Fréttablaðið - 15.09.2005, Síða 8

Fréttablaðið - 15.09.2005, Síða 8
VISTASKIPTI Brynhildur Ólafsdóttir hefur tekið við starfi forstöðu- manns Alþjóðamálastofnunar og Rannsóknaseturs um smáríki við Háskóla Íslands. Gegnir hún starf- inu í rannsóknarleyfi Ásthildar Elvu Bernharðsdóttur. Alþjóðamálastofnun og Rann- sóknasetur um smáríki eru rann- sókna-, fræðslu- og þjónustustofn- anir og eru vettvangur fyrir þver- faglegt samstarf á sviði alþjóða- mála og smáríkjarannsókna. Báðar stofnanirnar sinna fjölbreyttum rannsóknum og útgáfustarfsemi á sviði alþjóðamála og smáríkja- fræða og standa fyrir ráðstefnum, málstofum og fyrirlestrum. Brynhildur hefur unnið á fjöl- miðlum mörg undanfarin ár, lengst af sem fréttamaður á Stöð 2 þar sem hún hefur verið yfirmað- ur erlendra frétta síðustu ár. Jafn- framt hefur hún sinnt stunda- kennslu við stjórnmálafræðiskor félagsvísindadeildar HÍ og kennt námskeið um stjórnmál þriðja heimsins og hryðjuverk. Brynhildur verður í hlutastarfi á Stöð 2, samhliða því að gegna forstöðumannsstöðunni. - bþs 1Hverjir ætla að reka farþegaflutninga-skipið Herjólf frá næsta ári? 2Inn í hvaða tölvuverslun í Kópavogióku þjófar skurðgröfu? 3Fyrir hve mörgum öldum varBrynjólfur biskup Sveinsson í Önundarfirði fæddur? SVÖRIN ERU Á BLS. 30 VEISTU SVARIÐ? 8 Rannsóknasetur við Háskóla Íslands: Brynhildur rá›in forstö›uma›ur Yfir 400 börn enn á bi›listum Rúmlega 400 börn bí›a enn eftir plássi á frístundaheimilum borgarinnar vegna skorts á starfsfólki. Á leik- skólana vantar um 100 starfsmenn. Háskólanemar og eldra fólk hefur rá›ist til starfa á sí›ustu dögum. Ör›ugast er a› fá fólk til starfa í úthverfum. Stefán Jón Hafstein segir rá›ningar ekki ganga nógu hratt. Enn vantar um 185 starfsmenn á leikskóla og frístundaheimili í Reykjavík. Að sögn Gerðar G. Ósk- arsdóttur, sviðsstjóra Menntasviðs Reykjavíkurborgar, á enn eftir að fylla um100 stöður í leikskólum. Soffía Pálsdóttir, æskulýðsfulltrúi hjá Íþrótta- og tómstundaráði sem rekur frístundaheimili grunnskól- anna, segir að enn vanti um 85 starfsmenn. Nokkuð vel gekk að ráða fólk í síðustu viku því háskóla- nemar hafa nú fengið afhentar stundarskrár og geta þar af leiðandi ráðið sig til vinnu. Börnum á biðlist- um frístundaheimilanna hefur að sama skapi fækkað í 416 úr 511. Að sögn Soffíu er ástandið á frístundaheimilunum verst í út- hverfum. „Það er erfiðast í Breið- holti og Grafarholti og en fólk ber því við að of langt sé að ferðast þangað til vinnu þegar vinnutím- inn er aðeins þrjár til fjórar stundir á dag,“ segir hún. „Mikið af starfsfólki frístundaheimilanna er háskólafólk sem vill vinna sem næst miðbænum.“ Að undanförnu hefur ÍTR hef- ur auglýst eftir eldra fólki í störf á frístundaheimilum. Að sögn Soffíu hefur aldurshópurinn 60 ára og eldri brugðist vel við og þó nokkuð af starfsfólki skilað sér úr þeim hópi. Vonast hún til að enn fleiri eldri borgarar sjái sér hag í því að starfa á þessum vettvangi. „Við getum ekki gefist upp og verðum að reyna að halda áfram að finna starfsfólk,“ segir Soffía. Starfsmannamál leikskólanna verða rædd í borgarráði og menntaráði í dag. Stefán Jón Haf- stein, borgarfulltrúi R-listans og formaður borgarráðs, segir að ráð- ið muni ræða útfærslu á 50 millj- óna króna aukafjárveitingu sem samþykkt var í síðustu viku og ætl- uð var til að hjálpa til við að leysa starfsmannavanda leikskóla og frí- stundaheimila. Hann segir stöðuna hafi batnað á síðustu dögum og biðlistar á frístundaheimili styst. „Það gengur samt ekki nógu hratt að mínu mati og þykir mér það óskaplega leitt fyrir hönd þeirra sem vilja veita góða þjónustu,“ seg- ir Stefán Jón. sda@frettabladid.is Lögreglan á Akureyri: Reglusamir menntskælingar LÖGREGLUMÁL Nemendur í 4. bekk Menntaskólans á Akureyri komu til landsins í gær úr skólaferðalagi í Tyrklandi. Gerði lögreglan viðeig- andi ráðstafanir og var á svæðinu með fíkniefnaleitarhund frá toll- gæslunni. Að sögn lögreglu er hann svo næmur að hann nemur ekki einung- is hvort menn séu með fíkniefni á sér heldur þefar hann uppi menn sem hafa neytt fíkniefna jafnvel dögum áður. Lögreglu og öðrum til mikillar ánægju sá hundurinn enga ástæðu til að hafa frekari afskipti af nein- um menntskælinganna sem þó voru fjölmargir að sögn lögreglunnar.- jse Ættingi fékk póstkort: Rita er óhult eftir fellibylinn HAMFARIR Íslenska konan Rita Gaudin og sonur hennar David, sem ættingjar söknuðu hér heima eftir fellibylinn Katrínu, eru kom- in í leitirnar. Ólafur Sigurðsson, sendifulltúi utanríkisráðuneytisins í Was- hington, segir Ritu og fjölskyldu hennar hafa yfirgefið heimili sín fyrir fellibylinn: „Þau fóru á hótel í Norður-Mississippi og sendu póstkort til ættingja sinna sem barst ekki fyrr en núna fyrir skömmu.“ Ólafur segir enn rafmagns- og símasambandslaust þar sem þau búa. Ekki sé ljóst hvenær þau snúa aftur heim. Allir Íslendingarnir sem um tíma var óttast um í kjölfar Katrínar hafa látið vita af sér og eru heilir heilsu. - gag 15. september 2005 FIMMTUDAGUR ENN ER SKORTUR Á STARFS- FÓLKI Í LEIKSKÓLUM REYKJA- VÍKUR Alls vantar 100 starfs- menn í leikskólana og 85 starfs- menn á frístundaheimili svo hægt sé að veita fulla þjónustu. Aukafjárveiting verður útfærð í borgarráði í dag. E N N E M M / S ÍA / N M 17 8 5 4 – er svari› Nú hafa 118, simaskra.is, Símaskráin og 1811 ö›last n‡tt líf undir merkjum Já. BRYNHILDUR ÓLAFSDÓTTIR Nýr for- stöðumaður Alþjóðamálastofnunar og Rannsóknaseturs um smáríki við Há- skóla Íslands. ÞÝSKALAND SPRENGJUHÓTUN Í MÜNCHEN Um 160 manns var hraðað út úr 290 metra háum Ólympíuturnin- um í München og nærliggjandi sundlaug í fyrradag eftir að mað- ur hótaði að sprengja turninn til grunna. Maðurinn stóð upp í veit- ingastaðnum í toppi turnsins og veifaði hlut sem virtist vera fjar- stýrður rofi. Hann var handtek- inn nokkru síðar eftir samninga- viðræður við lögregluna.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.