Fréttablaðið - 15.09.2005, Blaðsíða 4
KAUP
Gengisvísitala krónunnar
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
USD
GBP
EUR
DKK
NOK
SEK
JPY
XDR
62,2 62,5
113,5 114,06
76,39 76,81
10,242 10,302
9,775 9,833
8,176 8,224
0,5641 0,5673
91,41 91,95
GENGI GJALDMIÐLA 14.09.2005
GENGIÐ
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
SALA
107,1079
4
Reglur Háskólans um fyrningu eininga eru sveigjanlegar:
Gísli samdi um undanflágu
NÁM Gísli Marteinn Baldursson
varaborgarfulltrúi segist túlka það
svo að þegar hann samdi um náms-
lok í námi sínu í stjórnmálafræði
árið 2002 við Háskóla Íslands, hafi
hann fengið undanþágu frá reglum
deildarinnar um hámarksnáms-
tíma, líkt og margir hafi gert á
undan honum.
Samkvæmt þeim reglum er há-
marksnámstími fjögur og hálft ár,
en heimilt er að veita undanþágu
frá þessum tímamörkum þegar
sérstaklega stendur á. Gísli Mart-
einn hóf nám í stjórnmálafræði
árið 1992, fyrir 13 árum.
Samkvæmt ströngustu túlkun á
reglum skorarinnar ætti það nám
sem hann hefur þegar lokið að
vera nú fyrnt og þyrfti hann því að
hefja nám að nýju. Í reglum skor-
arinnar segir: „Skor metur að jafn-
aði síður námskeið ef langt er síð-
an stúdent lauk þeim eða ef árang-
ur stúdents er lakur.“
Indriði H. Indriðason, skorar-
formaður stjórnmálafræðiskorar
segist ekki muna eftir öðru tilfelli,
þar sem svo langt er síðan nemandi
hóf nám óskaði eftir undanþágu.
Hvort undanþága sé veitt fari eftir
því hvað mörgum einingum er lok-
ið. „Almennt höfum við haft frekar
sveigjanlegar reglur.“ - ss
Kona lést í óve›ri í Noregi
Ney›arástandi var l‡st yfir í Björgvin í Noregi í gær eftir fló› og skri›uföll í kjölfar stórrigninga er fylgdu
fellibylnum Maríu. Á anna› hundra› manns loku›ust inni í ra›húsahverfi. firátt fyrir ófarirnar fór knatt-
spyrnuma›urinn Ólafur Örn Bjarnason á æfingu. Úrkomumet voru slegin og enn er spá› rigningum.
NOREGUR „Þetta er búið að vera
ansi mikið ástand hérna,“ segir
Tryggvi Magnússon, háskóla-
stúdent í Björgvin í Noregi.
„Skriður féllu hér yfir raðhúsa-
hverfi og það er talið hafa orðið
einhverjum til lífs að hversu
slökkviliðsmenn voru snöggir á
vettvang,“ segir Tryggvi. Neyð-
arástandi var lýst yfir í borginni
í gær eftir að aurskriður féllu í
kjölfar úrhellis og hvassviðris
sem geisaði Vestur-Noregi.
Tryggvi segir að slökkviliðs-
menn hafi þegar hafist handa
við að dæla vatni burt úr ná-
grenni hverfisins og allt tiltækt
lið lögreglu og
björgunarsveita hafi verið í við-
bragðsstöðu. Einnig var há-
skólasjúkrahúsið í Haukalandi
búið undir neyðarástand og allt
tiltækt aukastarfslið kallað út.
Þessum viðbúnaði var þó aflétt
þegar leið á daginn.
Að sögn Tryggva var borgin
lömuð í gærmorgun, þar eð
skriður höfðu víða fallið yfir
vegi eða þá að vatn hreinlega
fossaði eftir þeim. Fólki var ráð-
lagt að halda sig heimavið eftir
fremsta megni og nota almenn-
ingsfarartæki ef þörf krefði.
„Hér hefur vatnið sjatnað mikið
en það er þó líklegt að meira eigi
eftir að skila sér úr fjöllunum.
Ólafur Örn Bjarnason, knatt-
spyrnumaður hjá liðinu Brann í
Björgvin, segir að ástandið hafi
verið bundið við afmörkuð
svæði. Af þeim sökum hafi
Brann til dæmis haldið knatt-
spyrnuæfingu til streitu í gær-
morgun, enda þótt blautt hafi
verið á vellinum. „Ræsin höfðu
ekki við og þess vegna flæddi
mikið. Veðrið hefur lagast mik-
ið,“ segir Ólafur.
Kona á sextugsaldri lést og
níu eru slasaðir. Á annað hund-
rað manns lokuðust á tímabili
inni í raðhúsahverfinu og náði
skriðan að feykja með sér hús-
um og bifreiðum. Stóru verslun-
arhúsi hefur verið lokað um óá-
kveðinn tíma því óttast er að það
geti hrunið.
saj@frettabladid.is
Héraðsdómur Vestfjarða:
Segir uppsögn
ólöglega
DÓMSMÁL Ingibjörg Ingadóttir,
kennari við Menntaskóla á Ísafirði,
krefst þess að fá launagreiðslur
sem henni beri sem sviðsstjóra í
erlendum málum.
Ólína Þorvarðardóttir skóla-
meistari hafði sagt Ingibjörgu upp
í þeirri stöðu þar sem Ingibjörg
væri ekki með tilskilin próf í
ensku. Málið var þingfest fyrir
Héraðsdóm Vestfjarða í dag.
Ingibjörg segir uppsögnina
ólöglega og að skólameistara væri
fyrir löngu kunn ferilsskrá hennar.
Ingibjörg og Ólína hafa áður deilt
fyrir dómstólum en því máli lauk
með dómsátt síðastliðið vor. - jse
Bílvelta á Reykjanesbraut:
Slasa›ist ekki
alvarlega
SLYS Bílvelta varð á Reykjanes-
braut á Strandarheiði klukkan sjö
í gærkvöld.
Varnarliðsmaður sem var á leið
til Keflavíkur missti stjórn á bíln-
um og fór hann ofan í dæld sem er
á milli akreinanna en Reykjanes-
braut er tvöföld á þessum kafla.
Varð að klippa manninn úr bílnum
en hann var síðan fluttur á Land-
spítalann í Fossvogi. Hann var all-
an tímann með meðvitund og að
sögn læknis benda fyrstu rann-
sóknir til að hann sé ekki alvar-
lega slasaður. Bíllinn er hinsvegar
gjörónýtur að sögn lögreglunnar.
Grunur leikur á að maðurinn
hafi sofnað undir stýri. - jse
15. september 2005 FIMMTUDAGUR
GÍSLI MARTEINN Á IÐNÓFUNDI Skorarfor-
maður stjórnmálafræðiskorar segir að al-
mennt hafi verið sveigjanlegar reglur í gildi
fyrir þá námsmenn sem taka tímann sinn
til að klára námið.
HAFNARFJÖRÐUR
HAMBORGARABÚLLAN FÆR VÍN-
VEITINGALEYFI Bæjarstjórn
Hafnarfjarðar samþykkti á
þriðjudag að rekstararaðili veit-
ingastaðarins Hamborgarabúlla
Tómasar muni fá vínveitingaleyfi
til eins árs. Leyfilegt verður að
veita áfengi til 23.30 alla daga,
utan aðfaranætur laugardags,
sunnudags eða almenns frídags,
þegar leyft verður að veita
áfengi til klukkan eitt.
RAÐHÚSAHVERFI Í BJÖRGVIN Hér sést hvar hluti skriðunnar féll. Skriðan ruddi með sér
húsum og bílum. Nálægð slökkviliðs varð fólki til bjargar.
ÓLAFUR ÖRN BJARNASON
Ólafur fór á knattspyrnuæf-
ingu í gærmorgun. Völlurinn
var þá nánast á floti. Hann
segir ástandið hafa verið
bundið við afmörkuð svæði.
Á HVOLFI Ökumaður missti stjórn á bíl
sínum á Reykjanesbrautinni undir kvöld í gær.
BANDARÍKIN
KÓKAÍN NÁÐIST Á SJÓ Banda-
ríska strandgæslan lagði hald á
2,5 tonn af kókaíni í gær er hún
stöðvaði skip á leið frá Ekvador
til Bandaríkjanna. Átta menn
voru handteknir um borð í skip-
inu en talið er að fíkniefnin hafi
verið frá Kolumbíu.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/H
EI
Ð
A