Fréttablaðið - 15.09.2005, Síða 2

Fréttablaðið - 15.09.2005, Síða 2
2 Fjöldi Íslendinga ver jólunum á Kanaríeyjum: Fimmtán flugvélar a› fyllast FERÐALÖG Vel á þriðja þúsund Ís- lendingar hafa þegar bókað ferð til Kanarí yfir jólin. Uppselt er í sam- tals tólf ferðir á vegum fjögurra ferðaskrifstofa en enn eru nokkur sæti laus í vélar á vegum þriggja þeirra. Fjórar vélar fara utan á vegum Úrvals Útsýnar og að sögn Helga Eysteinssonar eru ennþá laus sæti í eina. Á vegum fyrirtækisins verða því rúmlega átta hundruð manns á Kanarí yfir jólahátíðina. Sömu sögu er að segja af Sumar- ferðum, fjórar vélar fara til Kanarí og Tenerife á vegum þeirra og er uppselt í þær allar. Að auki bjóða Sumarferðir upp á jólaferð til Alicante og er uppselt í hana. Guðbjörg Sandholt hjá Heims- ferðum segir að milli sjö og átta hundruð manns verði á þeirra veg- um á Kanarí yfir jólin. Þegar hefur selst upp í tvær ferðir en nokkur sæti eru laus í þriðju ferðina. Laufey Jóhannsdóttir hjá Plús- ferðum segir það sama uppi á ten- ingnum á þeim bæ, allt er að seljast upp en fjórar vélar fara til Kanarí á vegum Plúsferða fyrir þessi jólin. - bþs DÓMSMÁL Bandarískur ferðamað- ur var í gær dæmdur í Héraðs- dómi Reykjavíkur fyrir líkams- árás. Var hann dæmdur í tveggja mánaða fangelsi, en refsing fellur niður eftir tvö ár, haldi hann al- mennt skilorð. Tildrög málsins eru þau að maðurinn sem er á þrítugsaldri lenti í hörðum átökum við Íslend- ing fyrir utan veitingastaðinn Sól- on aðfaranótt sunnudags. Tildrög eru ekki ljós, en Íslendingurinn slasaðist allmikið, kinnbeins- brotnaði, botn undir hægra auga brotnaði og færðist til og hann hlaut skurð við hægra auga sem sauma þurfti saman. Sjálfur hand- arbrotnaði ferðamaðurinn í at- ganginum. Hann var þegar úr- skurðaður í farbann, sem átti að renna út klukkan 16 í gær. Ákveð- ið var að setja mál hans í flýti- meðferð. Honum var síðan birt ákæra í Héraðsdómi Reykjavíkur eftir há- degi í gær. Hann játaði sök og var frjáls ferða sinna eftir að dómur- inn hafði verið kveðinn upp. - jss Grei›slubyr›i eykst vegna ver›bólgu Ver›trygging húsnæ›islána tí›kast hvergi nema á Íslandi ef mi›a› er vi› lönd innan OECD. Ver›bólgan nú hefur flau áhrif a› afborganir á húsnæ›islánum hækka jafnvel um tugi flúsunda á ári. VERÐBÓLGA Verðtrygging húsnæð- islána gerir það að verkum að greiðslubyrði þriggja herbergja íbúðar sem metin er á 20 milljónir er rúmum 16 þúsund krónum hærri á ári en ef verðbólgan væri í samræmi við verðbólgumarkmið Seðlabankans. Ef tekið er dæmi af þriggja herbergja íbúð sem fjármögnuð er með 90 prósenta láni, 18 millj- óna króna láni, á 4,15 prósenta vöxtum til 20 ára er mánaðarleg greiðslubyrði þegar verðbólga er engin um 111 þúsund krónur. Ef verðbólgan er í samræmi við verðbólgumarkmið Seðlabankans, eða 2,5 prósent hækkuðu greiðsl- urnar um 18 þúsund krónur á ári, eða um 1500 krónur á mánuði að jafnaði. Greiðslubyrði lánsins þegar verðbólga er sú sem hún mælist nú, 4,8 prósent, er rúmum 34 þús- und krónum hærri á ári en ef verðbólgan væri engin, sem sam- svarar um 2.800 krónum á mánuði að meðaltali. Greiðslubyrði af 18 milljóna króna láni er því tæpum 1.400 krónum hærri á mánuði þegar verðbólgan mælist 4,8 prósent en ef verðbólgan væri í samræmi við markmið Seðlabankans. Þingmenn Samfylkingarinnar lögðu fram þingsályktunartillögu í þriðja sinn á síðasta þingi þar sem lagt var til að skipuð yrði nefnd sem legði mat á afnám verðtryggingar lána. Þá var sam- þykkt svipuð tillaga á flokksþingi Framsóknarflokksins í vor. Í greinargerð með þingsálykt- unartillögunni kom fram að Ís- land væri eina landið innan Efna- hags- og framfarastofnunarinnar, OECD, þar sem verðtryggingum væri beitt á lán til heimila. Verð- tryggingar í öðrum löndum ein- skorðuðust við ríkisskuldabréf. Verðtryggingu lána var komið á á Íslandi fyrir rúmlega þrjátíu árum og var markmið hennar að hindra að sparifé landsmanna brynni upp í mikilli verðbólgu eins og raunin hafði verið á sjötta og sjöunda áratugnum. Í umræðunum á Alþingi sagði Valgerður Sverrisdóttir viðskipta- ráðherra að ástæða væri til að fara að huga að slíkum breyting- um en hún vildi stíga varlega til jarðar. sda@frettabladid.is FRIÐRIK J. ARNGRÍMSSON Friðrik, sem er framkvæmdastjóri LÍU, segir útgerðir ákveða sjálfar hvort þær vilji reyna að sækja fyrir dómi bætur vegna ólöglegs verðsamráðs olíufélaganna. Ólöglegt verðsamráð: Útger›ir íhuga málssókn OLÍUSAMRÁÐ Á næstu vikum skýrist hvort útgerðir fara í mál við olíufélögin til greiðslu skaða- bóta vegna ólöglegs samráðs þeirra. Friðrik J. Arngrímsson, fram- kvæmdastjóri Landssambands ís- lenskra útvegsmanna, segir ákvörðun um málshöfðun sé á hendi félaganna sjálfra. Aðstæður útgerða og afstaða til málsins kunni að vera mismunandi. „Sumir voru tengdir heims- markaðsverði og aðrir keyptu olíu á svokölluðu listaverði. Það kem- ur fljótlega í ljós hvort menn ætla í mál,“ segir hann og telur ekki ólíklegt að einhver útgerðarfélög gætu þá tekið sig saman um ein- hvers konar samrekstur mála. - óká EGYPTALAND RÁÐHERRA SEGIR AF SÉR Menn- ingarmálaráðherra Egyptalands sagði af sér í gær vegna eldsvoða sem varð 42 að bana í ríkisreknu leikhúsi 5. september. Ráðherr- ann hefur gegnt embættinu síðan 1987 en ekki er vitað hvort Mubarak forseti hefur fallist á afsögn hans. SPURNING DAGSINS Ingi fiór, kom Se›labankinn aldrei til greina? „Ónei.“ Ingi Þór Jónsson ólympíusundkappi er sendiherra Evrópu vegna fyrstu heimsleika samkynhneigðra í Montreal á næsta ári. 15. september 2005 FIMMTUDAGUR KANARÍ Á þriðja þús- und Íslendingar hafa þegar bókað ferð til Kanarí yfir jólin. HÉRAÐSDÓMUR REYKJAVÍKUR Átökin brutust út fyrir utan veitingahúsið Sólon aðfaranótt sunnudagsins. Ofbeldismál fær flýtimeðferð í Héraðsdómi Reykjavíkur: Bandarískur fer›ama›ur dæmdur fyrir líkamsárás AFBORGANIR AF HÚSNÆÐISLÁNUM HÆKKA MEÐ VERÐBÓLGUNNI Greiðslubyrði af 18 milljóna króna húsnæðisláni er um 16 þúsund krónum hærra ef verðbólga er eins og nú, 4,8 prósent, en ef verðbólgan væri í samræmi við markmið Seðlabankans, 2,5 prósent. Greiðslubyrði á ári af 18 milljóna króna láni á 4,15 prósenta vöxtum Verðbólga 0% 2,50% 4,80% Greiðslubyrði ári: 1.328.388 kr. 1.346.283 kr. 1.362.622 kr. Greiðslubyrði á mánuði 110.700 kr. 112.200 kr. 113.600 kr. að meðaltali: EVRÓPA LÝÐRÆÐIÐ JARÐAÐ Í MOSKVU Tugir félaga í rússneska stjórnar- andstöðuflokknum Yabloko jörð- uðu lýðræði í landinu við hátíð- lega athöfn, steinsnar frá þing- húsi landsins. Athöfnin var ætluð Vladimir Pútín Rússlandsforseta til háðungar, en hann hefur af- boðað sveitarstjórnarkosningar í landinu. Bandarísk stjórnvöld: Vissu ekki af Atta WASHINGTON, AP Fyrrverandi yfir- menn nefndarinnar sem rannsak- aði árásirnar á Bandaríkin 11. september 2001, vísa á bug full- yrðingum um að stjórnvöld hafi vitað fyrir hryðjuverkin að Mo- hammed Atta, forsprakki árás- armannanna, hafi verið í al-Kaída. Þingmaður Repúblikana sakaði nefndina um að horfa fram hjá upplýsingum um að leyniþjónusta Bandaríkjanna bar kennsl á Atta og þrjá aðra árásarmenn áður en árásirnar voru gerðar. Nefndarmenn segja engar vís- bendingar benda til að vitað hafi verið um tilvist Atta fyrir 11. september. ■ Lögreglan á Egilsstöðum: Hrosshú›ar- fljófar fundnir ÞJÓFNAÐUR Fimm Spánverjar sem í fyrrakvöld stálu hrossahúð á Hótel Valhöll á Þingvöllum voru gómaðir af lögreglunni á Egils- stöðum um hádegisbilið í gær á hóteli þar í bænum. Þeir fengust til að skila húðinni og verða því engir frekari eftir- málar. Lögreglan á Egilsstöðum segir að mennirnir hafi gefið ótrúverð- ugar skýringar á athæfi sínu og meðal annars sagt að ekki hafi staðið til að fara með húðina til Spánar heldur að skila henni áður en Íslandsförinni lyki. - jse VESTFIRÐIR BERJAST GEGN BÍLAKIRKJUGARÐI Opnuð hefur verið vefsíða þar sem safnað er undirskriftum þeirra sem vilja að bílakirkju- garðurinn á Garðstöðum við Ísa- fjarðardjúp verði fjarlægður. Það er fjölskyldan frá Ögri sem stendur fyrir mótmælunum en bílakirkjugarðurinn blasir þar við. Meðal mótmælenda er Hall- dór Halldórsson, bæjarstjóri á Ísafirði. VALHÖLL Á ÞINGVÖLLUM Hrosshúðin sem tekin var ófrjálsri hendi er aftur komin til Valhallar.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.