Fréttablaðið - 15.09.2005, Page 30

Fréttablaðið - 15.09.2005, Page 30
Dúskar eru alveg málið í vetur og þá á hvers konar flíkur. Sérstaklega eru útifötin öll með dúskum og góður trefill og húfa í stíl með dúskum í sterkum litum lætur þig sigra tískuheiminn.[ ] Haustvörur Ný sending Laugavegi 25 • s: 533 5500 www.olsen.de Full búð af glæsilegum haustfatnaði Frábær verð Tískuvöruverslun Glæsibæ Sími 588 4848 Opið mán-fös 10-18 www.atson.is Brautarholti 4 Laugavegi 62 sími 511 6699 www.sjon.is sjon@sjon.is Gar›atorgi sími 511 6696 • 3-ja mán. skammtur • linsuvökvi • linsubox Linsutilboð 3.500,- aðeins SKARTHÚSIÐ Laugavegi 12, s. 562 2466 Haust 2005 Ný sending af húfum, treflum og vettlingum Haustlínan frá Pilgrim komin Sendum í póstkröfu Láttu flér ekki ver›a kalt Mikið úrval af sparilegum vetrarjökkum í verslunum. Það er farið að kólna í veðri og kominn tími til að leggja sum- arjakkann á hilluna. Víða í versl- unum má nú finna gott úrval af alls kyns jökkum og kápum og á úrvalið eftir að aukast eftir því sem líður á haustið. Tískan er skemmtileg. Tweed- jakkar eru áberandi og oft eru þeir skreyttir með loðkrögum eða blúndu. Þá er kósakkastíllinn einnig fyrirferðarmikill og kven- leikinn er allsráðandi. Mildir jarð- arlitir eru áberandi en inn á milli leynast skrautlegri jakkar í hressilegum litum, til dæmis túrkisbláu, grænu og fjólubláu. Margir af helstu hönnuðum heims sýna hönnun sína í London. London Fashion Week verður haldin 11. árið í röð dagana 18. til 22. september. Að venju verður mikið um dýrðir og af nógu er að taka fyrir þá sem vilja kynna sér hátískuna þessa daga. Þegar tískuvikan var fyrst haldin árið 1994 voru 15 tískusýningar. Síðan þá hefur hátíðin vaxið og dafnað og í ár verður boðið upp á 46 sýn- ingar á sýningarpöllum og 170 hönnuðir sýna vörur sínar á sér- stakri sýningu. Margir af þekkt- ustu hönnuðum heims ætla að leggja leið sína til London og gestir hátíðarinnar geta notið þess að sjá fatnað frá Burberry, Versace, Alexander McQueen og Dior svo fátt eitt sé nefnt. Þeir Íslendingar sem leggja leið sína til London meðan á tískuvikunni stendur ættu ekki að láta hana fram hjá sér fara. Allar nánari upplýsingar má nálgast á heimasíðu tískuvikunnar: www.londonfashionweek.co.uk. Tískuvika í London Margföld armbönd HEIDI KLUM HANNAR SKARTGRIPI Í MIÐ-AUSTURLÖNDUM. Þýska ofurfyrirsætan Heidi Klum er nýjasti hönnuðurinn í skartgripabrans- anum. Hún hefur gengið til liðs við Mouawad-skartgripahúsið og hannað fyrir þá línu sem samanstendur af þrjá- tíu og fimm dýrum og fínum skartgrip- um. Efniviður hennar er gull og hvíta- gull ásamt demöntum, safírum og rúbínum svo fátt eitt sé talið. Fyrr í vikunni var línan opnuð í verslun Mouawad í Sameinuðu arabísku fursta- dæmunum. Þar gat að líta margföld hálsmen og armbönd ásamt síðum eyrnalokkum. Skartgripahúsið var að vonum í skýjunum með línuna og sagt er að fágun Heidi Klum komi vel fram í skartgripum hennar. Kápa úr Top Shop, 11.990 kr. Sparilegur jakki með loðkraga, Vila 7.500 kr. Hlýlegur vetrar- jakki úr Retro, 13.990 kr. Fallegur blár jakki úr Vero Moda, 5.990 kr. Jakki úr Vero Moda 6.990 kr. Fatnaður úr haustlínu Alexanders McQueen. Hann er einn þeirra hönnuða sem sýna á tískuvikunni.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.