Fréttablaðið - 15.09.2005, Qupperneq 12
EÐALDRYKKUR Flaska af Frapin Cucee
1888 koníaki var afhjúpuð í London í gær.
Koníakið, sem blandað er úr ýmsum eðal-
veigum – þar á meðal koníaki frá árinu
1888 – er talið munu seljast á um 300 þús-
und krónur. Aðeins verða framleiddar 1888
flöskur og ekki þykir spilla fyrir að gullþræði
er vafið um flöskuna. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
12
LÖGREGLUMÁL Rannsókn á máli
konu sem hringdi inn sprengju-
hótun til Keflavíkurflugvallar í
byrjun ágúst er nú lokið hjá lög-
reglunni á Keflavíkurflugvelli.
Málið hefur verið sent til ríkissak-
sóknara, að sögn Jóhanns R. Bene-
diktssonar sýslumanns og mun
hann taka ákvörðun um hvort
ákært verður í því eða ekki.
Konan sem er á miðjum aldri
hefur verið svipt sjálfræði og
þykir vafi leika á hvort hún sé
sakhæf eða ekki. Það ræðst hjá
embætti ríkissaksóknara. Konan
hafði áður komið við sögu lög-
reglu þegar hún hringdi inn
sprengjuhótunina. Hún hringdi úr
farsíma og komst lögreglan fljót-
lega á spor hennar með því að
rekja símtalið. Konan reyndist þá
vera komin til Akureyrar þar sem
hún var handtekin og færð til yfir-
heyrslu, þar sem sprengjuhótun-
armálið leystist hratt og örugg-
lega. Henni var sleppt úr haldi að
því loknu.
Þeir sem fremja afbrot af
þessu tagi geta átt á hættu fang-
elsisvist allt að þremur árum. -jss
Þunguð krónprinsessa Danmerkur:
María á sjúkrahúsi
Menntaskólinn á Ísafirði:
Vi›tölum loki›
NÁM Lokið hefur verið við að taka
viðtöl við starfsmenn Mennta-
skólans á Ísafirði vegna úttektar
Félagsvísindastofnunar Háskóla
Íslands á stjórnunarháttum og
samskiptum innan menntaskól-
ans. Þetta kemur fram á frétta-
vefnum bb.is.
Snemmsumars fór Ólína Þor-
varðardóttir, skólameistari
Menntaskólans á Ísafirði, fram að
á opinber rannsókn yrði gerð á
starfs- og stjórnunarháttum henn-
ar við skólann vegna deilna við
Ingibjörgu Ingadóttur, ensku-
kennara við skólann. Mennta-
málaráðuneytið fól því Félagsvís-
indastofnun að framkvæma slíka
úttekt. Niðurstöðum verður skilað
til ráðuneytisins 20. október. - ss
VERKSUMMERKI Í BAGDAD Vegfarendur á vettvangi eins af mörgum sprengjutilræðum
gærdagsins.
ÍRAK, AP Á annan tug sprenginga
urðu í miðborg Bagdad í gær,
sem bönuðu að minnsta kosti 152
manns og særðu minnst 542.
Sprengingarnar byrjuðu með
stórri sjálfsmorðs-bílsprengju-
árás sem beint var gegn dag-
launamönnum sem safnast höfðu
saman á þessum stað í borginni í
von um að fá vinnu þann daginn.
Íraksdeild al-Kaída-hryðjuverka-
netsins lýsti ábyrgð á tilræðun-
um á hendur sér.
Fyrsta árásin var blóðugust.
Þá fórust minnst 88 manns og 227
særðust. Hún var gerð í Kazimi-
yah-hverfinu, en flestir íbúar þar
eru sjía-múslimar.
Í fyrrinótt voru sautján menn
teknir af lífi í þorpi norður af
Bagdad, en að þeim meðtöldum
var mannfallið í ofbeldisverkum
síðasta sólarhrings í Bagdad og
nágrenni komið upp í 169 manns.
Háttsettur foringi í banda-
ríska herliðinu í Írak tjáði AP-
fréttastofunni að hann teldi að
árásirnar væru hefnd fyrir
áhlaup bandarískra og íraskra
hersveita í norður-írösku borg-
inni Tal Afar, en markmiðið með
því var að svæla uppreisnarmenn
út úr fylgsnum sínum nærri
landamærunum að Sýrlandi. Ar-
abíska sjónvarpsstöðin Al-
Jazzeera hafði eftir talsmönnum
al-Kaída að þetta mat væri rétt.
Talið er að blóðbað gærdags-
ins hafi verið það næstmesta sem
orðið hefur í Írak frá því að
Bandaríkjamenn leiddu innrás í
landið vorið 2003. Ári eftir inn-
rásina, 2. mars 2004, dóu að
minnsta kosti 181 og 573 særðust
í samræmdum sprengjuárásum á
helgar moskur sjía-múslima í
Karbala og Bagdad.
Er ofbeldið blossaði svo illi-
lega upp á ný eftir tiltölulega ró-
lega tíð undanfarnar vikur sat
Íraksþing enn á rökstólum um
endurbætur á drögum að nýrri
stjórnarskrá, sem væru til þess
fallnar að koma til móts við
óánægju súnní-múslima, en það
eru herskáir menn úr þeirra hópi
sem eru uppistaðan í liði upp-
reisnarmanna.
Íraskir stjórnmálaleiðtogar
fordæmdu árásirnar. Husein al-
Shahristani, varaforseti þingsins,
sagði þær „villimannslegar og
hrottalegar“.
audunn@frettabladid.is
Al-Kaída:
Lykilmenn
handteknir
PAKISTAN, AP Öryggissveitir í
Pakistan yfirheyra nú 21 einstak-
ling sem grunaðir eru um aðild að
al-Kaída. Hópurinn var handtekinn
nú í vikunni í hernaðaraðgerðum í
norð-vesturhluta Pakistans. Safdar
Hussain herforingi vildi ekki nafn-
greina einstaklingana en sagði þó
að líklega væri um lykilmenn að
ræða. Staðurinn sem þeir höfðust
við á hefði verið vel búinn vopnum
og samskiptatækjum. „Al-Kaída
hörfar,“ sagði Musharraf, forseti
Pakistans, við CNN í gær. ■
15. september 2005 FIMMTUDAGUR
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
P
DANMÖRK María krónprinsessa af
Danmörku var lögð inn á háskóla-
sjúkrahúsið í Kaupmannahöfn í
gær vegna samdráttarverkja í
móðurlífinu. María á von á sér eft-
ir sex vikur. Frá þessu greindu
læknar og talsmenn hirðarinnar.
Líðan hinnar verðandi móður
var sögð góð, en að læknisráði
verður hún um sinn áfram á
sjúkrahúsinu.
Friðrik krónprins dvaldi nótt-
ina hjá sinni heittelskuðu. Öllum
embættisskylduverkum prinsess-
unnar hefur verið aflýst, að sögn
hirðarinnar.
María er mjög vinsæl meðal
Dana. Hún hitti Friðrik á
Ólympíuleikunum í Sydney árið
2000. ■
MARY Öllum embættis-
skyldum hefur verið aflýst.
RANNSÓKN LOKIÐ Rannsókn á sprengju-
hótun í Leifsstöð er lokið, að sögn Jóhanns
R. Benediktssonar sýslumanns.
Lögreglan á Keflavíkurflugvelli:
Sprengjuhótun til saksóknara
Al-Kaída veldur
bló›ba›i í Írak
Hátt á anna› hundra› manns féllu í Bagdad í
sprengjutilræ›um al-Kaída í Írak. fietta var annar
mannskæ›asti dagurinn frá innrásinni.
ÞORLÁKSHÖFN
HUMARVEIÐAR Í ÞORLÁKSHÖFN
Alls hafa 367 tonnum af heilum
humri hefur verið landað í Þor-
lákshöfn í ár en 18 bátar eru um
hituna. Aflahæsti humarbáturinn
er Fróði með 40 tonn.