Fréttablaðið - 15.09.2005, Qupperneq 6
6
Íslandsmiðill og Tengir hyggja á stórfellda dreifingu sjónvarpsefnis:
Vi›ræ›ur hafnar um Enska boltann
FJÖLMIÐLAR Gunnar Björn Þór-
hallsson, framkvæmdastjóri
Tengis á Akureyri, segist ekki
vita hvar eða hvernig Íslenska
sjónvarpsfélagið afhendi Tengi
sjónvarpsmerki félagsins vegna
Enska boltans. Viðræður séu
hafnar og hafi Tengir svarað
spurningalista félagsins fyrir
helgi. Nú sé beðið eftir við-
brögðum.
„Ég geri ráð fyrir því að fá
allar íslenskar stöðvar inn á
ljósleiðaranetið sem við höfum.
Þegar er Ríkissjónvarpið og Ak-
sjón komið. Skjár einn hlýtur að
fylgja með Enska boltanum og
við erum búnir að senda fyrir-
spurnir um að fá Stöð 2 og Sýn
inn á kerfið.
Vonir standa til að viðskipta-
vinir okkar geti fengið allar
sjónvarpsstöðvarnar í gegn um
sömu tenginguna,“ segir Gunn-
ar.
Njörður Tómasson, fram-
kvæmdastjóri Íslandsmiðils,
segir einnig að viðræður séu
hafnar við Íslenska sjónvarpfé-
lagið. „Ég fagna þessum úr-
skurði samkeppnisyfirvalda og
geri ráð fyrir að nú geti flutn-
ingsfyrirtæki flutt allt það efni
sem framleitt er á Íslandi og
neytendur vilja fá. Það hefur
verið gerð tilraun til að læsa
efni inni á tilteknum dreifileið-
um, en nú er verið að girða fyrir
það.
Það er aðeins verið að rjúfa
þessi sterku tengsl á milli fjöl-
miðla og fjarskiptafyrirtækja.“
- ss
Lokaleit um helgina
Ma›urinn sem sakna› er eftir sjóslys á Vi›eyjarsundi er talinn af. Í slysinu
fórst einnig kona, en hjón me› 10 ára dreng björgu›ust. Lögregla tók af fleim
sk‡rslur í gær. Formlegri leit a› líki mannsins ver›ur ekki haldi› áfram í dag.
SJÓSLYS Formlegri leit að Friðriki
Ásgeiri Hermannssyni sem leitað
hefur verið eftir sjóslys á Viðeyj-
arsundi aðfaranótt laugardags
verður ekki haldið áfram í dag eða
á morgun. Jónas Hallsson aðstoð-
aryfirlögregluþjónn segir Friðrik
Ásgeir talinn af og að stefnt sé að
lokaleit að líki hans um helgina.
Í gær fóru leitarmenn Lands-
bjargar um sundin með neðan-
sjávarmyndavél auk þess sem leit-
að var á fjörum og úr lofti. Jónas
segir þó að verið geti að vinir og
ættingjar Friðriks Ásgeirs haldi
áfram einhverri leit fram að helgi.
Hörður Jóhannesson, yfirlög-
regluþjónn í Reykjavík, segir unn-
ið hörðum höndum að rannsókn
slyssins. Í gær voru teknar skýrsl-
ur af hjónunum sem slösuðust í
slysinu. Þá hefur lögregla farið
yfir símtöl sem Neyðarlínu bárust
úr bátnum eftir slysið, en sam-
kvæmt heimildum blaðsins voru
um borð fleiri en einn farsími.
Meðal þess sem til rannsóknar
er vegna slyssins eru siglingatæki
skemmtibátsins sem fórst. Margir
nýrri bátar eru búnir fullkomnu
GPS-staðsetningarkerfi oft tengdu
sjókortum, en fyrir hafa komið
bilanir í gervitunglum sem valda
tímabundinni skekkju í slíkum
tækjum. Arnór Bergur Kristins-
son, sérfræðingur gervihnatta-
leiðsögumála hjá Flugmálastjórn
Íslands, segist þó ekki vita til að
slík villa hafi komið upp um síð-
ustu helgi. Hann bendir þó á að í
Bandaríkjunum sé starfrækt
WAAS-leiðréttingarkerfið fyrir
GPS-tæki og sendingar þess náist
hér.
„Ef tæki er stillt á að nema þær
sendingar, þá eykur það staðsetn-
ingarskekkju um 10 til 20 metra,“
segir hann. Unnið er að uppsetn-
ingu evrópska leiðréttingarkerfis-
ins EGNOS hér, en það er ekki enn
komið í gagnið.
Þá bendir Arnór á að um helg-
ina hafi geisað mikill sólstormur
sem gæti hafa haft áhrif á stað-
setningartæki. „En þeirra áhrifa
gætti þó aðallega á daghlið jarð-
ar,“ segir hann.
olikr@frettabladid.is
Kaþólikkar á Norður-Írlandi:
Vilja strangari hömlur
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
L†
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
L
YF
2
95
05
09
/2
00
5
www.lyfja.is
- Lifið heil
BYGGIR UPP BRJÓSK Í LIÐUM
Liðaktin
Garðatorgi - Grindavík - Keflavík - Kringlunni - Lágmúla - Laugavegi - Setbergi - Smáralind - Smáratorgi - Spönginni -
Egilsstöðum - Höfn - Fáskrúðsfirði - Seyðisfirði - Neskaupstað - Eskifirði - Reyðarfirði - Ísafirði - Bolungarvík - Patreksfirði -
Borgarnesi - Grundarfirði - Stykkishólmi - Búðardal - Húsavík - Kópaskeri - Raufarhöfn - Þórshöfn - Sauðárkróki - Blönduósi -
Hvammstanga - Skagaströnd - Selfossi - Laugarási
Lið-Aktín samanstendur af tveimur efnum, glúkósamín HCL og kondróití súlfati. Líkaminn getur framleitt
glúkósamín en svo virðist sem fólk tapi hæfni til þess með aldrinum, sem verður til þess að brjósk í
líkamanum þynnist og missir eiginleika sína sem höggdeyfir. Þetta er talið einn af þeim þáttum sem leiða
t.d. til slitgigtar. Glúkósamín HCL og kondróitín súlfat vinna á þrenns konar hátt í líkamanum, þau örva
endurbyggingu á skemmdu brjóski, hafa bólgueyðandi áhrif ásamt því að hemja virkni ensíma sem eyði-
leggja brjósk.
Á verkalýðsforystan að segja
upp kjarasamningum?
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Gætir þú hugsað þér að nota
heimasíma um netið?
Niðurstöður gærdagsins á visir.is
27,1%
72,9%
Nei
Já
Farðu inn á fréttahluta visir.is
og segðu þína skoðun
KJÖRKASSINN
15. september 2005 FIMMTUDAGUR
DÓMSTÓLAR Launaábyrgðir ríkisins
fyrir Bandaríkjaher gætu aukist
um tugi milljóna ef Rafiðnaðarsam-
bandið vinnur mál á hendur ríkinu í
Hæstarétti. Í vor vann sambandið
málið í héraðsdómi, en því var
áfrýjað og verður flutt í Hæstarétti
í október.
Nú þegar skulda Bandaríkin rík-
inu tæpar sex milljónir vegna launa
sem herinn vill ekki borga og ríkið
hleypur undir bagga með, eftir dóm
sem féll í fyrrasumar. „Við teljum
að starfsmannahald varnarliðsins
hafi brotið úrskurð kaupskrár-
nefndar með því að fella burt
ákveðin atriði á borð við bíla- og
ferðapeninga,“ segir Einar Jón
Ólafsson, starfsmaður á skrifstofu
Rafiðnaðarsambandsins. Málið
snertir upp undir 100 starfsmenn
varnarliðsins.
Lára V. Júlíusdóttir hæstaréttar-
lögmaður sem fór með málið í hér-
aði segir tekist á um hvort varnar-
liðið geti sjálft sagt upp hluta af
ráðningarkjörum, eða hvort til þurfi
að koma úrskurður kaupskrár-
nefndar. „Í heild snýst þetta um ein-
hverja tugi milljóna, en upphæðir
eru misháar eftir starfsmönnum,“
segir hún. - óká
GUNNAR BJÖRN ÞÓRHALLSSON
Framkvæmdastjóri Tengis á
Akureyri segir viðræður hafnar
við Íslenska sjónvarpsfélagið
um dreifingu á Enska boltanum.
Deilur um launagreiðslur varnarliðsins fyrir dómstólum:
Ríki› gæti flurft a› borga meira
LÁRA V. JÚLÍUSDÓTTIR Lára, sem er
hæstaréttarlögmaður og sérfróð um
vinnurétt, vann í apríl mál á hendur
ríkinu fyrir héraðsdómi, þar sem tekist
var á um launagreiðslur varnarliðsins.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/S
TE
FÁ
N
LAGT UPP TIL LEITAR Síðustu daga hefur staðið yfir viða-
mikil leit að manni sem talinn er af eftir að skemmtibát-
ur sigldi á Skarfasker á Viðeyjarsundi um helgina. Form-
legri leit hefur nú verið hætt fram að helgi.
ARNÓR BERGUR
KRISTINSSON
Arnór Bergur er raf-
magnsverkfræðing-
ur og sérfræðingur
gervihnattaleið-
sögumála hjá Flug-
málastjórn Íslands,
auk þess að vera
verkefnisstjóri
EGNOS-leiðrétting-
arkerfisins fyrir GPS-
tæki hér á landi.
N-ÍRLAND, AP Kaþólikkar í Belfast
hafa krafist þess að Óraníureglunni
verði settar enn strangari hömlur
en áður eftir að fulltrúar hennar
höfnuðu í gær alfarið að bera
nokkra ábyrgð á óeirðum í borginni
fyrir skemmstu.
81 lögregluþjónn særðist, 116
bifreiðum var stolið eða kveikt í og
146 heimagerðar sprengjur voru
sprengdar eftir að Óraníumönnum
höfðu fengið sínar viðvaranir
lögreglu.
Mótmælendur settu upp vega-
tálma víða um Belfast í gær til að
lýsa yfir andúð sinni á þeim takmörk-
unum sem þeir þurfa að sæta. ■
MÓTMÆLENDUR MÓTMÆLA Íbúar í mót-
mælendahverfinu Shankill Road í Belfast
settu upp vegatálma og töfðu umferð á
háannatíma.