Fréttablaðið - 15.09.2005, Side 22

Fréttablaðið - 15.09.2005, Side 22
„Það er afar sárt að horfast í augu við það að spítali sem á að vera staður lækninga geti verið heilsu- spillandi fyrir starfsfólk með hug- sjónir, eins og ég tel mig vera.“ Þetta segir Elín Ebba Ás- mundsdóttir yfiriðjuþjálfi á geðsviði Landspítala - háskóla- sjúkrahúss. Hún kveðst vera búin að gefast upp í baráttunni – að sinni. Hún ætlar að gefa sér eitt ár, meðal annars til náms í Noregi, og sjá svo til hvern- ig henni líður gagnvart Landspítalanum. Íhuga hvort möguleiki sé á að hún haldi áfram að miðla þekk- ingu sinni og reynslu á þeim stað sem sem hún hefur unn- ið á í 24 ár. Hún segir tímann munu leiða það í ljós. Elín Ebba hefur barist ötullega fyrir málefnum geðsjúkra innan spítala og utan. Hún hafði, ásamt Auði Axelsdóttur iðjuþjálfa, yfir- umsjón með brautryðjendaverk- efni sem Hugarafl vann, en það er hópur geðsjúkra einstaklinga í bata. Verkefnið vakti mikla at- hygli og er vinna í framhaldi af því enn í gangi innan geðsviðs LSH. En Elín Ebba er ósátt: „Auðvitað er það mjög ánægju- legt að byggja eigi nýtt hátækni- sjúkrahús,“ segir hún. „En stund- um fæ ég á tilfinninguna að menn telji að þar liggi vandinn – í um- gjörðinni – í steinsteypunni. En ef þessu flotta sjúkrahúsi er ætlað að þagga niður þá óánægju sem hefur verið kraumandi, þá get ég fullyrt að það mun ekki bjarga neinu í þeim efnum.“ Eins og einkafyrirtæki „Landspítalinn er rekinn eins og einkafyrirtæki,“ heldur Elín Ebba áfram. „Menn eiga að vera trúir stofnuninni og fylgja línu yfir- stjórnarinnar. Framsækin fyrir- tæki eru aftur á móti háð því að hafa frumkvöðla, fólk sem tekst á og skiptist á skoðunum. Hörð skoðanaskipti leiða til nýsköpun- ar. Keppinauturinn er aðhaldið og menn gera hvað þeir geta til að halda í viðskiptin. Þetta aðhald hefur Landspítalinn ekki. Þar er eftirspurnin næg, þar aukast töl- urnar um afköst, inn- lagnatími styttist, sjúk- lingar lifa af og tekist hefur að halda utan um fjármagnið. Allt lítur vel út á yfirborðinu. En LSH er háskóla- sjúkrahús. Þar starfar fólk sem einnig kennir við heilbrigðisdeildir. Sannur há- skólamaður tekur þátt í þjóðfé- lagsumræðunni og er gagnrýninn á eigin störf og annarra. Þess vegna gengur ekki upp að þagga niður í mönnum. Það stríðir gegn eðli fræði- og vísindamannsins.“ Elín Ebba segir að eftir sam- einingu spítalanna hafi sviðsstjór- ar og millistjórnendur farið á alls konar námskeið þar sem þeir námu mikil fræði um nútíma- stjórnun. „En eftir þessi námskeið varð enn erfiðara að vinna á spítalan- um, því þá var maður orðinn svo meðvitaður um að þessi hug- myndafræði sem verið var að kenna, var ekki stunduð á Land- spítala - háskólasjúkrahúsi. Það þarf heldur ekki háskólamenntun til að gera sér grein fyrir áhuga- leysi, virðingarleysi og skorti á væntumþykju og einlægum áhuga í starfsumhverfinu. Allt þetta skortir á LSH. Það er ekki hægt að byggja upp fyrirtæki af neinu viti ef þennan grunn vantar. Þessi grunnur er líka mikilvægur í bata sjúklinganna.“ Aðferðir þöggunar „Það hefur aldrei verið eins mikil pýramídastjórnun á Landspítalan- um og í dag, sama hvað hver seg- ir. Sviðsstjórar hafa valdið, sem þeir ráða mismikið við. Stundum skýla þeir sér á bak við aðra. Sem dæmi má nefna, að vilji starfs- maður „stökkva yfir“ næsta yfir- mann sinn og ræða við yfirmann hans, þá er yfirmaður viðkomandi tekinn með í viðtalið. Fólk reynir þetta bara einu sinni, því þetta skilar engu. Svo hættir það, gefst upp. Þetta eru aðferðir þöggunar. Ég hef aldrei átt jafnmikla samleið með geðsjúkum og á síð- ustu árum því nú skil ég hvernig er að vera áhrifalaus, vandalaus og mæta fordómum. Elínu Ebbu er mikið niðri fyrir þegar hún ræðir þörfina fyrir uppbyggingu á jafningjagrund- velli innan spítalans, þannig að reynsla starfsfólks og sköpunar- afl nýtist sem best. En... „...ef raunverulegur áhugi væri fyrir teymisvinnu á spítalan- um þá myndi hún endurspeglast frá toppnum,“ segir hún. „En LSH er að þróast sem vinnustaður fyr- ir lækna og hjúkrunarfræðinga. Við hin megum vera með af því að þau eru háð okkur á vissum svið- um. En við megum ekki vera með í raunverulegum ákvörðunum. Við munum heldur ekki uppskera á sama hátt fyrir menntun, reynslu eða þekkingu.“ „Landspítalaveikin“ Umhverfið hafði þannig áhrif á mig um tíma að kraftur minn minnkaði,“ segir Elín Ebba. „Í staðinn læddist að kvíði sem teng- ist engu. Ég áttaði mig ekki á því að vinnuumhverfið væri að hafa slík áhrif á mig fyrr en læknir einn benti mér á að kannski ætti ég við „Landspítalaveikina“ að stríða. Ekkert ráð væri við henni, annað en að sætta sig við aðstæð- ur eða láta af lífsstarfinu. Það sem hefur haldið mér á floti er áhugi fólks utan spítalans á mínum hugmyndum, hvatning geðsjúkra sjálfra og aðstandenda þeirra að halda áfram. Fólk sem ég þekki ekki stoppar mig stund- um og þakkar mér fyrir innlegg mitt í umræðuna og biður mig um að gefast ekki upp. Mér þótti það skrítið í byrjun að fólk væri svo visst um að ég gæfist upp – en ég skil það núna.“ ,,En ef flessu flotta sjúkrahúsi er ætla› a› flagga ni›ur flá óánægju sem hefur veri› kraumandi, flá get ég fullyrt a› fla› mun ekki bjarga neinu í fleim efnum.“ 22 15. september 2005 FIMMTUDAGUR ELÍN EBBA ÁSMUNDSDÓTTIR Segir stefnu núverandi stjórnenda LSH vera að losa sig við „óþekktarangana“ og ráða nýtt fólk í staðinn. Óþekktarangarnir séu oftast einnig frumkvöðlar, þess vegna séu þeir erfiðir. Hinir, sem ekkert þora að segja en fylgi fjöldanum, verða eftir. Ebba vill fá umræðu um heilbrigðismálin. Nú sé kom- inn tími á þverfaglega sýn í heilbrigðis- pólitíkinni. Landspítalinn heilsuspillandi fyrir starfsfólk me› hugsjónir Yfiri›jufljálfi til 24 ára á Landspítala - háskólasjúkrahúsi er búinn a› gefast upp – í bili. Elín Ebba Ásmundsdóttir ræ›ir um orsakir áhugaleysis, vir›ingar- leysis og skorts á væntumflykju og einlægum áhuga í starfsumhverfinu á LSH. JÓHANNA S. SIGÞÓRSDÓTTIR jss@frettabladid.is FRÉTTAVIÐTAL fréttir og fró›leikur „Landspítal- inn er rekinn eins og einka- fyrirtæki“

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.