Fréttablaðið - 28.07.2005, Blaðsíða 33
Tómatar Óþroskaðir tómatar eiga erfitt með að ná fullum þroska ef þeir eru
geymdir í ísskáp. Settu þá frekar í bréfpoka og geymdu þá við stofuhita.
Þroskaða tómata er best að geyma á köldum stað, þó ekki í ísskáp. Gæðin og
góða bragðið haldast ekki eins vel í of miklum kulda.[ ]
Ný tegund af sýrðum rjóma
MJÓLKURSAMSALAN HEFUR SETT Á MARKAÐ NÝJA TEGUND AF SÝRÐUM
RJÓMA SEM ER GÓÐ MEÐ GRILLMAT.
Í verslanir er komin ný tegund af sýrðum rjóma
bragðbætt með pipar. Mjólkursamsalan hefur
verið dugleg að kynna nýjar tegundir af sýrð-
um rjóma og eru fyrir til tegundir með chili-
pipar og pestói, graslauk, hvítlauk og svepp-
um.
Nýja tegundin er afar bragðgóð og rosalega
góð með alls kyns grænmeti og ekki síst grill-
matnum en sýrður rjómi getur einmitt komið í
staðinn fyrir ídýfur og sósur.
Apríkósur eru indælisávextir á
bragðið og eru auk þess auðugar af
beta-karótíni, kalíum og trefjum.
Apríkósur ættu að fyrirfinnast
ferskar í verslunum þessa dagana
en svo eru þær auðvitað einstaklega
ljúffengar þurrkaðar. Apríkósur
eru yfirleitt ekki búnar að ná full-
um þroska þegar þær koma í versl-
anir hérlendis, frekar en aðrir
ávextir. Leitaðu að ávöxtum sem
eru þrýstnir, þéttir í sér og appel-
sínugylltir að lit. Forðastu græn-
jaxlana þar sem þeir ná sennilega
aldrei fullum þroska.
Allar apríkósur ættu að
anga vel og hýðið ætti að
minna á flauel, laust við
skemmdir eða mar. Til
að apríkósurnar þroskist
er best að geyma þær í
bréfpoka við stofuhita í
tvo eða þrjá daga. Eftir
að þær hafa náð fullum
þroska geymast þær í plastpoka í ís-
skápnum í hámark tvo daga. Það
þarf alltaf að þvo apríkósur en ekki
þó fyrr en rétt áður en þeirra skal
neytt. Til að ná hýðinu af er ráð að
setja þær í sjóðandi vatn í 15-20
sekúndur og kæla svo strax undir
kaldri bunu. Þá ætti hýðið að nást
auðveldlega af.
Apríkósur er hægt að
stýfa úr hnefa eins og
flesta aðra ávexti, passið
ykkur bara á litla steinin-
um í miðjunni. Til að
koma í veg fyrir að
apríkósur dökkni eftir að
þær hafa verið skornar
má dreypa á þær
sítrónusafa. Apríkósur
eru ljúffengar í salat og einnig er
gott að grilla eða baka ferskar
apríkósur og bera fram með
kjúklingi eða mögru kjöti – nú, eða
sem eftirrétt með ís, vanilluskyri
eða þeyttum rjóma. Nammi, namm!
Gómsætir gullávextir
Apríkósur eru góðar og hollar og fást sérstaklega ferskar á þessum
árstíma. Þær eru gómsætar einar og sér en ekki síðri til bragðbætis.
APRÍKÓSUKJÚKLINGUR FRÁ
MIÐ-AUSTURLÖNDUM
„DJEDJAD“:
Blandið saman:
1/4 bolla af hvoru, smjöri og hunangi
1 teskeið af hvoru, vatni og salti
1/2 teskeið svörtum pipar
Nuddið þessu yfir og allt um kring
2 kíló af kjúklingi eða gæs
Bakið í ofni í ofnföstu fati við 225˚ C
þar til kjúklingurinn hefur náð gylltri
áferð.
Lækkið hitann í 175˚ C og bætið í
mótið:
1/2 kílói af ferskum apríkósum,
steinlausum og skornum í tvennt
1 matskeið af sykri
Baðið kjúklinginn og apríkósurnar
upp úr safanum í fatinu og bakið í
20 mínútur eða þar til apríkósurnar
eru orðnar mjúkar. Færið yfir á hitað-
an disk, hellið safanum yfir eins og
sósu og skreytið með 1/2 bolla af
ristuðum möndlum eða söxuðum
pistasíuhnetum.
Nægir handa 6-8 manns.
Apríkósukjúkling má borða á ýmsan hátt, til dæmis með mismunandi krydduðum hrís-
grjónum.
Apríkósur eru bestar ef
þær eru appelsínugylltar
að lit.