Fréttablaðið - 15.09.2005, Page 18
Karlakórinn Ernir gefur út matreiðslubók:
Ernir eru kórréttir
„Siggi Hall má fara að vara sig,“
segir Magnús Ólafs Hansson, fé-
lagi í Karlakórnum Örnum sem
starfar á norðanverðum Vest-
fjörðum. Hann er einnig hug-
myndasmiðurinn að matreiðslu-
bókinni Kórréttir sem Ernir
hafa gefið út. Í bókinni má finna
yfir 100 uppskriftir sem kór-
félagar tóku saman. „Mér finnst
eins og félagar mínir í karla-
kórnum séu að skilja eitthvað
eftir sig annað en ánægjuna og
gleðina í söng og hafa gert það
núna með eftirminnilegum
hætti,“ segir Magnús en hver og
einn karl lagði til eina fisk- og
eina kjötuppskrift.
„Þetta eru óskaplegir mat-
gæðingar og það sést á nokkrum
þeirra,“ hlær Magnús sem segir
það skína í gegn í sumum upp-
skriftum hvernig höfundurinn
sé vaxinn.
Magnús hefur prófað nokkr-
ar af uppskriftunum og líkar
vel. Margt sé meira að segja
hvergi að finna nema í bókinni
góðu. Einn fiskréttanna heitir til
að mynda „Kúluð grásleppa úr
hjalli Magnúsar Ólafs Hansson-
ar“ og er úr smiðju Andrésar
Guðmundssonar, fyrsta tenór,
en signa grásleppuna á að grilla
hæfilega á útigrilli og bera fram
með soðnum kartöflum.
Þá er einnig hægt að fá upp-
skrift að steiktum þorskhrogn-
um, gellugratíni sem tekur viku
að útbúa og margt fleira. Þótt
nokkrir kórfélaganna hafi kom-
ið með eigin uppskriftir leituðu
flestir í smiðju eiginkonunnar,
mömmu eða jafnvel ömmu að
sögn Magnúsar.
Magnús ætlar að færa karla-
kórnum þessar bækur til fjár-
öflunar enda eru þeir á leið í
kórferðalag til Póllands næsta
sumar. Bókin verður gefin út í
450 eintökum og verður til sölu
hjá kórfélögum. ■
„Nei, ég hef ekki miklar áhyggjur af
verðbólgunni,“ segir Ásdís Rán Gunn-
arsdóttir fyrirsæta, spurð hvort hún
hafi þungar áhyggjur af hækkandi
verðbólgu og áhrifum þess á þjóðar-
búið. Hún telur að verðbólgan verði
fljót að jafna sig – að vissum for-
sendum gefnum. „Það þurfa allir að
spila rétt úr spilunum. Ráðamenn og
vinnuveitendur þurfa að taka saman
á málinu enda er það fyrst og fremst
í þeirra höndum,“ segir hún.
Ásdís Rán segist ekki fylgjast náið
með þróun verðbólgunnar og hefur
ekki kafað djúpt ofan í efnahagsmálin
enda einbeitir hún sér að umönnun
nýfædds sonar. Hún hefur þó ekki far-
ið varhluta af fréttaflutningnum síð-
ustu daga en tekur tíðindunum af ró.
„Þetta er ekkert til að hafa of miklar
áhyggjur af enda kemur alltaf verð-
bólga annað slagið,“ segir Ásdís Rán.
ÁSDÍS RÁN GUNNARSDÓTTIR
FYRIRSÆTA
Ekki miklar
áhyggjur
VERÐBÓLGAN
SJÓNARHÓLL
18
„Ég segi allt helvíti gott og líður mjög
vel,“ segir Júlíus Brjánsson, leikari og
smiður. „Ég er ekkert að leika þessa dag-
ana heldur að smíða suður í Hafnarfirði,“
segir Júlíus sem telur sig bráðlaghentan
og dverghagan enda ekki hár í loftinu
eins og hann bendir á.
„Mér finnst leiklistin ekki upphafið og
endirinn á lífinu fyrir mér,“ segir Júlíus
sem ber þó mikla virðingu fyrir listgrein-
inni. „Þegar gaman er í leiklistinni er
meira gaman en getur orðið en það er
líka svo margt annað í lífinu skemmti-
legt,“ segir Júlli sem fór á hestamanna-
mót til Svíþjóðar í sumar og fannst gam-
an þótt frammistaða mótshaldara hefði
ekki verið sem skyldi. „Svíarnir sem eru
þekktir fyrir nákvæmni, skipulag og áreið-
anleik klikkuðu á ýmsu,“ segir Júlíus sem
nýtti ferðina til að heimsækja þrjú af
börnum sínum sem búsett eru í Dan-
mörku. Flest barnabarna hans búa því
einnig erlendis og verður það til þess að
hann ferðast meira til útlanda en ella.
„Maður verður að halda tengslunum,“
segir Júlíus sem aldrei þessu vant fór
ekki í neina hestaferð í sumar. „Það
stendur þannig á hjá mér núna að ég er
með mjög unga hesta,“ segir Júlíus sem
finnst töluvert vanta á sumarið ef hann
kemst ekki í hestaferð.
Eins og flestir vita er Júlíus annar Kaffi-
brúsakallanna á móti Gísla Rúnari Jóns-
syni. „Það sér ekki fyrir endann á þessu
kaffibrúsaveseni,“ segir Júlli en þeir Gísli
skemmtu landanum í vor og allar líkur á
að kaffibrúsakarlarnir verði aftur á ferð-
inni í vetur.
Sér ekki fyrir endann á kaffibrúsasveseni
HVAÐ ER AÐ FRÉTTA? JÚLÍUS BRJÁNSSON LEIKARI OG SMIÐUR
nær og fjær
OR‹RÉTT„ “
Er fla› hægt e›a
ekki?
„Það má til dæmis gera með
því að lækka skatta þótt auð-
vitað sé það ekki fær leið
núna því þá er verið að gefa
ennþá meira í og auka kaup-
máttinn þannig.“
TRYGGVI ÞÓR HERBERTSSON, FOR-
STÖÐUMAÐUR HAGFRÆÐISTOFNUN-
AR HÍ, UM MÖGULEIKA Á KJARABÓT-
UM ÁN BEINNA LAUNAHÆKKANA.
fiá vitum vi› fla›
„Sálin er alltaf til staðar. Við
erum meðvitundarlaus í örm-
um hennar í djúpum draum-
lausum svefni.“
GUÐJÓN BERGMANN JÓGAKENNARI
Í GREIN Í MORGUNBLAÐINU UM
JÓGA.
Lögmaður Húseigendafélagsins stórorður:
Í stríð við
„siðblindan“
fasteignasala
Seldi syni
sínum íbúð
á kostnað
annars
kaupanda
15. september 2005 FIMMTUDAGUR
Haustið lætur á sér kræla:
Esjan or›in grá
Snjó festi á Esjunni í fyrrinótt, í
fyrsta sinn þetta haustið. Páll
Bergþórsson veðurfræðingur
segir snjóinn oft hafa verið sein-
na á ferðinni en nú en þó sé ekk-
ert óeðlilegt við að efri hlutar
Esjunnar séu orðnir hvítir enda
miður september. „Það er kallað
haustkálfar þegar fjöllin hvítna
svona,“ segir Páll sem býst við
að snjórinn hverfi að mestu
leyti enda er heldur hlýrra veðri
spáð næstu daga.
Börn og fullorðnir bjuggu sig
almennt betur til útiveru í gær-
morgun en síðustu daga enda
norðanáttin köld þótt hitastigið í
borginni væri um fimm gráður.
Húfur voru komnar á kolla og
trefla um hálsa en hendur ýmist
í vettlingum eða vösum.
- bþs
HAUSTKÁLFAR Nokkuð snjóaði í bæjarfjalli Reykjavíkur í fyrrinótt. Páll Bergþórsson veð-
urfræðingur spáir að snjóinn taki upp á næstu dögum enda gert ráð fyrir hlýnandi veðri.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
Hætt að framleiða
bláan Ópal:
Sorg greip um
sig í Su›urhlí›
„Þetta eru slæmar fréttir,“ segir
ónefnd kona, búsett í Suðurhlíð í
Reykjavík, um þá staðreynd að
hætt er að framleiða bláan Ópal.
Framleiðslu mikilvægasta bragð-
efnisins í bláum Ópal hefur verið
hætt og þrátt fyrir ítarlega eftir-
grennslan og rannsóknir sælgæt-
ismeistara Nóa Síríuss hefur ekki
fundist hliðstætt efni hjá öðrum
framleiðendum. Síðasta bláa
Ópalið hefur því verið sogið.
Framleiðsla blás Ópals hófst
fyrir rúmri hálfri öld og hefur
sælgætið fylgt íslensku þjóðinni í
gegnum þykkt og þunnt.
Áfram verður hægt að fá rauð-
an og grænan Ópal og boðar Nói
Síríus nýjungar í Ópal-línunni á
næstu vikum. - bþs
BLÁR ÓPAL Meira en hálfrar aldar sögu
þessa sígilda sælgætis er lokið.
KÓRRÉTTIR Karlakórinn Ernir starfar á norðanverðum Vestfjörðum og eru þær hundrað
uppskriftir sem finna má í nýju matreiðslubókinni af ýmsum toga.
GELLUR Í SPARIKJÓL
Finnbogi Bernódusson, 1. tenór
750 g gellur
250-500 g brokkolí
1 askja púrrulauks-smurostur
sojamjólk eða rjómi
jurtasalt og sítrónupipar
ostur
Setjið gellur og brokkolí í eldfast
mót og kryddið með jurtasalti og
sítrónupipar. Hrærið smurostinn
með sojamjólk eða rjóma eftir hvað
hver vill. Hellið yfir gellurnar í mótið,
setjið rifinn ost yfir og bakið í ofni
við 200 C í hálftíma. Berið fram
með hýðishrísgrjónum, speltbrauði
og salati.TIL Í ALLT Ernir eru hressir og greinilega
tilbúnir að prófa margt nýtt. Í vor sungu
þeir meðal annars á rokkhátíðinni Aldrei
fór ég suður ásamt þungarokkshljómsveit-
inni Appolo.