Fréttablaðið - 15.09.2005, Blaðsíða 26

Fréttablaðið - 15.09.2005, Blaðsíða 26
Verkaskiptingin milli einkafram- taks og almannavalds hefur verið í deiglunni víða um heiminn síðan 1980. Mörgum þótti þjóðnýting efnahagslífsins sums staðar ganga of langt áratugina eftir lok heims- styrjaldarinnar síðari 1945. Menn reyndu þá eftir föngum að rétta kúrsinn af með einkavæðingu ýmissa fyrirtækja, einkum eftir 1980. Þessi viðleitni skilaði yfir- leitt árangri, því að einkarekstur hefur ýmsa kosti umfram ríkis- rekstur, enda þótt markaðsbrestir kalli á sterkt almannavald, t.d. í menntamálum og heilbrigðis- og tryggingamálum. Málið snýst um meira en einkavæðingu: það snýst um að skerpa skilin milli stjórn- mála og annarra mála: atvinnulífs, bankarekstrar, fjölmiðlunar, rétt- arfars o.fl. Þjóðnýting hugarfarsins teygði anga sína víða á öldinni sem leið, en óvíða kvað þó eins rammt að henni og hér heima nema í komm- únistaríkjum. Allt þjóðlífið var undirlagt. Atvinnufyrirtækin, vinnuveitendasamtökin og verk- lýðsfélögin voru nánast deildir í stjórnmálaflokkunum, bankarnir voru ríkisbankar, dagblöðin voru flokksblöð, jafnvel dómskerfið var undir hælnum á framkvæmdavald- inu – og fólkið dansaði með. Ástandið hefur skánað, en of hægt. Samtök atvinnulífsins hegða sér enn eins og deild í stjórnmála- flokki og sýna engin merki um iðr- un, hvað þá bót og betrun. Á hinn bóginn virðist verklýðshreyfingin hafa slitið sig að mestu leyti lausa úr sinni gömlu vist og býst nú m.a.s. til að beita sér fyrir inn- göngu Íslands í Evrópusambandið. Bankarnir eru komnir úr ríkiseigu eftir langa mæðu, en ríkisstjórnar- flokkarnir drógu málið von úr viti og tóku þungan toll af bönkunum. Þrjú dagblöð af fjórum hafa nú engin sýnileg tengsl við stjórn- málaflokka. Dómskerfið situr á hinn bóginn undir alvarlegum ásökunum um hlutdrægni og nýtur trausts aðeins um þriðjungs þjóð- arinnar skv. mælingum Gallups. Vantraustið kemur ekki á óvart miðað við mannvalið í réttarsölun- um víða um landið og jafnvel í Hæstarétti. Almennt vantraust á lögreglu og réttarkerfi veikir stoð- ir réttarríkisins. Löggjöf um seðlabanka hefur breytzt til batnaðar í nálægum löndum undangengin ár og einnig hér heima með nýju seðlabanka- lögunum frá 2001. Höfuðmarkmið breytinganna var að auka sjálf- stæði seðlabankanna innan stjórn- kerfisins með því að reisa skorður við afskiptum stjórnmálamanna af framkvæmd peningastefnunnar og draga úr hættunni á því, að stjórn- málamenn beiti völdum sínum til að knýja seðlabankann til að prenta peninga til að fjármagna t.d. at- kvæðakaup fyrir kosningar. Þess vegna er stjórnmálamönnum hald- ið í fjarlægð frá seðlabönkum víðast hvar í öðrum löndum: þeir eru ekki aðeins taldir óhæfir, held- ur beinlínis vanhæfir skv. eðli málsins. Ísraelsmenn o.fl. hafa sótt seðlabankastjóra sína til útlanda til að draga sem mest úr hættunni á hagsmunatengslum bankastjóra við stjórnmálamenn og flokka inn- an lands. Við þetta er því að bæta, að seðlabankastjórn kallar í aukn- um mæli á yfirgripsmikla sérþekk- ingu á efnahagsmálum og fjármál- um – þekkingu af því tagi, sem menn hafa yfirleitt ekki tök á að afla sér og ná fullu valdi á, nema þeir séu annaðhvort þrautþjálfaðir hagfræðingar eða þaulreyndir bankamenn. Sjálfsráðning Davíðs Oddssonar í stöðu seðlabankastjóra gengur í berhögg við þessi sjónarmið og brýtur einnig gegn anda nýju seðlabankalaganna, sem ríkis- stjórn hans fékk samþykkt á Al- þingi 2001. Ráðning Jóns Sigurðs- sonar í stöðu seðlabankastjóra fyrir fáeinum misserum var sama marki brennd, og hið sama er að segja um ráðningu t.d. Birgis Ís- leifs Gunnarssonar og Steingríms Hermannssonar á sínum tíma, enda voru þeir ekki ráðnir til ann- ars en að greiða götu þeirra út af vettvangi stjórnmálanna. Slíkir menn eru ekki taldir henta til seðlabankastjórastarfa í nálægum löndum, ekki heldur í Afríku nema á stöku stað, og gildir þá einu, hversu vel þeir kunna að hafa reynzt í ólgusjó stjórnmálanna. Bill Clinton og George Bush kæmu ekki undir neinum kringumstæð- um til álita sem bankastjórar í Seðlabanka Bandaríkjanna, enda kunna þeir ekki til þeirra verka, sem þar eru unnin. Sama máli gegnir um Evrópulönd. En Seðla- banka Íslands er enn sem fyrr upp- álagt að lúta öðru lögmáli: þangað hafa stjórnmálamenn troðið sjálf- um sér og hverjir öðrum upp á efstu hæð mörg undangengin ár án þess að skeyta um þau sjónarmið, sem ráða ráðningum í slíkar stöður í öðrum löndum – fyrir nú utan vel- sæmisbrestinn. Þegar dregur að prófkjörum og vali forystumanna í stjórn- málum hellast yfir fólk ótrúlegustu birtingarmyndir af fram- bjóðendum. Svo er nú. Segja má að nokkrir frambjóðenda hafi þjófstartað og séu meira áberandi en samfélagið þolir með góðu móti. Af sumum er meira framboð en eftirspurn. Þar fer fremstur frambjóðandinn Gísli Marteinn Baldursson. Í fámennu samfélagi er hætta á að svona nokkuð gerist, að framboðið verði meira en eftirspurnin. Þetta á ekki bara við um fólk í stjórnmálum. Þetta er líka hættulegt með listafólk og íþróttafólk. Ábyrgð fjölmiðla er nokkur, en nú virðist sem hver fjöl- miðillinn á eftir öðrum telji sig ekki geta fjallað um málefni Reykjavíkurborgar án þess að Gísli Marteinn Baldursson, varaborgarfulltrúi og frambjóðandi í væntanlegu prófkjöri Sjálfstæðisflokks, sé kallaður til. Enn eru nokkrar vikur í prófkjörið sjálft og ef fer sem horfir eru allar líkur á að kjós- endur verði búnir að fá meira en nóg af frambjóðandanum þegar að sjálfu prófkjörinu kemur. Það er ekki endilega við Gísla Martein að sakast. Hann telur sig þurfa á athyglinni að halda og stekkur að hverri linsu og hverjum hljóðnema sem hann sér til og er boðið að. Fjölmiðlarnir geta ekki annað en spurt sig hvort þetta er rétt, gagnvart lesendum, áheyrundum og áhorfendum. Gísli Mart- einn er eflaust hinn ágætasti maður. En það er hægt að segja um marga aðra og einhvern veginn hefur mér virst sem hann sé ekki alltaf sá sem veit mest og veit best. Þess vegna hlýtur eitthvað annað að ráða því hversu oft frambjóðandinn er kall- aður til. Kannski eru hann og hans stuðningsfólk svona dæmalaust dugleg að troða honum í þætti og viðtöl. Ef svo er verða viðkomandi fjölmiðlar að hugsa sinn gang. Þó þetta eigi langbest við um Gísla Martein, til þessa, er það svo að aðrir frambjóðendur eiga eftir að fara sömu leið. Troða sér að hvar sem þeir sjá tækifæri til. Það verður að segjast eins og er að miklir hagsmunir eru í húfi hjá mörgum og það er svo sem sætt þegar mikið er lagt í að framtíðar- draumarnir gangi eftir, en það verður að gæta hófs. Það er eitt að ýmsir frambjóðendurnir kunni sér engin takmörk og það er svo annað að fjölmiðlar láti undan þrýstingi, aftur og aftur, frekar en að byggja fréttirnar upp með það sem við- komandi máli er best og eðliegast, en ekki láta þrýsting ein- stakra frambjóðenda ná völdum. Það er óheiðarlegt gagnvart notendum fjölmiðlanna og gerir fréttir og annað fjölmiðlaefni drepleiðinlegt þegar sama fólkið segir sömu hutina aftur og aftur. Svo verða uppáþrengjandi frambjóðendur að hugsa með sér hvort þögnin geti ekki verið happadrýgri en sama morfís- stefið, aftur og aftur. SJÓNARMIÐ SIGURJÓN M. EGILSSON Frambjóðendur eiga það til að skilja ekki muninn á magni og gæðum. Frambo› og eftirspurn FRÁ DEGI TIL DAGS Svo ver›a uppáflrengjandi frambjó›endur a› hugsa me› sér hvort flögnin geti ekki veri› happadr‡gri en sama morfísstefi›, aftur og aftur. Í DAG SEÐLABANKINN ÞORVALDUR GYLFASON Sjálfsrá›ning Daví›s Oddsson- ar í stö›u se›labankastjóra gengur í berhögg vi› flessi sjón- armi› og br‡tur einnig gegn anda n‡ju se›labankalaganna, sem ríkisstjórn hans fékk sam- flykkt á Alflingi 2001. Rá›ning Jóns Sigur›ssonar í stö›u se›la- bankastjóra fyrir fáeinum miss- erum var sama marki brennd, og hi› sama er a› segja um rá›ningu t.d. Birgis Ísleifs Gunnarssonar og Steingríms Hermannssonar á sínum tíma. Íslandsmeistarakeppni í Professionails naglaásetningum verður haldin í húsnæði naglaskólans að Hjallabrekku 1 í Kópavogi laugardaginn 24 september nk. Keppt verður í french naglaásetningu og naglaskreytingum. 1 verðlaun vöruúttekt 100.000 2 verðlaun vöruúttekt 50.000 3 verðlaun vöruúttekt 25.000 Þátttökurétt hafa allir fyrrverandi og núverandi nemendur naglaskólans og Snyrtiskólans í Kópavogi. Skráning í síma 588 8300 Sjálfsrá›ning í Se›labankanum Doktor Davíð? „Davíð gæti orðið besti Seðlabankastjór- inn“ segir í fyrirsögn greinar í Viðskipta- blaðinu í gær. Þetta er sannarlega upp- örvandi eftir reiðilestur hagfræðinganna og gáfumannanna sem telja að „fag- maður“ eigi að stjórna bankanum. Af hverju skyldum við Íslendingar þurfa að fara að fordæmi annarra þjóða og láta próf, menntun og sérþekkingu flækjast fyrir okkur? Er ekki nóg að vera af vík- ingakyni? Og spurning hvort nýi banka- stjórinn eigi ekki bara að taka upp á því að kalla sig „Doktor Davíð“ og gefa þannig nöldurskjóðunum langt nef. Fyrir slíku eru fordæmi. „Doktor Gunni“, sem svo kallar sig og skrifar pistla í DV, upp- lýsir í blaðinu í gær að hann sé gervi- doktor. Hann segist aldrei hafa verið í háskólanum. Þetta kemur væntanlega flatt upp á þá sem lesið hafa pistlana hans. „Doktorinn“ bætir við: „Ég hef enga sérstaka trú á menntun og veit sem er að fjölmargir snillingar eru nær ómenntaðir.“ Jamm. Leiddist stundum Steingrímur Hermannsson, fyrrverandi for- sætisráðherra, segir um Seðlabankaár sín í þriðja bindi ævisögu sinnar. „Það eina sem ég get fundið að starfsárum mínum í Seðlabankanum var að ég hef aldrei haft það jafnnáðugt í starfi á ævinni. Suma dagana nánast leiddist mér. Ég skildi betur hvað stundum hafði verið erfitt að ná í Tómas Árnason þegar vel viðraði fyrir golf. Ég hef hins vegar aldrei haft jafn góða vinnu- aðstöðu...“ Bætir síðan við: „Rólegheitin í Seðlabankanum höfðu þó sínar jákvæðu hliðar. Ég hafði betri tíma en nokkru sinni fyrr til að sinna áhugamál- um mínum og fjölskyldu. Ég fór að spila golf og fékk tíma til að sinna skógræktinni í Borgarfirði...“ Frá níu til fimm Líklega hefur „Doktor Davíð“ lesið ævi- sögu „Doktor Denna“. Á blaðamanna- fundinum góða í Valhöll sagðist nýi bankastjórinn vera latur að eðlisfari. Hann hlakkaði til að koma á vinnustað þar sem hægt væri að stimpla sig út klukkan fimm í stað þess að vera á sól- arhringsvakt. Nú gæti hann látið draum- inn um að skrifa skáldverk fyrir þjóð sína rætast. Það verður ekki amalegt ef við fáum í senn besta skáldið og besta bankastjórann úr því við þurftum að missa besta formanninn og besta for- sætisráðherrann. gm@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 – prentmiðlar RITSTJÓRI: Kári Jónasson FRÉTTARITSTJÓRI: Sigurjón M. Egilsson AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Jón Kaldal FRÉTTASTJÓRI: Arndís Þorgeirsdóttir VARAFRÉTTASTJÓRI: Trausti Hafliðason FULLTRÚI RITSTJÓRA: Guðmundur Magnússon RITSTJÓRNARFULLTRÚI: Steinunn Stefánsdóttir RITSTJÓRN OG AUGLÝSINGAR: Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík AÐALSÍMI: 550 5000 SÍMBRÉF Á FRÉTTADEILD: 550 5006 NETFÖNG: ritstjorn@frettabladid.is og auglysingar@frettabladid.is VEFFANG: visir.is UMBROT: 365 – prentmiðlar PRENTVINNSLA: Ísafoldarprent- smiðja ehf. DREIFING: Pósthúsið ehf. dreifing@posthusid.is Fréttablaðinu er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 LESTU GREININA Á VISIR.IS OG SEGÐU SKOÐUN ÞÍNA 15. september 2005 FIMMTUDAGUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.