Fréttablaðið - 15.09.2005, Qupperneq 36
Í rauðri götu á Smiðjuvegi er mikið úrval
notaðra innanstokksmuna. Húsgögnin eru
vel valin, vel farin og á verði sem fær
pyngjuna til að fara í heljarstökk af
gleði.
Varla er þverfótað fyrir fallegum munum í
versluninni Skeifunni við Smiðjuveg í Kópa-
vogi. Þar eru húsgögn með hjarta sem hafa
upplifað ýmislegt og bjóðast nú væntanlegum eig-
endum á góðu verði. Mikið úrval er af sófum og stólum frá
alls konar tímum. Hvort sem stíllinn í stofunni er frá átt-
unda áratugnum, klassískur íslenskur eða nútímalegur –
allt er til. Skápa, borð og aðra fylgihluti stofunnar má
þar finna ásamt ljósakrónum og jafnvel rúmum. Verðið
er líka alveg frábært og tilvalið fyrir ungt fólk og aðra
sem ekki eiga peningatré að líta við í Skeifunni. Ferð í
verslunina er tilvalin leið til að eyða góðum eftirmið-
degi. Svo er um að gera að gefa sér góðan tíma því
leitin að rétta húsgagninu getur verið flókið þegar
margt er í boði.
Haustið er kom-
ið með alla sína
haustliti. Lauf-
blöðin eru farin
að hrynja af
trjánum og mó-
arnir orðnir fal-
lega rauðir. Það
er tilvalið að
taka þessa fal-
legu liti náttúr-
unnar og skreyta
með þeim innan-
dyra. Ef þú ætl-
ar að halda mat-
arboð nú á haust-
dögum er til
dæmis upplagt
að skreyta mat-
arborðið með
fallegum hlutum
úr náttúrunni.
Þ u r r k u ð
reyniber geta
verið mikil prýði
á borðinu og eins
getur verið
skemmtilegt að leggja þurrkuð
laufblöð yfir hvítan dúk til að
kalla fram notalega hauststemn-
ingu. Strá í vasa eða greinar af
gulnuðu kjarri setja líka
skemmtilegan svip á borðið.
Þeir sem ekki vilja færa nátt-
úruna inn til sín geta skapað
hauststemningu með því að setja
rauð kerti í vasa, nota servíettur
í haustlitunum og skrautlegan
dúk.
Ger›u matarbor›i›
haustlegt me› berjum
Það er tilvalið að skreyta heimilið með laufblöðum og berjum.
Rauðu reyniberin er tilvalið að nota sem borðskraut.
Ericur frá 650.-
Einnig fáanlegar
í fleiri litum
Hlíðarsmára 11, Kópavogi s: 565 1504
Opið frá 11-18 virka daga.
Lokað í sumar á laugardögum
Hinar vinsælu
dönsku bókahillur
komnar aftur
Tekk - Kirsuberja - Hlynur
Hringið og biðjið um mynda- og verðlista
www.bergis.is
Fallegar
silkierikur fyrir
veturinn
í þremur litum
kr 980.-
Sófaborð með marmaraplötu,18.000 krónur.
Sófi með útsaumuðu
áklæði, 30.000 krónur.
Yndisleg ljósakróna á góðu
verði, 18.000 krónur.
Sófasett frá áttunda áratugnum,
sófi og tveir stólar ásamt sófa-
borði, 45.000 krónur.
Vel farinn sjónvarpsskápur, 28.000 krónur.
Húsgögn frá öllum tímum