúman milljarð í að eyða
meindýrum.“
grs@frettabladid.is
Erlendur tékkafalsari:
Í var›haldi
fram á haust
DÓMSMÁL Kona á þrítugsaldri sem
segist vera frá Líberíu en fram-
vísaði fölsuðu bresku vegabréfi við
komu til landsins í maí hefur verið
dæmd í gæsluvarðhald til 14. októ-
ber.
Konan framseldi falsaða tékka
hér á landi að andvirði rúmrar millj-
ónar króna en neitar að sér hafi ver-
ið kunnugt um að þeir væru falsaðir.
Hún var sýknuð af að hafa staðið í
skjalafalsi og stórfelldum auðgunar-
brotum í slagtogi við annan mann,
en sá var sakfelldur og hlaut fimm-
tán mánaða fangelsisdóm. Maðurinn
kveðst vera frá Nígeríu en rannsókn
lögreglu á því hver kærða er í raun
heldur áfram. - ht
Álver í Reyðarfirði:
Risakrani rís
vi› höfnina
ÁLVERSFRAMKVÆMDIR Verið er að
reisa nýjan hafnarkrana Sam-
skipa við álvershöfnina í Reyðar-
firði en kraninn er 400 tonn á
þyngd. Kraninn verður notaður
við höfnina á meðan á byggingar-
framkvæmdum álversins stend-
ur. Undirstaða kranans sem veg-
ur 100 tonn hefur þegar verið sett
saman ásamt stjórnklefanum og
60 tonna mastri. Á næstu dögum
verður bóma sett á mastrið auk
hífibúnaðar.
Bechtel hefur gert samning
við Samskip um að ferma og af-
ferma skip við höfnina á meðan
á byggingarframkvæmdum ál-
versins stendur. ■
LÖGREGLUFRÉTTIR
UMMÆLI FORDÆMD
Romano Prodi, leiðtogi ítölsku
stjórnarandstöðunnar, fordæmdi
orð ráðherrans Calderoli um að
íslam væri ekki siðmenning.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
P
ÍSLENSKUR REFUR Sveitarfélög á Vestfjörðum og víðar eru farin að draga úr veiðum á tófu og mink vegna aukins kostnaðar.
SIGLT UPP Í FJÖRU Smábátur
strandaði fyrir neðan bæinn
Setberg á Grundarfirði í gær-
morgun eftir að honum var
siglt upp í fjöru. Tveir menn
voru í bátnum og sakaði þá
ekki. Naut lögregla aðstoðar
björgunarsveita við að draga
bátinn aftur á flot en skemmdir
á honum eru taldar óverulegar.
VALT EFTIR ÁREKSTUR VIÐ
VÖRUBIFREIÐ Fólksbifreið var
dregin af vettvangi eftir
árekstur við vörubifreið á
Reykjanesbraut við Álftanes-
veg á níunda tímanum í gær-
morgun. Ökumenn beggja bif-
reiða voru fluttir á slysadeild
til athugunar en meiðsl þeirra
voru talin minniháttar.
Erlendir ferðamenn:
Veltu jeppa
eftir árekstur
BÍLVELTA Jeppi valt eftir árekstur
við fólksbíl á gatnamótum
Miklubrautar og Kringlumýrar-
brautar laust eftir klukkan átta í
gærmorgun.
Miklar umferðartafir urðu í
kjölfar óhappsins en draga
þurfti báða bílana burt. Þrír far-
þegar voru í jeppanum auk öku-
manns, allt erlendir ferðamenn.
Ökumaðurinn kvartaði undan
eymslum í læri en taldi ekki
ástæðu til að leita læknis að svo
stöddu. Ökumaður fólksbílsins
slapp ómeiddur.
- ht
Framtíðarstarf og
sumarafleysingar
AÐFÖNG óska eftir starfsmönnum á lyftara og í
lagerstörf.
Um er að ræða framtíðarstörf og einnig í sumarafleysingar. Við
bjóðum upp á góða tekjumöguleika, góða vinnu-aðstöðu og
mötuneyti er á staðnum. Leitað er að kraft-miklum og áreiðan-
legum einstaklingum sem eru eldri en 18 ára og vilja framtíðar-
starf hjá traustu og framsæknu fyrirtæki.
Umsóknareyðublöð má fá í móttöku Aðfanga að Skútuvogi 7,
104 Reykjavík einnig er hægt að sækja um á
www.adfong.is upplýsingar gefur Trausti í síma 693-5602.
Ástþór Magnússon:
Kærir DV
fyrir rógbur›
RÓGBURÐUR Ástþór Magnússon
hefur kært ritstjórn DV fyrir
meiðyrði vegna greinar sem
birtist í blaðinu á þriðjudaginn
var. Á forsíðu blaðsins var fyrir-
sögnin: „Ástþór Magnússon:
Blindfullur í miðbænum“. Í grein-
inni sjálfri var svo sagt að Ástþór
hefði verið í fylgd óþekktrar kær-
ustu og að hann hefði gert sig lík-
legan til slagsmála.
Ástþór vísar í fréttatilkynn-
ingu sögusögnum DV á bug og
segir atburðarásina sem lýst er í
DV uppspuna. Einnig áréttar hann
að þau Natalía Wium séu enn gift
og vilji vinna úr sínum einka-
málum án afskipta DV. - oá
ÁLVERSHÖFNIN Í REYÐARFIRÐI Mastur
nýja kranans gnæfir við himin.
ÁSTÞÓR MAGNÚSSON OG NATALÍA WIUM
Ástþór hefur kært DV fyrir meiðyrði.